Morgunblaðið - 03.03.2005, Page 4

Morgunblaðið - 03.03.2005, Page 4
4 FIMMTUDAGUR 3. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Glæsilegt tilboð á síðustu sætunum í páskaferð til Costa del Sol þann 20. mars. Páskarnir eru einn fegursti tími ársins á suður-Spáni og þú getur tryggt þér síðustu sætin til þessa vinsælasta áfangastaðar Íslendinga í sólinni og búið við frábæran aðbún- að yfir hátíðina. Bókaðu núna og tryggðu þér sæti og 4 dögum fyrir brottför tilkynnum við þér hvar þú býrð. Traust þjónusta fararstjóra Heimsferða á staðnum allan tímann. Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Verð kr. 49.990 M.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára. Flug, gisting, skattar og íslensk fararstjórn. 20. mars í 2 vikur. Netverð. Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800. Munið Mastercard ferðaávísunina Stökktu til Costa del Sol um páskana 20. mars í 2 vikur frá kr. 49.990 Verð kr. 59.990 M.v. 2 í stúdíó/íbúð. Flug, gisting, skattar og íslensk fararstjórn. 20. mars í 2 vikur. Netverð. Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800. SAMKVÆMT þjóðmálakönnun Fé- lagsvísindastofnunar Háskóla Ís- lands sem unnin var fyrir Morg- unblaðið dagana 18.-24. febrúar sl. myndu 39,3% þeirra sem tóku af- stöðu kjósa Sjálfstæðisflokkinn ef gengið yrði til kosninga nú, 25,5% kjósa Samfylkinguna, 12,5% Fram- sóknarflokkinn, 16,5% Vinstri hreyfinguna grænt framboð og 5,8% Frjálslynda flokkinn. Alls myndu 4,2% ekki kjósa, 4,7% skila auðu, 12,6% neita að svara og 3,7% eru óvissir í afstöðu sinni. Þess má geta að könnunin var gerð fyrir flokksþing Framsóknarflokksins um nýliðna helgi. Þrjár spurningar voru lagðar fyr- ir svarendur um hvað þeir myndu kjósa ef alþingiskosningar yrðu haldnar á morgun. Þeir sem ekki svöruðu því hvaða flokk eða lista þeir myndu kjósa voru spurðir hvaða flokk þeir teldu líklegast að þeir myndu kjósa. Þeir sem ekki svöruðu því heldur voru að lokum spurðir hvort væri líklegra, að þeir myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern annan flokk. Niður- staðan að ofan er fengin með því að leggja saman spurningar 1-3. Sé eingöngu horft til þeirra sem svör- uðu fyrstu spurningunni, þ.e. hvaða flokk eða lista þeir myndu kjósa ef gengið yrði til kosninga á morgun, fengi Sjálfstæðisflokkur 42,1% at- kvæða þeirra sem tóku afstöðu, Samfylking 24,9%, Framsóknar- flokkur 11,5%, Vinstri hreyfingin grænt framboð 16,4% og Frjáls- lyndi flokkurinn 4,9%. Sé eingöngu horft til 2. spurningar, þ.e. hvaða flokk eða lista væri líklegast að fólk myndi kjósa, eru niðurstöðurnar álíka, Samfylking fengi 24,7%, Sjálf- stæðisflokkur 41,2%, Framsóknar- flokkur 12,1%, Vinstri hreyfingin grænt framboð 16,0% og Frjáls- lyndi flokkurinn 5,6%. Sé fylgið greint eftir því hvað menn kusu síðast kemur í ljós að 67,9% þeirra sem kusu Samfylkingu hyggjast kjósa hana aftur, 72,4% þeirra sem kusu Sjálfstæðisflokkinn ætla að gera það aftur og 71,9% þeirra sem kusu Vinstri græna ætla að kjósa flokkinn aftur. Alls hyggj- ast 50% þeirra sem kusu Frjáls- lynda flokkinn gera það aftur og 46% þeirra sem kusu Framsóknar- flokkinn í síðustu kosningum ætla að kjósa flokkinn aftur. Tæpur helmingur hyggst kjósa Framsókn aftur                                                                                          !    "  # TALIÐ er að hundur kunni að hafa keyrt bíl út í sjó á Eskifirði í gær- morgun. Samkvæmt upplýsingum fréttaritara Morgunblaðsins voru tildrög málsins þau að eigandi bíls- ins skildi hundinn sinn eftir í bíln- um á meðan hann skrapp til að sinna erindi í vigtarskúrnum við höfnina. Þegar hann kom aftur var bíllinn horfinn og hafði verið keyrður nokkra tugi metra eftir bryggjunni og út í sjó þar sem bíll- inn var á bólakafi. Aðeins sást glitta í fiskikarið sem var aftan á bílnum. Hafa menn velt því fyrir sér hvort hundurinn kunni að hafa tek- ið bílinn úr gír og hann því runnið beina leið út í sjó. Að sögn Friðjóns Magnússonar, hjá lögreglunni á Eskifirði, þurfti að kalla til kafara sem fór niður að bílnum og var hann því næst hífður upp með krana. Hundurinn, sem var í bílnum þegar hann fór út í sjó, fannst dauður í bílnum. Er málið í rannsókn hjá lögreglunni. Morgunblaðið/Helgi Garðarsson Kalla þurfti til kafara svo unnt væri að hífa bílinn upp úr sjónum. Keyrði hundurinn út í sjó? HALLDÓR Ásgrímsson forsætis- ráðherra lauk í gær tveggja daga op- inberri heimsókn sinni og fylgdarliðs til Danmerkur. Hann segir heim- sóknina hafa verið ánægjulega og tekist hafi að treysta enn frekar góð samskipti landanna. Fyrirtæki í eigu Íslendinga séu að gera góða hluti í Danmörku, hvort sem það er á sviði viðskipta, sjávarútvegs eða banka- starfsemi. Dagurinn í gær hófst með morg- unverðarfundi með Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Dana, þar sem rædd voru ýmis mál, að sögn Halldórs. Þaðan lá leiðin til Álaborg- ar þar sem Halldór ávarpaði við- skiptaráð borgarinnar. Flutti hann þar erindi um ýmis hagsmunamál Ís- lendinga og sat einnig fund með borgarstjóra Álaborgar. Halldór segir mikla ánægju ríkja á svæðinu með að fá íslensk fyrirtæki þar inn. Að fundi loknum heimsóttu Hall- dór og fylgdarlið fyrirtækin Carni- tech, sem er dótturfélag Marel, og Larsen Seafood, sem er í aðaleigu Sindra Sindrasonar, fv. forstjóra Pharmaco, og Eiríks Sigurðssonar, fv. framkvæmdastjóra 10-11 búð- anna. Hjá Carnitech starfa um 350 manns, m.a. nokkrir Íslendingar. Framleiðir fyrirtækið hágæða mat- vinnsluvélar og vinnslulínur fyrir sjávarútveg og landbúnað. Halldór segir það hafa verið stórkostlegt að sjá hvað Marel væri að ná miklum árangri í Danmörku. Hið sama væri að segja um Larsen Seafood. Þar fer fram vinnsla og sala á sjávarafurðum í neytendaumbúð- um, t.d. síld, laxi, rækjum, hrognum og lifur. Fyrirtækið veltir um 500 milljónum danskra króna í þremur verksmiðjum, sem alls veita um 250 manns atvinnu. Halldór segir að sök- um stærðar þessara íslensku fyrir- tækja séu þær mikilvægir hlekkir í atvinnulífinu á svæðinu. Danmerkurheimsókn forsætisráðherra lauk í gær Fyrirtækjum í eigu Íslendinga vegnar vel Halldór Ásgrímsson í heimsókn hjá Carnitech. Með honum eru m.a. Hörður Arnarsson, forstjóri Marel, Anni Vinther, borgarstjóri Stövring, Bolli Þór Bollason, ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu, Friðrik Jónsson sendi- ráðunautur og Torkild Christensen, forstjóri Carnitech, lengst til hægri.  Meira á mbl.is/itarefni GENGIÐ hefur verið frá nýjum kjarasamningi í álverinu í Straums- vík. Samningurinn felur í sér nokkr- ar breytingar frá samningi sem var felldur í síðasta mánuði, en þær lúta að bónusgreiðslum, greiðslu launa og orlofs- og desemberuppbótar. Kjarasamningurinn sem gerður var í febrúar var felldur með um 77% atkvæða. Gylfi Ingvarsson, að- altrúnaðarmaður starfsmanna í ál- verinu, sagði að nýi samningurinn byggðist á samningnum sem var felldur. Ekki væru gerðar breyting- ar á prósentuhækkunum. Hins veg- ar hefði verið sett gólf í bónus- greiðslur, en veruleg óánægja hefði verið með fyrirkomulag bónus- greiðslna í eldri samningi. Gylfi sagði að ennfremur hefðu orlofs- og desembergreiðslur verið hækkaðar. Greiðslurnar tengdust nú mánaðarlaunum. Samningurinn sem var felldur fól í sér um 20% kostnaðarhækkun fyrir álverið, en Gylfi sagði að kostnaður- inn við nýja samninginn hefði ekki verið reiknaður út. Beinar taxta- hækkanir eru 14%, en samningurinn gildir fram í nóvember 2008. Um 400 starfsmenn taka laun eft- ir samningnum. Samningurinn verð- ur kynntur í dag og atkvæði talin á miðvikudaginn. Breytingar gerðar á bónusgreiðslum JAFNRÉTTISNEFND Reykjavík- urborgar hvetur alþingi til að endur- skoða kynferðisbrotakafla hegning- arlaganna til að tryggja að kynfrelsi einstaklinga sé virt. Ályktun þess efnis var samþykkt í gær í tilefni af kandidatsritgerð Þorbjargar S. Gunnlaugsdóttur. „Í nýútkominni ritgerð Þorbjarg- ar S. Gunnlaugsdóttur til kandidats- prófs í lögfræði er fjallað um nauðg- un frá sjónarhóli kvennaréttar og varpað ljósi á þá staðreynd að ákvæði hegningarlaga um kynferð- isbrot hvíla ekki á afdráttarlausri viðurkenningu á kynferðislegu sjálfsforræði sérhvers einstaklings, heldur skiptir máli hver fremur brot- ið og með hvaða aðferðum það er framið.“ Svo segir: „Brotalamir réttarkerf- isins gagnvart þolendum kynferðis- brota, sem í flestum tilfellum eru konur og börn, koma einna skýrast fram í því að aðeins í örfáum tilvikum tekst að ljúka málum með sakfell- ingu. Þetta er óþolandi að mati jafn- réttisnefndar Reykjavíkurborgar og sýnir að þolendur kynferðisbrota njóta ekki nægilegrar réttarverndar í okkar samfélagi,“ segir í ályktun- inni. Kynfrelsi einstaklinga verði virt

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.