Morgunblaðið - 03.03.2005, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 03.03.2005, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 3. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Byggingaraðili: Söluaðili: Sandavað 1-5 - nýjar íbúðir í lyftuhúsi ásamt bílskýli 5 herbergja íbúðir Verð frá 24,5 millj. 80% fjárm. 19,6 millj. Áætl. afb.lána pr. mán. 88,200 kr. Mismunur gr. á byggtíma 4,9 millj. 4ra herb íbúðir Verð frá 19,5 millj. 80 % lán 15,6 millj. Áætluð afb. lána pr mán. 70,200 kr. Mismunur gr. á byggtíma 3,9 millj. 3ja herbergja íbúðir Verð frá 17,2 millj. 80% lán 13,7 millj. Áætluð afb. lána pr. mán. 61,000 kr. Mismunur gr. á byggtíma 3,5 millj. 2ja herbergja íbúðir (án bílskýlis) Verð frá 14,2 millj. 80% lán 11,3 millj. Áætluð afb lána pr mán. 51,000 kr Mismunur gr. á byggtíma 2,9 millj. Nýjar og glæsilegar 2ja-5 herbergja íbúðir á góðum stað í Norðlingaholtinu Húsið er fjögurra hæða með 3 stigagöngum og lyftu í hverju stigahúsi. Bílageymsla er undir húsinu. Húsið verður afhent fullfrágengið að utan með frágenginni lóð, bílastæðum og að öllu leiti fullbúið. Íbúðunum verður skilað fullbúnum að innan án gólfefna og flísalagnar. Síðumúla 27 - Sími 588 4477 - Fax 588 4479 Ingólfur G. Gissurarson lögg. fasteignasali Sjá nánar á www.nybyggingar.is/ www.valholl.is - Opið mán.-fimmtud. 9-17:30, föstud. frá kl. 9-17. Lokað um helgar. SJÁ GRUNNMYND Á WWW.NYBYGGINGAR.IS Þórarinn 899 1882 Bárður 896 5221 Ingólfur 896 5222 Ellert 893 4477 ÞAÐ virðist af nógu að taka þegar umræðuefni þessara ungu náms- meyja í Austurbæjarskóla er ann- ars vegar. Frímínúturnar eru auðvitað helst notaðar til að spjalla saman um það sem skiptir máli á þessum aldri en líka til að virða fyrir sér skólafélag- ana, kannski helst strákana. Morgunblaðið/Eggert Beðið við grindverkið DAVÍÐ Oddsson utanríkisráðherra segir að það hafi staðið til að fulltrúi frá sendiráði Ís- lands í Japan færi með íslenska vegabréf Bobbys Fischers skák- meistara til hans í innflytjendabúð- unum í Japan. Yf- irmenn búðanna hefðu á hinn bóg- inn bent á að það væri brot á diplómatískum reglum, þ.e. erlendir sendifulltrúar hefðu ekki leyfi til að hafa samskipti við menn í búðunum. „Við höfum skoðað þær fullyrð- ingar og teljum að þær séu réttar hjá japönskum yfirvöldum,“ segir Davíð. Hann segir að þetta þýði að íslensk stjórnvöld yrðu að fá und- anþágu frá reglunum til að koma vegabréfinu til Fischers. „Gert allt sem í okkar valdi stendur“ Spurður hvort stjórnvöld íhugi að sækja um slíka undanþágu segir hann: „Við erum ekki farin að hug- leiða það. En aðalatriðið er að vega- bréfið er þarna ef hann verður látinn laus.“ Vísar hann til þess að vega- bréfið sé í vörslu íslenska sendiráðs- ins í Japan. Davíð leggur áherslu á að íslensk stjórnvöld hafi svarað beiðni Fisch- ers um dvalarleyfi, þ.e. þau hafi veitt honum dvalarleyfi og þar með vega- bréf til Íslands. „En við erum ekki að krefjast þess af ríkisstjórn Jap- ans að hann sé framseldur hingað eða fluttur hingað á okkar vegum. Við höfum ekkert vald til þess eða stöðu. Við höfum bara svarað hans beiðni og gert allt það sem í okkar valdi stendur til þess að uppfylla hana.“ Davíð Oddsson utanríkisráðherra um mál Bobby Fischers Stóð til að koma vega- bréfinu til Fischers Davíð Oddsson SÆMUNDUR Pálsson, stuðnings- maður og vinur skákmeistarans Bobbys Fischer, fékk ekki að hitta Fischer þegar hann fór í gær í innflytjendabúð- irnar þar sem japönsk stjórn- völd hafa skák- snillinginn í haldi. „Við vorum komin í búðirnar, ég, kærasta Fischers og fréttamenn- irnir sem eru með mér. Ég var búinn að taka númer og það var alveg að koma að mér að fá að fara inn, þegar allt í einu kom tilkynning um að þeir leyfðu engar fleiri heimsóknir til Fischers af öryggisástæðum,“ sagði Sæmundur, sem var að vonum mjög vonsvikinn þegar Morgunblaðið ræddi við hann fyrir hádegi í gær. Þá var hann kominn á hótel sitt, enda komið kvöld í Japan. Sæmundur kvaðst ætla að reyna aftur að fá að hitta Fischer í dag. Þegar hann spurði í gær hvort það gæti gengið varð fátt um svör. „Ég fékk fund með yfirmanni búðanna þar sem við ræddum þetta fram og til baka. Ég spurði hvort þeim fynd- ist eðlilegt að koma svona fram við mann sem hefði ferðast um hálfan hnöttinn til að hitta vin sinn, sem hann hefði ekki séð í 33 ár. Þá vildu þeir ekkert svara því hvort ég fengi að hitta hann á morgun [í dag]. Ég sagði honum að ég væri steinhissa á þessari framkomu, hefði unnið með Japönum við Búrfellsvirkjun fyrir fjörutíu árum og þeir hefðu verið hinir prúðustu menn í alla staði. Ég held að þeir hafi verið að gera vitleysu með því að banna okkur að hitta hann. Þetta skaðar þeirra mál- stað.“ Sæmundur hitti Þórð Ægi Ósk- arsson, sendiherra Íslands í Japan, í gærmorgun og fóru þeir yfir mál Fischers. Sæmundur segir að vega- bréf Fischers hafi enn verið niðri í skúffu hjá sendiherranum, en sendi- herrann hafi sagst ætla að ræða við stjórnvöld á Íslandi um hvert fram- haldið á málinu yrði. Blaðamannafundi sem halda átti um mál Fischers í Tókýó í gær var frestað fram á föstudag. Fékk ekki að hitta Fischer Sagt að engar heimsóknir væru leyfðar af öryggisástæðum Sæmundur Pálsson ÁRNI Þór Vigfússon neitaði í gær sök í máli sem ríkislögreglustjóri hef- ur höfðað gegn honum og fjórum öðr- um vegna meintra undanskota á um 56 milljónum. Hin meintu brot voru framin í rekstri fimm eignarhalds- félaga; Lífstíls, Planet Reykjavík, Kaffi Le, Ísafoldarhússins og Japis, að mestu á árunum 2002–2003. Málið var þingfest 3. febrúar en þá tók Árni Þór sér frest til að taka af- stöðu til ákæru um að hann hafi í fé- lagi við aðra ekki staðið skil á um 14 milljónum króna af innheimtum virð- isaukaskatti og opinberum gjöldum. Fyrrverandi framkvæmdastjóri Japis neitaði einnig sök Við fyrirtöku málsins í gær kom jafnframt fyrir dóm fyrrum fram- kvæmdastjóri Japis sem ekki mætti við þingfestinguna. Er hann sakaður um að hafa ásamt Kristjáni Ragnari Kristjánssyni, ekki staðið skil á virð- isaukaskatti að fjárhæð 10 milljónir og opinberum gjöldum að fjárhæð um 12,5 milljónir. Hann neitaði sök og sagðist hvorki hafa haft yfirumsjón með bókhaldi fyrirtækisins né annast daglega stjórn þess á þessu tímabili. Þeir Árni Þór og Kristján Ragnar fengu fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjavíkur í tengslum við Land- símamálið svokallaða á síðasta ári. Tveir aðrir, sem eru ákærðir í þessu máli, voru einnig dæmdir til refsingar þá. Þeim dómi var áfrýjað til Hæsta- réttar og er dóms að vænta í lok febr- úar. Ákveðið var í gær að fresta aðal- meðferð þar til dómur lægi fyrir og er gert ráð fyrir að hún fari fram 19. maí. Neitar sök í skatt- svikamáli NÝ KÖNNUN stúdentafélaga Tækniháskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík á viðhorfum nemenda gagnvart fyrirhugaðri sameiningu sýnir að mikill meirihluti nemenda er hlynntur sameiningunni. Um 82% nemenda í báðum skólum telja að áhrif sameiningarinnar á námsfram- boð verði jákvæð og um 75% telja að áhrif á inntak námsins, gæði kennsl- unnar og á félagslíf verði jákvæð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá VISKU, stúdentafélagi HR og Technis, stúdentafélagi THÍ. Skora félögin á þingmenn að af- greiða sem fyrst það frumvarp vegna niðurfellingar laga um Tækniháskólann. Segja félögin að frumvarpið sé forsenda þess að hægt verði að sameina skólana tvo. Frest- un sameiningar skólanna skapi óþol- andi óvissu fyrir 2.500 nemendur. Frestun skapar óvissu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.