Morgunblaðið - 03.03.2005, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 03.03.2005, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 3. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR VALGERÐUR Sverrisdóttir við- skiptaráðherra lagði fram tvö frum- vörp á Alþingi í gær, annars vegar um ný samkeppnislög og hins vegar frumvarp um Neytendastofu og tals- mann neytenda. Með nýjum sam- keppnislögum er gert ráð fyrir að leggja Samkeppnisstofnun og sam- keppnisráð niður og setja á fót Sam- keppniseftirlitið. Áfrýjunarnefnd samkeppnismála starfar áfram og skulu starfsmönnum Samkeppnis- stofnunar verða boðin störf hjá Sam- keppniseftirlitinu, ef þeir kjósa. Eiga lögin að taka gildi um mitt þetta ár, eða frá 1. júlí næstkomandi. Samkeppniseftirlitinu er ætlað að taka við verkefnum Samkeppnis- stofnunar og stórum hluta verkefna samkeppnisráðs. Frumvarpið um samkeppnislögin var samið með hliðsjón af niðurstöðum nefndar um stefnumótun íslensks viðskiptaum- hverfis, sem skipuð var fyrir rúmu ári. „Bastarður“ tekinn út Í frumvarpinu er lagt til að Sam- keppniseftirlitið fái skýrar laga- heimildir til að krefjast þess að fyr- irtæki sem brotið hafa gegn ákvæðum samkeppnislaga breyti skipulagi sínu. Ákvæði gildandi laga eru ekki talin veita samkeppnisyfir- völdum nægilega skýrar heimildir til að krefjast skipulagsbreytinga. Jafnframt er lagt til að sú grein gildandi samkeppnislaga, sem veitir samkeppnisráði heimild til að grípa til aðgerða gegn aðstæðum sem hafa skaðleg áhrif á samkeppni, verði felld brott þar sem talið sé að ef ákvæðið yrði óbreytt í lögum yrðu heimildir Samkeppniseftirlitsins til að krefjast skipulagsbreytinga hjá fyrirtækjum of víðtækar. Valgerður Sverrisdóttir segir að þetta ákvæði hafi komið inn í sam- keppnislögin árið 1993 og ætíð síðan verið „hálfgerður bastarður“. Það hafi heldur ekki verið í samræmi við samkeppnisrétt og samkeppnislög annarra þjóða. Ákveðið hafi verið að taka það út og setja inn betur skil- greint ákvæði. Valgerður segir að í kröfu um skipulagsbreytingu sé m.a. átt við að skipta fyrirtækjum upp ef talið er að þau hafi brotið samkeppnislögin ítrekað. Að öðru leyti sé það skil- greiningaratriði hvernig samkeppn- isyfirvöld nýti þessa heimild. Frumvarpið byggist sem fyrr seg- ir m.a. á niðurstöðum nefndar um stefnumótun íslensks viðskiptaum- hverfis. Nefndin klofnaði í afstöðu sinni til þess hvort veita skyldi sam- keppnisyfirvöldum heimild til að krefjast þess að fyrirtækjum yrði skipt upp, brytu þau samkeppnislög. Skilaði einn nefndarmaður, Þórdís Sigurðardóttir, séráliti þar sem hún taldi ekki rétt að veita samkeppn- isyfirvöldum slíkar heimildir. Í 16. grein laganna segir: „Að- gerðir Samkeppnisstofnunar geta falið í sér hverjar þær ráðstafanir sem nauðsynlegar eru til að stöðva brot gegn ákvæðum laganna eða bregðast við athöfnum opinberra að- ila sem kunna að hafa skaðleg áhrif á samkeppni. Samkeppniseftirlitið getur beitt úrræðum bæði til breyt- ingar á atferli og skipulagi, í hlutfalli við það brot sem framið hefur verið og nauðsynlegt telst til að stöðva það í reynd. Þó er einungis heimilt að beita úrræðum til breytingar á skipulagi ef sýnt þykir að ekki sé fyrir hendi árangursríkt úrræði til breytingar á atferli eða þar sem jafnárangursríkt úrræði til breyt- ingar á atferli væri meira íþyngjandi fyrir hlutaðeigandi aðila en úrræði til breytingar á skipulagi.“ Í athugasemdum með frumvarp- inu kemur m.a. fram að tillaga nefndarinnar um heimildir til að krefjast skipulagsbreytinga hafi verið í samræmi við breytingar sem nýlega hafi verið gerðar á sam- keppnisreglum Evrópusambandsins og norskum samkeppnislögum. Sambærilegar heimildir sé að finna í fleiri löndum, m.a. Bretlandi, Írlandi og Bandaríkjunum, auk þess sem fyrir liggi tillögur um slíka löggjöf í Þýskalandi. Þá hafi tillagan einnig verið í samræmi við þær heimildir Samkeppnisstofnunar, sem iðulega hafi verið beitt til að krefjast skipu- lagsbreytinga hjá opinberum stofn- unum sem stunda samkeppnisrekst- ur. Ekki orðið við tillögu um leit á heimilum stjórnenda Nefndin lagði einnig til að sam- keppnisyfirvöldum yrðu veittar rík- ari heimildir til vettvangsrannsókna, þar á meðal á heimilum, landsvæð- um eða flutningatækjum í eigu stjórnarmanna, framkvæmdastjóra og annarra starfsmanna hlutaðeig- andi fyrirtækja og samtaka fyrir- tækja. Lagði nefndin þó áherslu á að vettvangsrannsóknir mætti ekki framkvæma nema fyrir lægi dóms- úrskurður, og að fundin yrði leið til að lögreglan kæmi að slíkri vett- vangsrannsókn. Þessar tillögur er ekki að finna í frumvarpinu og spurð um skýringar á því segir Valgerður að í umsagn- arferlinu hafi komið fram athuga- semdir við þetta ákvæði og þess vegna hafi það verið tekið út. Einnig hafi þessi heimild ekki verið innan tilskipunar frá Evrópusambandinu. Því hafi ekki fundist leið til að setja þetta ákvæði inn með nógu skýrum hætti í lögum. Bendir Valgerður á að nefnd forsætisráðherra sé að störf- um sem hafi verið ætlað að skoða samskipti samkeppnisyfirvalda, lög- reglu og Fjármálaeftirlitsins í refsi- réttarlegu tilliti. Útilokar Valgerður ekki að ákvæðið verði tekið inn síðar, enda byggist frumvarpið nú ekki á heildarendurskoðun á samkeppnis- lögunum. ESA má framkvæma leit Samkvæmt frumvarpinu er Eftir- litsstofnun EFTA, ESA, heimilt að framkvæma vettvangsskoðun hjá ís- lenskum aðilum. Fulltrúum ESA og framkvæmdastjórnar Evrópusam- bandsins er heimilt að vera viðstadd- ir og taka þátt í vettvangsrannsókn- um sem Samkeppniseftirlitið framkvæmir, innan þeirra marka sem EES-samningurinn setur. Einnig eru í frumvarpinu breyt- ingartillögur sem leiða af aðild Ís- lands að EES-samningnum. Þá er lagt til að bætt verði við ákvæði þess efnis að Samkeppniseftirlitið skuli birta skýrslur um athuganir sínar og grípa til aðgerða til að stuðla að virkri samkeppni þar sem það er nauðsynlegt. Sömuleiðis er lagt til að þau verk- efni sem nú heyra undir samkeppn- isyfirvöld og lúta að eftirliti með óréttmætum viðskiptaháttum og gagnsæi markaðarins, verði ekki unnin í sömu stofnun og þau verkefni sem snúa sérstaklega að samkeppn- ismálum. 60 milljónum meiri kostnaður og sérfræðingum fjölgað Samkvæmt umsögn fjármálaráðu- neytisins mun efling Samkeppniseft- irlitsins kosta um 60 milljónir króna. Í því felst að sérfræðingum fjölgi um sjö, eða úr 10 í 17 á tveimur árum. Í núverandi fjárlagafrumvarpi liggur nú þegar fyrir tillaga um 20 milljóna króna framlag til eflingar samkeppn- issviði Samkeppnisstofnunar. Verði frumvarpið óbreytt að lögum áætlar ráðuneytið að kostnaður aukist sam- tals um 60 milljónir, sem skiptist á árin 2005 og 2006. Viðskiptaráðherra segir að þetta sé ein mikilvægasta breytingin í nýju lögunum. Ný frumvörp til samkeppnislaga, um Neytendastofu og talsmann neytenda Krafa um að brotleg fyrir- tæki breyti skipulagi sínu Samkeppnis- stofnun og sam- keppnisráð lögð niður frá 1. júlí í sumar og Sam- keppniseftirlitið stofnað Morgunblaðið/Kristinn Frumvarpið til samkeppnislaga byggist m.a. á niðurstöðum nefndar um stefnumótun íslensks viðskiptaumhverfis sem klofnaði í afstöðu sinni til þess hvort veita skyldi heimild til að krefjast þess að fyrirtækjum yrði skipt upp. NEYTENDASTOFA er ríkisstofnun sem á að starfa að stjórnsýsluverkefnum á sviði neytendamála, vöruörygg- ismála, opinberrar markaðsgæslu, mælifræði og raf- magnsöryggismála. Tekur stofan við verkefnum Löggildingarstofu og verkefnum Samkeppnisstofnunar í neytendamálum en í frumvarpi viðskiptaráðherra kemur fram að áætlað sé að færa a.m.k. sex starfsmenn Samkeppnisstofnunar, sem hafa sinnt neytendaverkefnum, yfir til Neyt- endastofu. Jafnframt verður komið á fót áfrýjunarnefnd neytendamála. Neytendastofu er ætlað að annast framkvæmd laga um eftirlit með óréttmætum viðskiptaháttum og gagnsæi markaðarins og laga um öryggi vöru og op- inbera markaðsgæslu. Stofunni er einnig ætlað að ann- ast dagleg störf og undirbúning mála fyrir talsmann neytenda, fara með rafmagnsöryggismál, yfirumsjón með lögmælifræði og sjá um framkvæmd laga um vog, mál og faggildingu. Talsmanni neytenda er ætlað að standa vörð um hags- muni og réttindi neytenda og stuðla að aukinni neyt- endavernd. Mun hann taka við erindum neytenda, bregð- ast við ef hann telur brotið gegn réttindum neytenda, gefa út rökstuddar álitsgerðir ásamt tillögum um úrbæt- ur, setja fram tillögur um úrbætur á lögum og kynna lög- gjöf er varðar neytendamál.Í frumvarpinu kemur fram að gerð sé krafa um að talsmaður neytenda hafi háskóla- próf og þekkingu eða reynslu af neytendamálum. Þó að talsmanninum sé ætlað að koma með álit í mál- um, líkt og umboðsmaður Alþingis, er ekki gerð krafa um að hann hafi lögfræðipróf. Að sögn viðskiptaráð- herra var ekki talin þörf á því þar sem talsmaður neyt- enda muni hafa stuðning og aðstoð frá starfsmönnum Neytendastofu sem búi sumir hverjir yfir lögfræði- menntun, jafnvel þótt talsmanninum sé ætlað að starfa sjálfstætt. Reiknað er með að frá gildistöku laganna 1. júlí nk. verði starfsmönnum Löggildingarstofu boðið annað starf hjá Neytendastofu. Kostar 58,5 milljónir Samkvæmt kostnaðarmati fjármálaráðuneytisins mun hluti Neytendastofu ásamt talsmanni neytenda kosta 58,5 milljónir króna. Þar af eru 3,5 milljónir vegna flutn- inga og áfrýjunarnefndar neytendamála, 42 milljónir færast frá núverandi Samkeppnisstofnun og loks eru 13 milljónir vegna embættis talsmanns neytenda. Verði frumvarpið að lögum mun kostnaður ríkissjóðs aukast um 16,5 milljónir, þar af eru 14,5 milljónir varanlegur rekstrarkostnaður. Neytendastofa í stað Löggildingarstofu NÚ LIGGUR fyrir að Íslendingar munu greiða fyrir flutning með flug- vélum á rúmlega 500 tonnum af vopnum og skotfærum sem Slóvenar gefa Írökum. Kostnaður verður um 40 milljónir króna, sagði Davíð Oddsson utanríkisráðherra í utan- dagskrárumræðu á Alþingi í gær. Er þetta hluti af stuðningi Íslands við þjálfun íraskra öryggissveita, þ.e. lögreglu og her, á vegum Atlants- hafsbandalagsins, að því er fram kom í máli Davíðs. Auk þessa hefur Ísland lagt rúm- lega 12 milljónir króna í sjóð banda- lagsins sem greiðir ferðir og uppi- hald manna úr íröskum öryggissveitum, vegna þjálfunar ut- anlands. Davíð minnti einnig á að ríkis- stjórnin hefði samþykkt í apríl árið 2003 að verja allt að 300 milljónum króna í neyðar- og mannúðaraðstoð og stuðning við uppbyggingarstarf í Írak. Þegar hefðu 100 milljónir verið lagðar fram til uppbyggingarsjóða Alþjóðabankans og Sameinuðu þjóð- anna. Jafnframt væri verið að skoða möguleikana á því að kaupa gervi- limi frá fyrirtækinu Össuri fyrir um áttatíu milljónir. Þá væri verið að skoða möguleikana á því að styrkja sérstaklega stöðu kvenna og fjöl- skyldna í Írak í samvinnu við UNI- FEM og fleiri aðila. Steingrímur J. Sigfússon, formað- ur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, málshefjandi umræðunn- ar, gagnrýndi þennan stuðning ís- lenskra stjórnvalda við hergagna- flutninga til íraks. „Mikið hlýtur þjóðinni að líða betur að vita af þessu framlagi sínu,“ sagði hann. Greiða fyrir flutninga á 500 tonnum af vopnum ♦♦♦ DAVÍÐ Oddsson, utanríkisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, segist aðspurður ekki sjá neinar breytingar á Evrópustefnu Fram- sóknarflokksins, eftir flokksþing framsóknarmanna um helgina. „Ef þessi texti liggur til grundvallar þá er engin breyting - ekki ef ég er læs - þá er það ekki,“ sagði hann í samtali við Morgunblaðið í gær. Tekist var á um ályktun um aðild- arviðræður við Evrópusambandið á flokksþingi framsóknarmanna um helgina og var eftirfarandi setning í Evrópukafla utanríkismálaályktun- ar þingsins að lokum samþykkt: „Á vettvangi Framsóknarflokksins skal halda áfram upplýsingaöflun og vinnu við mótun samningsmarkmiða og hugsanlegs undirbúnings aðildar- viðræðna við Evrópusambandið. Niðurstöðu þeirrar vinnu skal bera undir næsta flokksþing - til kynning- ar.“ Breytum ekki stefnu vegna rottueiturs Davíð segir aðspurður um EES- samninginn að það þurfi í sjálfu sér ekki að gera neinar breytingar á honum. „Hann stendur alveg fyrir sínu og er í fullu gildi. Það er mat okkar í utanríkisráðuneytinu og það er mat forystumanna Evrópusam- bandsins - þannig að ég sé ekki nein vandamál í því efni. Ég hef stundum heyrt að hann hafi veikst eða staðnað og ég hef beð- ið um skýringar á því. Ég hef einu sinni fengið einhverjar upplýsingar um að það hafi verið einhver vanda- mál varðandi rottueitur og einhvern tíma um tvírása skólprör - en við breytum ekki stefnu í utanríkismál- um okkar þjóðar vegna rottueiturs eða tvískólpa rörs.“ Engin breyting á Evrópu- stefnunni  Meira á mbl.is/itarefni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.