Morgunblaðið - 03.03.2005, Síða 11

Morgunblaðið - 03.03.2005, Síða 11
í Lyf & heilsu Kringlunni 3. - 9. mars Diorshow dagar Förðunarmeistari á staðnum Gitte Lindgren förðunarmeistari Dior verður í versluninni í dag og á morgun og sýnir allt það flottasta í förðun. Gjöf til þín* Þegar þú verslar fyrir 5.000 kr. eða meira bíður þín glæsileg gjöf frá Dior. Þrír heppnir fá vinning* Þú gætir unnið gjafakörfu frá Dior að verðmæti 25.000 kr. með því einu að versla fyrir 2.000 kr. eða meira og setja nafn þitt í pottinn. *G jö fo g ha pp ad ræ tt ia ðe in s íb oð iá D io rs ho w dö gu m . Dior vörur að verðmæti 25.000 kr. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2005 11 FRÉTTIR ÁRNI Magnússon félagsmálaráð- herra ávarpaði á þriðjudag 49. fund kvennanefndar Sameinuðu þjóð- anna, sem nú er haldinn í New York. Fundurinn er tileinkaður mati á framkvæmd Peking-áætlun- arinnar, sem samþykkt var á kvennaráðstefnunni 1995, og niður- stöðu 23. aukaallsherjarþings Sam- einuðu þjóðanna, sem haldið var ár- ið 2000. Í ávarpi sínu fjallaði ráðherra m.a. um áhrif stríðsástands á stöðu kvenna og stúlkna. Hann ræddi einnig um mansal kvenna og ábyrgð allra ríkja í því sambandi. Þá lagði ráðherra áherslu á mikilvægi þess að vinna gegn launamisrétti kynjanna og greindi frá sjálfstæð- um rétti feðra á Íslandi til fæðing- arorlofs. Loks undirstrikaði hann mikilvægi þess að karlar tækju virkari þátt í jafnréttisbaráttunni. Fundur kvennanefndarinnar stendur til 11. mars nk. og mun sendinefnd Íslands taka virkan þátt í honum, m.a. í samnorrænni dag- skrá um ungt fólk og kynjahlutverk þar sem félagsmálaráðherra fjallar um rannsókn um viðhorf ungs fólks til atvinnutækifæra í landinu og feðraorlofið. Árni Magnússon félagsmálaráð- herra ávarpaði 49. fund kvenna- nefndar Sameinuðu þjóðanna. Áhrif stríðsástands á stöðu kvenna ÓLAFUR F. Magnússon, borgar- fulltrúi F-listans, lagið til í borgar- stjórn sl. þriðjudag að komið yrði á fót nýjum starfshópi til að endur- skoða deiliskipulag við Laugaveg. Markmið endurskoðunarinnar yrði að draga úr víðtækum heimildum til niðurrifs gamalla húsa. Frekar ætti að stuðla að endurbyggingu þeirra fremur en niðurrifi. Tillögu Ólafs var vísað til skipulagsráðs borgarinnar til frekari afgreiðslu. Ólafur sagði að borgarstjóri hefði svikið heiðursmannasamkomulag við hann um að flytja ekki tillögu sína í fjarveru borgarstjóra á borgarstjórn- arfundi 15. febrúar sl. gegn því að R- listinn myndi ekki flytja nýja tillögu um málið. Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri sagði að í júní 1997 hefði breskt fyrirtæki verið fengið til að undirbúa þróunaráætlun fyrir mið- borgina. Þar hefði verið mörkuð sú stefna sem unnið væri eftir og miðaði að jafnvægi milli uppbyggingar og verndunar. Ekkert væri rifið nema fyrir lægi hvað kæmi í staðinn. Hönn- un bygginga í miðborginni ætti að vera í hæsta gæðaflokki og falla vel að þeirri heild sem fyrir væri. „Ég man ekki eftir því að borgar- fulltrúinn Ólafur F. Magnússon hafi sérstaklega blandað sér í þær um- ræður þá eða sýnt einhvern sérstak- an áhuga á málefnum miðborgarinn- ar [...] Þannig að auðvitað hvarflar það að manni að þessi skyndilegi áhugi borgarfulltrúans núna einkenn- ist af tækifærismennsku og engu öðru,“ sagði Steinunn Valdís. „Ég hugsa að þeir sem hafa fylgst með störfum mínum í borgarstjórn undanfarin fimmtán ár viti það að ég hef mjög oft barist einarðlega fyrir ýmsum verndunarmálum. Bæði varð- andi náttúru og ýmsar menningar- minjar,“ svaraði Ólafur og blés á allar fullyrðingar um að hann stundaði tækifærismennsku. Vill draga úr niður- rifi við Laugaveg AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 Silkitré og silkiblóm Laugavegi 63 (Vitastígsmegin) Sími 551 2040 Fallegir silkitúlípanar Hverafold 1-3 • Foldatorg Grafarvogi • Sími 577 4949 Opnunartími mán.-fös. kl. 11-18 & lau. kl. 11-14 Sparifatnaður fyrir ungar sem eldri Afmælisþakkir vegna 100 ára afmælis Alúðarþakkir sendi ég öllum þeim sem glöddu mig með heimsóknum, gjöfum og kveðjum á aldarafmæli mínu, 16. febrúar síðastliðinn. Sérstakar þakkir fyrir fallegan söng og tónlist. Þá vil ég einnig þakka sérstaklega fyrir gjafir til Rauða kross Íslands í tilefni afmælisins míns. Guð blessi ykkur öll. Sigsteinn Pálsson REYNIMELUR 26 - SÉRHÆÐ Vegna skipta á dánarbúi er til sölu glæsileg efri sérhæð í þessu húsi ásamt óinnréttuðu lofti. Lofthæð er allt að 195 cm, bílskúr. Hæðin með sameign er ca 190 fm auk bílskúrs og geymslulofts. Upplýsingar gefur Ólafur í síma 515 7400. Eddufelli 2 Bæjarlind 6 sími 557 1730 sími 554 7030 Doppóttir bolir, pils og kjólar Stærðir 36-56

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.