Morgunblaðið - 03.03.2005, Side 12
12 FIMMTUDAGUR 3. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Sérblaðið
bílar
Formúlan
á fulla ferð
Ferraribaninn
MP4-20
á morgun
„ÉG TEL þetta mjög gott og
spennandi verkefni,“ sagði Henrik
Danielsen, stórmeistari og skóla-
stjóri skákskóla Hróksins. „Við
munum heimsækja skóla og ég
mun einnig kenna ólympíuliðinu,
bestu skákmönnum landsins. Ég
veit að þeir eru spenntir að fá
mig.“
Henrik er vanur að kenna nem-
endum á öllum stigum skáklist-
arinnar, allt frá byrjendum og upp
í sterka skákmenn. Hann hefur
útbúið kennsluefni en segir að í
Namibíu séu til töfl og taflmenn.
„Skák er góð fyrir lönd í þriðja
heiminum, því það er ekki dýrt að
iðka hana. Maður þarf ekki sér-
staka búninga eða tæki önnur en
taflborðið og taflmennina. Skákin
hentar vel til að þjálfa hugann. Ég
sé það vel á börnunum sem koma í
Hrókinn. Í fyrstu er þetta erfitt, en
svo eykst hæfni þeirra. Þau þroska
með sér þolinmæði og læra að ein-
beita sér. Svo læra þau að við-
urkenna eigin mistök. Það er öðru
vísi í skákinni en t.d. í knattspyrnu.
Þú getur ekki skellt skuldinni á
neinn annan. Það getur verið mjög
erfitt fyrir barn að viðurkenna
ósigur, en í skákinni verða þau að
læra að tapa. Það er eðli leiksins.“
Tveir skólar á dag
Þeir Henrik og Kristian Gutte-
sen munu heimsækja tvo skóla á
dag í Namibíu, bæði barna- og
unglingaskóla. Þá mun Henrik
halda strembnar þjálfunarhelgar
með skáklandsliðinu. Henrik segir
að skák sé vel þekkt í Namibíu, en
þörf sé á menntuðum skákkenn-
urum. Þetta er hans fyrsta ferð til
Afríku, en Henrik hefur farið víða
um heim að tefla og kenna skák.
M.a. hefur hann og kennt á Fil-
ippseyjum og í Armeníu og víðar.
Þegar hann tefldi fyrir hönd Dan-
merkur fór hann og víða til að
tefla.
Henrik telur víst að afrískir
skákmenn eigi eftir að gera garð-
inn frægan í heimi skákarinnar í
framtíðinni. Þessi ferð þeirra
Kristians skipti e.t.v. ekki sköpum
fyrir framgang skáklistarinnar þar
í álfu, en ef hún gangi vel geti orð-
ið framhald á.
„Ég stefni að því að koma upp
hópi skákkennara í Namibíu og
kenna þeim að kenna öðrum að
tefla. Einnig að útvega þeim
kennsluefni, svo að þegar við kveðj-
um þá geti þeir tekið við.“
Henrik Danielsen stórmeistari á leið til Namibíu
Stefnir að því að koma
upp hópi skákkennara
Morgunblaðið/Jim Smart
Henrik Danielsen stórmeistari ætlar að kenna Namibíumönnum að tefla.
TÆPLEGA þrítugur maður, fyrr-
um kennari við grunnskóla og
íþróttaþjálfari, hefur verið dæmd-
ur af Héraðsdómi Vesturlands í
fimm mánaða fangelsi fyrir kyn-
ferðisbrot gegn tveimur stúlkum
sem voru nemendur hans og tóku
þátt í að undirbúa körfuboltaleiki.
Tveir mánuðir eru óskilorðsbundn-
ir. Í dómnum kemur fram að stúlk-
urnar upplifðu báðar félagslega út-
skúfun og tortryggni af hálfu
bæjarbúa.
Stúlkurnar voru á fimmtánda
aldursári þegar brotin voru framin.
Annarri stúlkunni sendi hann 1.276
sms-skilaboð og hinni 2.444 skila-
boð og í báðum tilvikum var hann
sakfelldur fyrir að viðhafa „kyn-
ferðislegt og klámfengið tal“ í fjöl-
mörgum af þessum skilaboðum.
Sendi hann stúlkunum skilaboð
seint á kvöldin og fram eftir nóttu.
Í viðtölum við stúlkurnar kom
fram að þær töldu að hann hefði
verið í sms-sambandi við fleiri
stúlkur á þeirra aldri.
Að auki var maðurinn dæmdur
fyrir að biðja aðra stúlkuna um að
sýna sér brjóstin, kyssa hana og
spyrja hvort hún vildi eiga við
hann munnmök. Hann var á hinn
bóginn sýknaður af ákæru um að
hafa vorið 2004 í heitum potti við
sundlaug strokið læri hennar og
nára en sýknan byggðist m.a. á því
að rannsókn lögreglu á þessum
þætti málsins var talin ófullburða.
Maðurinn neitaði sök.
Annar framburður
skólastjóra
Málið var kært til lögreglu 5. júlí
2004. Í niðurstöðum dómsins segir
að fyrir dómi hafi hann viðurkennt
kynferðislegt tal í einum eða mesta
lagi tvennum skilaboðanna. Hann
hafi á hinn bóginn viðurkennt fyrir
skólastjóra grunnskólans að skila-
boð til annarrar stúlkunnar hafi
„þróast út í spjall um kynlíf“ og að
tvenn af skilaboðunum „hafi gengið
of langt, þau hafi þróast út í lýs-
ingar á samförum“. Þá hafi „kynlíf
eitthvað borið á góma“ í samskipt-
um við hina stúlkuna. Með hliðsjón
af þessu taldi dómarinn að mað-
urinn væri að reyna að fegra hlut
sinn og gera minna úr honum en
áður. Dómurinn taldi á hinn bóginn
að ekkert hefði komið fram sem
drægi úr trúverðugleika stúlkn-
anna auk þess sem vitni væru að
því þegar maðurinn sendi stúlk-
unum skilaboð. Í dómnum segir að
ákærði hafi verið rétt innan við
þrítugur að aldri þegar hann sendi
stúlkunum þessi skilaboð, kennari
við grunnskóla og fyrirmynd ung-
linga í íþróttastarfi. „Var með öllu
ósæmilegt af hans hálfu að senda
þessum stúlkum, sem þá voru ein-
ungis á fimmtánda aldursári og á
viðkvæmu þroskaskeiði, skilaboð
um kynferðisleg efni og athafnir,“
segir í dómnum.
Fram kemur að stúlkunum leið
mjög illa meðan á brotunum stóð
og önnur á enn við talsverða erf-
iðleika að stríða eftir samskipti við
manninn.
Varð fyrir aðkasti
frá ýmsum bæjarbúum
Í greinargerð uppeldis- og af-
brotafræðings frá Barnahúsi kem-
ur fram að hún hafi orðið fyrir að-
kasti frá ýmsum bæjarbúum vegna
málsins og hún einangrað sig í
kjölfarið. Hún hafi haft stöðugar
sjálfsvígshugsanir og gert tilraun
til sjálfsvígs vorið 2004 með því að
taka inn of stóran skammt af lyfj-
um. Í greinargerð um hina stúlk-
una kemur fram að nálægðin við
manninn, ásamt viðbrögðum bæj-
arbúa hafi haft slæm áhrif á hana.
Haldi maðurinn skilorð í þrjú ár
fellur skilorðsbundni hluti refsing-
ar hans niður. Auk fangelsisrefs-
ingar var maðurinn dæmdur til að
greiða stúlkunum samtals 450.000
krónur í skaðabætur.
Símon Sigvaldason, Benedikt
Bogason og Kristinn Halldórsson
kváðu upp dóminn. Sigríður Jós-
efsdóttir sótti málið af hálfu rík-
issaksóknara, Sveinn Andri Sveins-
son hrl. var til varnar og Hjördís
Harðardóttir hdl. var réttargæslu-
maður stúlknanna.
Kennari og íþrótta-
þjálfari dæmdur
fyrir kynferðisbrot
Sendi stúlkunum rúmlega 3.700 sms-skilaboð
SKÁKKENNSLA er að hefjast í Namibíu í Afríku á
vegum Þróunarsamvinnustofnunar Íslands og skák-
félagsins Hróksins. Stórmeistarinn Henrik Dani-
elsen, sem jafnframt er skólastjóri skákskóla Hróks-
ins, og Kristian Guttesen, tæknistjóri Hróksins,
héldu til Namibíu á þriðjudag. Þeir munu kenna
nemendum og kennurum í á annan tug namibískra
skóla skák. Efnt verður til skákmóta í framhaldinu.
Gert er ráð fyrir að Henrik og Kristian verði í
Namibíu í um hálfan annan mánuð. Starf þeirra
hefst 2. mars og lýkur 11. apríl, að því er segir í
fréttatilkynningu. Skólarnir sem þeir munu heim-
sækja eru bæði í þéttbýli og dreifbýli, auk þess sem
farið verður í skóla fyrir heyrnar- og sjónskert
börn. Þá munu þeir Henrik og Kristian taka að sér
þjálfun skáklandsliðs Namibíu. Þetta mun vera í
fyrsta sinn sem stórmeistari í skák heimsækir land-
ið.
Kostnaður vegna verkefnisins er greiddur af Þró-
unarsamvinnustofnuninni en Hrókurinn sér um
framkvæmd þess í samvinnu við starfsmenn stofn-
unarinnar í Namibíu og heimamenn. Segir í tilkynn-
ingu að Þróunarsamvinnustofnunin hyggist leggja
aukna áherslu á félagsleg verkefni og verkefni
tengd menningu og listum í Namibíu.
Að sama skapi verði dregið úr styrkjum við
stærri verkefni. Markmiðið með þessu samstarfs-
verkefni sé að kynna börnum og áhugamönnum í
Namibíu skákíþróttina og koma á tengslum Íslands
og Namibíu á því sviði.
Kenna skák í Namibíu