Morgunblaðið - 03.03.2005, Side 15

Morgunblaðið - 03.03.2005, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2005 15 ERLENT EINN þátturinn í þeirri lýðræðisvakningu sem nú virðist hafin í Mið-Austurlöndum er sú óvænta ákvörðun Hosni Mubaraks Egypta- landsforseta um sl. helgi að leyfa fleiri en einum manni að bjóða sig fram til forseta í haust. Her- lög hafa gilt í landinu í nær 25 ár, fjöldafundir og mótmæli eru bönnuð samkvæmt lögum en forsetinn sagðist um helgina telja að svo „mikill stöðugleiki“ ríkti nú í landinu að hægt væri að auka þannig valfrelsið. En margir efast um heil- indin að baki orðum hans. „Ég get enn ekki trúað því að ég sé að tala um frjálsar forsetakosningar í Egyptalandi,“ sagði Hisham Kassem, sem hefur barist fyrir mann- réttindum í Egyptalandi. „Ef ég verð ekki lam- inn í klessu eða handtekinn og varpað í fanga- klefa held ég núna að svo geti farið að lýðræði verði að veruleika hér meðan ég er enn á lífi,“ er haft eftir Kassem í bandaríska dagblaðinu The Christian Science Monitor. Egyptar eru rúmlega 70 milljónir og hafa lengi verið taldir vera forystuþjóð arabaheims- ins og bjartsýnismenn segja að Mubarak skynji nú að lýðræðið liggi í loftinu. Og ekki má gleyma því að Bandaríkjamenn þrýsta nú ákaft á um að gerðar verði breytingar. Orð Bush eru þung á metunum; að undanskildum Írökum og Ísr- aelum eru Egyptar sú þjóð í heiminum sem fær mesta fjárhagsaðstoð frá Washington. Hálf öld flokkseinræðis Egyptar hafa í um hálfa öld orðið að sætta sig við að einn flokkur réði í reynd öllu í landinu. Lýðræðislegi þjóðarflokkurinn kennir sig við sósíalisma en á rætur í þjóðernishreyfingu ungra liðsforingja. Þeir steyptu síðasta konungi landsins, Farouk, 1952 og hann fór í útlegð. Anwar Sadat forseti var myrtur í sprengju- tilræði 1981. Mubarak, þá varaforseti, tók við og hefur alltaf verið endurkjörinn forseti með þorra atkvæða. Hann er nú 76 ára og talið lík- legt að hann fari enn einu sinni fram. Ýmis teikn hafa hins vegar verið á lofti um það síðustu árin að forsetinn vildi að sonurinn, Gamal Mubarak, sem er 41 árs, tæki við af sér. Fordæmi fyrir slíku ættarveldi eru mörg í Mið-Austurlöndum. Sem dæmi um stjórnarfarið hingað til má nefna meðferðina á Ayman Nour, ungum stjórnarandstöðuleiðtoga sem var handtekinn í janúar. Var hann sakaður um að hafa falsað undirskriftir á lista yfir meðmælendur og þykja ákærurnar lítt sannfærandi. Egyptar hugðust nýverið standa fyrir ráðstefnu átta ríkja um lýð- ræði og framfarir í Mið-Austurlöndum en frest- uðu henni þegar Condoleezza Rice, utanrík- isráðherra Bandaríkjanna, ákvað að mæta ekki til að mótmæla meðferðinni á Nour. Engar skipanir að utan Nokkrum dögum áður en Mubarak boðaði aukin lýðræðisréttindi birtist á vefsíðu vikurits- ins Al-Ahram grein þar sem vitnað var í hátt- settan, egypskan embættismann um deilurnar vegna Nours og vestræna gagnrýni á stjórn- arfarið. Hann sagði að Egyptar væru „alls ekki fúsir að taka við leiðbeiningum eða hrinda í framkvæmd fyrirskipunum frá nokkrum höf- uðborgum Vesturlanda um þeirra eigin for- gangsröð umbóta í arabalöndunum – og svo sannarlega ekki varðandi Egyptaland“. Viðbrögðin heima fyrir við yfirlýsingu Mub- araks hafa verið afar misjöfn. Hans eigin flokks- menn hafa að sjálfsögðu fagnað ákaft eins og vera ber þegar forsetinn talar. Herinn hefur hins vegar ekki tjáð sig enn sem komið er en all- ir forsetarnir eftir byltinguna 1952 hafa komið úr röðum hans. Herinn hefur í hálfa öld haft eins konar neitunarvald þegar kom að því að láta þingið, þar sem meira en tveir þriðju hlutar þingsæta eru skipaðir liðsmönnum stjórn- arflokksins, ákveða hver fengi að bjóða sig fram til forseta. Síðan hefur kjósendum verið falið að segja annaðhvort já eða nei. Hvað myndi lýðræði í Egyptalandi hafa í för með sé? Bent hefur verið á að verði lýðræð- islegar kosningar sé ekki ósennilegt að Bræðra- lag múslíma, sem er bannað að starfa op- inberlega og er mjög andvígt Bandaríkjunum, fái mikið fylgi. Flokkurinn hefur nú 17 þingsæti af alls 454 en fulltrúar hans kalla sig óháða vegna bannsins. Mubarak forseti fær upplýs- ingar um almenningsálitið með aðstoð útsend- ara sinna og veit því um áhættuna fyrir sig og flokkinn sigri lýðræðið. Hefur þrýstingur af hálfu stjórnarandstæð- inga og Bandaríkjamanna valdið þeim um- skiptum að Mubarak og valdaklíkan hafi ákveð- ið að breyta til en láta ekki duga að farða gamla kerfið til að blekkja gagnrýnendur sína? Tíminn mun leiða það í ljós. Ekki hefur enn komið neitt fram um skilyrðin sem flokkar verði að fullnægja til að bjóða fram forsetaefni og sé viljinn fyrir hendi er ljóst að stjórnvöld geta beitt lagalegum bolabrögðum til að stöðva hættulega keppinauta. Yrði þá fyrirmyndin ef til vill Túnis þar sem forsetinn hefur þrjóskast við að leyfa raunverulega stjórnarandstöðu og samt haldið vináttu Vesturveldanna. Misjöfn viðbrögð stjórnarandstæðinga Athyglisvert er að sjá að egypskir stjórnar- andstæðingar skiptast mjög í tvö horn. Sumir eru tortryggnir og efast um að nokkuð muni breytast í reynd. Þeir benda á að leyfa verði frjálsa fjölmiðla ef stjórnarandstaðan eigi að hafa einhverja möguleika á að koma kosninga- áróðri sínum á framfæri, forsetinn sé að blekkja, segir í grein í The New York Times. „Þetta er leið fyrir hann [Mubarak] til að bæta ímynd sína hjá Bandaríkjamönnum og þóknast þeim með formlegum breytingum,“ segir Ibrah- im Eissa, stjórnmálaskýrandi í Kaíró. Aðrir eru jákvæðari og segja að eina leiðin sé að nýta tæki- færin sem nú geti boðist. Sayed Badawi, sem er framkvæmdastjóri elsta stjórnmálaflokks lands- ins, Wafd, er að vísu á því að Mubarak hyggist aðeins reyna að lagfæra ásýnd kerfisins og búa þjóðina undir valdatöku sonarins. „En hvað sem líður göllum sem áfram verða til staðar mun fólk endurheimta á næsta sex ára kjörtímabili forsetans lýðræðislega arfleifð sína og menningu og verður síðan fært um að velja sér leiðtoga í frjálsum kosningunum,“ segir Badawi. Hann segir að Egyptar muni nú ann- aðhvort fá í sinn hlut kosningar eins og í Túnis eða frjálsar og lýðræðislegar kosningar eins og Palestínumenn. „Ef ég verð ekki laminn í klessu“ Fréttaskýring | Deilt er um heilindin að baki nýrri lýðræð- isást Egyptalandsforseta. Kristján Jónsson segir frá ein- ræðisstjórnarfari Mubaraks og stjórnarandstöðunni. Reuters Stuðningsmaður stjórnarandstæðingsins fangelsaða, Ayman Nours, hrópar slagorð gegn ríkisstjórninni á útifundi í Kaíró. ’… að undanskildum Írökumog Ísraelum eru Egyptar sú þjóð í heiminum sem fær mesta fjárhagsaðstoð frá Washington. ‘ kjon@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.