Morgunblaðið - 03.03.2005, Side 16

Morgunblaðið - 03.03.2005, Side 16
Mývatnssveit | Ferðaþjón- ustuaðilar í Mývatnssveit hafa ýmis tromp á hendi og þau ekki síðri á vetri en um sumardag. Verkefnið Snow Magic eða Snjótöfrar hefur komið sér einkar vel nú í vetur eftir að Kísiliðjan kvaddi. Við það verk- efni hafa margir fengið vinnu. Til að njóta snjótöfra þarf að hafa opin augu fyrir hinu smáa í náttúrunni og þar á hver dagur sín sérkenni. Það er ekki margt sem bendir til að á myndinni sé birkihrísla í vetrarskrúða. En það er þó þannig. Á einni nóttu skrýddist skógurinn stórkost- legu frosthrími. Ísnálarnar á myndinni eru meira en þriggja sentimetra langar og lifðu að- eins fram um miðjan dag. Sú er þeirra náttúra að þær þola ekki sólskinið frekar en nátttröllin og visna upp sem dagur líður. Morgunblaðið/BFH Snjótöfrar við Mývatn Frost Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust- urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Góður gangur | Mikil hreyfing hefur verið í vinnumiðlun frá því í ársbyrjun að því er fram kemur á vef Svæðisvinnumiðl- unar Norðurlands vestra en 22 ein- staklingar hafa ráðist til starfa í gegn um Svæðisvinnumiðlunina sem af er árinu. Eftirspurn eftir starfsfólki fór þó hægt af stað en verið stöðugt vaxandi. Eins og staðan er nú er verið að leita eftir hæfu fólki til hinna ýmsu starfa. Á yfirlitssíðu yfir laus störf eru núna skráð 45 störf. Úrvalið af störfum sem eru í boði kem- ur á óvart, en m.a. er auglýst eftir náms- og starfsráðgjafa, framkvæmdastjóra, að- stoðarmanni á smíðaverkstæði, fisk- verkafólki, meinatækni, verkamönnum í verksmiðju, kjötskurðarfólki, sjúkraþjálf- ara og starfsfólki við umönnun og ræst- ingar. Einnig er byrjað að auglýsa sumarstörf s.s. eftir starfsfólki á veitingahús, þjónum, kokkum og leiðsögumönnum við flúðasigl- ingar svo eitthvað sé nefnt. Úr bæjarlífinu HÉÐAN OG ÞAÐAN Samningur um skólamáltíðir | Bæj- arstjórn Húsavíkurbæjar hefur samþykkt nýjan samning við Hótel Húsavík ehf. um skólamáltíðir í Borgarhólsskóla. Samning- urinn er til reynslu út yfirstandandi skólaár og til loka skólaársins 2006. Húsavíkurbær greiðir niður skólamáltíðir vegna þeirra nemenda sem nýta sér mötuneyti í fastri áskrift. Hótelið býður nemendum enn að kaupa stakar máltíðir og annast umsýslu um þær. Matseðlar verða allir sendir til umsagnar manneldisráðs og kappkostað að tryggja nemendum góðan og heilsu- samlegan mat. Reynslan mun skera úr um hvort framhald verður á skólamáltíðum, ef þátttaka í þeim er lítil eru ekki forsendur fyrir endurnýjun samningsins. Frá þessu er sagt á vef Skarps. Kýrnar fluttar sjóleiðis | Bændur í Botni í Súgandafirði fengu á dögunum tólf kýr frá Hvestu í Arnarfirði. Ófært var land- leiðina yfir Dynjandisheiði en bændur voru ekki á því að deyja ráðalausir. Fluttu þeir nautgripina til Tálknafjarðar, þaðan með flutningaskipinu Jaxlinum til Þingeyrar og að lokum á flatvagni aftan í dráttarvél frá Dýrafirði til Súgandafjarðar. Flutning- urinn gekk hægt en vel og eru skepnurnar nú að venjast nýjum heimkynnum og nýj- um félögum í fjósinu í Botni. Þar eru kýrn- ar nú 72 á jafnmörgum legubásum og telst fjósið fullt að því er segir á vef Bæjarins besta á Ísafirði. BlásaraoktettinnHnúkaþeyr heldurtónleika í Duus- húsum í Keflavík í kvöld, fimmtudag, klukkan 20. Á efnisskránni eru verk eftir Wolfgang Amadeus Moz- art og Gordon Jacob en bæði tónskáldin höfðu gaman af blásturshljóð- færum. Hnúkaþey skipa Peter Tompkins og Eydís Franz- dóttir á óbó, Rúnar Ósk- arsson og Ármann Helga- son á klarinett, Anna Sigurbjörnsdóttir og Emil Friðfinnsson á horn, Darri Mikaelsson og Kristín Mjöll Jakobsdóttir á fag- ott. Tónleikarnir eru sam- starfsverkefni Félags ís- lenskra tónlistarmanna, Tónlistarskóla Reykjanes- bæjar og menningarfull- trúa Reykjanesbæjar og styrkir menntamálaráðu- neytið framtakið. Hnúkaþeyr Ýmislegt er gert til fjáröflunar ferðasjóðs skóla-barnanna í Grímsey. Skólastjóranum DónaldJóhannessyni datt það snjallræði í hug, þegar tónlistarmaðurinn Gunnar Tryggvason kom sem gesta- kennari til skólans, að gefa út disk í framhaldinu. Hér í eyju er nefnilega mikið af söngglöðu fólki og varð það úr að góð blanda af söng og spili skólabarna og eyj- arbúa var tekin upp. Útgáfu disksins var að sjálfsögðu fagnað með léttri samkomu, þar sem hlustað var á „Sungið í Grímsey“ sem verður sannarlega góð og ljúf minning í framtíðinni fyrir börnin í skólanum og eyj- arbúa alla. Lögin á diskinum voru alls 16 og flytjendur 17 tals- ins. Morgunblaðið/Helga Mattína Nokkur skólabörn með diskinn Sungið í Grímsey. Sungið í Grímsey Einhver drungi varyfir tilverunniþegar Jón Ingvar Jónsson orti: Norðanvindur napur gnauðar, nú er kalt um úfinn mar. Veslast upp og vakna dauðar vonir sem ég áður bar. Sigurður Ingólfsson snýr út úr vísunni: Holdið slappt og heilinn snauður heilsufarið mitt er dræmt, veslast upp og vakna dauður voðalega er það slæmt. Kristján Eiríksson yrkir: Úti vakir aldimm nóttin, inni grúfir koldökk nóttin, sálu fyllir svarta nóttin, sjá hér ríkir eilíf nóttin. Þá Erlingur Sigtryggsson: Á síðari árum er víst mér allur þrotinn styrkur og augnasýnin aðeins lér mér eintómt svartamyrkur. Og loks Benedikt Jónsson: Lasið er mitt lundargeð, lúinn, mæddur, þjáður. Þetta hefur, held ég, skeð hundrað sinnum áður. Aldimm nótt pebl@mbl.is Dalvíkurbyggð | Eitt af þeim 10 sveitar- félögum sem falla undir viðmið eftirlits- nefndar með fjármálum sveitarfélaga, þ.e. þau sem eru í sérstökum fjárhagsvanda, er Dalvíkurbyggð. Ákveðið hefur verið að verja 200 milljónum króna af sérstöku aukaframlagi Jöfnunarsjóðs til sveitarfé- laga sem svo er ástatt fyrir. Valdimar Bragason, bæjarstjóri í Dalvíkurbyggð, gerði á fundi bæjarstjórnar grein fyrir fundi með eftirlits- nefndinni þar sem farið var yf- ir stöðu mála. Samkvæmt fjár- hagsáætlun er gert ráð fyrir að halli af rekstri sveitarfélagsins í ár nemi um 105 milljónum króna, „það eru þær köldu stað- reyndir sem við okkur blasa,“ sagði Valdimar. Hann sagði að nefndarmenn hefðu óskað eft- ir svörum frá stjórnendum byggðarlagsins varðandi það til hvaða ráða ætti að grípa til að laga stöðuna, því eins og bæjarstjóri orðaði það „stefnir í gjaldþrot, eins og það heitir á mannamáli“. Breytingar á skipan skólamála eru ein þeirra leiða sem bæjarstjórn mun fara, frá og með haustinu 2006 verður einn grunn- skóli í sveitarfélaginu á tveimur kennslu- stöðum, en þrír skólar eru þar nú. Þá nefndi bæjarstjóri að Dalvíkurbyggð ætti margar félagslegar íbúðir sem ekki stæðu undir kostnaði, nauðsynlegt væri að fækka þeim og reyna þannig að draga úr halla- rekstri. Það væri hins vegar hægara sagt en gert að skella 70 íbúðum á söluskrá á einum degi, hvað þá að selja þær. Eftirlitsnefndarmenn spurðust fyrir um hvort bærinn ætti eignir sem hægt væri að selja, en að sögn Valdimars er lítið um slíkt. Ljóst væri þó að í hitaveitunni væri eign umfram bókfært verð. Hefðu nefnd- armenn að sögn bæjarstjóra lagt að bæj- aryfirvöldum að selja hana til að bæta stöðuna, andvirðið mætti nota til að greiða niður skuldir og lækka þannig greiðslu- byrði. Engar ákvarðanir hefðu þó enn verið teknar. Leggja til sölu hita- veitunnar Valdimar Bragason, bæjarstjóri Dalvík- urbyggðar. Morgunblaðið/Kristján       DÖNSK HÚSGAGNAHÖNNUN Ef þú hefur áhuga á danskri húsgagnahönnun í hæsta gæðaflokki, skoðaðu þá heimasíðu okkar á www.soeborg-moebler.dk og fáðu nánari upplýsingar eða bæklinga og tilboð frá fyrirtæki okkar. Næst þegar þú ert í Kaupmannahöfn, ertu velkomin/n að heimsækja okkur í sýningarsal okkar (800 m2), sem er í aðeins 6 km fjarlægð frá miðbænum. A/S Søborg Møbelfabrik, Gladsaxevej 400, 2860 Søborg, sími +45 39 69 42 22, www.soeborg-moebler.dk Opnunartímar: mánudag-þriðjudag 8.30-16.30, föstudag 8.30-15

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.