Morgunblaðið - 03.03.2005, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 03.03.2005, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2005 17 MINNSTAÐUR HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ AKUREYRI Hafnarfjörður | Nýr skóli í Valla- hverfi mun hýsa bæði leikskóla- og grunnskólabörn, og er hann eftir því sem næst verður komist fyrsti skól- inn sem sérhannaður er með það í huga hér á landi, að sögn sviðsstjóra fræðslusviðs Hafnarfjarðarbæjar. Kynningarfundur um skólamál á Völlum verður í kvöld kl. 20 í íþrótta- miðstöð Hauka á Ásvöllum. Reiknað er með því að í Hraun- vallaskóla, sem nú er á hönnunar- stigi, verði pláss fyrir um 100 börn á leikskólaaldri og 700–750 börn á grunnskólaaldri, segir Magnús Baldursson, sviðsstjóri fræðslusviðs Hafnarfjarðarbæjar. „Það er alltaf verið að reyna að gera þessi tvö skólastig – leik- og grunnskóla – að einni samfellu þannig að þetta sé bara einn skóli. Þetta er í samræmi við stefnu menntamálayfirvalda í landinu.“ Magnús segir skólaþjónustu bæj- arins hafa verið breytt með aukna samþættingu leik- og grunnskóla í huga, enda hafi fyrirkomulag líkt og verður í Hraunvallaskóla ýmsa kosti. „Við teljum að þetta sé mun vænlegra og árangursríkara og gefi miklu meiri og fjölbreyttari tæki- færi,“ segir Magnús. Börn séu mis- fljót að tileinka sér námsefni og því geti börn sem eru fljót að læra á leikskóla jafnvel komið fyrr inn í grunnskólann og kynnst skólastarf- inu. „Það verða ekki jafnmikil skil á milli [skólastiganna], það verður ekki jafnmikil breyting fyrir börnin að hætta á leikskóla og fara í grunn- skóla,“ segir Magnús. Leikskóla- börnin munu hafa aðgang að aðstöðu í grunnskólanum og venjast því að nota sali, sérgreinastofur og opin rými. „Á þennan hátt verður hægt að vera með fjölbreyttara starf í leikskólanum og nemendur flæða þarna á milli.“ Opin rými í stað skólastofa Skólinn er ennfremur hannaður með opið skólastarf og einstaklings- miðað nám í huga. Ekki verða hefð- bundnar skólastofur heldur opin rými þar sem heilum árgöngum verður kennt, með fleiri en einn kennara með hverjum hópi nem- enda. Þó verða möguleikar á því að stúka bygginguna af í hefðbundnar skólastofur ef þurfa þykir. Stjórnendur bæði leik- og grunn- skóla munu vinna hlið við hlið, og því næst einhver sparnaður með sam- nýtingu á aðstöðu, tækjum og jafn- vel starfsfólki að einhverju leyti. Einnig segir Magnús að eitthvert hagræði verði að því að nota sama mötuneytið, þótt leikskólabörnin muni væntanlega borða inni á sínum deildum. Leikskólabörnin munu hafa eigin inngang og svæði innan skólans, og afgirta lóð til að leika sér á, þótt hægt sé að nýta alla skólalóð- ina þegar hún er laus. Einar Sveinn Árnason hefur verið ráðinn í stöðu skólastjóra grunnskól- ans, en ekki hefur enn verið ráðinn leikskólastjóri. Grunnskólinn mun taka til starfa í bráðabirgðahúsnæði í haust með nemendum í 1.–4. bekk, en haustið 2006 er reiknað með að búið verði að byggja skólann og þá mun leikskólinn taka til starfa. Leik- og grunnskóli undir einu þaki Skilin á milli skólastiganna að hverfaÁlftanes | Fuglaáhugamenn erufarnir að verða áberandi á Álfta-nesi, en þar hefur Fugla- og nátt- úruverndarfélag Álftaness verið starfandi undanfarin tvö ár. Hefur félagið skipulagt mánaðarlegar göngur á þessu ári fyrir áhuga- menn um fugla og aðra sem hafa gaman af gönguferðum í fallegri náttúru. Næsta ganga sem félagið hefur skipulagt verður næstkomandi sunnudag, og verður gengið um- hverfis Bessastaðatjörn og á Bessa- staðanes í fylgd með fróðum heima- manni, segir Kristinn Guðmundsson, formaður Fugla- og náttúruverndarfélags Álftaness. Í félaginu eru um 40 manns, en þátt- taka í gönguferðum er öllum opin, og alls ekki takmörkuð við fé- lagsmenn eða íbúa á Álftanesi. Meðal þess sem félagið hefur stefnt að undanfarið er að koma upp fuglaskýlum á fimm mismun- andi stöðum þar sem mikið er um fugla á nesinu, en í fuglaskýlum fá fuglaskoðarar aðstöðu til þess að fylgjast með fuglum í einhverju skjóli frá veðri og vindum. Nemar í hönnunardeild í Iðnskólanum í Hafnarfirði hafa hannað fimm mis- munandi útfærslur á fuglaskýlum, og stendur til að velja úr þeim hug- myndum fljótlega og byggja fyrsta skýlið í tilraunaskyni í sumar. „Þetta er allt frá því að vera hug- myndir um að hlaða skjólgarð fyrir vindi, og upp í það að byggja hefð- bundnara hús með fjórum veggj- um,“ segir Kristinn. Í skýlunum er svo meiningin að hafa upplýsingar um þær fuglategundir sem líklegt er að beri fyrir augu. „Markmiðið er að þarna verði eitthvað skjól fyr- ir veðri, en ekki síður að hér sé góð- ur staður til þess að skoða fugla, og hafa einhverjar upplýsingar.“ Verið er að vinna frekar við að útfæra tillögurnar, og segir Krist- inn að bæjarstjóra hafi litist vel á þær þegar hann kynnti sér þær á dögunum. „Bæjarstjórinn tók mjög vel í þetta, en vildi beina þessu á þessar hefðbundnu brautir, þetta þarf að fara í gegnum skipulags- nefnd og gæti því tekið einhvern tíma að komast í gang. En við höf- um fengið styrk frá bæjarfélaginu svo þeir virðast vera þessu hliðholl- ir.“ Ríkulegt fuglalíf á Álftanesi Það er engin tilviljun að fé- lagsskapur fuglaskoðara spretti upp á Álftanesinu, enda þykir fugla- lífið þar fjölbreytt og skemmtilegt. „Þetta er mjög skemmtilegur stað- ur til þess að skoða fugla, og er al- mennt notaður af fuglaáhugamönn- um, sem koma mikið út á nes. Þetta er svipað og Seltjarnarnesið að því leyti að hér eru sjótjarnir ríkar af fæðu, og þar af leiðandi ríkulegt fuglalíf. Þeir safnast í fjöruna og grunnar sjótjarnir. Þarna er fel- listaður fyrir álftir og gæsir, mar- gæsin kemur árlega við í stórum hópum, mikið æðarvarp og fleira.“ Fugla- og náttúruverndarfélagið mun líklega standa fyrir ljósmynda- samkeppni meðal nemenda á næst- unni, og segir Kristinn það þjóna tvíþættum tilgangi. Annars vegar að auka áhuga ungs fólks á fuglum og fuglaskoðun, en auk þess sé gaman að setja flottar myndir inn á vef félagsins. Fugla- og náttúruáhugafólk boðar áhugafólk í gönguferðir Ætla að koma upp skýl- um fyrir fuglaáhugamenn Skoða náttúruna Ágæt þátttaka hefur verið í gönguferðum fuglaáhuga- manna á árinu og er vonast eftir fleirum nú þegar snjórinn er horfinn.  Meira á mbl.is/itarefni Dalvíkurbyggð | „Þetta var fyrst og fremst táknrænt en ég var jafn- framt að sýna óánægju mína,“ sagði Hjálmar Herbertsson, bóndi á Steindyrum í Svarfaðardal, sem sendi eina gusu úr mykjudreifara sínum á malarplan sunnan við at- hafnasvæði Olís á Dalvík, eftir að bæjarstjórn hafði samþykkt að flytja skólahald frá Húsabakka til Dalvíkur. Íbúar í sveitinni mót- mæltu kröftuglega fyrir fundinn. Hjálmar sagði að þessi uppákoma hefði verið á milli sín og Guðbjörns Gíslasonar útibússtjóra Olís en Guðbjörn á sæti í fræðsluráði og er Hjálmar ekki sáttur við framgöngu hans í skólamálinu. Hjálmar sagðist hafa sent frá sér sáralitla gusu, „eins og eftir smá spörfuglahóp, en Guðbjörn átti þetta fyllilega skilið“. Guðbjörn tók undir það að seta hans í fræðsluráði tengdist þessari uppákomu. „Fram að þessu hefur Hjálmar verið viðskiptavinur minn en ég á ekki von á því að hann verði það eftir þetta. En ef hann kemur stendur ekki á mér að afgreiða hann. En menn eru að leggjast ótrúlega lágt í þessu máli,“ sagði Guðbjörn. Lögreglan hafði tal af Hjálmari eftir atvikið en hann átti síður von á eftirmálum. „Þetta tengist á engan hátt því að við séum að gefa skít í Dalvíkurskóla. Við höfum aldrei talað um að Dalvíkurskóli sé léleg- ur skóli, heldur erum við að mót- mæla því að börnin okkar séu að fara í annan skóla,“ sagði Hjálmar. Morgunblaðið/Kristján Mótmæli Hjálmar Herbertsson, bóndi á Steindyrum í Svarfaðardal, með mykjudreifara aftan í dráttarvél sinni framan við Dalvíkurkirkju. Sendi gusu úr mykjudreifara á Dalvík Fyrst og fremst táknræn aðgerð BÆJARSTJÓRN Akureyrar sam- þykkti á fundi sínum í vikunni að segja upp lóðarsamningi bæjarins við Eimskipafélag Íslands frá árinu 1987, að beiðni Hafnasamlags Norð- urlands. Um er að ræða svæði aust- an við vöruskemmu Eimskips við Oddeyrarbryggju. Hörður Blöndal hafnarstjóri sagði að þessi breyting væri gerð til þess að taka frá svæði sem tengist Oddeyrarbryggju og tryggja það til afnota fyrir sjóflutn- inga. Eimskip nýtir þetta svæði und- ir starfsemi sína og sagði Hörður að þessi breyting útilokaði félagið ekki frá því. Hins vegar væri verið að setja svæðið undir ákvörðunarvald hafnarinnar. „Þetta er að hluta til vegna þeirrar ákvörðunar Eimskips að hætta strandsiglingum, auk þess sem verið er að endurskoða deiliskipulagið á Vöruhafnarsvæðinu. Aðal athafna- svæði Eimskips er norðan við Odd- eyrarskála og samningur um það svæði stendur óbreyttur,“ sagði Hörður. Eimskip hætti strandsigl- ingum seint á síðasta ári en Samskip, sem hætti siglingum fyrir um 6 ár- um, er með aðstöðu á Togarabryggj- unni. Hörður sagði að upphafið að endurskoðun á deiliskipulaginu væri að hluta til vegna umsóknar frá Sam- skipum um lóð norðan við athafna- svæði Eimskips. „Tangabryggja var byggð m.a. með það í huga að Sam- skip færu þangað en áður en til kom hætti félagið siglingum. Það er verið að reyna að vinna fyrir þessi fyrir- tæki og tengja þau saman. Einnig er horft til þess að tengja frystigeymsl- una sem Samherji er að byggja við Strýtu með sjónum suður á Oddeyr- arbryggju. Það var alltaf gert ráð fyrir því að Samskip færu af Fiski- hafnarsvæðinu og suður á Vöruhafn- arsvæðið.“ Uppi hafa verið hugmyndir á Ak- ureyri um að byggja upp svokallað bryggjuhverfi, þ.e. íbúðasvæði við Oddeyrarbryggju, og færa starfsem- ina á Vöruhafnarsvæðinu norður í Krossanes. Hörður sagði tómt mál að tala um það á meðan ekki fengist leyfi til að búa til land í Krossanesi. „Höfnin hefur sótt um það í tvígang til umhverfisráðs að fá að gera fyll- ingu í víkinni sunnan við Krossanes. Þegar unnið er að dýpkun hafnarinn- ar þarf að liggja fyrir hvað gert er við efnið sem upp kemur. Hingað til höfum við getað sett fyllingarefnið á land í Krossanesi og norðan við flotkvínna en nú er það ekki hægt lengur. Við munum halda áfram að dýpka og ef við ekki fáum að leggja efni í víkina í Krossanesi erum við í vondum málum.,“ sagði Hörður. Lóðarsamningi við Eimskip sagt upp Verið að tryggja svæðið fyrir sjóflutninga VALNEFND í Glerárkirkju mælir með því að sr. Arnaldur Bárðarson verði skipaður prestur við söfn- uðinn. Umsóknarfrestur rann út 14. febrúar síðastliðinn og var Arn- aldur eini umsækjandinn. Sr. Arnaldur Bárðarson vígðist árið 1996 til Raufarhafnarpresta- kalls. Hann hafði áður gegnt starfi fræðslufulltrúa kirkjunnar á Norð- urlandi. Undanfarin ár hefur sr. Arnaldur starfað sem sókn- arprestur í Ljósavatnsprestakalli og sem prestur í Glerárkirkju. Sóknarprestur í Glerárkirkju er sr. Gunnlaugur Garðarsson. Í valnefnd sitja fimm fulltrúar úr prestakallinu auk vígslubiskups á Hólum. Það er biskup Íslands sem skipar í embættið til fimm ára.    Sr. Arnaldur valinn prestur Götuheiti | Bæjarstjórn Akureyr- ar hefur samþykkt tillögu umhverf- isráðs að sjö götuheitum í 2. áfanga Naustahverfis. Nýju göturnar heita; Brekatún, Ljómatún, Pílutún, Sokkatún, Sómatún, Sporatún og Þrumutún.    Styrkur | Vátryggingafélag Ís- lands hf. hefur samþykkt að styrkja Tónlistarhúsið Laugarborg með 250 þúsund króna framlagi úr Menning- arsjóði VÍS. Upphæðin mun bætast við framlag sveitarfélagsins og hugsanlega fleiri aðila til að kaupa nýja stóla í sal hússins. Þá er áform- að að kaupa einnig ný borð sem auð- velt verður að leggja saman og færa afsíðis þegar þau eru ekki í notkun. Fleiri minniháttar framkvæmdir eru á áætlun. Þetta kemur fram á vef- síðu Eyjafjarðarsveitar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.