Morgunblaðið - 03.03.2005, Qupperneq 18
18 FIMMTUDAGUR 3. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
LEIGUBÍLSTJÓRAR á Suð-
urnesjum telja að breyting á skipu-
lagi leigubílaaksturs á Suðurnesjum
muni kippa grundvellinum undan
starfi þeirra og þjónustunni á svæð-
inu. Segjast þeir ekki rísa undir
þeirri kjaraskerðingu sem felst í því
að aka farþegum frá Leifsstöð til
höfuðborgarsvæðisins á innanbæj-
artaxta.
Samgönguráðuneytið hefur til-
kynnt að frá 1. október í haust verði
aksturssvæði leigubíla á höfuðborg-
arsvæðinu og Suðurnesjum sam-
einuð. Það þýðir að svæðið verður
eitt gjaldsvæði og leigubílstjórar
geta tekið farþega á öllu svæðinu. Á
Suðurnesjum eru starfandi fjörutíu
leigubílstjórar á tveimur stöðvum í
Keflavík. Þeir þjóna íbúum svæð-
isins, Keflavíkurflugvelli og Flug-
stöð Leifs Eiríkssonar. Leigubíl-
stjórar segja að vinnan á Vellinum
hafi dregist mjög saman og því
verði þeir að treysta meira en áður
á flugstöðina. Fyrirhöfnin er þó
mikil því þeir þurfa að bíða þar fleiri
klukkutíma eftir hverjum túr.
Sameining gjaldsvæðanna þýðir
að gjald fyrir hefðbundna ferð frá
Leifsstöð á hótel í Reykjavík mun
kosta tæpar 5000 krónur, á dag-
taxta. Í dag kostar þessi ferð um
8.500 kr. samkvæmt gjaldmæli.
Raunar hafa leigubílastöðvarnar í
Reykjavík boðist til að aka farþeg-
um þessa leið fyrir 7.500 krónur og
leigubílstjórarnir á Suðurnesjum
bjóða farþegum oft það verð, þegar
farþeginn óskar fyrirfram eftir
föstu verði.
Þarf að hækka taxtana um 20%
Leigubílstjórar sem rætt var við í
flugstöðinni kváðust afar ósáttir við
þetta nýja fyrirkomulag, einkum
tekjulækkunina. „Það nennir enginn
að hanga hérna í marga klukkutíma
til að fá túr upp á fimm þúsund
krónur sem er sama gjald og op-
inber starfsmaður fær fyrir að aka
eigin bíl þessa leið og er þó á laun-
um hjá ríkinu allan tímann,“ segir
Ingólfur Jónsson leigubílstjóri.
Gunnar Pálsson, félagi hans, vekur
athygli á að beinn kostnaður við að
aka bílnum fram og til baka sé 3.700
krónur og þá sjái hver maður að
ekki sé mikið eftir í annan kostnað.
Segjast þeir félagarnir ekki tilbúnir
til að vinna launalausir, ekki frekar
en annað fólk.
Leigubílstjórarnir við Leifsstöð
sögðu ekki annað hægt en að hækka
taxtana, til þess að útgerðin stæði
undir sér. Það hefði þau áhrif að
innanbæjartaxtar í Reykjavík og
Keflavík myndu snarhækka og það
þætti fólki væntanlega ekki gott og
ekki heldur leigubílstjórum því
vinnan myndi minnka.
Magnús Jóhannsson, stöðv-
arstjóri á Ökuleiðum í Keflavík, seg-
ir að samgönguráðherra hafi ekki
hugsað málið til enda og bendir í því
sambandi á að taxtarnir þyrftu að
hækka um 20% samhliða breytingu
á aksturssvæðum. Þá vekur hann
athygli á því að mikið misræmi
myndist milli svæða. Þannig muni
áfram kosta 9000 krónur fyrir far-
þega frá Reykjavík til Selfoss, sem
er jafnlöng leið og til Keflavíkur.
Því yrði að sameina landið í eitt
aksturssvæði, fyrst á annað borð
væri farið út á þessa braut. Daníel
Björnsson, formaður Lands-
sambands leigubifreiðafélaga og
Frama í Reykjavík, segir að alltaf
þegar gjaldsvæði hafi verið stækkuð
hafi orðið að hækka taxtann. Það
þyrfti einnig að gera nú því ekki
gætu menn ekið í sjálfboðavinnu
aðra leiðina til Keflavíkurflugvallar.
Það þýddi í raun að þeir sem færu á
milli húsa í Reykjavík væru að
greiða niður aksturinn á Keflavík-
urflugvöll.
Í harkið um helgar
Samgönguráðuneytið telur að eft-
ir sameiningu aksturssvæðanna geti
leigubílstjórar nýtt bílana betur,
með því að taka farþega báðar leiðir
í flugstöðvarferðum. Ingólfur segir
að það sé ekki raunhæft. Bendir
hann á að leigubílstjórar á Suð-
urnesjum hafi enga símaþjónustu í
Reykjavík. Þeir myndu að vísu geta
farið í raðir á Reykjavíkurflugvelli
og víðar en þar myndu þeir einungis
fá innanbæjartúra. „Það væri eins
og að fá fimm rétta í lottóinu að fá
túr til Keflavíkur,“ segir hann og
telur að menn myndu eftir sem áður
aka tómir til baka.
Telur hann að Reykjavíkurbíl-
stjórarnir myndu heldur ekki hafa
mikinn áhuga á að bíða marga
klukkutíma í röð við flugstöðina eft-
ir því að fá kannski túr til baka til
Reykjavíkur, flestir myndu fara
tómir aftur í bæinn frekar en að
leggja það á sig.
Daníel Björnsson tekur undir
þetta. Segir að flestir túrar suður í
flugstöð séu snemma á morgnana.
Þar færu bílarnir aftast í langa röð
Suðurnesjabíla og gætu þurft að
bíða eftir túr til baka fram á miðjan
dag. Telur hann að menn muni ekki
geta beðið, heldur aki tómir til baka.
Daníel segir að þetta sé staðan
núna, á meðan flugið sé svona
strjált, en það geti breyst í framtíð-
inni með meira og jafnara streymi
flugvéla með farþega til landsins.
Ekki sjá Ingólfur og félagar hans
mikil sóknarfæri fyrir sig á höf-
uðborgarsvæðinu, eftir að þeim
verður heimilt að taka farþega þar.
Ingólfur segir þó líklegt að hann og
aðrir ungir bílstjórar myndu fara í
harkið í miðbænum aðfaranótt laug-
ardags, þann stutta tíma sem fleiri
leigubíla vantaði í bæinn. Ekki væri
eftir miklu að slægjast á öðrum tím-
um. Hann sagði einnig hugsanlegt
að menn hreinlega flyttu sig á leigu-
bílastöð í Reykjavík og myndu taka
bestu bitana á báðum stöðum.
Þeir félagarnir höfðu áhyggjur af
afleiðingum þessa fyrir þjónustuna
á Suðurnesjum. Stöðvarnar myndu
hætta, önnur eða jafnvel báðar, og
bílarnir væru í Reykjavík þegar
fólkið í Keflavík þyrfti mest á þeim
að halda. Það myndi leiða til þess að
fólk hætti að treysta á að geta feng-
ið bíl. Einnig hefði þetta slæm áhrif
fyrir hótelin á staðnum og fyrirtæki
sem nýttu sér þessa þjónustu.
Magnús á Ökuleiðum telur að
fljótt muni fjara undan þjónustu
leigubíla í Keflavík, eftir að breyt-
ingin telur gildi. Ungir röskir menn
muni fara í harkið í Reykjavík þegar
þeir fengju túr þangað og fljótt yrðu
engir bílar eftir í Keflavík og stöðv-
arnar myndu hætta.
Buðu fast verð
Fram kemur hjá leigubílstjór-
unum að forystumenn félaga leigu-
bílstjóra í Reykjavík og á Suð-
urnesjum og forsvarsmenn allra
leigubílastöðvanna hafa lýst sig
reiðubúna til að setja upp eitt fast
verð fyrir akstur milli flugstöðv-
arinnar og höfuðborgarsvæðisins, til
að koma til móts við kröfur um að
farþegum standi til boða fast verð
fyrir þessa þjónustu allt árið, þótt
aksturssvæðin yrðu áfram tvö. Lagt
var til að gjaldið fyrir að taka venju-
legan leigubíl yrði 8000 krónur en
9.600 fyrir stóran bíl. Telja þeir að
vel hafi verið boðið en á þetta hafi
ekki verið hlustað.
Einn úr hópnum rifjar upp að
leigubílstjórar á Suðurnesjum hafi
bréf upp á það frá fyrrverandi sam-
gönguráðherra að þeim væri heimilt
að taka sætagjald fyrir akstur frá
Leifsstöð. Hann veltir því fyrir sér
hvort ekki ætti að prófa það fyr-
irkomulag. Bjóða farþegum sem
koma úr flugi að greiða 2000 krónur
fyrir sætið, miðað við að fjórir far-
þegar taki bílinn saman, og fái akst-
ur heim að dyrum í Reykjavík. Tel-
ur hann að margir flugfarþegar
myndu vilja nýta sér þá þjónustu.
Leigubílstjórar ósáttir við að aka á innanbæjartaxta milli Reykjavíkur og Leifsstöðvar
Ekki tilbúnir að vinna launalausir
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Við Leifsstöð Leigubílstjórarnir hafa venjulega nógan tíma til að spjalla á meðan þeir bíða í röðinni við Flugstöð
Leifs Eiríkssonar. Hér hefur einn fengið túr en hinir sjá fram á fimm tíma bið eftir næsta flugi.
SUÐURNES
AUSTURLAND
Kárahnjúkar | Íbúar við Kárahnjúka hafa fengið sinn skerf af dýrðlegum litbrigðum himins í vetur, í bland við
ískaldan hraglandann frá koldimmum úrkomubökkum. XianGuo Zhang, gjaldkeri hjá Impregilo, hljóp eitt kvöldið
út með myndavélina og festi stórkostlegan dans norðurljósanna á kínversku myndavélina sína og sendi Morg-
unblaðinu, með bestu kveðjum úr Kárahnjúkum.
Ljósmynd/XianGuo Zhang
Sjónarspil norðurljósanna
Eskifjörður | Nýlega
fór fram formleg opnun
á nýju húsnæði vél-
smiðjunnar Hamars
ehf. á Eskifirði. Kári
Pálsson og Davíð Þór
Sigurbjartsson, fram-
kvæmdastjóri fyrir-
tækisins, stofnuðu
Hamar árið 1998 og
hafa látið til sín taka í
smíði toghlera og gufu-
katla, í alls kyns sér-
smíði, matvælaiðnaði
og þjónustu við fiski-
mjölsiðnað og útgerð.
Hamar ehf. er með
starfsstöðvar á tveimur
stöðum á landinu, þ.e.
við Kópavogshöfn og á Eskifirði.
Nýja húsnæðið er stálgrindar-
skemma og alls um 1.350 fermetrar
að stærð. Segir Kári Pálsson að Ham-
ar sé nú með öflugustu vélsmiðjuna á
Austurlandi og geti hún sinnt verk-
efnum fyrir austfirskt atvinnulíf.
Hamar hefur starfað á Eskifirði um
skeið og keypti á sínum tíma véla-
verkstæði Hraðfrystihúss Eskifjarð-
ar, sem nú heitir Eskja og hefur
Hamar veitt félaginu þjónustu. Þá er
Hamar einnig með ýmis önnur verk-
efni fyrir austan, svo sem fyrir
Fjarðaáls Alcoa og Impregilo. Hamar
keypti af Hampiðjunni búnað sem
notaður er til framleiðslu á Poly-Ice
toghlerum og er hann í nýja húsnæð-
inu.
Alls starfa um 15 manns hjá Hamri
á Eskifirði, flestir heimamenn og
reiknar Kári með að þeim fjölgi með
auknum verkefnum. Hann segir
Hamar kominn til að vera á Eskifirði
og væntir mikils af starfseminni á
Austurlandi í framtíðinni.
Hamar kom-
inn til að vera
Ánægðir með nýjan Hamar Davíð Þór Sigur-
bjartsson, Tómas Valdimarsson og Kári Pálsson.
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson