Morgunblaðið - 03.03.2005, Page 20
20 FIMMTUDAGUR 3. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
Bónus
Gildir 3. – 6. mars ................................ verð nú verð áður mælie. verð
Lambasúpukjöt, 2 flokkur ..................... 199 299 199 kr. kg
Danskar kjúklinabringur úrbeinaðar ....... 999 1299 999 kr. kg
Bónus beikon ...................................... 599 799 599 kr. kg
Bónus pyslur ....................................... 399 529 399 kr. kg
Myllu pylsubrauð, 5 stk. ....................... 49 79 10 kr. stk.
Bónus eplasafi .................................... 45 79 45 kr. ltr
Ýsubitar roð og beinlausir ..................... 299 399 299 kr. kg
Reyktur og grafinn lax ........................... 959 1439 959 kr. kg
Bónus WC pappír, 12 rúllur................... 198 298 16 kr. stk.
Ypplon þvottaefni, 6 kg......................... 399 499 66 kr. kg
Fjarðarkaup
Gildir 3. –6. mars................................. verð nú verð áður mælie. verð
Nautahakk magnpakkning, 2.5 kg......... 1.745 2.495 698 kr. kg
Fk bayonneskinka ................................ 779 1.298 779 kr. kg
Fk Jurtakryddað læri............................. 899 1.499 899 kr. kg
Lambahamborghryggur, Kjarnafæði ....... 985 1.448 985 kr. kg
Fk reykt folaldakjöt............................... 431 718 431 kr. kg
Appelsínur .......................................... 59 129 59 kr. kg
Rauð epli ............................................ 59 135 59 kr. kg
Paprika allir litir ................................... 185 298 185 kr. kg
Cheerios stór pakki, 992 g.................... 389 495 393 kr. kg
Kelloggs kornflögur .............................. 279 359 279 kr. kg
Hagkaup
Gildir 3. – 6. mars. ............................... verð nú verð áður mælie. verð
Hamborgarhryggur m/beini................... 799 1.398 799 kr. kg
Svínahnakki úrb. í sneiðum................... 699 1.298 699 kr. kg
Kjötborð svinabógur ............................. 399 498 399 kr. kg
Kjötborð svínasíða m/puru ................... 329 498 329 kr. kg
Freschetta roma royale, 400 g .............. 399 449 997 kr. kg
Freschetta hvítlaukspitsa, 2 stk., 400 g . 199 299 497 kr. kg
Daloon kínarúllur, 10 stk., 900 g........... 499 679 554 kr. kg
Krónan
Gildir til 8. mars................................... verð nú verð áður mælie. verð
Krónu blandað nauta og lambahakk...... 498 698 498 kr. kg
Gourmet gríakótilettur léttreyktur ........... 947 1.579 947 kr. kg
Bautabúrs Dalapylsa............................ 95 119 95 kr. kg
Móa grillaður kjúklingur kaldur .............. 489 699 489 kr. kg
Myllu samlokubrauð heilhveiti ............... 69 229 90 kr. kg
Skyr.is allar tegundir ............................ 51 71 335 kr. kg
Coke Light, 1 ltr ................................... 99 155 99 kr. ltr
Kellogǵs Special K bar, 6 pk. ................ 195 289 1.413 kr. kg
Nóa páskaegg nr. 3.............................. 399 599 2.494 kr. kg
Gevalia kaffi rautt, 10% extra ................ 249 299 453 kr. kg
Nóatún
Gildir 3. – 9. mars. ............................... verð nú verð áður mælie. verð
Lambalæri .......................................... 798 1.198 798 kr. kg
Lambahryggur ..................................... 974 1.298 974 kr. kg
Goða lambaframpartur grillsagaður ....... 449 798 449 kr. kg
Nóatún ungnautahakk .......................... 899 1.129 899 kr. kg
Móa kjúklingur 1/1 .............................. 389 598 389 kr. kg
Móa vængir magnkaup......................... 149 299 149 kr. kg
Ýsuflök með roði .................................. 399 899 399 kr. kg
Nóatúns heilsubrauð............................ 189 295 189 kr. stk.
Lýsi S3 sportþrenna ............................. 1.099 1.499 1.099 kr. stk.
Kjörís vanillu íspinnar heimilispk ........... 249 479 31. kr.stk.
Samkaup/Úrval
Gildir 3. – 6. mars ................................ verð nú verð áður mælie. verð
Bautabúrs kindahakk ........................... 499 713 699 kr. kg
Bayoneskinka Bautabúrið ..................... 998 1.481 998 kr. kg
Agúrkur íslenskar ................................. 89 137 89 kr. stk.
Tómatar innfluttir.................................. 149 299 149 kr. kg
Léttmjólk og nýmjólk ............................ 59 88 59 kr. ltr
Okkar brauð, 770 g.............................. 89 169 118 kr. kg
Gevalia kaffi, rauður 550 g ................... 277 339 504 kr. kg
Ísfugl, læri, leggir, vængir...................... 353 589 353 kr. kg
Goða kæfur, 150 g............................... 129 185 860 kr. kg
Spar, Bæjarlind
Gildir til 8. mars................................... verð nú verð áður mælie. verð
Kinda fille, kjötborð.............................. 1.698 1.895 1.698 kr. kg
Kinda vöðvar, kjötborð.......................... 1.098 1.298 1.098 kr. kg
Kinda gúllas, kjötborð .......................... 998 1.298 998 kr. kg
Kinda snitsel, kjötborð.......................... 998 1.298 998 kr. kg
Kinda hakk, kjötborð ............................ 529 689 529 kr. kg
Borgarnes beikonbitar 120 g ................ 185 231 1.542 kr. kg
Borgarnes hangiálegg 150 g................. 333 416 2.220 kr. kg
Borgarnes pepperonibitar, 120 g ........... 185 231 1.542 kr. kg
Borgarnes skinka 165 g ....................... 192 239 1.164 kr. kg
Borgarnes skólaskinka 165 g ................ 141 176 855 kr. kg
Þín Verslun
Gildir 3. – 9. mars ................................ verð nú verð áður mælie. verð
1944 Austurlenskur kjúklingur .............. 455 569 455 kr. pk.
1944 kálbögglar.................................. 310 388 310 kr. pk.
Búrfells brauðskinka ............................ 878 1.097 878 kr. kg
Capri Sonne appelsínudjús, 10 stk/pk .. 289 339 29 kr. stk.
Hunt́s tómatsósa, 680 g....................... 99 139 138 kr. kg
Frón muffins, 400 g ............................. 349 279 679 kr. kg
Frón vínarbrauð, 400 g......................... 349 279 697 kr. kg
Ýsa, skinka og hakk
HELGARTILBOÐIN | Neytendur@mbl.is
Morgunblaðið/Þorkell
Ég hef gert ýmis tilbrigði afþessum ýsurétti,“ segirNanna Rögnvaldardóttir,matgæðingur og höf-
undur matreiðslubókanna Matarást
og Matreiðslubók Nönnu, þegar við
göngum með henni um Hagkaup í
Kringlunni. „Ég nota þá mismunandi
tegundir af grænmeti og ýmiskonar
kryddjurtir og hann er alltaf jafn-
vinsæll. Galdurinn er að baka fiskinn
með roðinu og láta það snúa upp, þá
er miklu minni hætta á að fiskurinn
verði þurr og svo er ekkert mál að
fletta roðinu af þegar hann er tekinn
út úr ofninum. Yfirleitt er ég mun
hrifnari af þorski en ýsu en í þennan
rétt finnst mér þó best að hafa ýsu.“
Nanna teygir sig í sítrónur, sem
hún segir ómissandi í matseld. „Ég
nota þær oft í staðinn fyrir edik.
Sama á við um lauk, hann verður að
vera með, hann gefur svo gott bragð.
Laukur er ekki bara laukur og stund-
um á rauðlaukur betur við en þessi
venjulegi. Hann er bragðmildari. Ég
hef tekið eftir því að sumir vilja ekki
sjá lauk í mat. Sennilega er það
vegna áferðarinnar en mér finnst
hann ómissandi,“ segir hún.
„Ég vildi óska að úrvalið af kart-
öflum væri meira og betra en raunin
er. Það væri svo gott að hafa úr fleiri
tegundum að velja,“ segir hún og tín-
ir kartöflur í poka. „Reyndar má nota
forsoðnar kartöflur í þennan rétt ef
fólk er að flýta sér, það munar svona
15–20 mínútum.“
Nanna vill hafa tómata fullþrosk-
aða og hárauða en ekki harða, hálf-
græna og bragðlausa. „Hjá mér fara
tómatar aldrei í ísskáp en tómatana
sem fást núna verður að geyma í tvo
til þrjá daga að minnsta kosti. Ef
tómatar verða of linir má
alltaf nota þá í súpur
eða sósur,“ segir
hún.
Nanna segist
ekki gera sér
far um að
kaupa lífrænt
ræktað græn-
meti en hún
velji það ef verð-
munurinn er ekki mikill.
Hún segist yfirleitt ekki vera búin
að ákveða matseðilinn þegar hún
kaupir í matinn og upplýsir um leið
að hún eigi um 1.400 matreiðslubæk-
ur sem hún sæki hugmyndir sínar í.
„Matseðillinn ræðst af því hvað mér
líst best á í búðinni hverju sinni,“ seg-
ir hún. „Ég hef líka gaman af að elda
bara úr því sem til er í ísskápnum
hverju sinni. Það er alltaf eitthvað til
sem hægt er að gera góða máltíð úr.
Það getur líka verið gaman að breyta
uppskriftum og reyna eitthvað nýtt
ef eitthvað vantar upp á það sem þar
stendur í staðinn fyrir að hlaupa út í
búð.“
Enginn uppáhaldsréttur
Það er oft gestkvæmt við matborðið
hjá Nönnu þótt þau séu tvö í heimili,
hún og sonurinn. Um helgar koma
dóttirin, tengdasonur og tvö barna-
börn og svo eru það
matarveisl-
urnar. Nanna
segir að
reyndar séu
bæði börn-
in hennar
liðtækir
kokkar.
„Það þýðir
ekki að spyrja
um uppáhalds-
rétti fjölskyld-
unnar. Þeir eru ekki
til,“ segir hún. „Einu sinni um tíma
borðaði dóttir mín bara grænmeti –
sem sonurinn vildi ekki sjá – en það
er löngu liðin tíð. Ég reyni því að vera
með fjölbreyttan mat og gera öllum
til hæfis en þetta er matvönd fjöl-
skylda. Ef ég spyr hvað þau vilja fá
er ég oft beðin um gamla góða ís-
lenska matinn, eins og kjöt í karríi,
og þriggja ára dóttursonur minn er
hrifinn af kakósúpunni. Hann hefur
alltaf verið áhugasamur um elda-
mennsku og segist ætla að verða
kokkur þegar hann verður stór. Þeg-
ar hann kemur sækir hann í að hjálpa
til í eldhúsinu og ég banna honum
það ekki. Ég læt hann gera það sem
ég veit að hann ræður við; hræra í
pottum, krydda og annað. Börn eiga
að taka þátt í matreiðslunni en ekki
bara að afhýða kartöflurnar. Það er
svo leiðinlegt.“
Grænmeti undir ýsuþaki
700 g kartöflur
1 rauðlaukur
3 msk ólífuolía
nýmalaður pipar
salt (Maldon)
2–3 paprikur
1 kúrbítur (má sleppa)
nokkrar svartar ólífur (má sleppa)
800 g ýsuflök, verða að vera með
roði
nýkreistur safi úr einni sítrónu
Ofninn hitaður í 215°C. Kartöfl-
urnar skornar í fremur þunna báta
og rauðlaukurinn í báta eða þykkar
sneiðar. Dreift á botninn á eldföstu
móti, 2 msk af ólífuolíu ýrt yfir og
kryddað með pipar og salti. Sett í
ofninn og bakað í um 15 mínútur.
Paprikurnar fræhreinsaðar og
skornar í ræmur og kúrbíturinn í
þykkar sneiðar. Paprikur, kúrbítur
og ólífur eru svo sett í fatið með kart-
öflunum, hrært og steikt í um 5 mín-
útur í viðbót. Ýsan beinhreinsuð og
skorin í stykki, krydduð með pipar og
salti og svolitlum sítrónusafa ýrt yfir.
Fatið tekið úr ofninum, ýsubitarnir
lagðir ofan á grænmetið og roðið látið
snúa upp, 1 msk af ólífuolíu ýrt yfir,
ásamt dálitlum sítrónusafa, sett aftur
í ofninn og bakað í 8–10 mínútur í við-
bót. Roðinu er svo flett af ýsunni áð-
ur en hún er borin fram og svolitlum
sítrónusafa e.t.v. dreypt yfir.
Með þessu er gott að hafa sósu eða
ídýfu úr sýrðum rjóma:
Kryddjurtaídýfa
1 dós (200 g) sýrður rjómi
fínrifinn börkur af hálfri sítrónu eða
nýkreistur sítrónusafi eftir smekk
saxaðar ferskar kryddjurtir, t.d. bas-
ilíka eða óreganó
nýmalaður pipar
salt
Allt hrært vel saman og látið
standa smástund.
HVAÐ ER Í MATINN? | Nanna á um 1.400 matreiðslubækur
Börn eiga að
taka þátt í
matreiðslunni
„Galdurinn er að baka fiskinn með roðinu og láta
það snúa upp, þá er miklu minni hætta á að fisk-
urinn verði þurr,“ segir Nanna Rögnvaldardóttir
þegar farið er með henni í matvörubúð.
Morgunblaðið/Þorkell
Tilbrigði við soðninguna: Nanna Rögnvaldardóttir tekur við ýsunni hjá Svani Magnússyni.
krgu@mbl.is