Morgunblaðið - 03.03.2005, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2005 23
UMRÆÐAN
SKÓLAHALD í borginni er
mönnum ofarlega í huga þessa dag-
ana enda ekki langt síðan skólastarf
lá niðri í öllum borgarreknu skól-
unum í tvo mánuði vegna verkfalls
grunnskólakennara. Þá hefur um-
ræðan eftir áramót
mikið snúist um sjálf-
stæðu skólana í
Reykjavík eftir að við
borgarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins flutt-
um tillögu um þá í
borgarstjórn Reykja-
víkur en þeir berjast
nú fyrir lífi sínu vegna
andstöðu R-listans við
að breyta kerfinu.
Þrátt fyrir að aðrir
fulltrúar Samfylking-
arinnar sjái kostina
við það að hafa sjálf-
stætt rekna skóla í
borginni heykist Stef-
án Jón Hafstein, formaður mennta-
ráðs, enn við og heldur uppi vörn-
um fyrir óbreytt kerfi.
Aukin miðstýring
Þrátt fyrir allt tal um aukið sjálf-
stæði ríkir mikil miðstýring í skóla-
málum borgarinnar og heldur hefur
hún aukist eftir síðustu stjórnkerf-
isbreytingar R-listans. Því miður er
enginn vilji til að stíga næstu skref
í dreifstýringu með því að skipta
borginni í skólahverfi og færa yf-
irstjórnina nær foreldrum. Í stað
þess erum við komin með eitt
menntaráð, eina skólanefnd, yfir
öllum leik- og grunnskólum borg-
arinnar! Okkur pólitískt kjörnum
fulltrúum er gert illmögulegt að
sinna lögbundnu eftirlitshlutverki
okkar.
Niðurnjörvaðir
kjarasamningar
Stefán Jón Hafstein telur að ekk-
ert sé jafnhamlandi á sjálfstætt
skólastarf og aðhald ríkisins og nið-
urnjörvaðir kjarasamn-
ingar. Stefáni Jóni er
fullkunnugt að í
menntamálaráðuneyt-
inu fer nú fram um-
fangsmikil endur-
skoðun bæði á
grunnskólalögum og
aðalnámskrá undir því
markmiði að auka
sveigjanleika, sjálf-
stæði og enn frekari
dreifstýringu. Fjár-
hagslegt og faglegt
sjálfstæði skólanna
takmarkast mjög af
kjarasamningum enda
er hlutfall launa 86% af
rekstrargjöldum skólanna. Árið
2000 voru farnar nýjar leiðir í
kjarasamningagerð og samningur
gerður sem færði skólastarfinu
aukið svigrúm og samið var um
launapott sem skólastjórar höfðu til
að umbuna kennurum fyrir ábyrgð,
álag og færni í starfi. Því miður
tókst framkvæmdin illa, kennarar
fóru í verkfall sem síðan leiddi til
kjarasamnings til fjögurra ára sem
t.d. skerðir verkstjórnarvald skóla-
stjóra. Reykjavíkurborg undir for-
ystu R-listans sem vill vera í far-
arbroddi hvað varðar skólamálin
getur hér ekki skorast undan
ábyrgð.
Sjálfstæðir skólar
Með sjálfstæðum skólum er átt
við skóla sem ekki eru reknir af
Reykjavíkurborg og ekki heyra
undir menntaráð (áður fræðsluráð).
Stefna Sjálfstæðisflokksins er mjög
skýr í þessum málum, við viljum að
nemendur geti valið á milli skóla og
að jafnræði ríki þannig að nem-
endum sé ekki mismunað eftir því
hvort þeir ganga í borgarrekinn
skóla eða sjálfstæðan einkarekinn
skóla. Til þess að fylgja þeirri
stefnu eftir viljum við tryggja að
allir skólar sitji við sama borð ef
svo má að orði komast og sambæri-
legt fjármagn fylgi hverjum nem-
anda óháð rekstrarformi skólans.
Um það snýst málið en Stefán Jón
kýs að flækja það með alls kyns
orðaflaumi sem kemur málinu ekk-
ert við. Það sem er þó alvarlegast
er að R-listinn mismunar reykvísk-
um nemendum gróflega. Ákvarð-
anir hans hafa leitt það af sér að
nemendur og forráðamenn þeirra
sem kjósa aðra skóla en þá borg-
arreknu þurfa að greiða sífellt
hækkandi skólagjöld. Eru þessir
foreldrar ekki líka skattgreiðendur?
Vörn Stefáns Jóns
Guðrún Ebba Ólafsdóttir
fjallar um menntamál ’Til þess að fylgjaþeirri stefnu eftir
viljum við tryggja að
allir skólar sitji við
sama borð …‘
Guðrún Ebba
Ólafsdóttir
Höfundur er borgarfulltrúi og fulltrúi
Sjálfstæðisflokksins í menntaráði.
af glæsilegum
dömuskóm frá
Ný sending
Smáralind • Kringlunni
Mikið úrval
Ráðstefnan: „Staða og framtíð alaskaaspar á Íslandi"
laugardaginn 5. mars nk., í húsi Íslenskrar erfðagreiningar á Sturlugötu 8 í Vatnsmýrinni í Reykjavík.
Ráðstefnan hefst kl. 13.00 og er öllum opin og ókeypis aðgangur.
Að ráðstefnunni standa Skógræktarfélag Íslands og Rannsóknastöð Skógræktar ríkisins á Mógilsá í samvinnu
við Skógfræðingafélag Íslands og Landbúnaðarháskóla Íslands.
Heiðursgestur ráðstefnunnar er Haukur Ragnarsson, fyrrv. forstöðumaður Rannsóknastöðvarinnar á Mógilsá.
Ráðstefnustjórar eru Guðbrandur Brynjúlfsson, formaður Landgræðslusjóðs og stjórnarmaður í Skógræktarfélagi Íslands
og Ólafur Arnalds, deildarforseti Umhverfisdeildar í Landbúnaðarháskóla Íslands.
DAGSKRÁ:
13:00 Ráðstefnan sett af Guðbrandi Brynjólfssyni.
13:10 Haukur Ragnarsson og alaskaöspin á Íslandi:
Hrefna Jóhannesdóttir, formaður Skógfræðingafélags Íslands.
13:20 Alaskaöspin í gömlum og nýjum heimkynnum, gagn og nytjar:
Brynjólfur Jónsson og Einar Gunnarsson.
13:40 Vöxtur alaskaaspar á Íslandi:
Arnór Snorrason.
14:00 Lífríki asparskóga:
Jón Ágúst Jónsson, Bjarni Diðrik Sigurðsson,
Guðmundur Halldórsson og Brynjólfur Sigurjónsson.
14:20 Of stór tré fyrir þéttbýli?:
Áslaug Traustadóttir.
14:40 Alaskaöspin í görðum og grænum svæðum:
Tryggvi Marínósson.
15:00 Málsvörn alaskaaspar:
Jón Geir Pétursson.
15:20 Kaffihlé.
15:40 Aðlögun, erfðafræði og klónaval alaskaaspar:
Aðalsteinn Sigurgeirsson.
16:00 Breytileiki í frostþoli meðal klóna alaskaaspar að vor- og haustlagi:
Freyr Ævarsson.
16:20 Alaskaösp og asparryð:
Halldór Sverrisson, Guðmundur Halldórsson
og Aðalsteinn Sigurgeirsson.
16:40 Áhrif umhverfisþátta á vöxt alaskaaspar:
Bjarni D. Sigurðsson.
17:00 Umræður og samantekt.