Morgunblaðið - 03.03.2005, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 03.03.2005, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2005 25 FASTEIGNAVERÐ á höfuðborg- arsvæðinu hækkaði um 5,1% í janúar frá fyrri mánuði og um 27,9% á síðustu 12 mán- uðum. Eins og sjá má á með- fylgjandi mynd koma hækk- anir síðustu 12 mánaða í kjölfar mikilla hækkana síð- ustu fimm ár þar á undan. Á þessum tíma hefur fast- eignaverð hækkað um 65% umfram verðlag. Raunverð fasteigna en nú komið langt upp fyrir sögulegt meðaltal. Samt virðast fæstir vera á þeirri skoðun að hækkun fasteignaverðs muni linna í bráð. Flestir virðast þvert á móti telja að fasteignaverð muni halda áfram að hækka hröðum skrefum á næstu mánuðum. Hluti af þessum hækk- unum á sér eðlilegar skýr- ingar. Einstaklingum bjóðast nú lán á mun betri kjörum en áður. Það er eðlilegt að slík breyting valdi einhverri hækkun á fasteignaverði. Eins hefur höfuðborg- arsvæðið verið að stækka hratt. Af þessum sökum er eðlilegt að vel staðsettar eignir hækki í verði þar sem þær eru af skornum skammti. En hækkanirnar eru nú orðnar það miklar að erfitt er að réttlæta þær með hliðsjón af þessum þáttum. Raunverð fasteigna mun ekki hækka endalaust. Til lengri tíma er það nokkuð stöðugt og miklar hækkanir leiða oftar en ekki til mikilla lækkana nokkrum árum síð- ar. Slíkar lækkanir geta leitt til gríðarlegra vanskila hjá þeim sem taka stór lán til þess að kaupa eignir þegar verðið er hátt. Saga síðustu áratuga sýnir að húsnæðisbóla sem springur er ein algengasta orsök alvarlegra fjármálakreppa. Þessi mikla hækkun húsnæðisverðs og sú gríðarlega útlánaþensla sem henni fylgir er því miður dæmigerð fyrir land sem nýlega hefur gengið í gegnum miklar umbætur í átt til aukins frelsis í fjármálum. Fjár- málastofnanir keppast um að bjóða við- skiptavinum aukna þjónustu í formi stærri lána á lægri vöxtum. Aukið framboð láns- fjár ýtir undir einkaneyslu og leiðir af sér hækkanir eignaverðs. Hækkandi eignaverð bætir eiginfjárstöðu heimilanna sem aftur gerir það að verkum að útlánin virðast öruggari en þau eru og heimilin virðast hafa bolmagn til þess að taka enn meiri lán. Eins og fyrr segir endar slík atburðarás oft með verulegri leiðréttingu á verði hús- næðis. Verð einstakra eigna lækkar oft það mikið að söluverð þeirra dugar ekki til þess að borga áhvílandi skuldir. Þegar þetta ger- ist geta vanskil og útlánatöp bankanna hæglega aukist það mikið að allt eigið fé bankakerfisins hverfur og bankarnir lenda sjálfir í fjárhagslegum erfiðleikum. Atburðarás af þessum toga átti sér til dæmis stað í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi á fyrri hluta tíunda áratugarins. Hún leiddi til kreppu sem endaði með því að ríkisstjórnir þessara landa þurftu að hlaupa undir bagga með bönkunum með ærnum kostnaði fyrir skattgreiðendur. Svipaða sögu er að segja af Japan. Húsnæðisbólan í Japan sprakk árið 1989. Síðan þá hafa gríðarleg útlánatöp og vanskil sligað japanska bankakerfið. Ríkisstjórn Jap- an hefur aftur og aftur þurft að dæla peningum inn í bankakerfið. Þrátt fyrir það má segja að japanska hag- kerfið hafi ekki enn náð sér al- mennilega á strik aftur. Húsnæðisverð á höfuðborg- arsvæðinu hefur nú hækkað það mikið að ekki er lengur hægt að horfa framhjá hætt- unni á verulegri leiðréttingu með tilheyrandi fjár- málaóstöðugleika. Og þessi hætta magnast þeim mun meira sem fasteignaverð hækkar. Afskaplega mik- ilvægt er að klippt verði á þessa atburðarás áður en hún leiðir hagkerfið í algerar ógöngur. Það er hins vegar hægara sagt en gert. Erlendis er áhrifamáttur peningamála- stjórnar á þróun húsnæð- ismarkaðar víðast hvar mjög mikill. Húsnæðislán bera víð- ast hvar nafnvexti. Vaxta- hækkanir hafa því bein áhrif á kostnað slíkra lána. Hér á landi bera hús- næðislán hins vegar raunvexti. Seðlabanki Íslands hefur því minni tök á að hafa áhrif á þróun húsnæðismarkaðar. Á Íslandi verð- um við því að treysta í meira mæli en ann- ars staðar á það að bankarnir sjálfir stilli lánveitingum sínum í hóf. Enn sem komið er hefur því miður lítið borið á því að hækkun fasteignaverðs hafi valdið því að bankarnir endurmeti áhætt- una sem fylgir húsnæðislánum. Þeir bjóða enn sams konar lán, þ.e. sömu veðhlutföll og sömu vexti, og þeir buðu síðastliðið haust þegar húsnæðisverð var töluvert lægra. Það segir sig hins vegar sjálft að 90% lán þegar fermetraverðið er orðið 200.000 kr. eru mun áhættusamari en 90% lán þegar fermetraverðið var 150.000 kr. Ef fast- eignaverð heldur áfram að hækka kemur að því að það verður algert ábyrgðarleysi að bjóða upp á þau háu veðhlutföll sem nú eru í boði. Bankarnir hafa sterka hvata til þess að ganga ekki of langt í lánveitingum til hús- næðiskaupa. Dæmin sanna að óhóf í lánveit- ingum til húsnæðismála er einkar góð leið til þess að tapa miklu fé. Bankarnir ættu að sjá hag sinn í því að lækka hámarks- veðhlutföll þegar húsnæðisverð hækkar umfram það sem líklegt er að það verði til lengdar. Slík aðgerð er skynsamleg frá sjónarmiði áhættustjórnunar. En hún hefði einnig þau jákvæðu áhrif að slá á væntingar um áframhaldandi hækkun húsnæðisverðs. Raunverð húsnæðis er orðið ískyggilega hátt Eftir Jón Steinsson Jón Steinsson ’Ef fasteigna-verð heldur áfram að hækka kemur að því að það verður al- gert ábyrgð- arleysi að bjóða upp á þau háu veðhlutföll sem nú eru í boði.‘ Höfundur stundar doktorsnám í hagfræði við Harvard-háskóla í Bandaríkjunum. na - m á ð ég tók bara við af honum,“ segir Cesar. „Við vorum alveg að komast að vesturhliðinni. Þar stoppuðum við allt í einu og foringinn okkar kallar okkur til baka. Um leið og ég sný mér við þá sé ég glitta í eitthvað á jörðinni, ég rétt náði að snúa mér frá því, þá springur það. Svo man ég ekki meira.“ Cesar vaknaði um leið og hann féll aftur í jörðina eftir sprenginguna. „Ég fann ekki fyrir neinu en vissi auðvitað að ég var stórslasaður. Ég heyrði ekki neitt, sá bara reyk og sá félaga mína öskra á mig þannig að ég fór að þreifa á mér, leitaði að fætinum því ég fann ekki fyr- ir fætinum og fann þá að hann var í lagi. Svo stakk ég puttanum í vinstra augað á mér og fann blóð, þá fór ég að verða órólegur. Ég reyndi að setjast upp en var alveg lamaður. Síðan kom læknirinn hlaupandi, þeir tóku mig og hentu mér upp í Hummerinn og keyrðu með mig á spítalann inni í fangelsinu,“ segir Cesar. Sprengjubrot fjarlægt úr höfði Sprengjur líkar og sú sem Cesar varð fyrir eru al- gengar í Írak, að hans sögn. Þeim er fjarstýrt, en sá sem sprengir togar í spotta um leið og skotmarkið gengur eða ekur fram hjá. Að sögn Cesars er þeim oft komið fyrir á vegum til að sprengja upp far- artæki hermanna. „Sprengjan sem ég lenti í var sem betur fer hönn- uð til að drepa hermenn en ekki skriðdreka, þannig að ég bjargaðist vel.“ Þess má geta að Cesar var sá eini sem slasaðist í sprengingunni. Hann gekkst undir aðgerð í fangelsinu þar sem sprengjubrot var fjarlægt úr höfði hans. Hann telur að sú aðgerð hafi líklegast bjargað lífi hans en þar sem hann stóð það nálægt sprengjunni þegar hún sprakk, eða um 2 metra frá, skaust sprengjubrotið inn undir hjálminn og festist í höfði hans og brákaði höfuðkúpuna. Þá fékk hann sprengjubrot í vinstra auga, alla vinstri hlið líkamans og í hægri fótinn og hendur. Cesar telur að búnaðurinn hafi dregið úr meiðslum, hnéhlífar, vesti og annar búnaður sem er utan á búningi hans. Cesar hlaut enga innri áverka eða eins og hann orðar það sjálfur: „Þeir settu ekki nógu mikið sprengiefni í sprengjuna þannig að brot- in festust á mér en fóru ekki inn.“ Frá Abu Ghraib var flogið með Cesar til Bagdad og þaðan hringdi hann í móður sína í fyrsta sinn frá því atvikið varð og sagði henni frá því sem gerst hafði. „Það var þá sem ég uppgötvaði að það vissi enginn af þessu. Ég reyndi eins og ég mögulega gat og segja henni eins hægt og rólega frá og hægt var, en það var erfitt.“ Sagði að hann myndi missa sjón á auga fyrir fullt og allt Frá Bagdad var flogið með Cesar til Þýskalands þar sem augað á honum „var saumað saman“. Læknir þar hefði hins vegar tjáð Cesari að hann myndi missa sjón á vinstra auga fyrir fullt og allt vegna sprengjubrotsins sem hann fékk í augað en Cesar var ekki tilbúinn að sætta sig við þær málalyktir. „Ég var ekki sáttur við augnlækninn og bað um það aftur og aftur að fara til Bandaríkjanna. Þeir urðu loks við því og þar fór ég í aðra aðgerð á auga, á hersjúkrahúsi í Washington.“ Læknum tókst að græða hornhimnu í auga hans, úr líffæragjafa, og í dag hefur Cesar takmarkaða sjón á vinstra auga en gerir sér vonir um að hann fái meiri sjón eftir því sem lengra líður þótt óvíst sé að hann sjái nokkurn tímann jafn vel og með hægra auga. Móðir Cesars, Arna Bára Arnarsdóttir, fór ut- an til Bandaríkjanna og var hjá syni sínum á sjúkra- húsinu og faðir hans, sem býr í Bandaríkjunum, heimsótti hann þangað líka. Cesar segist ekki finna mikið fyrir meiðslum í auga eða höfði í dag. Hann er með stóran skurð sem nær frá vinstra eyra og fram á gagnauga en á von á að sárin grói og verði minna áberandi. „Það er nátt- úrlega óþolandi að geta ekki séð með auganu, ég sé eins og í móðu með því vinstra, ég greini liti, en ekki meira. Vonandi fæ ég eins mikla sjón og ég mögu- lega get.“ Þá er hann haltur á vinstri fæti, en sprengjubrot skar í sundur taug undir hné, þannig að hann getur ekki lyft fætinum. Gæti hugsað sér að læra afbrotafræði Cesar segir um dvölina á sjúkrahúsinu ytra að vel sé tekið á móti særðum hermönnum í Bandaríkjunum. Hann hafi fengið hundruð gjafa og heillaóska frá fólki sem hann þekki margt hvað ekki neitt. Þá var hann sæmdur heiðursorðu bandaríska hersins, purpurahjartanu, við hátíðlega athöfn á sjúkrahús- inu í Washington áður en hann hélt þaðan. Cesar viðurkennir raunar að þetta sé sú orða sem enginn hermaður vilji veita viðtöku, en hún er veitt þeim sem særast í orrustu, og aðstandendum hermanna sem falla í bardaga. Af spítalanum fór Cesar fyrir rúmri viku á her- stöðina í N-Karólínu, þar sem hann gekkst undir aðra læknisskoðun, og þaðan kom hann til Íslands í gærmorgun í mánaðar leyfi, þar sem hann ætlar að hvílast og hugsa næstu skref. „Ég er áfram í hernum en það er ljóst að ég fer ekki til Íraks í þetta skiptið.“ Cesar segir óráðið hvað taki við eftir að leyfinu lýkur. Hann á ennþá tvö ár eftir af samningi hjá hernum en hefur gælt við þá hugmynd að læra af- brotafræði í háskóla í Bandaríkjunum og starfa síð- ar meir hjá lögreglunni þar í landi. Þá er einnig hugsanlegt að hann mennti sig til foringjatignar í bandaríska hernum en hann hyggst ræða þau mál við yfirmann sinn þegar hann snýr aftur til N- Karólínu. Cesar segir um sprengjuárásina að hún trufli hann ekki mikið í dag. „Ég er auðvitað ekki sáttur við þetta en ég er heppinn að vera á lífi og er ánægð- ur með það. Ég hugsa öðru hvoru um atvikið í Írak og hugsa í hvert sinn hvað ég hafi verið heppinn að lifa þetta af,“ segir Cesar Arnar. r stórslasaður“ reldrar Cesars og aðstoðarforingi bandaríska land- u, heiðursorðu bandaríska hersins. kristjan@mbl.is Morgunblaðið/Golli með það,“ segir Cesar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.