Morgunblaðið - 03.03.2005, Page 30

Morgunblaðið - 03.03.2005, Page 30
30 FIMMTUDAGUR 3. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ GuðmundurBjörn Sveinsson fæddist í Berjanesi í Vestur-Landeyjum 6. október 1936. Hann lést á líknar- deild Landspítalans í Kópavogi 24. feb. síðastliðinn. Foreldr- ar hans voru Guðrún Auðunsdóttir, f. 30. júlí 1905, d. 9. sept- ember 1991, og Sig- urmar Sveinn Björnsson, f. 28. maí 1908, d. 9. maí 1987. Hinn 18. júlí 1969 kvæntist Björn Guðrúnu Ólöfu Ólafsdóttur, f. 18. júlí 1939 á Pat- reksfirði og ólst upp á Sellátrum í Tálknafirði. Börn þeirra eru: 1) Guðlaug Sigurrós, f. 1960, maki Þór Magnússon, f. 1958, og eiga þau Guðrúnu Ólöfu, f. 1981, sam- býlismaður hennar er Fannar Karvel Steindórsson, f. 1980; Erlu Dís, f. 1984; Guðmund Björn, f. 1985, og Kristján Sig- urð, f. 1992. 2) Guðjón Björnsson, f. 1970, maki Friðrika Alda Sig- valdadóttir, f. 1972, og eiga þau Sigvalda Björn, f. 1994; Elnu Ólöfu, f. 1999; og Símon Michael, f. 2002. Fyrir hjóna- band átti Guðmund- ur Björn drengina Egil Grétar, f. 1960, og Bernharð. f. 1968. Guðmundur Björn fluttist árið 1937 til Hallgeirseyjar í Austur-Landeyjum ásamt móður sinni og ólst þar upp til 17 ára aldurs. Ungur fluttist hann til Reykjavíkur þar sem hann var til sjós á varðskipinu Ægi og síðar á vertíðarbátum. Mestan hluta ævi sinnar starfaði hann við ýmis verslunarstörf, fyrst hjá Fálkanum og síðan Síld og fisk. Árið 1971 fluttist Björn til Tálknafjarðar þar sem hann var kaupfélagsstjóri í tíu ár. Árið 1981 hófu þau hjónin sjálfstæðan atvinnurekstur á Tálknafirði og síðar í Kópavogi og Reykjavík. Síðustu níu árin ráku þau mat- sölustaðinn Hamragrill í Kópa- vogi. Útför Guðmundar Björns fer fram frá Digraneskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Þá er komið að kveðjustund, elsku tengdapabbi. Mig langar með nokkrum orðum að minnast þín. Það eru um tólf ár síðan ég kynntist þér fyrst. Þá bjugguð þið hjónin í Kópavoginum og rákuð stórt og mikið fyrirtæki. Ég var ekki lengi að átta mig á því að þú varst maður með gott hjartalag. Þú hafðir mikla frásagnarhæfileika og áttir það til að brydda upp á ótrúlegustu um- ræðuefnum. Það var sama hvert umræðuefnið var, alltaf varst þú vel að þér og lagðir orð í belg. Þú sást líka yfirleitt alltaf spaugilegu hlið- arnar á málunum. Nánast allaf þeg- ar ég hitti þig eða talaði við þig í síma þá sagðir þú „velkomin á fæt- ur“, sama hvað klukkan var. Dugn- aður og eljusemi einkenndu þig og vinnudagurinn var langur og strangur árið um kring en aldrei kvartaðir þú. Þegar ég og fjölskylda mín flutt- um til Danmerkur í sumar var heilsa þín ekki góð og því var kveðjustundin erfið. Undir það síð- asta var mjög erfitt að vita af þér svona mikið veikum án þess að geta verið nálægt þér. Þá fyrst fannst okkur við vera langt í burtu. Við er- um afskaplega fegin því að Guðjón kom í heimsókn nú fyrir skömmu og gat átt með þér góða stund. Það sem hjálpaði okkur mikið var hvernig þið Óla tókuð á þessum veikindum, þið voruð svo raunsæ og róleg og gátuð róað okkur í gegnum símann. Nú ertu farinn og við verð- um að læra að lifa með því. Þín verður sárt saknað. Friðrika Alda (Dikka). Í dag kveðjum við Guðmund Björn mág minn eftir langa sam- fylgd. Andlát hans bar brátt að. Vissulega má þakka fyrir að dauða- stríðið sé ekki langt hjá þeim sem fer ef banameinið er af því tagi sem hans var. Hins vegar fá þá eftirlif- endur ekki langan tíma til að sætta sig við það sem í vændum er. Það er til dæmis langt frá því að ég sé búin að venja mig við tilhugsunina um að sjá ekki oftar kíminn svip Björns og eiga ekki von á hnyttnum athuga- semdum hans og glettnislegum til- svörum í amstri dagsins. Björn og Ólöf systir mín unnu ná- ið saman mest af starfsævinni. Þau ráku matvöruverslanir áratugum saman og síðast matsölustað. Hvar sem þau var að finna máttu við- skiptavinir eiga von á að þeim væri sinnt af alúð. Hvergi var betra að kaupa í matinn og eins var stundum gengið langt í að sinna þörfum sér- vitringa á Hamragrilli. Björn matbjó lengi eftir að heilsuna þraut. Hann var svo vel verki farinn að þegar hann var við störf, þurfti færri en ella til að manna staðinn. Þó þótti fastagestum ekki síst vænt um að þau hjónin gáfu sér stundum tíma til að spjalla við gestina, enda áttu þau fasta viðskiptavini sem versluðu helst ekki við aðra. Hins vegar lét Björn sér ekki allt- af nægilega annt um eigin velferð. Undir lokin á starfsferli sínum vann hann lengur en heilsan leyfði, og alla sína starfsævi vann hann myrkranna á milli. Nú var komið að því að setjast í helgan stein og hvíl- ast eftir átökin, en þá var tekið í taumana með öðru móti. Ólöf systir mín missir nú besta vin sinn, eiginmann, barnsföður, umhyggjusaman fjölskylduföður og nánasta samstarfsmann mest af starfsævi sinni. Guðlaug og Þór, Guðjón og Dikka og barnabörnin eiga fulla samkennd okkar úr stór- fjölskyldunni í sorg sinni. Á stund- um eins og þessari er svo margt sem fólk vildi gjarnan geta gert, en þá blasir vanmátturinn við. Þótt ekkert geti fyllt skarðið sem Björn lætur eftir sig, get ég þó sagt að hugur okkar í fjölskyldunni er hjá ykkur á þessari erfiðu stundu. Guð blessi minningu Björns mágs míns. Sigurlína Davíðsdóttir. Vegir skiptast. – Allt fer ýmsar leiðir inn á fyrirheitsins lönd. Einum lífið arma breiðir, öðrum dauðinn réttir hönd. Einum flutt er árdagskveðja, öðrum sungið dánarlag, allt þó saman knýtt sem keðja, krossför ein með sama brag. Veikt og sterkt í streng er undið, stórt og smátt er saman bundið. (Einar Ben.) Guð blessi minningu Guðmundar Björns Sveinssonar. Elsku Ólöf, fjölskylda og aðrir aðstandendur. Guð gefi ykkur styrk í sorginni. Guðlaug J.A. Einarsdóttir og fjölskyldur. Með þessum línum viljum við kveðja góðan samstarfsfélaga okk- ar til margra ára, Björn Sveinsson frá Tálknafirði. Bjössi, eins og hann var kallaður, var umsvifamikill í sínu byggðarlagi um margra ára skeið og rak meðal annars bensín- stöð með veitingum og skipaaf- greiðslu. Það var í gegnum hana sem okkar samstarf hófst þegar Bjössi tók við afgreiðslu Ríkisskipa í Tálknafirði. Samstarf við Bjössa var ávallt mjög gott eins og reyndar ein- kenndist í þessu umhverfi hvar sem var á landinu. Allir báru virðingu fyrir Bjössa. Glaðlyndur og rögg- samur og ávallt tilbúinn til að koma til móts við okkur sem á skipunum sigldu til að gera þjónustuna sem besta og öruggasta. Í minningunni sjáum við Bjössa fyrir okkur skyrtuklæddan á appelsínugulum innilyftara á ójöfnum veginum milli skips og vöruskemmu. Þau voru oft löng símtölin sem við áttum, ekki bara um starfið heldur einnig um lífið og umhverfið á sunnanverðum Vestfjörðum. En allt sem gott þykir vera er breytingum undirorpið og þannig æxluðust mál að Bjössi ákvað að flytja suður á mölina og síðar var rekstri Ríkisskipa hætt. Þótt við hittum hann ekki lengur vikulega áttum við þó til að mætast eins og skip að nóttu og rifja upp gömlu góðu tímana. Nú verða þær stundir ekki fleiri og komið að síð- ustu kveðjustund. Við viljum þakka Bjössa fyrir það góða samstarf og vinskap sem við áttum og sendum eiginkonu hans, börnum og öðrum ættingjum innilegustu samúðar- kveðjur okkar. Hilmar Snorrason, Jón Arilíus Ingólfsson, fv. skipstjórar Ríkisskipum. Það var sumarið 1985 að kynni mín hófust af Birni Sveinssyni, en það sumar fékk ég vinnu hjá honum og Ólu í Esso – Nesti á Tálknafirði. Þau ráku fyrirtækið af metnaði og myndugleik. Eru mér í fersku minni allir þeir dagar og helgar sem yfirfullt var af fólki sem allt hafði það sameiginlegt að vera svangt. Ég man hvað ég var hissa þegar ég uppgötvaði að fólk gerði sér ferð frá Ísafirði í Tálknafjörð til þess að fara út að borða. En undrun mín stóð ekki lengi því maturinn var sá besti. Björn var góður vinnuveitandi, kröfuharður en sanngjarn. Þar sem matargerð er eitt af mínum áhuga- málum, þá var ómetanlegt að vinna undir handleiðslu Björns, það voru mörg „trixin“ sem lærðust þau tvö sumur sem ég vann í Esso-Nesti. Eftir að ég eignaðist mitt fyrsta barn, buðu þau hjón mér af rausn- arskap skrifstofuvinnu hjá sér. Það var því alltaf tilhlökkun að fara vestur á hverju sumri. Þá kom að því að Guðjón sonur þeirra skyldi halda suður til náms. Buðu þau mér og minni fjölskyldu afnot af íbúð þeirra og bjó Guðjón hjá okkur. Það að þau skyldu bjóða okkur þetta og treysta okkur fyrir syninum, sýndi hug þeirra til okkar. Þegar Björn og Óla ákveða að taka sig upp og flytja í Kópavog og kaupa verslun þar, þá var ekki slæmt að renna við á leið heim úr skóla og kaupa í matinn hjá þeim. Um tíma vann ég hjá þeim bæði við skrifstofustörf og annað sem til féll. Ég var ekki búin að vera lengi þeg- ar ég heyrði fólk tala um það að kjötborðið væri nú það allra besta á svæðinu og vonlaust væri fyrir nokkurn annan starfsmann en Björn að standa þar og afgreiða því hann dekraði svo við kúnnann að aðrir gátu engan veginn staðið und- ir væntingum. Þannig var Björn, hann vildi allt fyrir kúnnann gera og var kaupmaður af lífi og sál. Eftir að ég flyt vestur þá rofnar samband, eitthvað sem ekki á að gerast, en tíminn líður og allt í einu eru liðin mörg ár. Þá hugsar maður: Ég hefði getað gert betur. Björn Sveinsson – takk fyrir okk- ur, blessuð sé minning þín. Elsku Óla, Guðlaug, Guðjón og fjölskyldur, sendum ykkur okkar innilegustu samúðarkveðjur. Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir og fjölskylda. GUÐMUNDUR BJÖRN SVEINSSON Okkar ástkæra, ANNA KJARTANSDÓTTIR frá Hrauni, Hnífsdal, lést á Sjúkrahúsi Ísafjarðar fimmtudaginn 24. febrúar. Útförin fer fram frá Hnífsdalskapellu laugar- daginn 5. mars kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda, Hjálmar Sigurðsson, Hulda Helgadóttir. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÚLÍUS HELGI GUÐMUNDSSON frá Garðhúsum, Garði, Smáraflöt, Garði, er látinn. Sólveig Óskarsdóttir, Óskar Júlíusson, Linda Birgisdóttir, Friðbjörn Júlíusson, Sveinbjörg Gunnlaugsdóttir, Agnar Trausti Júlíusson, Kjartan Guðmundur Júlíusson, Helena Piechnik og barnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, SIGGEIR JÓHANNSSON bóndi, Núpum Ölfusi, Sóltúni 5, Selfossi, lést fimmtudaginn 24. febrúar 2005. Útför hans fer fram frá Hveragerðiskirkju laugardaginn 5. mars kl. 13.00. Vilný Reynkvist Bjarnadóttir Ragnhildur Birna Siggeirsdóttir, Guðni Hermann Bjarnhéðinsson, Elsa Kristín Vilbergsdóttir, Ásdís Erla Bjarnhéðinsdóttir, Guðlaugur Már Valgeirsson, Sævar Bjarnhéðinsson, Sigríður Jónsdóttir og barnabörn. Kistur - Krossar Prestur - Kirkja Kistulagning Blóm - Fáni Val á sálmum Tónlistarfólk Sálmaskrá Tilk. í fjölmiðla Erfisdrykkja Gestabók Legstaður Flutningur kistu á milli landa og landshluta Landsbyggðar- þjónusta ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Símar 581 3300 - 896 8242 Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is Sverrir Einarsson Sverrir Olsen Bryndís Valbjarnardóttir Oddur Bragason Guðmundur Þór Gíslason Komum heim til aðstandenda ef óskað er Ástkær faðir okkar, afi og langafi, SVEINN VALDIMAR LÝÐSSON, Snorrabraut 30, sem andaðist á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut aðfaranótt mánudagsins 28. febrúar, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 7. mars kl. 13.00. Jarðsett verður í Fossvogskirkjugarði. Guðrún Sveinsdóttir, Jón Kristinn Sveinsson, Róbert Smári Guðjónsson, Halldór Örn Guðjónsson, Oktavía Hrund Jónsdóttir og langafabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.