Morgunblaðið - 03.03.2005, Page 31

Morgunblaðið - 03.03.2005, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2005 31 MINNINGAR ✝ Þorkell JóhannSigurðsson fæddist í Ólafsvík 18. september 1908. Hann lést á hjúkr- unarheimilinu Skógarbæ 8. febr- úar síðastliðinn. Kristín Guðríður Kristjánsdóttir fæddist í Móabúð í Eyrarsveit á Snæ- fellsnesi 11. októ- ber 1908. Hún lést af slysförum í Bandaríkjunum 5. desember 1993. Foreldrar hennar voru hjónin Kristján Jónsson for- maður og útvegsbóndi og Guð- ríður Gísladóttir frá Hópi í Helgafellssveit og síðar Tröð í Eyrarsveit. Hjónin bjuggu í Móa- búð þegar Kristín fæddist. Aðra dóttur áttu þau, eldri en Krist- ínu. Hún lést árið sem Kristín fæddist. Og sama ár andaðist Guðríður, móðir hennar. Litla stúlkan var ennþá óskírð og hlaut hún í skírninni nöfn þeirra beggja, systur sinnar og móður, Kristín Guðríður. Hún var svo brátt tekin í fóstur af móðurfor- Hjónin ungu fluttust að Suður- Bár í Eyrarsveit og síðar að Staðarfelli í Dalasýslu og stund- uðu búskap árin 1936–1942. Þor- kell var jafnframt kennari á Staðarfelli 1937–1939. Þorkell var útibússtjóri Kaupfélags Stykkishólms 1942–1946 og jafn- framt framkvæmdastjóri útgerð- arfélagsins Hrannar sf. í Grund- arfirði 1940–1950. Þá var hann einn af stofnendum Hraðfrysti- húss Grundarfjarðar 1942 og sat í stjórn þess til 1950 og aftur 1959–1978. Kristín og Þorkell fluttust í Kópavog árið 1950 en þar bjuggu þau í tæp tuttugu ár. Þau starf- ræktu þar eigin verslun í fimm ár. Kristín og Þorkell keyptu ár- ið 1959 fyrirtæki sem fékk nafnið Kökugerð Þorkels Sigurðssonar. Fyrirtækið ráku þau fram til árs- ins 1969 en þá fluttu þau aftur á heimaslóðir og Þorkell varð kaupfélagsstjóri í Grundarfirði og gegndi hann því starfi fram til ársins 1977. Þá fluttu þau hjón til Reykjavíkur og stofnuðu þar smurbrauðsstofu, Brauðbúrið, sem þau starfræktu í átta ár. Útför Þorkels var gerð frá Langholtskirkju 21. febrúar. eldrum sínum. Hún ólst því upp hjá afa og ömmu. Kristín Guðríður hóf nám við Ljósmæðraskóla Íslands og lauk þaðan prófi vorið 1931. Hún fluttist aftur í heimabyggð og hóf þar ljósmóðurstörf 1. júlí 1931. Árið 1934 settist hún í Kvenna- skólann í Reykjavík og útskrif- aðist þaðan. Að námi loknu gegndi hún ljósmóðurstörfum í Reykjavík og í Grundarfirði frá 1936. Kristín og Þorkell gengu í hjónaband 20. júní árið 1936. Ég kynntist þeim hjónum árið 1952. Ég var þá nýfluttur í Kópa- voginn. Fljótlega eignaðist ég ágætan bekkjarfélaga og vin í Kópavogi, Sigurð Eggerz, en hann er einmitt sonur þeirra hjóna, Kristínar og Þorkels. Þannig komst ég í kynni við þessi einstöku hjón. Þegar ég horfi til baka finnst mér ótrúlegt hversu vel mér var tekið á heimilinu, strák sem hékk þar flestum stundum! Þau hjón eru mér afar minn- isstæð. Kristín var heima og hugs- aði fyrst og fremst um heimilið sem var henni afar dýrmætt. Hún var hlý kona og átti auðvelt með að laða að sér börn enda var oft fjöl- mennt á heimilinu. Þar ríkti oft glaðværð ungs fólks. Kristín var ein þeirra sem vilja allt fyrir alla gera. Hún hafði ákveðnar skoðanir en var afar rétt- sýn og sanngjörn. Hún taldi að það væri mikilvægt hverri manneskju að temja sér góðvild og jákvæða hugsun. Sem fullorðinn gerði ég mér enn betur grein fyrir að Kristín var gædd miklum gáfum og heiðar- leika. Hún vildi hvers manns vanda leysa. Ég lít á það sem mikla gæfu að hafa átt svolitla stund samleið með Kristínu Kristjánsdóttur. Hún hafði góð áhrif á þá einstaklinga sem kynntust henni. Mér þótti afar vænt um hana. Þorkel Jóhann Sigurðsson þekkti ég með öðrum hætti en Kristínu. Ég gerði mér strax ljóst hve sam- stiga þau hjón voru í lífinu og í öllu því sem þau gerðu. Þau áttu þessa hlýju og mildi sem börn finna svo vel. Kannski var það þess vegna að börn og unglingar voru svo velkomin á heimilið og nutu barnabörnin þess ríkulega. Þorkell var atorkumaður og kom víða við. Honum féll aldrei verk úr hendi. Það var gríðarlegt áfall fyrir Þorkel þegar Kristín lést af slys- förum svo óvænt er þau hjón voru í heimsókn hjá dóttur sinni í Banda- ríkjunum. Hann vildi með einhverjum hætti minnast Kristínar. Það gerði hann myndarlega er hann færði Grund- arfjarðarkirkju gullhúðaða ljósa- krónu að gjöf til minningar um eig- inkonu sína, Kristínu Kristjáns- dóttur, og foreldra, þau Sigurð Eggertsson skipstjóra og Ingi- björgu Pétursdóttur og fjölmörg ættmenni sem hvíla í kirkjugarð- inum á Grundarfirði. En Þorkell lét ekki þar við sitja heldur veitti hann einnig tvær milljónir króna í líknar- og mann- úðarsjóð á Grundarfirði en sjóðinn stofnaði hann til minningar um Kristínu konu sína. Steingrímur Thorsteinsson segir í einu kvæða sinna: Vor er indælt eg það veit þá ástar kveður raustin en ekkert fegra á fold ég leit en fagurt kvöld á haustin. Við getum víst flest tekið undir með skáldinu að haustið sé fegurst árstíðanna, gróðurinn skartar sínu fegursta og litirnir í hrauninu skír- ast og taka á sig djúpan og fal- legan blæ. Því verður auðvitað ekki neitað að það var komið haust í lífi Þor- kels. Hann var orðinn 96 ára gam- all. Þorkell var bindindismaður á vín og tóbak alla tíð. Hann var ótrúlega heilbrigður á sál og lík- ama þar til hann veiktist af sjúk- dómi sem erfitt var að komast fyr- ir. Fram að því naut Þorkell þess oft að heimsækja þau börn sín og barnabörn sem búsett eru erlendis. Ég vil þakka Þorkeli og Kristínu ljúfa samfylgd. Það er gæfa hverr- ar manneskju að eiga samleið með svo góðu samferðafólki, fólki sem er ólatt við að aðstoða aðra og leið- beina. Í þeim hópi voru Þorkell og Kristín. Það eru hlýjar og góðar minn- ingar sem fylla hugann þegar ég hugsa til þeirra hjóna. Gylfi Guðmundsson. KRISTÍN GUÐRÍÐUR KRISTJÁNSDÓTTIR OG ÞORKELL JÓHANN SIGURÐSSON Elsku amma. Nú ert þú búin að kveðja þennan heim og komin á betri stað. Það er margs að minnast, margar góðar stundir sem við fjölskyldan áttum saman. Við hittumst síðast öll ✝ Dagmar Aðal-heiður Júlíus- dóttir fæddist á Sauðárkróki 14. september 1914. Hún andaðist á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Akureyri að morgni 17. febrúar síðastlið- ins og fór útför henn- ar fram frá Glerár- kirkju 28. febrúar. saman á 90 ára afmæl- inu þínu, þú varst svo hress og kát og búin að laga þig til eins og þú varst vön, hafðir alltaf áhyggjur af því að þú værir ekki nógu fín um hárið. Það verður skrítið að fara á Ak- ureyri og geta ekki heimsótt þig. Við vorum einu barnabarnabörnin þín, ásamt honum Vigni litla, og fannst þér því voða gaman þegar við áttum leið hjá og kíkt- um í heimsókn. Við spjölluðum mik- ið þegar við hittumst og höfðum nóg um að tala. Við sögðum þér fréttir af Króknum og þótti þér gaman að hlusta. Ekki þótti þér leiðinlegt að tala um litlu nöfnuna þína, hana Dagmar Lilju. Þú varst svo ánægð þegar litla barnabarnabarnabarnið þitt var skírt og kom nafnið þér mjög á óvart. Hún spyr mikið um ömmu sína á Akureyri, sem heitir alveg eins og hún. En nú ert þú komin til afa Stefáns eftir 48 ára viðskilnað, hann hefur eflaust tekið vel á móti þér. Allar þær stundir sem við áttum með þér metum við mikils og munum við geyma þær í hjarta okkar. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Góða ferð, elsku amma, megi góð- ur Guð varðveita þig. Þín barnabarnabörn Sandra, Thelma og Reynir Snær. DAGMAR AÐALHEIÐUR JÚLÍUSDÓTTIR Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BJÖRN Þ. ÞÓRÐARSON læknir, Sörlaskjóli 78, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Neskirkju föstudaginn 4. mars kl. 13.00. Þórunn Bára Björnsdóttir, Pálmi V. Jónsson, Sigurður Hafsteinn Björnsson, Þórunn Ólafsdóttir, Bryndís Anna Björnsdóttir, Edda Björnsdóttir, Jakob Þór Pétursson, Páll Björnsson, Lilja Jónasdóttir, afabörn og langafabörn. INGUNN JÓNSDÓTTIR GÍSLASON lést í Reykjavík hinn 1. mars. Útför hennar fer fram í kyrrþey. Þóra Kristjánsdóttir, Garðar Gíslason, Jón Kristjánsson, og fjölskyldur. Okkar ástkæri, KRISTINN HÓLM VIGFÚSSON, Ránargötu 23, Akureyri, lést á gjörgæsludeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri sunnudaginn 27. febrúar. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju mánudag- inn 7. mars kl. 13:30. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Anna Rósantsdóttir, Lára Björk Kristinsdóttir, Halldór Árnason, Bragi Hlíðar Kristinsson, Fríða Pétursdóttir, afabörn og langafabarn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR JÓNSSON, Skólavegi 9, Keflavík, lést á heimili sínu þriðjudaginn 1. mars. Þóra Ragnarsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær bróðir minn og mágur, HELGI ARASON fyrrv. aðstoðarstöðvarstjóri í Búrfellsvirkjun, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi miðvikudaginn 2. mars. Útför verður auglýst síðar. Kristinn Arason og Elín Kröyer. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og sonur, HARALDUR GUÐBERGSSON, Barmahlíð 4, Sauðárkróki, sem lést á hjartadeild Landspítalans föstu- daginn 18. febrúar sl., verður jarðsunginn frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 5. mars klukkan 11:00. Ingibjörg Guðbjartsdóttir, Guðbjartur Haraldsson, Jóna Kolbrún Árnadóttir, Guðberg Ellert Haraldsson, Auðbjörg Ósk Guðjónsdóttir, Brynhildur Olga Haraldsdóttir, Eysteinn Pétur Lárusson, Ingi Valur Haraldsson, Guðberg E. Haraldsson, Regína Birkis, Valgerður Ólafsdóttir og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.