Morgunblaðið - 03.03.2005, Page 33

Morgunblaðið - 03.03.2005, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2005 33 HESTAR Bridsfélag Kópavogs Þriggja kvölda Mitchell-tvímenn- ingur hófst sl. fimmtudag með þátt- töku 22 para og mikilli flugeldasýn- ingu. Hæsta skor í N/S: Björn Jónsson – Þórður Jónsson 343 Jón P. Sigurjónss. – Stefán R. Jónss. 306 Eggert Bergsson – Unnar A. Guðmss. 288 Hermann Friðrikss. – Sigurj. Tryggvas. 283 AV: Ólafur Lárusson – Skúli Sigurðsson 341 Ragnar Björnss. – Sigurður Sigurjónss. 321 Georg Sverrisson – Ragnar Jónsson 319 Árni M. Björnss. – Leifur Kristjánss. 298 Bridsfélag Selfoss og nágrennis Sjötta umferðin í aðalsveita- keppni félagsins var spiluð 17. febr- úar sl. Úrslit umferðarinnar voru þessi: Örn Guðjónss. – Eyjólfur Sturlaugs.25-1 Garðar Garðarss. – Anton Hartmss..13-17 Grímur Magnúss. – Gísli Hauksson19-11 Össur Friðgeirsson – Birgir Pálsson14-16 Sjöunda og síðasta umferðin var síðan spiluð 24. febrúar sl. Úrslit umferðarinnar voru þessi: Birgir Pálsson – Örn Guðjónsson14-16 Gísli Hauksson – Össur Friðgeirsson9-21 Anton Hartmss. – Grímur Magnússon15-15 Eyjólfur Sturlss. – Garðar Garðarss.13-17 Lokastaða efstu sveita í mótinu varð þessi: Grímur Magnússon 132 Birgir Pálsson 128 Örn Guðjónsson 126 Garðar Garðarsson 108 Lokastaða spilara í fjölsveitaút- reikningnum varð (innan sviga fjöldi spila): Björn Snorrason 1,23(224) Kristján M. Gunnarss. 1,23(224) Ríkharður Sverrisson 1,10(192) Þröstur Árnason 0,98(208) Gísli Þórarinsson 0,85(144) Vilhjálmur Þór Pálsson 0,66(160) Nánar má finna um gang mála á heimasíðu félagsins www.bridge.is/ fel/selfoss. Næsta mót hjá félaginu er að- altvímenningur félagsins sem heitir Sigfúsarmótið, í höfuðið á heiðurs- félaga okkar, Sigfúsi Þórðarsyni, en hann gaf farandgrip sem spilað er um í mótinu. Mótið er fjögurra kvölda tvímenningur, og verður spilað 3/3, 17/3, 31/3 og 7/4 Frá eldri borgurum í Hafnarfirði Föstudaginn 25. febrúar var spil- að á níu borðum og var meðalskorin 216. Úrslit í N/S: Stígur Herlufsen – Ólafur Gíslason 273 Bjarnar Ingimars – Friðrik Hermannss. 232 Bragi V. Björnsson – Guðrún Gestsd. 232 Ásgeir Sölvason – Guðni Ólafsson 229 A/V Sófus Berthelsen – Haukur Guðmss. 251 Anton Jónsson – Einar Sveinsson 251 Árni Guðmunds – Hera Guðjónsd. 250 Hermann Valsteins – Jón Sævaldss. 234 Sveitin ELVA Íslandsmeistari kvenna Íslandsmót kvenna í sveitakeppni fór fram um síðustu helgi. Eftir góð- an endasprett sigraði sveitin ELVA. Í sigursveitinni spiluðu Esther Jak- obsdóttir, Ljósbrá Baldursdóttir, Valgerður Kristjónsdóttir og Anna Þóra Jónsdóttir. Lokastaða efstu sveita: ELVA 179 Erla Sigurjónsdóttir 172 Embla Mey 169 Stelpurnar 142 SG. Export 124 Kjötvinnslan Esja 123 Frá FEBK Gjábakka Föstudaginn 25. febrúar var spil- aður tvímenningur á níu borðum. Meðalskor var 216. Úrslit urðu þessi í N/S: Lilja Kristtjánsdóttir – Ólafur Lárusson 233 Rafn Kristjánss. – Óliver Kristóferss. 232 Halla Ólafsd. – Jón Lárusson 225 A/V Helga Helgadóttir – Sigrún Pálsdóttir 256 Bjarni Þórarinss. – Jón Hallgrímss. 252 Hrafnhildur Skúlad. – Þórður Jörundss. 227 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson Undirbúningur fyrirFjórðungsmót hesta-manna á Vesturlandi ísumar er nú byrjaður af fullum krafti. Skrifað var undir samning hestamannafélaganna Snæfellings, Glaðs og Faxa um rekstur mótsins á þriðjudaginn, en keppendur koma frá öllum hesta- mannafélögunum á Vesturlandi. Mótið verður með svipuðu sniði og árið 2001. Kynbótasýningar verða með hefðbundnum hætti og keppt verður í A- og B-flokki gæð- inga, barna-, unglinga- og ung- mennaflokki. Þá verður sérstök opin stóðhestakeppni í A- og B- flokki eins og síðast. Tekið verður upp á þeirri nýjung að bjóða upp á töltkeppni í barna-, unglinga- og ungmennaflokki auk fullorð- insflokks og verður það einnig op- in keppni fyrir alla. Aðeins verður krafist lágmarkspunktafjölda í fullorðinsflokki. Einnig verður op- in keppni í 100 metra fljúgandi skeiði. Þá verða ræktunarbússýn- ingar frá hrossaræktendum á Vesturlandi, en að sögn Sigrúnar Ólafsdóttur, formanns hesta- mannafélagsins Snæfellings, er ekki búið að ákveða með hvaða sniði hún verður. Skagfirðingar og Vestfirð- ingar ætla að koma ríðandi Hins vegar er búið að ákveða að semja við Papana um að leika fyr- ir dansi á laugardagskvöldinu og að reyna að fá Geirmund Valtýs- son til að spila á föstudagskvöld- inu. Sigrún sagði að Snæfellingur muni sjá um að lagfæra velli og vallarsvæðið og skila því fyrir mót þannig að allir þættir verði í góðu lagi. „Ekki verður ráðist í að koma upp fleiri byggingum á svæðinu en við munum leigja stór tjöld eftir þörfum,“ sagði Sigrún. „Á fund- inum kom fram að þegar hafa margir sýnt mótinu áhuga. Fólk er farið að hringja og spyrja um kröfur sem gerðar eru í keppni og frést hefur að margir eru að temja og þjálfa og senda hross til þjálf- unar fyrir sumarið. Einnig höfum við orðið vör við áhuga á að koma ríðandi á mótið og hefur frést af bæði Skagfirðingum og Vestfirð- ingum sem eru að skipuleggja ferð á Kaldármela. Þá verða fyrirtæki í hestaferðum með ferðir sem enda eða byrja á Kaldármelum í kring- um mótið. Gerð verður góð að- staða fyrir ferðahross á bæjunum í kring.“ Mikið gistirými þegar pantað Sigrún sagði að mikið hafi verið spurst fyrir um gistirými og er búið að panta heilmikið í nágrenn- inu. En á svæðinu verða góð tjald- stæði. Auk þess býst hún við að sett verði upp markaðstorg þar sem fyrirtæki geta kynnt vörur sínar og þjónustu eins og verið hefur á síðustu landsmótum. Mótið mun standa frá 29. júní til 3. júlí. Bjarni Jónasson á Grundarfirði hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri þess. Einkunnalágmörk kynbóta- hrossa til þátttöku á fjórðungs- mótinu eru þessi: Stóðhestar 4v. 7,85 Stóðhestar 5v. 7,95 Stóðhestar 6v. og eldri 8,05 Hryssur 4v. 7,75 Hryssur 5v. 7,85 Hryssur 6v. 7,90 Hryssur 7v. og eldri 8,00. Fjórðungsmót Vesturlands á Kaldármelum Opin töltkeppni í öllum flokkum Á Kaldármelum er fallegt mótssvæði. Hér keppir Olil Amble á Dagrúnu frá Skjólbrekku á Fjórðungsmótinu 1997. SKÝRSLA nefndar um eflingu hestamennsku á landsbyggðinni er umfangsmikil og góð samantekt sem nýtist hestamönnum vel að mati Jóns Alberts Sigurbjörnsson- ar, formanns Landssambands hestamannafélaga. Hann segir nið- urstöðurnar ekki koma sér á óvart. „Þetta eru miklar upplýsingar sem safnað er saman frá flestum hestamannafélögum á landinu og þær eiga eftir að nýtast okkur vel,“ sagði Jón Albert. „Það kom mér ekki á óvart hvernig þeir forgangs- raða byggingu reiðhalla og leggja til að byrjað verði á Akureyri. Þar er engin reiðhöll á stóru svæði þar sem fjöldi fólks stundar hesta- mennsku.“ Hann segir það heldur ekki koma sér á óvart þessi endalausa þörf á reiðvegagerð sem kemur fram í um- sögnum nærri allra hestamanna- félaganna. Knýjandi þörf vegna mikillar fjölgunar ferðamanna „Við höfum talað í mörg ár um það sama,“ sagði Jón Albert. „Um 40 milljónir eru til ráðstöfunar til reiðvegagerðar á ári og af því hefur LH 27 milljónir til ráðstöfunar. Vegagerðin notar hitt í forgangs- verkefni eins og t.d. að færa reið- vegi frá þjóðvegi 1 þar sem það er hægt. Á sama tíma nema umsóknir til reiðvegagerðar 138 milljónum króna á síðasta ári. Við höfum þó sett ströng skilyrði til dæmis að að- eins sé sótt um gerð reiðvega sem eru inni á skipulagi. Núorðið eru því allar umsóknir mjög vandaðar og í þeim kemur oft fram að loforð sé fyrir mótframlagi sveitarfélags og jafnvel einstaklinga. Auk þess hafa hestamannafélögin sem fá framlög yfirleitt unnið verkið í sjálf- boðavinnu. Við höfum því farið vel með þessa peninga.“ Jón sagði að skipuð hafi verið nefnd á vegum samgönguráðherra sem lagði einnig til að auka til muna fjármagn til reiðvegagerðar. „En það hefur ekki ennþá gerst,“ sagði hann. „Við höfum auk þess farið á fundi samgönguráðherra og sam- göngunefndar. Það er ljóst að þörf- in er knýjandi enda gríðarleg fjölg- un ferðamanna sem fara í hestaferðir um allt land. Ég fullyrði að þetta sé langbrýnasta hags- munamál hestamanna.“ Hætta á að lokað verði á hestamenn Á síðasta ársþingi LH var sam- þykkt að fela stjórn LH að skora á fjárveitingarvald og ríkisstjórn að auka fjárframlög til reiðvegagerðar og til viðhalds reiðvega verulega frá því sem nú er. Einnig var samþykkt að skora á Vegagerð ríkisins að standa við samkomulag hennar við LH frá 1982 um lagningu reiðvega. Í greinargerð kom fram að aðeins hefði að litlum hluta verið staðið við samkomulagið, en þar var meðal annars gert ráð fyrir að þegar nýir vegir eru lagðir sé gerð reiðleiða meðfram veginum eða á öðrum stað frá veginum kostuð af nýbygging- arfé vegarins samkvæmt sam- gönguáætlun. Á sama þingi var samþykkt að reiðvegnefndir skulu skipaðar í hverju umdæmi Vegagerðarinnar og hvert hestamannafélag skuli eiga fulltrúa í nefndinni. Einnig að nefndirnar sæki um reiðvegafé ár hvert og vinni framkvæmdaáætlun fyrir sitt umdæmi til a.m.k. fjögurra ára í senn. Þannig yrði leitast við að samræma vinnubrögð í öllum lands- hlutum og um leið stefnt að mark- vissari framkvæmdaáætlunum í reiðvegagerð, óháð stærð og um- svifum hestamannafélaga innan samtakanna. „Hætta er á að ef ekkert verður að gert fljótlega verði farið að loka á umferð hestamanna. Það þarf líka að semja við landeigendur ef færa á reiðvegina frá þjóðvegi 1. Það ligg- ur í augum uppi að þá þarf að fara með reiðvegi víða í gegnum eign- arlönd.“ Heildarumsóknir um reiðvegafé síðustu 5 ár Ár Fjöldi Sótt um kr. Til ráðst. félaga hjá LH 2000 32 70.709.696 18.000.000 2001 23 77.209.000 22.000.000 2002 28 89.020.000 22.000.000 2003 32 131.817.849 25.000.000 2004 32 138.463.330 27.781.434 Reiðvegamálin helsta hagsmunamál hestamanna asdish@mbl.is NÝTT fyrirtæki, Júpíterskurl ehf., hefur hafið framleiðslu á pappírskurli til að bera undir hesta. Hugmyndin kviknaði að sögn eigenda þegar hestaeigend- ur voru farnir að borga meira fyrir spæni undir hrossin en hey. Ingibjörg G. Geirsdóttir fram- kvæmdastjóri sagði að þeir sem prufað hefðu að nota pappírskurl hefðu yfirleitt verið ánægðir með það. „Við höfum gert frumrann- sóknir á því hvernig papp- írskurlið reynist til að þurrka stí- ur og kemur það ekki síður út en spænir. Svo hefur ekki alltaf verið auð- velt að verða sér úti um spæni. Við höfðum prófað þetta sjálf og líkað vel og ákváðum því að flytja inn sérstakar vélar og hefja framleiðslu. Við Íslendingar erum að drukkna í blaða- og pappaúr- gangi og það reynist því auðvelt að fá hráefni til framleiðsl- unnar.“ Ingibjörg sagði að farið yrði rólega í framleiðsluna til að byrja með. Pappírskurlið er pakkað í vélum í 25 kílóa bagga og kostar bagginn 500 krónur. Fyrirtækið Júpíterskurl, sem nefnt er eftir hestinum Júpíter, er til húsa að Askalind 7 í Kópavogi. Netfang www.internet.is/jupiterskurl. Framleiða pappírskurl til að bera undir hesta

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.