Morgunblaðið - 03.03.2005, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 03.03.2005, Qupperneq 34
FRÉTTIR 34 FIMMTUDAGUR 3. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ Atvinnuauglýsingar Bílstjóri óskast! Viljum ráða bílstjóra í 100% starf frá 15. mars, sér um útkeyrslu ásamt fleiru. Áhugasamir komi í Veisluna veitingaeldhús á Austurströnd 14, Seltjarnarnesi, og fylla út umsóknareyðublöð eða senda póst á arny@veislan.is Bókhaldsstofa óskar eftir vönum bókara í föst verkefni. Kunnátta á DK og TOK nauðsynleg. Verður að geta unnið sjálfstætt. Umsóknir sendist til auglýsinga- deildar Mbl., merktar: „B — 16739.“ R A Ð A U G L Ý S I N G A R Fundir/Mannfagnaður Stofnfundur DC-3 Þristavina Fimmtudaginn 3. mars nk. verður haldinn stofnfundur DC-3 Þristavina í ráðstefnusal Hótels Loftleiða kl. 17:15. Dagskrá stofnfundarins er sem hér segir: Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri setur fundinn. Ávarp: Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra. 1) Kosning fundarstjóra og ritara. 2) Skýrsla undirbúningsnefndar. 3) Lög félagsins lögð fram til samþykktar, breytinga eða synjunar. 4) Kosning sjö manna stjórnar og tveggja varamanna. 5) Kosning skoðunarmanna reikninga og end- urskoðenda. 6) Ákvörðun um árgjald. 7) Ávarp fra Danske DC-3 Vennerne. 8) Önnur mál.Eftir kaffiveitingar verður myndin Á grænum vængjum sýnd. Allt áhugafólk um verndun og viðhald okkar ástkæra DC-3 Páls Sveinssonar er boðið velkomið. Læknafélag Reykjavíkur Almennur félagsfundur verður haldinn í Læknafélagi Reykjavíkur þriðju- daginn 8. mars kl. 20 í húsnæði Læknafélaganna við Hlíðasmára. Fundarefni: 1. Er grundvöllur fyrir samkepnni innan heil- brigðisþjónustunnar? 2. Tilnefning fulltrúa á aðalfund Læknafélags Íslands. 3. Önnur mál. Tilkynningar Mat á umhverfisáhrifum Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmda Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að eftirtalin framkvæmd skuli háð mati á umhverf- isáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum. Breyting á sorpurðun í landi Strandar, Rangárþingi ytra Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofn- un, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er einnig að finna á heimasíðu Skipulags- stofnunar: www.skipulag.is. Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til um- hverfisráðherra og er kærufrestur til 30. mars 2005. Skipulagsstofnun. Uppboð Uppboð Eftirtalin hross verða boðin upp að bænum Köldukinn, Rangárþingi ytra, föstudaginn 11. mars 2005, kl. 14:00: Skyggnir frá Keflavík IS2001125801, Stígandi frá Síðu IS1990155260 og Örvar frá Síðu IS1995155261 Ávísanir ekki teknar gildar sem greiðsla nema með samþykki upp- boðshaldara. Greiðsla við hamarshögg. Sýslumaðurinn á Hvolsvelli, 1. mars 2005. Félagslíf I.O.O.F. 11  185338  9.III* Í kvöld kl. 20.00 Kvöldvaka í umsjón starfsfólks gistihússins. Veitingar og happdrætti. Allir velkomnir. Landsst. 6005030319 VIII Fimmtudagur 3. mars. Almenn samkoma í Þríbúðum, Hverfisgötu 42, kl. 20:00. Mikill söngur og vitnisburðir. Predikun Sigurður Wiium. Allir eru velkomnir. www.samhjalp.is NÚ LIGGJA fyrir tillögur að að- alskipulagi Akraneskaupstaðar, Innri-Akraneshrepps, Skilmanna- hrepps, Leirár- og Melahrepps og Hvalfjarðarstrandarhrepps. Ýmsar landnotkunarbreytingar eru þar lagðar til frá því sem er í gildandi Svæðisskipulagi sveitarfélaganna sunnan Skarðsheiðar 1992–2012. Svæðisskipulagið sem staðfest var af umhverfisráðherra 26. apríl 1994 hefur verið mótandi um framþróun sveitarfélaganna til þessa dags, þó með þeim breytingum sem á því hafa verið gerðar. Ljóst er að gera þarf verulega breytingu á svæðisskipulaginu til að samræmi verði á milli svæðisskipu- lagsins og fyrirliggjandi aðalskipu- lagstillagna, segir í fréttatilkynn- ingu. Í samstarfsnefnd sveitarfélaga sunnan Skarðsheiðar sitja tveir fulltrúar frá hverju sveitarfélagi og einn fulltrúi frá Skipulagsstofnun. Nefndin hefur haldið nokkra fundi og er það niðurstaða hennar að til að flýta fyrir auglýsingu og síðan gildistöku fyrirliggjandi tillagna að aðalskipulagi sveitarfélaganna sé þörf á að fella Svæðisskipulag sveit- arfélaganna sunna Skarðsheiðar 1992–2012 úr gildi. Sveitarfélögin hafa gert með sér samkomulag um að vinna að nýju svæðisskipulagi í kjölfarið. Nýja skipulagið skal taka á sameiginleg- um málefnum er varða vatnsvernd og vatnsverndarsvæði, uppbyggingu öflugrar inn- og útflutningshafnar, iðnaðar, framleiðslustarfsemi og þjónustu við Grundartanga, þynn- ingarsvæði iðnaðarsvæðisins við Grundartanga og samgöngumál. Sveitarfélögin eru sammála um nauðsyn þess að vinna af einurð að gerð nýrrar svæðisskipulagstillögu m.a. með hliðsjón af þeim breyt- ingum sem orðið hafa innan svæð- isins. Það er eindreginn vilji sveitar- félaganna að gera svæðið sunnan Skarðsheiðar eins öflugt og kostur er og stuðla að því að búsetuskilyrði verði eins og best verður á kosið. Enn fremur lýsa aðilar yfir vilja sín- um til að starfa að framfaramálum í héraðinu í samvinnu við önnur sveit- arfélög í Borgarfirði og sunnan Hvalfjarðar, segir í tilkynningu frá samstarfsnefndinni. Auglýsing um niðurfellingu gild- andi svæðisskipulags verður birt á næstu dögum Tillagan mun hanga uppi til kynningar í Heiðarskóla, Miðgarði, Hlöðum, hjá Akranes- kaupstað og Skipulagsstofnun í 6 vikur frá birtingu auglýsingarinnar og gefst almenningi þá tækifæri til að gera athugasemdir. Enn fremur mun tillagan verða birt á heimasíð- unum hvalfjordur.is, skilmanna- hreppur.is og akranes.is. Niðurfelling svæðisskipu- lags og nýtt í undirbúningi Svæðisskipulag sunnan Skarðsheiðar NÝTT skipurit Landmælinga Íslands var kynnt nýverið en það tekur gildi 1. maí nk. Er því ætlað að gera daglega stjórnun Landmælinga einfaldari, draga úr samkeppnisárekstrum við einkafyrirtæki og auka hagkvæmni í rekstri, segir í frétt frá fyrirtækinu. Með tilkomu skipuritsins verða kjarnasviðin tvö, mælingasvið og landupplýsingasvið, en voru fjögur áð- ur. Undir starfsemi mælingasviðs falla m.a. landshnitaskerfi, hæðakerfi, loftmyndir og gervitunglamyndir. Forstöðumaður sviðsins verður sem fyrr Þórarinn Sigurðsson. Land- upplýsingasvið fæst við stafræna gagnagrunna, kortagerð, stjórn- sýslumörk, vegagagnagrunn og ör- nefnagrunn. Forstöðumaður land- upplýsingasviðs verður Eydís Líndal Finnbogadóttir sem gegnt hefur starfi forstöðumanns kortasviðs. Samhliða breytingum vegna end- urskoðunar á stefnu og skipulagi Landmælinga Íslands hefur nefnd á vegum umhverfisráðherra unnið að frumvarpi um breytingar á lögum um landmælingar og kortagerð nr. 95/ 1997. Markmið þeirrar vinnu er að skilgreina hvert eigi að vera hlutverk hins opinbera í landmælingum og kortagerð. Hjá Landmælingum Íslands á Akranesi starfa nú 36 starfsmenn, flestir með sérhæfingu á starfssviði stofnunarinnar. Nýtt skipurit hjá Landmælingum NÁMSTEFNA um skimun og snemmgreiningu einhverfu verður haldin á Grand hóteli í Reykjavík á morgun, föstudaginn 4. mars. Þar verður dr. Tony Charman, breskur sérfræðingur á sviði skimunar- fræða, aðalfyrirlesari. Hann mun fjalla um þær miklu framfarir sem hafa orðið í greiningu á einhverfu tveggja ára barna og um réttmæti og stöðugleika greiningar þeirra sem greindust fyrir tveggja ára aldur í samanburði við börn sem hafa greinst við 4–5 ára aldur. Einnig halda erindi Evald Sæ- mundsen sviðsstjóri á Greiningar– og ráðgjafarstöð ríkisins og Gyða Haraldsdóttir sviðsstjóri á Miðstöð heilsuverndar barna. Námstefnan er samstarfsverkefni Miðstöðvar heilsuverndar barna og Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins. Nánari upplýsingar eru á www.greining.is. Námstefna um einhverfu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.