Morgunblaðið - 03.03.2005, Blaðsíða 36
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
OG ÞETTA KALLAST AÐ
ELTAST VIÐ MÝS...
ÉG SÁ AÐ
ÞÚ NÁÐIR
HENNI EKKI
ÉG ER
MEÐ
TILLÖGU
UM
RÆÐU
BYRJAÐU Á TILVITNUN
ÚR 8. KAFLA Í FYRSTU
SAMÚELSBÓK...
TRÚARLEG TILVITNUN
KEMUR ÞÉR LANGT
GLEYMDU
ÞVÍ!!
EINA SEM ÞEIR
TRÚA Á ÞARNA Í
HUNDABÝLINU ER
MATARDISKURINN!
VIÐ SKULUM SJÁ HVAÐ
SKÓLASTJÓRINN HEFUR AÐ
SEGJA UM SKORT Á ATHYGLI
VIÐ
HÖFUM NÁÐ
STÖKKBREYTTA
GEIMFARANUM
GEIMVERURNAR VILJA
VAFALAUST FORMÚLUNA
FYRIR KJARNAKNÚNA
OSTASKERANN
ÁÐUR EN FARIÐ
VAR AÐ PYNTA
HANN ÞÁ
EYDDI HANN
FORMÚLUNNI
AF HVERJU ER
HANN AÐ BORÐA
MJÓLKURMIÐANA
Litli Svalur
© DUPUIS
HEYRÐU!
ALLT Í LAGI!
ÞÚ VINNUR!
MEÐ EÐA ÁN
KARAMELLUSÓSU?
VEL AF
SÉR VIKIÐ
STRÁKSI
TAKK FYRIR
AÐ BÍÐA
HERRA MINN
Dagbók
Í dag er fimmtudagur 3. mars, 62. dagur ársins 2005
V’ikverji tók MSN-fjarskipta-
tækninni fagnandi fyr-
ir nokkrum árum og
notaðist við hana um
tíma. Hann safnaði þó
nokkuð mörgum
MSN-vinum á listann
sinn og fylgdist
grannt með því hverjir
voru tengdir á hverj-
um tíma. Víkverji gat
líka nýtt þessa ágætu
tækni í þágu vinnunn-
ar og sparað sér nokk-
ur spor að skrifborði
vinnufélaga eða sím-
töl. En Víkverji er nú
orðinn hundleiður á MSN og hefur
varla fyrir því að tengja sig lengur.
Og í þau skipti sem hann gerir það,
eru fáir á línunni. Með öðrum orðum
virðist MSN vera á útleið a.m.k. hjá
Víkverja. Hann getur fullyrt að hann
hefur dregið úr MSN-notkun sinni
um 90% eða jafnvel meira. Var þetta
kannski bara bóla sem sprakk?
Hvernig stendur á því að maður er
hættur á MSN en notar tölvupóst
jafnmikið og áður ef ekki meira? Og
það þótt það sé seinlegra. Víkverja
þykir þetta sérkennilega skondið á
tímum hraðans og upplýsingaflæðis.
Kannski erum við íhaldssamari en
við höldum eða kannski er tölvu-
póstur bara svona
miklu hagnýtara fjar-
skiptaúrræði en
MSN?
x x x
Allt um það. SMS eralls ekki á útleið
hjá Víkverja. Stundum
er beinlínis miklu
betra að senda ein-
hverjum SMS í stað
þess að hringja. „Kem
10 mín. of seint“ eða
„Búinn að kaupa fisk“
er dæmigert fyrir
SMS-notkun Víkverja
– stutt og einföld skila-
boð. En að standa í heilu SMS-
samtölunum er Víkverja gersamlega
ofviða. Hann skilur reyndar ekki
hvað sumir hafa mikið þrek í þum-
alfingrunum hvað þetta snertir.
x x x
Meira um GSM-símana. Hafið þiðvelt því fyrir ykkur hver gæti
verið algengasta setningin sem sögð
er í GSM-síma? Víkverji telur sig
vita svarið: „Hvar ertu?“ Ef maður
fer inn í stóru verslanamiðstöðv-
arnar og labbar einn hring fer þetta
ekki milli mála. Þar eru allir að
spyrja hvar hinn sé? „Hvar ertu?“
Og hvar eru allir eiginlega, ha?
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Tjarnarbíó | Leikfélag Kvennaskólans, Fúría, frumsýnir í kvöld kl. 20 leik-
verk sitt, sem kallast Í þágu þjóðarinnar. Leikritið segir frá breskum föng-
um, sem nýlentir eru í fanganýlendunni Ástralíu, en þeim er gert að setja
upp leikrit í fangabúðunum. Leikhópurinn samanstendur af ólæsum og lán-
lausum mönnum, en aðalleikkonunnar gengur brátt til gálgans.
Þessi svarta kómedía, sem er að mestu leyti byggð á skáldsögunni „The
Playmaker“ eftir Thomas Keneally, beinir athyglinni að krafti leikhússins og
trú á frelsandi vonartilfinningu og andlegri reisn.
Morgunblaðið/Golli
Fangaleikur við Tjörnina
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Ljúflyndi yðar verði kunnugt öllum mönnum. Drottinn er í nánd. (Fil. 4, 5.)