Morgunblaðið - 03.03.2005, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2005 37
DAGBÓK
Kvikmyndir í sjónvarpi
ÉG vil taka undir með þeim sem
finnst vont að hafa bannaða mynd
snemma kvölds um helgar og svo
e.t.v. gamanmynd síðasta. Á mínu
svæði næst ekkert nema ríkissjón-
varpið og svo eru 40 km í næstu leigu
þannig að maður röltir ekkert í
næstu myndbandaleigu til að bjarga
þessu. Þannig að það er bara slökkt
á sjónvarpinu þegar bannaða mynd-
in kemur.
Ég vil líka þakka ríkissjónvarpinu
fyrir gott framboð á íþróttaefni.
Kveðja,
Kristín.
Áður fyrr á ullarfötum
RUTH sendi Velvakanda eftirfar-
andi sem svar við fyrirspurn Gógóar:
„Þennan texta rak á fjörur mínar
fyrir nokkrum árum. Um höfund
veit ég ekki og ekki heldur hvort rétt
sé með textann farið:“
Áður fyrr á ullarfötum einum,
gott og vel á ullarfötum einum.
Nú geng ég í næstum ekki neinu,
gott og vel, það gerir ekkert til.
Áður fyrr á fætur klukkan átta,
gott og vel, á fætur klukkan átta.
Nú fer ég á sama tíma að hátta,
gott og vel, það gerir ekkert til.
Áður fyrr með stúlkunum í sláttinn,
gott og vel, með stúlkunum í sláttinn.
Nú fer ég með strákunum í háttinn,
gott og vel, það gerir ekkert til.
Áður fyrr með lömbin út í haga,
gott og vel, með lömbin út í haga.
Nú geng ég með tvíbura í maga.
Gott og vel, það gerir ekkert til.
Áður fyrr á stefnumót við Kana,
gott og vel, á stefnumót við Kana.
Nú fer ég á stefnumót við Dana.
gott og vel, það gerir ekkert til.
Mangó er týnd í Kópavogi
MANGÓ er lítil, grá og hvít læða,
með hvíta rönd hægra megin við nef.
Hún týndist frá Lækjarhjalla í
Kópavogi sl. laugardag og var
ómerkt. Hún er innikisa, og frekar
fælin og stygg. Hún gæti hafa lokast
inni í skúrum eða geymslum í hverf-
inu og er fólk beðið að svipast um
eftir henni. Þeir sem hafa orðið
hennar varir hafi samband í síma
898 7040 eða 696 1671.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Barnamenning er viðfangsefni málþingssem Barnamenningarsjóður stendurfyrir á laugardag í samstarfi við Menn-ingarmiðstöðina Gerðuberg og Samband
íslenskra sveitarfélaga. Aðalmarkmið málþingsins,
sem fram fer í Gerðubergi, er að efla barnamenn-
ingu í landinu og stuðla að auknum tengslum milli
aðila sem vinna að menningu barna á mismunandi
sviðum og út frá mismunandi forsendum. Á mál-
þinginu verða fluttir inngangsfyrirlestrar og að
þeim loknum verður fjallað um afmörkuð málefni í
fjórum málstofum. Kynnt verða ýmis skapandi
verkefni með börnum sem unnið hefur verið að víðs
vegar um landið og vonandi verða uppspretta að
nýjum hugmyndum; umræðum og í kjölfarið að-
gerðum.
„Öll verkefni sem unnin eru á sviði lista og menn-
ingar sérstaklega fyrir börn, með eða án þátttöku
barnanna sjálfra, teljast vera barnamenning,“ segir
Ragnheiður Gestsdóttir, rithöfundur og myndlist-
armaður, sem setið hefur í undirbúningsnefnd mál-
þingsins. „Menning sem börnin skapa sjálf án að-
stoðar eða stýringar fullorðinna, t.d. leikir, sögur
og myndlist, er líka hluti barnamenningar.“
Hversu mikilvægt er skapandi starf fyrir börn?
„Skapandi starf með börnum hefur ef til vill aldr-
ei verið jafn mikilvægt og nú. Börn hafa næstum
ótakmarkaðan aðgang að ýmiss konar afþreyingu
sem gerir litlar kröfur til þeirra aðrar en að vera
óvirkir viðtakendur. Skapandi starf af ýmsum toga
ýtir aftur á móti undir að hver einstaklingur finni
sínar sterku hliðar, þroski hæfileika sína og byggi
upp jákvæða sjálfsmynd.
Í skapandi starfi og listnámi læra börn líka
sjálfsaga, vinnugleði, samvinnu við aðra og virðingu
fyrir bæði sjálfum sér og öðrum. Það býr þau betur
en flest annað undir að takast á við framtíðina.“
Ragnheiður segir mikið starf unnið af alúð og
fagmennsku að framgöngu barnamenningar á Ís-
landi. „Kraftarnir eru samt sem áður dreifðir, fólk
veit ekki hvert af öðru og starfinu er alls ekki nægi-
legur gaumur gefinn, til dæmis af fjölmiðlum,“ seg-
ir Ragnheiður og bætir við að málþingið sem fram
fer í Gerðubergi nú á laugardaginn sé fyrst og
fremst tilraun til að leiða saman fólk sem hefur
unnið með börnum og fyrir börn og vill leita leiða til
að gera enn betur í framtíðinni. „Mér finnst eins og
margir séu nú að vakna til vitundar um mikilvægi
barnamenningar. Vonandi finna stjórnvöld líka
þennan vorfiðring í loftinu og beina sjónum sínum
að framtíð þjóðarinnar, börnunum, með því að setja
fram skýr markmið á sviði barnamenningar og
fylgja þeim eftir. Glöð, virk og skapandi börn eru
grunnur að bjartri framtíð.“
Börn | Málþing um barnamenningu í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi
Þarf að ná fólki saman
Ragnheiður Gests-
dóttir fæddist í Reykjavík
1953. Hún gekk í Kenn-
araskólann, en nam síðar
bókmenntafræði við Há-
skóla Íslands og lista-
sögu við háskólann í Ár-
ósum. Ragnheiður hefur
starfað sem kennari, rit-
stjóri námsefnis og
námsefnishöfundur, rit-
höfundur og myndlistarmaður.
Ragnheiður er gift Birni Þór Sigurbjörnssyni
lækni og á með honum fjögur börn.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
70 ÁRA afmæli. Í dag, 3. mars,verður sjötugur Eysteinn Jóns-
son, Garðbraut 51, Garði. Eiginkona
hans er Alda Þorvaldsdóttir. Af því til-
efni munu þau hjónin taka á móti gest-
um á heimili sínu á afmælisdaginn frá
kl. 20.
SIGURÐUR Örlygsson myndlist-
armaður hefur framlengt sýningu
sína, „Ættarmót fyrir fimmtíu ár-
um“, í galleríi Sævars Karls til 7.
mars. Ástæðan er, að sögn aðstand-
enda, prýðilegar móttökur og mikil
eftirspurn eftir sýningunni. Morgunblaðið/Jim Smart
Ættarmótið
framlengt
85 ÁRA afmæli. Í dag, 3. mars, er85 ára Hrefna Magnúsdóttir,
Fremri-Hundadal, Dalasýslu. Hún
dvelur á Heilsustofnun NLFÍ í Hvera-
gerð á afmælisdaginn.
Demantsbrúðkaup | Í dag, 3. mars,
eiga 60 ára brúðkaupsafmæli hjónin
Svandís Ásmundsdóttir og Hjálmar
Ágústsson. Þau eru frá Bíldudal en
búa nú í Hvassaleiti 58 í Reykjavík.
Þau minnast með þakklæti ættingja og
gamalla vina.
SÍMI 5 900 800
Ólafur B. Blöndal löggiltur fasteignasali
Sérbýli/stærri íb. óskast
Ég hef verið beðinn að leita eftir eign í Árbæ,
Selási, Grafarholti eða Grafarvogi fyrir ákveðna
kaupendur sem voru að selja sína eign.
Óskað er eftir, stórri íbúð með bílskúr, raðhúsi
eða parhúsi á þessum svæðum. Verðhugmynd
er allt að 34 millj. Um er að ræða staðgreiðslu
og rúman afhendingartíma.
Ólafur B. Blöndal
löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali.
Símar 5-900-800 og 690 0811.
olafur@fasteign.is
ÞÓRÐARSVEIGUR Í GRAFARHOLTI
Aðeins 3 íbúðir eftir óseldar!
Nýtt 26 íbúða fjölbýlishús
Íbúðirnar eru með sérþvottahúsi og þeim fylgir stæði í bílskýli og
sérgeymsla í sameign. Íbúðirnar skilast fullbúnar að utan sem inn-
an með öllum gólfefnum. Vandaðar innréttingar, tæki og gólfefni
skv. fyrirliggjandi skilalýsingu. Íbúðirnar eru til afhendingar í apríl
2005. Nánari upplýsingar og teikningalíkan á skrifstofu og á
www.heimili.is.
Einar Guðmundsson lögg. fasteignasali • Finnbogi Hilmarsson lögg. fasteignasali • Bogi Pétursson lögg. fasteignasali
Skipholti 29a • 105 Reykjavík • sími 530 6500 • fax 530 6505 • heimili@heimili.is
Sverrir Kristinsson, lögg. fasteignasali
Raðhús eða einbýli í Hæðum í Garðabæ óskast - staðgreiðsla.
Traustur kaupandi óskar eftir 150-200 fm eign á framangreindu svæði.
Góður afhendingarfrestur. Nánari uppl. veitir Sverrir.
Íbúð í vesturborginni óskast. Traustur kaupandi óskar eftir 4ra-5
herb. íbúð í vesturborginni. Nánari uppl. veitir Sverrir.
Einbýlishús á Seltjarnarnesi óskast - staðgreiðsla. Traustur
kaupandi hefur beðið okkur um að útvega 250-350 fm einbýlishús á
Seltjarnarnesi. Allar nánari upplýsingar veitir Sverrir.
Íbúð við Hæðargarð eða Sólheima óskast -
rýming eftir 1 ár. Traustur kaupandi óskar eftir
3ja-4ra herb. íbúð við Hæðargarð eða í háhýsi
við Sólheima. Staðgreiðsla í boði. Eignin þarf
ekki að losna fyrr en eftir eitt ár. Nánari uppl.
veitir Sverrir.
Hæð í Laugarnesi, Vogum eða Teigum
óskast. Óskum eftir 120-140 fm hæð á
framangreindu svæði. Nánari uppl. veitir Sverrir. Sverrir Kristinsson,löggiltur fasteignasali.