Morgunblaðið - 03.03.2005, Blaðsíða 38
38 FIMMTUDAGUR 3. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 íþróttagrein,
8 sakar um, 9 eimurinn,
10 óhreinka, 11 blóms,
13 beiskt bragð, 15 hestur,
18 mannvera, 21 hreinn,
22 aflaga, 23 klampinn,
24 laus við fals.
Lóðrétt | 2 útskagi, 3 bjálf-
ar, 4 grenjar, 5 refum,
6 andmæli, 7 venda,
12 stings, 14 bókstafur,
15 ástand, 16 heið-
ursmerki, 17 yfirhöfn,
18 kuldastraum,
19 matnum, 20 beitu.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 áleit, 4 bátur, 7 ærnar, 8 lítri, 9 fíl, 11 tóra,
13 kann, 14 sækir, 15 serk, 17 álka, 20 frá, 22 mylur,
23 sátum, 24 apann, 25 ræður.
Lóðrétt | 1 ágætt, 2 elnar, 3 torf, 4 ball, 5 totta, 6 reisn,
10 ískur, 12 ask, 13 krá, 15 summa, 16 rulla, 18 látið,
19 aumur, 20 Frón, 21 ásar.
Tónlist
Café Rósenberg | Hljómsveitin Groundfloor
leikur lifandi tóna í kvöld kl. 22.
Grand Rokk | Dixieland djass kl. 22 í kvöld.
Árni Ísleifs og hljómsveit.
Laugarneskirkja | Bænatónleikar kl. 20,
Sorgin og lífið. Fram koma Kirstín Erna
Blöndal söngkona og Gunnar Gunnarsson
píanó- og orgelleikari ásamt Jóni Rafnssyni
bassaleikara og Erni Arnarsyni gítarleikara.
Þá tala sr. Bjarni Karlsson og sr. Bragi skúla-
son sjúkrahúsprestur. Aðgangur er ókeypis.
Ömmukaffi | Ingvar þeytir vínylplötum og
Ofur-Jazzfunkhljómsveitin UHU treður
upp. 500 kr. inn, kaffi fylgir, reyklaust og
áfengislaust.
Skemmtanir
De Palace | PIND og Hr. Möller leika fyrir
dansi.
Myndlist
FUGL, Félag um gagnrýna myndlist |
Eygló Harðardóttir – Innlit – Útlit
Gallerí Sævars Karls | Ættarmót fyrir
hálfri öld. Sigurður Örlygsson sýnir olíu-
málverk – 100 andlit úr fjölskyldu sinni.
Gallerí Tukt | Erna Þorbjörg Einarsdóttir –
Verk unnin með blandaðri tækni.
Hafnarborg | Hallsteinn Sigurðsson er
myndhöggvari marsmánaðar í Hafnarborg.
Hrafnista Hafnarfirði | Steinlaug Sig-
urjónsdóttir sýnir olíu- og vatnslitamyndir í
Menningarsalnum á fyrstu hæð.
Hvalstöðin Ægisgarði | Dagný Guðmunds-
dóttir – Karlmenn til prýði.
Kaffi Sólon | Óli G. Jóhannsson sýnir óhlut-
læg verk.
Listasafn Íslands | Íslensk myndlist 1930–
1945 og Rúrí – Archive – endangered
waters.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Blaða-
ljósmyndarafélag Íslands – Mynd ársins
2004 á efri hæð. Ragnar Axelsson – Fram-
andi heimur á neðri hæð.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Hörður Ágústsson – Yfirlitssýning í vest-
ursal. Helgi Hjaltalín Eyjólfsson og Pétur
Örn Friðriksson – Markmið XI samvinnu-
verkefni í miðrými. Yfirlitssýning á verkum
Kjarvals í austursal.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Bára ljós-
myndari – Heitir reitir.
Nýlistasafnið | Jean B. Koeman – Socles de
Monde. Samsýningin Tvívíddvídd. Grams –
Sýning á vídeóverkum úr eigu safnsins.
Thorvaldsensbar | Ásta Ólafsdóttir – Hug-
arheimur Ástu.
Fréttir
Tungumálamiðstöð Háskóla Íslands | Al-
þjóðlega þýskuprófið TestDaF verður haldið
í Tungumálamiðstöð Háskóla Íslands 12.
apríl. Prófgjaldið er 10.000 kr. og skráning
fer fram í Tungumálamiðstöð HÍ til 10. mars.
Nánari upplýsingar: Tungumálamiðstöð HÍ,
Nýja Garði: 525 4593, ems@hi.is og
www.testdaf.de.
Söfn
Þjóðmenningarhúsið | Handritin, Þjóð-
minjasafnið – Svona var það, Heimastjórnin
1904.
Davíð Stefánsson frá Fagraskógi (1895–
1964) er skáld mánaðarins en í ár eru 110 ár
liðin frá fæðingu hans. Á sýningunni eru ljóð
Davíðs, skáldverk og leikrit. Einnig handrit
að verkum og munir úr hans eigu. Blaða-
umfjöllun um Davíð og ljósmyndir frá ævi
hans prýða sýninguna.
Þjóðminjasafn Íslands | Grunnsýning Þjóð-
minjasafnsins, Þjóð verður til – menning og
samfélag í 1200 ár. Ómur – Landið og þjóðin
í íslenskri hönnun. Þjóðminjasafnið er opið
frá kl. 11–21.
Útivist
Laugardalurinn | Stafgöngunámskeið í
Laugardal kl. 17.30. Skráning og nánari upp-
lýsingar er að finna á www.stafganga.is og
gsm: 616-8595 og 694-3471.
Fundir
GSA á Íslandi | Fundir á fimmtudögum kl.
20.30 Tjarnargötu 20. GSA er hópur fólks
sem hefur leyst vandamál sín tengd mat.
Þjóðminjasafn Íslands | Samband íslenskra
námsmanna erlendis stendur fyrir opnum
hádegisfundi kl. 12, í Þjóðminjasafni Íslands
um fjármögnun náms. Á fundinum verður
m.a. rætt um Lánasjóð íslenskra náms-
manna sem öflugt stjórntæki í mannauðs-
uppbyggingu þjóðarinnar. Fundurinn er öll-
um opinn.
Kvenfélag Hallgrímskirkju | Fundur í dag
fimmtudaginn 3. mars kl. 20 dagskrá í
umsjá sr. Sigurðar og Jóhönnu, happa-
drætti, og fl. á dagskrá.
Fyrirlestrar
Lögberg, stofa 101 | Gyða M. Pétursdóttir
félagsfræðingur heldur erindi á vegum
Rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræðum
í dag kl. 12.15. Erindið nefnist „Ég er tilbúin
að gefa svo mikið“ – um sjálfsmyndir
kvenna og samskipti kynjanna. Gyða fjallar
um rannsókn sína á samskiptum feðra og
mæðra í sambúð. Ókeypis aðgangur.
Námskeið
www.ljosmyndari.is | Þriggja daga ljós-
myndanámskeið fyrir stafrænar mynda-
vélar. Fyrri hópur 7., 9. og 10. mars. Seinni
hópur 14., 16. og 17. mars. Verð kr. 14.900.
Nánari uppl. og skráning á www.ljosmynd-
ari.is.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Krókódíllinn.
Norður
♠7532
♥7632 A/Enginn
♦852
♣43
Vestur Austur
♠K9 ♠10
♥D1054 ♥KG
♦ÁKDG6 ♦10973
♣D5 ♣G109862
Suður
♠ÁDG864
♥Á98
♦4
♣ÁK7
Matthew Granovetter, ritstjóri
Bridge Today, segir frá þessu spili á
heimasíðu sinni (bridgetoday.com), en
það er frá úrslitaleik Kínverja og
Bandaríkjamanna á HM í kvennaflokki
2003.
Vestur Norður Austur Suður
– – Pass 1 lauf *
Pass 1 tígull * Pass 1 spaði
2 tíglar 2 spaðar 4 tíglar 4 spaðar
Pass Pass Pass
Kínverska konan Ling Gu var í sagn-
hafasætinu í suður, en í vestur var Lisa
Berkowitz. Kerfi Kínverjanna er Prec-
ision, svo opnunin er sterk og tíg-
ulsvarið afmelding. Það vekur athygli að
vestur skuli passa í byrjun, en sennilega
er bein innákoma hugsuð sem hvöss
hindrun.
En hvað um það. Berkowitz í vestur
kom inn á tígulsögn í næsta hring og NS
enduðu í fjórum spöðum eftir síðbúna
sagnbaráttu. Vörnin hófst með tígulás
og kóng, sem Gu trompaði. Hún valdi að
leggja niður trompásinn, en þegar
kóngurinn kom ekki tók hún ÁK í laufi
og stakk lauf. Trompaði svo þriðja tíg-
ulinn og sendi vestur inn á trompkóng.
Berkowitz spilaði litlu hjarta yfir á
kóng austurs og ás suðurs. Nú spilaði
Gu hjarta að heiman og Berkowitz fann
réttu vörnina þegar hún hoppaði upp
með hjartadrottningu og gleypti með
því gosa félaga síns (krókódílabragðið).
Þar með gat hún tekið fjórða varn-
arslaginn á hjartatíu.
Við sjáum hvað gerist ef vestur sefur
á verðinum og lætur smátt hjarta. Aust-
ur lendir þá inni á hjartagosa og verður
að spila laufi eða tígli út í tvöfalda eyðu,
sem gefur sagnhafa færi á að henda
þriðja hjartanu heima og trompa í borði.
E.S. Eftir stendur sú spurning hvort
Gu hafi spilað rétt. Látum vera að hún
hafi kosið að hafna svíningunni í spaða
og leggja niður spaðaás. En eftir þá
byrjun virðist skynsamlegt að leggja
niður hjartaás áður en lauf er stungið í
borði og tígull heima. Þegar hún spilar
svo vestri inn á spaðakóng þarf austur
að finna þá vörn að henda hjartakóngi
(ef hún hefur þá ekki þegar af-
blokkerað).
En er það auðvelt?
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
1. e4 Rf6 2. e5 Rd5 3. d4 d6 4. Rf3 Bg4 5.
Be2 c6 6. c4 Rb6 7. Rbd2 dxe5 8. Rxe5
Bxe2 9. Dxe2 R8d7 10. c5 Rd5 11. Rec4
e6 12. Re4 Dc7 13. 0–0 R7f6 14. Red6+
Bxd6 15. Rxd6+ Kf8 16. a4 Re8 17. Rc4
h6 18. Bd2 g6 19. b4 Kg7 20. Hfc1 Ref6
21. b5 Hhd8 22. Hab1 Hab8 23. g3 Rd7
Staðan kom upp í stórmeistaraflokki
fyrsta laugardagsmótsins sem lauk sl.
febrúar í Búdapest.
Krisztian Scabo (2.376) hafði hvítt
gegn Mihajlo Zlatic (2.363). 24. b6!
R7xb6 svartur hefði tapað drottning-
unni eftir 24. … axb6 25. cxb6 Dc8 26.
Rd6 en 25. … R7xb6 hefði leitt til mann-
taps líkt og í skákinni eftir 26. Ba5. 25.
cxb6 axb6 26. Rxb6 De7 27. Rxd5 Hxd5
28. Hxc6 Da3 29. Hc4 Da2 30. Bxh6+
og svartur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
JAZZKVARTETTINN Skófílar leikur á tónleikum Jazzklúbbsins Múlans í kvöld kl. 21 á
Hótel Borg.
Skófílar taka fyrir tónlist Coltranes, Monks, Miles Davis og Lees Konitz. Skófílar eru
Ólafur Jónsson á saxófón, Ásgeir Ásgeirsson á gítar, Róbert Þórhallsson á bassa og Erik
Qvick á trommur.
Að sögn liðsmanna kvartettsins einkennist tónlist þessara fjögurra snillinga,
Coltranes, Monks, Davis og Konitz, af fullmótun hins hljómræna tungumáls og skýrum
línum fyrir þá sem fylgja í fótsporin. „Þetta er tungumálið sem maður er að reyna að
byggja sinn stíl á,“ segir Ólafur Jónsson um þessa tónlist, sem er frá sjötta áratug síð-
ustu aldar. „Þetta er tímabilið sem kemur á eftir bebop-djassinum, tímabil sem djass-
leikarar í hinum hefðbundna stíl leita mikið til.“
Nafnið á kvartettinum er dregið af John Scofield gítarleikara, en kvartettinn var
stofnaður fyrir um einu og hálfu ári í því skyni að leika tónlist hans.
Skófílar á Borginni
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú gætir orðið fyrir trúarlegri uppljómun
af einhverju tagi eða öðlast óvænta inn-
sýn í sjálfan þig eða aðra manneskju.
Hugur þinn mun upp ljúkast á nýjan hátt.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Vinur gæti komið þér á óvart í dag. Einn-
ig gæti býsna óvenjuleg manneskja orðið
á vegi þínum. Einhvers konar uppnám
gæti orðið af völdum fólks í kringum þig.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú færð óvæntar fréttir af yfirmanni eða
mikilvægri manneskju í þínu lífi sem slær
þig gersamlega út af laginu. Aðrir veita
því eftirtekt. Einnig gæti gæfan skyndi-
lega brosað við þér.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú færð ef til vill óvænta gjöf frá ein-
hverjum á næstunni. Kannski er það
greiði eða hlunnindi af einhverju tagi.
Vertu stór í sniðum og þiggðu það sem að
þér er rétt.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Eitthvað yndislegt og ánægjulegt gæti
gerst milli þín og maka þíns eða þín og
bláókunnugrar manneskju. Hið óvænta
gerir vart við sig í samskiptum þínum við
aðra í dag.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Vinnuferlið verður rofið á einhvern hátt í
dag. Kannski verður rafmagnslaust tíma-
bundið eða tölvukerfi bilar. Sýndu sveigj-
anleika í áætlanagerð.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þér verður boðið í partí, á listviðburð eða
eitthvað af því tagi alveg óvænt. Eða þá
að einhver býður þér í ferð á framandi
slóðir. Hið óvænta á leik.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Óboðnir gestir banka ef til vill upp á hjá
þér í dag. Fjölskyldumeðlimur kemur þér
líka kannski á óvart. Eitthvað óvænt en
ánægjulegt auðgar daginn þinn.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú átt von á yndislegum og spennandi
degi. Samskipti við systkini eru ánægju-
leg, sem hugsanlega kemur einhverjum á
óvart. Óvænt tíðindi gætu líka borist.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Fjármál eru uppspretta hins óvænta hjá
steingeitinni í dag. Hún ákveður kannski
að eyða fullt af peningum, eða þá að
tekjur aukast skyndilega. Vonandi fer
ekkert til spillis.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberinn er eirðarlaus, rafmagnaður
og lifandi í dag. Hann langar líka mest til
þess að sletta úr klaufunum. Stríðni og
galsi ná tökum á honum.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Fiskurinn finnur til uppreisnargirni í dag.
Kannski fær hann óvæntar fréttir sem slá
hann út af laginu. Eða þá að góður vinur
kemur færandi hendi alveg upp úr þurru.
Stjörnuspá
Frances Drake
Fiskar
Afmælisbarn dagsins:
Þú hefur góða frásagnargáfu og hæfileika
á sviði sjónrænnar skynjunar. Einnig
áttu gott með að sjá heildarmyndina.
Undirbúningur er þér mikilvægur en
snýst stundum upp í fullkomnunaráráttu.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
❖ Opið virka daga 10-18
❖ Laugardaga 10-16
Nýbýlavegi 12
Kópavogi
s. 554 4433
Föt fyrir
allar konur