Morgunblaðið - 03.03.2005, Qupperneq 42
ÉG hitti Moby á hóteli í Lundúnum, nema
hvað. Hann er yfirvegaður, snyrtilegur og
með allt á hreinu – kann því vel að vera við
stjórnvölinn. Hann er skýreygur, mælskur og
vel máli farinn, góð kynning fyrir grænmet-
isfæði og matsölustað sinn í New York.
Moby er fluttur inn á Hótel Bowie og Bow-
ie nýfluttur út. Segja má að þessi plata
Mobys, Hotel, sé eins konar virð-
ingarvottur við Bowie, að Moby
sé að vísa í æsku sína, að hylla
þá listamenn sem mótuðu
hann – hann er að end-
urvinna æskuna, „rímixa“
sjálfan sig.
Hótelið sem hann hefur
reist sér er ekki Chelsea-hótel
spillingarinnar, ekki Nicholson-
hótel óttans heldur hótel hvíld-
ar og öryggis með lögum sem
sum eru svo áferðarfalleg að
þau eru nánast lyftutónlist.
„Ég ætlaði mér að gera plötu
sem væri persónulegri en þær
sem ég hef sent frá mér hingað
til,“ segir hann og bætir við að
þess vegna meðal annars syngi
hann á plötunni í stað þess að
nota búta úr söng annarra
eins og hann hefur gert svo
gjarnan. „Það má segja að ég
sé að notfæra mér það hve síð-
ustu plötur seldust vel því fyrir
vikið get ég leyft mér að gera
meiri tilraunir en ella.“
Allir eru eins
Þegar gengið er eftir hót-
elgangi gengur maður meðfram
röð af lokuðum dyrum og fólkið
á bak við þær dyr er að gera
ósköp venjulega hluti; sofa,
njóta ásta, borða, fara í sturtu, lesa, horfa á
sjónvarp, en hver lokaður af í sínum heimi.
Moby segir að einmitt það hafi heillað hann,
að við séum öll sífellt að gera sömu hlutina
en þykjumst ekki vera að því. „Allt það sem
maður gerir einn með sjálfum sér er það
sama og allir eru að gera.“
Moby hefur víða komið við í tónlist, brugð-
ið sér í allra kvikinda líki, spilað pönk, upp-
hafna kvikmyndatónlist, hreina danstónlist og
sálarkennda popptónlist. Oftar en ekki hefur
hann nýtt hljóðsmala og -gervla, en á Hotel
stendur hann berskjaldaður, platan er tekin
upp án hljóðsmala, bara Moby sjálfur að spila
og syngja.
„Ég er ekki að reyna að vera annað en ég
er,“ segir hann, „hvort sem ég er að semja
tónlist eða veita viðtöl. Það er til mikið af
tónlist sem er leikræn og jafnvel tilgerðarleg,
og ekkert að því, fyrir slíkri tónlist er löng
hefð, en ég vil ekki vera hluti af þeirri hefð.
Ég sem tónlist fyrir sjálfan mig, tek hana
upp og vinn einn míns liðs þannig að það er
að vissu leyti sérkennilegt að spila hana fyrir
aðra, að leyfa öðrum að heyra, en það venst,“
segir hann og hlær við.
Heiðarleg plata
Eins og nefnt er í upphafi dregur þessi
plata dám af tónlist fyrri tíma, tónlist sem
Moby ólst upp við sjálfur og hann fer ekkert
í felur með það: „Ég ólst upp við Joy Divis-
ion, David Bowie og Echo and the Bunny-
men, en síðan gleymdst þessi tónlist smám
saman. Síðustu ár hafa menn verið að endur-
uppgötva þessa tónlist, hún er spiluð á öllum
börum í Bandaríkjunum – ég kem varla
svo inn á stað að það sé ekki verið að
spila einhverja af þeim bresku sveit-
um sem ég ólst upp við. Fyrir vikið
hef ég verið að rifja upp mikið af
tónlist sem ég var búinn að
gleyma og það varð til þess að
mig langaði til að gera plötu sem
hjómaði eitthvað í þá áttina.
Þetta var sú tónlist sem ég hélt upp
á á sínum tíma og held enn upp á eins
og ég hef nú komist að. Þetta er eins
heiðarleg plata og ég gat gert, plata
sem mér fannst mjög ganan að gera og
það væri frábært ef aðrir hefðu gaman
af að hlusta á hana,“ segir Moby og
heldur svo áfram eftir smáþögn: „Nú
og ef fólk kann ekki að meta hana þá
er ekkert að því, það er enginn
heimsendir.“
Moby segir að þegar hann líti yfir
ferilinn, plöturnar sem hann hefur
gefið út í gegnum árin, sé hann
þakklátur fyrir að hafa verið á
samningi hjá litlum útgáfum,
en ekki hjá einhverju stórfyr-
irtæki.
„Plöturnar sem ég hef
gefið út í gegnum tíðina
hafa verið svo ólíkar og
meira að segja hefur ægt
saman á þeim ólíkum stílum.
Þrátt fyrir það hafa menn hjá útgáf-
unum aldrei skipt sér af því sem ég er
að gera, aldrei reynt að hafa áhrif á það
hvernig tónlist ég semdi. Ég er til að mynda
klár á því að ef ég hefði gefið út plötu eins og
Animal Rights [1996] hjá stórfyrirtæki hefði
ég ekki fengið að gefa út aðra plötu hjá því
fyrirtæki,“ segir Moby og hefur nokkuð til
síns máls því sú plata seldist lítið sem ekkert
og fékk víðast slæma dóma.
stofu, hefur tekið þátt í pólitísku starfi og svo
má telja. Nú segist hann einbeita sér að því
að kynna Hotel, fyrst með viðtölum og
viðlíka og síðan tekur við tónleika-
hald um allan heim.
„Þegar ég var að vinna þessa
plötu samdi ég 2–300 lög og valdi
síðan úr þeim fjórtán. Það er því
af nógu að taka þegar kemur
að því að skoða næstu verk-
efni; alls á ég líklega 4–500
lög sem ég ætla að fara í
gegnum þegar tími gefst til.
Sem stendur langar mig
einna mest til að gefa út
kröftuga pönkskífu undir
dulnefni og líka að gefa út
plötu með groddalegu raf-
eindadiskói undir öðru
dulnefni. Næsta Moby-
plata er eiginlega tilbúin,
ég er búinn að
semja lögin, en
það verður að
bíða smá-
stund,“ seg-
ir Moby og
býr sig
undir að
flytja út af Hótel Bowie en hvort hann flytur
næst inn á Hótel dans eða Hótel pönk verður
tíminn að leiða í ljós.
Tónlist | Moby sækir í tónlist æskuáranna á nýju plötunni sem kemur út um miðjan mars
Hótel hvíldar og öryggis
„Ég er ekki að reyna að vera
annað en ég er,“ segir Moby í
viðtali við Morgunblaðið
„hvort sem ég er að semja
tónlist eða veita viðtöl.“ Um-
ræðuefnið er nýjasta plata
hans Hotel sem hann segir
sína persónulegustu í samtali
við Peter Bishop sem fram
fór á hóteli í Lundúnum.
Hotel kemur út 14. mars.
Höfundur er grafískur hönnuður í Bretlandi.
Árni Matthíasson íslenskaði.
Richard Melville Hall fékk gælunafnið Moby þegar hann var ungur drengur vegna þess að
hann er afkomandi Herman Melville, höfundar skáldsögunnar sígildu Moby Dick.
„Þegar ég síðan skilaði Play til útgáfu
[1999] tóku menn mér vel þótt enginn hafi
búist við nokkurri sölu, svo óvenjuleg þótti
platan og stakk í stúf við nánast allt sem gef-
ið var út á þeim tíma,“ segir hann.
4–500 lög
Moby segist hafa nóg fyrir stafni; hann
hefur unnið að endurbótum húsa, rekur te-
42 FIMMTUDAGUR 3. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Miðasala opnar kl. 15.30
A MIKE NICHOLS FILM
Sýnd kl. 10. B.i. 14 ára.
Ef þú trúir á ást við fyrstu sýn, hættir
þú aldrei að horfa
S.V. MBL.
Ó.Ö.H. DV
Frábær grínmynd fyrir alla fjölskylduna
jamie kennedyj i Alan cummingl i
Sýnd kl. 4 og 6 Ísl tal / kl. 4, 6, 8 og 10. Enskt tal
jamie kennedyi Alan cummingl i
CLOSER
Sýnd kl. 8 og 10.20. B.i. 14 ára.
Ef þú trúir á ást við fyrstu sýn,
hættir þú aldrei að horfa
Ó.Ö.H. DV
S.V. MBL. Þ.Þ.. FBL
M.M.J. Kvikmyndir.com
ATH! GÆTI HUGSANLEGA VAKIÐ ÓTTA UNGRA BARNA
ATH! GÆTI HUGSANLEGA VAKIÐ ÓTTA UNGRA BARNA
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Ó.H.T. Rás 2
Will Smith er
Tvær vikur á
toppnum í USA
Tvær vikur á
toppnum í USA
Frumsýning
Will Smith er
Frumsýning
CLOSER
JULIA ROBERTS
JUDE LAW CLIVE OWEN
NATALIE PORTMAN
Sýnd kl. 6 Ísl tal /
kl. 8. Enskt talSýnd kl. 5.45, 8 og 10.20.
JULIA ROBERTS JUDE LAW CLIVE OWEN NATALIE PORTMAN
A MIKE NICHOLS FILMkl. 5.30, 8 og 10.30.
VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDIVINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI
Frábær grínmynd fyrir
alla fjölskylduna
i
ll l l
Frábær grínmynd
fyrir alla fjölskylduna
jamie kennedyj iAlan cummingl i
Fr r rí y
fyrir l fj lskyl u
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Will Smith og
Kevin James
(King of Queens)
í skemmtilegustu
gamanmynd
ársins!
Will Smith og
Kevin James
(King of Queens)
í skemmtilegustu
gamanmynd
ársins!
J.H.H. kvikmyndir.com
J.H.H. kvikmyndir.com