Morgunblaðið - 03.03.2005, Qupperneq 44
44 FIMMTUDAGUR 3. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ÁLFABAKKI
kl. 3.45, 6, 8.15 og 10.30
VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI
Kvikmyndir.is.
S.V. Mbl.
KEFLAVÍK
kl. 8 og 10.10.
HELVÍTI VILL HANN,
HIMNARÍKI VILL HANN EKKI,
JÖRÐIN ÞARFNAST HANS
Magnaður spennutryllir með
Keanu Reeves og Rachel
Weisz í aðalhlutverki.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 5.30, 8 og 10.30. B.i 16.
SÝND Í LÚXUS VIP KL. 5.30, 8 OG 10.30.
Mbl.
DV
Hlaut tvenn Golden Globe verðlaun
Kvikmyndir.is
DV
GOLDEN GLOBE
VERÐLAUN
Besti leikari - Jamie Foxxti l i i i
J A M I E F O X X
Sýnd kl. 5.30, 8.30 og 10.30. B.i. 12 ára.
Sýnd kl. 8.
A Very Long
Engagement
Ó.H.T. Rás 2
J.H.H. Kvikmyndir .com
GERARD JUGNOT FRAN˙OIS BERLEAND KAD MERADSýnd kl. 6, 8 og 10.KÓRINN
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 5.30. E. tal.
LEONARDO DiCAPRIO
Sýnd kl. 6 og 9.10.
2 T I L N E F N I N G A R T I L Ó S K A R S V E R Ð L A U N A• BESTA ERLENDA MYNDIN • BESTA LAGIÐ
M.M.J.kvikmyndir.com
Besta mynd ársins
Besti Leikstjóri - Clint Eastwood
Besta Leikkona - Hillary Swank
Besti Leikari í aukahlutverki - Morgan Freeman
Besti Leikari - Jamie Foxx
Besta hljóðblöndun
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 14.
H.L. Mbl.
S.V. MBL.
Ef það var eitthvað eitt sem láljóst fyrir þegar Ósk-arsverðlaunahátíðin hófst í
Kodak-höllinni á sunnudag var það
að Jamie Foxx myndi fá sinn fyrsta
Óskar.
Það er nefnilega ár og dagur síð-
an nokkur kvikmyndaleikari hefur
sópað að sér eins mörgum verðlaun-
um og vegtyllum og Foxx hefur gert
fyrir túlkun sína á Ray Charles. Þar
fer sannkallaður leiksigur, leik-
frammistaða sem um verður rætt,
jafnvel löngu eftir að sjálf myndin,
hin annars stór-
fína Ray, verð-
ur flestum
gleymd. Rétt
eins í tilfelli
helstu fyr-
irmyndar Foxx, að hans eigin sögn,
Sidney Poitiers. Flestum er ógleym-
anleg leikframmistaða hans sem
færði honum Óskarsverðlaun 1963,
fyrstum svartra leikara, en færri
muna myndina Lilies of the Field.
Fæstum kom til hugar þegar til-
kynnt var að Jamie Foxx myndi
leika Ray Charles, að hann myndi
setja nýja staðla um hvernig túlka
ber af fullkominni innlifun og trú-
verðugleika, margflókna og sögu-
fræga persónu sem allir telja sig
þekkja. Foxx kemur nefnilega úr
þeim geira sem síst á upp á pall-
borðið hjá virðulegum kvikmynda-
akademíum, hátíðum og dómnefnd-
um; botnlausu gríni og glensi.
Þannig er að þegar Oliver Stone
bauð honum hlutverk í myndinni
Any Given Sunday árið 1999 var
hann stjarnan í sínum eigin grín-
þætti sem hét The Jamie Foxx Show
og þekktist ekki af öðru en að vera
góður grínari og uppistandari. En
síðan hefur vegsemd hans heldur
betur vaxið. Fyrir tilstuðlan Will
Smith valdi Michael Mann hann til
að leika í Ali þar sem hann var svo
gott sem eini ljósi punkturinn. Lítur
út fyrir að Mann hafi þá fyrstur
manna áttað sig á hvílíkt efni var
þar á ferð því hann hefur síðan ráðið
Foxx til að leika í öllum myndum sín-
um eftir það; að meðtalinni Collat-
eral sem færði honum hina Ósk-
arstilnefninguna í ár.
Vel að merkja, það er til marks
um styrk Foxx að hann er einungis
annar karlleikarinn í sögunni til að
hljóta Óskarstilnefningu fyrir tvö
hlutverk sama árið – sá fyrsti var Al
Pacino.
Sjálfur vill hinn 37 á ra gamliFoxx sem minnst gera úr afreki
sínu, segir að aðeins ein stjarna hafi
verið í myndinni Ray, einn aðalleik-
ari, og það hafi verið Ray Charles
sjálfur. „Ég er aukaleikarinn, því án
hans hefði myndin aldrei orðið að
veruleika.“
Foxx lagði samt ærið á sig til þess
að ná að skila þessu „aukahlutverki“
sómasamlega. Hann létti sig um á
annan tug kílóa og stúderaði Charl-
es heitinn í þaula, alla hans takta á
sviði og í einkalífi; fann út hvernig
hann borðaði, hvernig hann fór á
fjörurnar við hitt kynið og hvernig
hann missti stjórn á skapi sínu – sem
hann gerði ósjaldan karlinn. „Þetta
var ekki bara spurning um að ná að
herma eftir honum heldur verða
hann.“ Og það tókst Foxx sann-
arlega. Svo vel reyndar að maður
bókstaflega gleymir því þegar
skammt er á myndina liðið að þar sé
á ferð einhver að leika Ray Charles.
Þetta er Ray Charles. Ólíkt því er
maður var stöðugt meðvitaður um
að þetta væri Anthony Hopkins að
leika Nixon, Will Smith að leika Ali,
Ben Kingsley að leika Gandhi og Ma-
donna að leika Evu Peron – æ,æ.
Foxx hafði reyndar meira til að
bera en í fyrstu sýndist. Hann reynd-
ist ekki einasta glettilega líkur
Charles heldur kunni einnig á píanó,
hafði lært frá þriggja ára aldri, og
er liðtækur söngvari. Þeir náðu líka
vel saman, hann og Charles, þegar
Foxx gafst færi á að æfa með karlin-
um sjálfum, nokkrum mánuðum áð-
ur en hann féll frá í september á síð-
asta ári. Leikarinn lýsir honum sem
ströngum kennara.
„Við blúsuðum aðeins saman, en
þegar ég sló feilnótu spurði hann í
forundran; „Hvers vegna gerðirðu
þetta?“ Og ég svaraði skelkaður „Ég
bara veit það ekki, Ray“. Þá las hann
mér lexíu lífsins: „Þær eru þarna all-
ar, nóturnar, við fingurgóma þína
og eina sem þú þarft að gera er að
gefa þér tíma til að finna réttu nót-
una. Út á það gengur lífið, við erum
öll með nóturnar við fingurgómana
og þurfum að gefa okkur tíma til að
finna þær réttu, finna upp okkar eig-
in tónlist,““ rifjar Foxx upp.
Þótt segja megi að Jamie Foxx sénú þegar búinn að ná tindinum
benda þær myndir sem hann hefur
fallist á að leika í til þess að hann sé
hreint ekki tilbúinn að hefja nið-
urferð. Í ár birtist hann í tveimur
stríðstengdum myndum; njósnatrylli
Rob Cohens (xXx) Stealth og nýjustu
mynd Sam Mendes (American
Beauty) Jarhead sem gerist í Kúvaít
skömmu fyrir Persaflóastríð. Á
næstu tveimur árum mun Foxx svo
leika fyrir Michael Mann, fyrst í end-
urgerð á sjónvarpsþáttunum Miami
Vice og síðan dramanu Damage
Control.
Hann á sér einnig drauma um að
hasla sér völl sem tónlistarmaður.
Hann kom fram á Grammy-
verðlaununum og söng með Aliciu
Keyes lag Charles „Georgia on My
Mind“, syngur dúett með Kanye
West í lagi sem komst á topp banda-
ríska Billboard-listans og hefur nú í
hyggju að gefa út sólóplötu.
Jamie Foxx eru flestir vegir færir.
Foxx eru flestir vegir færir
’… það er til marks umstyrk Foxx að hann er
einungis annar karlleik-
arinn í sögunni til að
hljóta Óskarstilnefningu
fyrir tvö hlutverk sama
árið – sá fyrsti var Al
Pacino. ‘
AF LISTUM
Skarphéðinn
Guðmundsson
skarpi@mbl.is
Charles eða Foxx? Getið nú.
EIN vinsælasta hljómsveit poppsög-
unnar, eitísgoðin Duran Duran, verð-
ur meðal þeirra sem troða upp á Hró-
arskelduhátíð í ár. Þetta eru án efa
mikil og gleðileg tíðindi fyrir marga
því fáar hljómsveitir hafa öðlast aðra
eins lýðhylli, sérstaklega meðal ung-
linga á níunda áratug síðustu aldar.
Má því búast við að meðalaldur gesta
á hátíðinni hækki eitthvað, og enn
meira því á dögunum var tilkynnt að
ein fornfrægasta þungarokkssveit
sögunnar, Black Sabbath, myndi
einnig leika á Hróarskeldu, og það
með Ozzy Osbourne fremstan í flokki.
Í sömu tilkynningu frá Stúdenta-
ferðum, sem skipuleggja ferðir frá
Íslandi á Hróarskeldu og sjá um
miðasölu, segir að verð miða á Hró-
arskeldu í ár hafi verið lækkað niður í
14.500 kr. frá og með 1. mars. Það sé
„vegna lágs gengis á evru“. Er jafn-
framt ítrekað, að gefnu tilefni, að verð
aðgöngumiða á hátíðina sé ekki hærra
hér en sé miðinn keyptur í Danmörku
enda sé það „stefna hátíðarinnar að
hafa miðasöluaðila í sem flestum lönd-
um svo fólk geti keypt sér miðana á
sama verði án fyrirhafnar“.
Auk Duran Duran hefur verið boð-
uð koma þriggja merkilegra lista-
manna á Hróarskeldu; The Be Good
Tanyas frá Kanada, bandaríska
trúbadorsins Devandra Banhart og
landa hans, söngkonunnar Joönnu
Newson, en bæði gáfu út plötur sem
taldar voru með þeim betri á síðasta
ári.
Reuters
Þeir Simon og John munu vafalítið bræða ófá eitíshjörtun á Hróarskeldu í ár.
Miðaverð lækkað á Íslandi
www.roskilde-festival.is
www.exit.is
Duran
Duran á
Hróars-
keldu
Breskir fjölmiðlar segja frá því aðbandaríska kvikmyndastjarn-
an Renée Zellweger og írski söngv-
arinn Damien Rice séu að draga sig
saman.
Rice er Íslendingum að góðu
kunnur en hann hefur nokkrum
sinnum hald-
ið tónleika
hér á landi.
Haft er
eftir heimild-
armönnum,
sem þekkja
til, að Renée
og Damien
hafi átt í sam-
bandi um nokkurn tíma og séu afar
hamingjusöm. Þau hafi bæði dálæti
á tónlist og bæði séu hugsuðir auk
þess sem Damien sé skáld og þau
eigi vel saman.
Sagt er að Zellweger hafi heim-
sótt Rice í Dublin og sést hafi til
hennar skoða íbúðir í borginni.
Tískuhönnuðinum Stellu McCartney – dóttur Bítilsins
Paul – og eiginmanni hennar,
Alasdhair Willis, fæddist sonur sl.
föstudag.
Hefur dreng-
urinn fengið
nafnið Miller
Alasdhair
James Willis
að því er net-
miðillinn An-
anova skýrir
frá. Ekki er
vitað hvers vegna hjónin völdu nafn-
ið Miller sem fyrsta nafn sonarins.
Afi Stellu heitir James Paul
McCartney og bróðir hennar heitir
James Louis McCartney.
Sonur Stellu og Alshdair er sagð-
ur hafa fæðst á Portland-sjúkrahús-
inu í Lundúnum á föstudagsmorgun.
Willis er fyrrum tímaritaútgef-
andi en hann og Stella gengu í
hjónaband í Skotlandi í ágúst árið
2003.
Ný fatalína McCartney verður
kynnt í París í dag.
Fólk folk@mbl.is