Morgunblaðið - 03.03.2005, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 03.03.2005, Qupperneq 45
HINN eini sanni Hemmi Gunn snýr aftur í sjónvarpið í nýjum skemmti- þætti, Það var lagið, sem hefur göngu sína á Stöð 2 um páskana. „Mér finnst þetta vera eins og að byrja nýtt líf. Ég var á vissan hátt búinn að loka á þetta og var ekki að spá mikið í að fara út í sjónvarpsþáttagerð. Ég er búinn að reyna allt í þessum geira, bæði í blaðamennsku og fjölmiðlum. Ég átti tíu frábær ár hjá Sjónvarpinu með gömlu þættina mína. Síðan bauðst mér þetta og ég stóðst bara ekki þessa áskorun. Ég heyrði strax að það ætti að vanda til þáttanna og leggja talsvert í þá. Ég hlakka mikið til,“ segir Hemmi um nýja starfið en gömlu þættirnir sem hann ræðir um eru að sjálfsögðu Á tali hjá Hemma Gunn. Ísland er fertugasta landið í heiminum til að taka þáttinn til sýningar en á ensku heitir hann Beat to Beat. Þátturinn tekur við af Idol- Stjörnuleit í dagskrá Stöðvar 2 á föstudags- kvöldum. Upptökur eru ekki byrjaðar en alls verða framleiddir fjörutíu þættir í einni lotu. Stöð 2 hefur gert samning við Saga Film, sem hefur einkarétt á framleiðslu þáttanna á Íslandi, og Fremantle Media, eiganda þáttarins. Hemmi er spenntur fyrir samstarfinu við Stöð 2 og Saga Film og nefnir sérstaklega Maríönnu Friðjónsdóttur í því sambandi. Hann vonast til þess að geta hagnýtt fjölbreytta reynslu sína við dagskrárgerð, ekki síst í ljósvakamiðlum og klykkir út með því að hann „stefni auðvitað að því að gera enn betur“. Spurningar og tónlist Þátturinn er bæði spurninga- og tónlistarþáttur og hefur Jón Ólafsson tónlist- armaður umsjón með lagavali og spurningum. Hemma til halds og trausts eru tónlistarmennirnir Pálmi Sigurhjartarson og Karl Olgeirsson, sem sitja við flyg- ilinn. Hljómsveitin Buff er síðan hljómsveit þáttarins. Þetta er því stórt verkefni og verður þátturinn á dagskrá allt til jóla. Hemmi segir að verið sé að „kollvarpa eldgamalli hugmyndafræði“ með því að hafa þætt- ina gangandi í allt sumar. „Núna þurfa sjónvarpsstöðvarnar að leggja metnað í góða dagskrá allan ársins hring.“ Hemmi segir að Það var lagið verði þáttur fyrir alla fjölskylduna. „Ég held að þarna fái allir fjölskyldumeðlimir eitthvað fyrir sinn snúð og allir geta verið þátttakendur. Fjölskyldan getur sameinast fyrir framan tækin,“ segir hann. „Þarna verða fjölmargir áhorfendur í hverjum einasta þætti og þeir verða virkir í söng og tralli. Sömuleiðis áhorfendur heima í stofu. Þeir geta spreytt sig á þess- um litlu getraunum og unnið til veglegra verðlauna með því að senda sms. Það geta allir verið með,“ út- skýrir hann. „Það verða alltaf tvö lið í hverjum þætti. Þetta eru tveggja manna lið sem eru hvort með sinn píanóleik- arann. Auk þess verður hljómsveit þáttarins þarna til að gefa þessu fyllingu. Skilyrði fyrir þátttöku er að vera í góðu skapi. Til að byrja með verður lögð áhersla á að fá þjóðkunnar persónur í þetta, ekki síst söngv- ara og leikara og aðra sem þora að sprella svolítið.“ Sjónvarp | Hemmi Gunn stýrir nýjum skemmtiþætti á Stöð 2 Skilyrði að vera í góðu skapi Fyrsti þátturinn af Það var lagið verður föstudag- inn 25. mars kl. 20.30 á Stöð 2. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2005 45 Það leggst vel í Hemma Gunn að hefja störf á ný í sjónvarpi og skemmta landsmönnum með tónlist og getraunum. Disneyhetjurnar Bangsímon, Grísli, Tígri og félagar lenda í stórkostlegu nýju ævintýri! HELVÍTI VILL HANN, HIMNARÍKI VILL HANN EKKI, JÖRÐIN ÞARFNAST HANS Magnaður spennutryllir með Keanu Reeves og Rachel Weisz í aðalhlutverki. HELVÍTI VILL HANN, HIMNARÍKI VILL HANN EKKI, JÖRÐIN ÞARFNAST HANS Magnaður spennutryllir með Keanu Reeves og Rachel Weisz í aðalhlutverki. ÁLFABAKKI kl. 3.45 og 6.30. Ísl tal KEFLAVÍK Sýnd kl. 8 og 10.20. KRINGLAN Sýnd kl. 5.30, 8, 9.15 og 10.30. B.i. 16. KRINGLAN kl. 5.30. Í.t./ kl. 7. E.t. Yfirnáttúrulegur spennutryllir af bestu gerð sem vakið hefur gríðarleg viðbrögð og slegið rækilega í gegn í USA og víðar. Varúð: Ykkur á eftir að bregða. B.i 16 ára ÁLFABAKKI Sýnd kl. 3.45 og 6. m. ísl. tali. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 8.15 og 10.30. KRINGLAN kl. 6, 8.15 og 10.30. AKUREYRI Sýnd kl. 8 og 10.20.  Kvikmyndir.is  Mbl.  DV  Mbl.  DV ÁLFABAKKI Sýnd kl. 3.45 og 6. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 8.15 og 10.30. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 8.15. J A M I E F O X X  T I L N E F N I N G A R T I L Ó S K A R S V E R Ð L A U N A 

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.