Morgunblaðið - 03.03.2005, Qupperneq 48
SAMKEPPNISYFIRVÖLDUM
verður heimilt að gera kröfu til fyr-
irtækja, sem brjóta samkeppnislög
ítrekað, um að skipta þeim upp, nái
frumvarp viðskiptaráðherra um ný
samkeppnislög fram að ganga.
Frumvarpið var lagt fram á Alþingi
í gær ásamt frumvarpi um Neyt-
endastofu og talsmann neytenda.
Verður Samkeppnisstofnun lögð
niður og Samkeppniseftirlitið stofn-
að og kemur Neytendastofa í stað
Löggildingarstofu og neytendaverk-
efna Samkeppnisstofnunar. Starfs-
mönnum þessara stofnana verður
boðin vinna á nýjum vettvangi, auk
þess sem starfsmönnum verður
fjölgað um sjö við samkeppniseft-
irlit.
Ekki ákvæði um heimild
til húsleitar á heimilum
Í samkeppnislagafrumvarpinu,
sem byggist að mestu á niðurstöð-
um nefndar um stefnumótun ís-
lensks viðskiptaumhverfis, er lagt
til að Samkeppniseftirlitið fái skýrar
lagaheimildir til að krefjast þess að
fyrirtæki, sem brotið hafa gegn
ákvæðum samkeppnislaga, breyti
skipulagi sínu, eins og það er orðað.
Valgerður Sverrisdóttir segir að
með þessu verði yfirvöldum m.a.
heimilt að gera kröfu um að fyr-
irtækjum verði skipt upp. Er þessi
breyting gerð í samræmi við nýjar
samkeppnisreglur Evrópusam-
bandsins og norsk samkeppnislög.
Í frumvarpinu er ekki að finna
ákvæði um að heimilt verði að fram-
kvæma húsleit á heimilum stjórn-
enda fyrirtækja, líkt og nefndin
gerði tillögu um. Valgerður segir að
í umsagnarferlinu hafi komið at-
hugasemdir við þessa tillögu og því
hafi ákvæðið verið tekið út. Bendir
ráðherra á að nefnd sé að störfum
sem ætlað var að skoða samskipti
samkeppnisyfirvalda, Fjármálaeft-
irlitsins og lögreglu í refsiréttarlegu
tilliti. Frumvarpið kveður hins veg-
ar á um að starfsmönnum Eftirlits-
stofnunar EFTA sé heimilt að fram-
kvæma svona húsleitir hér á landi.
Heimild til
að skipta
fyrirtækj-
um upp
Krafa um/10
Viðskiptaráðherra
með tvö ný frum-
vörp á Alþingi
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 3. MARS 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Opið 8-24 alla daga
í Lágmúla og Smáratorgi
NÝR grunnskóli, Hraunvallaskóli,
sem kemur til með að rísa í hinu
nýja Vallahverfi í Hafnarfirði, er
hannaður til þess að hýsa bæði
grunnskóla- og leikskólabörn, og
er þetta fyrsti skólinn hér á landi
sem sérstaklega er hannaður með
þetta í huga, að því er næst verð-
ur komist.
Magnús Baldursson, sviðsstjóri
fræðslusviðs Hafnarfjarðarbæjar,
segir að þessi samþætting sé í
samræmi við stefnu mennta-
málayfirvalda, og hún gefi ýmis
tækifæri í skólastarfinu.
Möguleikar séu á því að leik-
skólabörn sem eru fljót að tileinka
sér námsefni komi fyrr inn í
grunnskólann og kynnist skóla-
starfinu.
Ekki verði jafnmikil skil og eru
milli skólastiganna í öðrum skól-
um, og minni breyting fyrir leik-
skólabörn að byrja í grunnskól-
anum.
Leikskólabörnin munu hafa að-
gang að aðstöðu í grunnskólanum
og venjast því að nota sali, sér-
greinastofur og opin rými.
„Á þennan hátt verður hægt að
vera með fjölbreyttara starf í leik-
skólanum og nemendur flæða
þarna á milli,“ segir Magnús./17
Nýr skóli
sameinar
skólastigin
„ÞAÐ er meira af fiski á ferðinni en
ég hef séð undanfarin tvö til þrjú
ár. Að minnsta kosti merkir maður
það á netaaflanum. Og það virðist
vera fiskur um allan sjó, maður
heyrir góðar aflafréttir bæði að
austan og vestan,“ segir Gunn-
laugur Ævarsson, skipstjóri á neta-
bátnum Erlingi KE úr Reykja-
nesbæ. Hann fékk um 250 tonna
afla í netin í febrúar og er með afla-
hæstu bátum vertíðarinnar.
Þessi 115 kílóa stórlúða kom í
netin hjá Erlingi KE og þeim leidd-
ist það ekki, skipverjunum Jóni
Birni Lárussyni, Gunnari Laxfoss
Þorsteinssyni, Róbert Má Krist-
inssyni, Jóhanni Svan Þorsteinssyni
og Hafsteini Jónssyni.
Fengu 250 tonn í febrúar
Það virðist/C4
FLEIRI kjósa Vinstri hreyfinguna
– grænt framboð og Sjálfstæðis-
flokkinn ef gengið yrði til kosninga
nú, borið saman við síðustu alþing-
iskosningar, en fylgi annarra flokka
minnkar, skv. þjóðmálakönnun Fé-
lagsvísindastofnunar sem unnin var
fyrir Morgunblaðið dagana 18.–24.
febrúar sl. Var könnunin gerð áður
en flokksþing Framsóknarflokksins
fór fram um síðustu helgi.
Fylgi Sjálfstæðisflokks mælist nú
39,3% (var 33,7%) og fylgi Vinstri
hreyfingarinnar – græns framboðs
eykst um nær helming, mælist nú
16,5% (var 8,8%). Fylgi annarra
flokka dregst saman. Samfylkingin
fengi 25,5%, Framsóknarflokkurinn
12,5% og Frjálslyndi flokkurinn
5,8% atkvæða.
Fylgi VG og Sjálf-
stæðisflokks eykst
G
H
I
J
@'
A
Tæpur helmingur/4
„VIÐ erum, öll fjölskyldan, bæði hissa og
sjokkeruð enda er þetta gífurleg árás á frið-
helgi einkalífsins. Sonur minn er eðlilega
hræddur og lítið hefur orðið um svefn hér á
heimilinu eftir árásina enda vanlíðanin mikil.
Sjálf er ég rosalega reið,“ segir Sara María
Björnsdóttir, móðir tólf ára pilts sem varð fyr-
ir fólskulegri árás síðdegis á mánudag þegar
tveir strákar á líku reki sprautuðu startvökva í
augu hans og andlit.
Sonur Söru, Einar Örn Rósarsson, var ný-
kominn heim úr skólanum og var einn heima á
heimili fjölskyldunnar í Skipasundi þegar
dyrabjöllunni var hringt. „Hann fór til dyra af
því að hann hélt að vinir hans væru að koma í
heimsókn. Þegar hann opnaði dyrnar stóðu
tveir strákar fyrir utan og sprautuðu start-
vökvanum í andlitið á honum. Hann náði að
loka dyrunum og fara inn á bað þar sem hann
gat skolað aðeins framan úr sér, en fann að
það virkaði ekki. Því næst hringdi hann í mig
og við fórum með hann á bráðamóttöku þar
sem við tók mjög sársaukafull aðgerð að skola
augu hans, en nota þurfti fjóra lítra af þar til
gerðum vökva til að skola þau.“
Báðar hornhimnur brunnu
Að sögn Söru var Einar í skoðun hjá augn-
lækni í gærmorgun og staðfesti hann að efna-
bruni hefði átt sér stað í augum Einars þannig
að báðar hornhimnur eru brunnar. Sagði hún
Einar hafa fengið smyrsl til að bera í augun og
að hann verði í eftirliti næstu mánuði. Standa
vonir til að augu hans jafni sig með tíð og tíma.
Aðspurð segir Sara árásina hafa verið
kærða til lögreglunnar í gærmorgun og vonast
hún til þess að haft verði uppi á hinum seku.
Sara segir Einar ekki hafa borið kennsl á þá
sem þetta gerðu, en getað gefið lögreglunni
ýmsar upplýsingar um þá. Aðspurð segist
Sara ekki vita hvort einhver hafi orðið vitni að
árásinni, en hvetur að sjálfsögðu alla sem ein-
hverjar upplýsingar geti gefið til að gefa sig
fram. „Meðan við vitum ekki hverjir þetta eru
og ekki er haft uppi á þeim þá getur þetta allt-
af gerst aftur.“
Þörf á vitundarvakningu
Sara á auk Einars tvö önnur börn innan við
fermingaraldur og segist hún aldrei framar
hafa þau ein heima. „Ég býð ekki börnunum
mínum upp á það að þetta geti endurtekið sig,“
segir Sara og tekur fram að einnig standi til að
skipta um gler í útidyrahurðinni svo að hægt
sé að sjá hver standi fyrir utan.
Sara segist hugsi yfir þessum alvarlega at-
burði. „Ég valdi að koma fram opinberlega og
ræða þetta þar sem mér finnst þurfa vakningu
í þjóðfélaginu um það hvað börnin okkar eru
með undir höndum, þ.e. hvers lags efni þetta
eru. Komast krakkar í svona efni t.d. á næstu
bensínstöð? Og eins hvað fær unga krakka til
að gera svona nokkuð?“
„Hvað fær krakka til að gera svona?“
Morgunblaðið/Golli
Sara María og Einar Örn sem varð fyrir
árás á heimili sínu síðasta mánudag.
RÚMLEGA 20% fyrirtækja á Ís-
landi eru í eigu kvenna. Hefur
þetta hlutfall ekki breyst frá árinu
1998.
Valgerður Sverrisdóttir, iðnað-
ar- og viðskiptaráðherra, ætlar að
beita sér fyrir aðgerðum til að
gera konum auðveldara að stofna
og reka fyrirtæki. Hún segir mik-
ilvægt að virkja betur þekkingu og
hæfni kvenna til sóknar í íslensku
atvinnulífi.
Í gær var kynnt skýrsla um
eignarhald kvenna í viðskiptum og
landbúnaði á Íslandi. Í skýrslunni
kemur fram að konur þurfi
greiðari aðgang að fjármagni og
endurskoða þurfi stoðkerfi at-
vinnulífsins.
Vill fleiri
konur í fyrir-
tækjarekstur
Í kringum 21%/13
♦♦♦