Morgunblaðið - 07.03.2005, Síða 4
ÍÞRÓTTIR
4 C MÁNUDAGUR 7. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
BARCELONA jók forskot sitt í
spænsku 1. deildinni í knattspyrnu í
átta stig á laugardagskvöldið með
því að sigra Osasuna á útivelli, 1:0.
Samuel Eto’o, nýkjörinn knatt-
spyrnumaður ársins 2004 í Afríku,
skoraði sigurmarkið með hörku-
skoti eftir frábæra sendingu frá
Deco seint í fyrri hálfleiknum.
Eto’o átti mjög góðan leik og mark-
ið var hans 18. í deildinni í vetur.
Real Madrid sótti meistara Val-
encia heim og niðurstaðan í fjör-
ugum leik varð jafntefli, 1:1. Pablo
Aimar kom Valencia yfir snemma
leiks en Ronaldo jafnaði metin fyrir
Real Madrid á 28. mínútu. Lang-
þráð mark hjá Ronaldo sem hefur
ekki verið á skotskónum að undan-
förnu.
Betri staða
Barcelona
PETR Cech, mark-
vörður Chelsea,
þurfti loksins að
sækja boltann í netið
í leik í úrvalsdeild-
inni, eftir að hafa
haldið hreinu í 10
leikjum í röð í deild-
inni. Thierry Henry
skoraði fyrir Arsenal
á 29. mínútu í leik lið-
anna þann 12. desem-
ber 2004, sem endaði
2:2, en eftir það fékk
Cech ekki á sig mark
í deildinni fyrr en á
laugardaginn þegar
Leon McKenzie jafn-
aði fyrir Norwich, 1:1, á 64. mín-
útu. Þar með voru liðnar 1.025
leikmínútur síðan síðast var
skorað hjá Chelsea.
Eftir leikinn gegn
Arsenal hélt Chelsea
hreinu gegn Nor-
wich (4:0), Aston
Villa (1:0), Ports-
mouth (2:0), Liver-
pool (1:0), Middles-
bro (2:0), Tottenham
(2:0), Portsmouth
(3:0), Blackburn
(1:0), Manchester
City (0:0), og Everton
(1:0).
Cech hefði þurft
að halda hreinu í
þessum leik og í 53
mínútur í þeim næsta
til að slá enska metið.
Það á Steve Death, markvörður
Reading, sem ekki fékk á sig
mark í 1.103 mínútur samfleytt
árið 1979.
Fyrsta markið hjá Cech
síðan 12. desember
Petr Cech
Eiður Smári hóf leikinn á vara-mannabekknum og sá Joe Cole
koma Chelsea yfir með þrumuskoti.
Leon McKenzie jafnaði fyrir Nor-
wich um miðjan síðari hálfleik en
José Mourinho, knattspyrnustjóri
Chelsea, brást við því með því að
skella Eiði og Mateja Kezman inn á
sem varamönnum. Það hreif, eftir
aðeins sex mínútur galopnaði Eiður
vörn Norwich með sendingu á Frank
Lampard, skot hans geigaði og bolt-
inn stefndi fram hjá markinu en
Kezman kom á fleygiferð og sendi
hann í netið, 2:1. Það var svo portú-
galski varnarmaðurinn Ricardo
Carvalho sem innsiglaði sigur
Chelsea með hörkuskalla, 3:1.
Sagði ekki frá jafnteflinu
á Selhurst Park
Mourinho sagði sínum mönnum
ekki frá því áður en leikurinn í Nor-
wich hófst að Manchester United
hefði tapað stigum gegn Palace. „Við
hugsum ekki um þá, látum þá um að
hafa áhyggjur af okkur. Ég vil að
mínir menn leiki alltaf undir pressu,
ef þeir hefðu vitað af úrslitunum á
Selhurst Park hefði það getað gert
þá kærulausari – og því sagði ég
þeim ekki neitt,“ sagði Mourinho.
Hann sagði að úrslitin færðu
Chelsea enn nær meistaratitlinum.
„Ég held því stöðugt fram að ég trúi
á sigur okkar í deildinni, en sumir
vilja kalla það hroka. Við erum með
forskot, átta stig sem stendur, en níu
ef við gerum jafntefli við WBA, ell-
efu ef við sigrum. Mér er sama hve-
nær við tryggjum okkur meistaratit-
ilinn, hvort það verður einhverjum
umferðum áður en deildinni lýkur,
eða í lokaumferðinni. En ég vildi þó
helst að það gerðist á Stamford
Bridge, frammi fyrir okkar stuðn-
ingsmönnum, því það myndi gleðja
þá afar mikið,“ sagði Mourinho.
„Þetta var snúinn leikur en þegar
á reyndi gerðum við nóg til að knýja
fram sigur. Ég vissi ekki fyrr en í
hálfleik hvernig fór hjá United og
Palace, enda skipti það ekki máli. Við
erum með okkar eigin dagskrá, við
þurfum að vinna okkar eigin leiki,“
sagði Joe Cole, sem þótti besti mað-
ur vallarins á laugardaginn.
Erfitt að segja eitthvað
meira um Henry
Thierry Henry afgreiddi Ports-
mouth nánast upp á eigin spýtur á
Highbury, skoraði tvívegis, sitt
hvorum megin við leikhlé eftir send-
ingar frá Lauren og Patrick Vieira,
og innsiglaði sigurinn, 3:0, beint úr
aukaspyrnu en þar hefði Kostas
Chalkis, markvörður Portsmouth,
reyndar átt að verja.
„Það er erfitt að segja eitthvað um
Henry sem maður hefur ekki sagt
áður. Það er eiginlega best að horfa
bara á hann – hann er stórkostlegur.
Um tíma virtist hann vera í vanda
vegna meiðsla en svo hristi hann það
af sér og skoraði tvö mörk. Það er
gott fyrir hann að skora þessa
þrennu, svona rétt fyrir mikilvægan
leik í Meistaradeildinni. Annars vita
allir að Thierry getur skorað, en það
var aftur á móti sérlega ánægjulegt
að við skyldum halda marki okkar
hreinu, annan leikinn í röð. Okkar
markmið er enn að reyna að komast
eins nálægt Chelsea og mögulegt er
en ef okkur tekst að komast upp fyr-
ir Manchester United og í annað
sætið yrði það góður áfangi, þá
þyrftum við ekki að fara í forkeppni
Meistaradeildarinnar,“ sagði Arsene
Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal.
Höfum fært Chelsea
frábæra stöðu
Manchester United hafði manni
fleira síðustu 25 mínúturnar gegn
Crystal Palace á Selhurst Park, eftir
að Vassilis Lakis fékk að líta rauða
spjaldið, en náði ekki að nýta sér
liðsmuninn. Látlaus sókn United á
lokakafla leiksins skilaði engu.
„Þetta eru mjög slæm úrslit, í bar-
áttunni um meistaratitilinn verða
svona leikir að vinnast og nú höfum
við gert sjálfum okkur erfitt fyrir, og
fært Chelsea frábæra stöðu. Ég er
hins vegar ánægður með vinnusemi
minna manna, þeir gáfu sig alla í
leikinn og hefðu átt að uppskera sig-
ur. Maður verður hins vegar alltaf að
reikna með hörkubaráttu liðanna
sem eru í fallslagnum, þau eru að
berjast fyrir lífi sínu og Palace gerði
það í dag,“ sagði Alex Ferguson,
knattspyrnustjóri Manchester Unit-
ed.
Eiður Smári lagði upp mikilvægt mark Chelsea gegn Norwich
Chelsea nýtti sér
feilspor Man. Utd
EIÐUR Smári Guðjohnsen og félagar í Chelsea þokuðust feti nær
enska meistaratitlinum í knattspyrnu á laugardaginn. Skæðustu
keppinautar þeirra, Manchester United, misstigu sig þegar þeir
urðu að sætta sig við markalaust jafntefli gegn Crystal Palace í
London og Chelsea nýtti sér það í lokaleik dagsins – sigraði Nor-
wich á útivelli, 3:1, og náði átta stiga forskoti. Chelsea á auk þess
leik til góða, gegn botnliði WBA. Thierry Henry var maðurinn á bak
við sigur Arsenal á Portsmouth, 3:0, og lið hans er nú tveimur stig-
um á eftir Manchester United í þriðja sætinu.
THI
fran
lágr
knat
Hen
þjóð
eitth
sekt
lensk
leg o
Jose
arhá
„F
knat
verð
inu a
knat
og þ
sama
dæm
ar kr
legt.
þeim
bara
miðl
Ar
var s
krón
„svin
sem
við v
slepp
Wen
v
r
OWEN Hargreaves, enski lands-
liðsmaðurinn í knattspyrnu sem
leikur með Bayern München, sagði
við Daily Mail um helgina að hann
hefði mikinn áhuga á að færa sig
yfir í ensku úrvalsdeildina, og þá
líkast til í raðir Tottenham. Lund-
únaliðið reyndi að fá hann síðasta
sumar en hann var þá ekki tilbúinn í
vistaskiptin. „Síðasta sumar var
ekki rétti tímapunkturinn en við
Frank Arnesen ákváðum að vera
áfram í sambandi. Það yrði frábært
að leika með félagi á borð við Tott-
enham og búa í London,“ sagði hinn
24 ára gamli Hargreaves, sem er
fæddur í Kanada en hefur verið í
röðum Bayern München frá 16 ára
aldri.
PASCAL Cygan, varnarmaður
Arsenal, meiddist í leik liðsins gegn
Portsmouth í ensku úrvalsdeildinni
á laugardaginn, tognaði í læri og
haltraði af velli á 24. mínútu. Hann
missir af þeim sökum af leik liðsins
gegn Bayern München í Meistara-
deild Evrópu á miðvikudagskvöldið.
LUDOVIC Giuly, franski kant-
maðurinn hjá Barcelona, getur spil-
að með liðinu gegn Chelsea í Meist-
aradeild Evrópu annað kvöld. Hann
hefur jafnað sig á bakmeiðslum en
litlar líkur voru taldar á því fyrir
helgi að hann yrði með. Miðjumað-
urinn Rafael Marquez meiddist
hinsvegar um helgina og verður
ekki með Barcelona í leiknum.
MIDDLESBROUGH er komið í
mikil markmannsvandræði eftir að
Carlo Nash meiddist í nára í leik
liðsins við Aston Villa á laugardag-
inn. Nash hefur verið varamark-
vörður liðsins en lék þar sem Mark
Schwarzer er meiddur í hné.
Næstu tveir markverðir hjá félag-
inu, Brad Jones og Ross Turnbull,
eru í láni hjá liðum í 2. deild, og eru
báðir frá vegna meiðsla sem stend-
ur. Þá standa aðeins eftir tveir tán-
ingar, David Knight og Dale Ro-
berts, sem eru 19 og 18 ára gamlir.
Middlesbrough mætir Sporting
Lissabon í UEFA-bikarnum annað
kvöld.
JENS Lehmann, markvörður
Arsenal, kennir nýja keppnisbolt-
anum frá Nike um ófarir sínar á
milli stanganna í vetur en hann hef-
ur verið heldur mistækur í leikjum
meistaranna. „Hann fer hraðar en
aðrir boltar og það er mjög erfitt að
reikna hann út, stundum er nær
ógjörningur að grípa hann. Það er
mikill snúningur á öllum nýjum
boltum en þessi er hraðari en hinir.
Þetta lítur kannski vel út í sjónvarpi
en það erum við markverðirnir sem
líðum fyrir þetta og virðumst gera
heimskuleg mistök,“ segir Leh-
mann og fær varla hrós fyrir um-
mæli sín hjá Arsenal því félagið er
með stóran samning við Nike.
FÓLK
Hermann Hreiðarsson, leikmaður Charlton, á hér í höggi við Papa
BJÖRN Þ. Þorleifsson
úr Björkunum í Hafnar-
firði sigraði í sínum
þyngdarflokki á Opna
bandaríska meistara-
mótinu í Taekwondo.
Mótið fór fram í Atlanta
í Georgíufylki. Björn
keppti í -78 kg. flokki.
Á leið sinni að titl-
inum átti Björn í höggi
við fimm andstæðinga
en alls voru 28 landslið
með á mótinu auk
heimamanna. Mótið var
einnig úrtökumót fyrir
bandaríska landsliðið og ljóst að
mótið er gríðarlega sterkt á heims-
vísu.
Þrír aðrir Íslendingar tóku þátt í
mótinu en þeir eru
Haukur Gunnarsson og
Bjarni Óskarsson. Anna
Jónsdóttir var eina kon-
an í íslenska liðinu.
Á leið sinni í úrslita-
rimmuna sigraði Björn
þá Tom Lynn, Dominic
Taylor, Seth Grossman
og Salim Oden en þeir
eru allir frá Bandaríkj-
unum. Hann lagði Ítal-
ann Pacifico Laezza í
úrslitum.
Björn varð Norður-
landameistari í sínum
flokki í janúar á þessu ári en hann
lagði þar þrjá andstæðinga sína
mjög örugglega. Anna fékk brons-
verðlaun á því móti.
Björn Þ. Þorleifsson
fagnaði sigri í Atlanta
Björn
Þorleifsson