Morgunblaðið - 31.03.2005, Blaðsíða 1
2005 FIMMTUDAGUR 31. MARS BLAÐ C
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
KEFLAVÍK VANN GRINDAVÍK ÖRUGGLEGA Á HEIMAVELLI / C2
JÓN Arnór Stefánsson, körfu-
knattleiksmaður, hefur verið val-
inn í úrvalslið Evrópu í körfuknatt-
leik sem leikur við heimsúrvalið í
stjörnuleik FIBA Europe League á
Kýpur 14. apríl. Jón Arnór er einn
þriggja leikmanna frá Dynamo St.
Petersburg í Rússlandi sem er í
Evrópuliðinu sem verður undir
stjórn þjálfara Dynamo-liðsins. Frá
þessu var greint á Eurobasket-
vefnum í gær en opinber tilkynn-
ing um val liðsins verður ekki gefin
út fyrr en á morgun.
Þetta er í fyrsta sinn sem íslenskur körfuknattleiks-
maður er valinn í úrvalslið Evrópu, en kosning í liðið hef-
ur staðið yfir á Netinu síðustu vikur. Ljóst er kosningin
er mikill heiður fyrir Jón Arnór sem leikið hefur ein-
staklega vel fyrir Dynamo St. Petersburg í vetur, jafnt í
rússnesku deildinni sem og í Evrópukeppninni.
Jón Arnór valinn í
úrvalslið Evrópu
Jón Arnór
EYJAMENN hafa fengið tvo leik-
menn frá vinafélagi sínu í ensku
knattspyrnunni, 1. deildarliðinu
Crewe. Þeir heita James Robinson
og Matthew Platt og koma til móts
við lið ÍBV í æfingaferð þess í Portú-
gal í næstu viku. Báðir eru lausir
undan samningum sínum við Crewe.
Robinson er 22 ára miðju- eða
sóknarmaður og Platt er 21 árs
sóknarmaður. Báðir eru þeir uppald-
ir hjá Crewe og spila með varaliði fé-
lagsins, og Robinson á að baki 10
leiki með liðinu í 1. deild, engan þó á
þessu tímabili, og hefur skorað eitt
mark en Platt hefur leikið einn leik í
deildinni í vetur.
ÍBV hefur áður fengið þrjá leik-
menn frá Crewe. Ian Jeffs hefur
ílengst í Eyjum og spilar þar sitt
þriðja tímabil í ár. Tom Betts lék
sumarið 2003 og Matt Garner í fyrra.
Til stóð að Garner kæmi aftur í ár en
hann þarf að gangast undir aðgerð
vegna nárameiðsla og er því að öllum
líkindum úr leik. Hann hefur leikið
með enska 4. deildarliðinu North-
wich Victoria í vetur. Gísli Hjartar-
son hjá knattspyrnudeild ÍBV sagði
við Morgunblaðið að ekki væri loku
fyrir það skotið að einn eða tveir
leikmenn í viðbót kæmu frá Crewe
til Eyja áður en Íslandsmótið hefst.
ÍBV komið
með tvo
leikmenn
frá Crewe
Bjarni sagði við Morgunblaðið ígær að félagið hefði gert sér
óformlegt tilboð og ef allt gengi upp
myndi hann gera samning við liðið á
næstu vikum.
,,Mér leist mjög vel á félagið og
þjálfararnir voru ánægðir með mig
og sögðust vilja fá mig í liðið fyrir
næsta tímabil. Nú er næsta skrefið
að komast að einhverri niðurstöðu
með samning. Það er ekkert orðið
klárt ennþá en ég er nokkuð bjart-
sýnn á að við náum saman. Þetta er
gott lið sem verið hefur meðal þeirra
bestu í Frakklandi í mörg ár og hef-
ur mikla reynslu í Evrópukeppn-
inni,“ sagði Bjarni við Morgunblaðið
í gær.
Créteil er sem stendur í fjórða
sæti frönsku úrvalsdeildarinnar,
fjórum stigum á eftir toppliði Mont-
pellier. Liðið var með Íslandsmeist-
urum Hauka í riðlakeppni Meistara-
deildarinnar í vetur. Haukar töpuðu
fyrir Créteil í París, 34:31, en höfðu
betur á Ásvöllum, 37:30.
Bjarni vongóður um að
ná samningi við Créteil
Morgunblaðið/Golli
Bjarni Fritzson, fyrirliði ÍR.
BJARNI Fritzson landsliðsmaður
í handknattleik og fyrirliði bikar-
meistara ÍR kom til landsins í
gær eftir stutta heimsókn hjá
franska liðinu Créteil. Þangað
var honum boðið að koma til
skoðunar og mætti hann á þrjár
æfingar hjá liðinu á þeim tveimur
dögum sem hann dvaldi hjá því.
Reuters
Árni Gautur Arason og Hermann Hreiðarsson ná hér að stöðva Daniele De Rossi í vináttulands-
leiknum í Padova, þar sem Ítalía og Ísland gerðu jafntefli, 0:0. Sjá nánar um leikinn á C3.
SKAGAMENN mæta varaliði
spænska félagsins Espanyol frá
Barcelona í æfingaferð sinni til
Spánar í næstu viku. Ólafur Þórð-
arson, þjálfari ÍA, sagði við Morg-
unblaðið að líklega yrði spilað á að-
alleikvangi félagsins, en hann heitir
Montjuic og rúmar 56 þúsund
áhorfendur. Það væri þó ekki end-
anlega ljóst. Aðallið Espanyol er í 6.
sæti 1. deildar, tveimur stigum á
eftir Real Betis sem er í þriðja sæti,
og hefur komið nokkuð á óvart í
vetur. Varaliðið leikur í 3. deild og
er þar í 6. sæti í sínum riðli og á
möguleika á að komast upp í 2.
deild en á Spáni mega varaliðin
leika einni deild neðar en aðalliðin.
„Þetta ætti að geta orðið
skemmtilegt verkefni,“ sagði Ólaf-
ur en ÍA leikur einnig gegn sænska
3. deildarliðinu Ratslätts í ferðinni.
Skagamenn hafa komið sér upp
tengslum við enska 1. deildarliðið
Reading og vonast eftir því að fá
leikmenn þaðan fyrir sumarið. Ekk-
ert verður þó af því að þeir verði
með í Spánarferðinni. „Við vorum
að vonast eftir því að fá stráka frá
Reading þangað en nú er ljóst að
það skýrist ekki fyrr en í lok apríl
hvort og þá hvaða leikmenn við
fáum þaðan,“ sagði Ólafur Þórðar-
son og sagði jafnframt að enginn
erlendur leikmaður væri í sigtinu
hjá félaginu að svo stöddu.
ÍA mætir vara-
liði Espanyol