Morgunblaðið - 31.03.2005, Page 2
ÍÞRÓTTIR
2 C FIMMTUDAGUR 31. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
ARNAR Sigurðsson, landsliðs-
maður og margfaldur Íslands-
meistari í tennis, var í gær valinn
leikmaður vikunnar í fimmta
skipti eftir áramót í bandarísku
vesturdeildinni í háskólakeppn-
inni í tennis.
Nær ósigrandi í einliðaleik
Arnar hefur verið nær ósigr-
andi í einliðaleik í vetur og aðeins
beðið lægri hlut gegn leik-
mönnum úr hópi þeirra albestu
yfir öll Bandaríkin.
Arnar vann þrjár viðureignir í einliðaleik í síðustu
viku og hefur nú unnið tólf viðureignir og aðeins tapað
tveimur á leiktíðinni.
Í tvíliðaleik hafa Arnar og Vladimir Zdravkovic stað-
ið sig mög vel saman á keppnisvellinum – hafa fagnað
sigri í ellefu viðureignir og tapað aðeins þremur.
Arnar Sigurðsson
heldur sínu striki
Arnar
LENNART Johansson, forseti
knattspyrnusambands Evrópu,
UEFA, styður framboð Franz
Beckenbauer til embættis forseta
UEFA þegar Johansson hyggst
láta af embætti á næsta ári. Auk
Beckenbauers er ljóst að Michel
Platini sækist einnig eftir taka við
að Johansson.
Johansson segir að Beckenbau-
er hafi allt til að bera sem prýða
má góðan forseta eftir sigursælan
feril bæði sem leikmaður og þjálf-
ari. Þá hafi hann skilað margvíslegum störfum utan
knattspyrnuvallarins með miklum sóma, en hann er nú
formaður skipulagsnefndar heimsmeistaramótsins í
knattspyrnu sem fram fer í Þýskalandi sumarið 2006.
Sepp Blatter, forseti Alþjóða knattspyrnusambands-
ins, FIFA, hefur þegar lýst yfir stuðningi við Becken-
bauer.
Johansson styður
Beckenbauer
Beckenbauer
FLAUTAÐ verður til leiks í úrslitakeppni kvenna í handknattleik í
kvöld þegar Íslandsmeistarar ÍBV leika við Víking í Vestamanna-
eyjum og FH tekur á móti Val í Kaplakrika. Báðir leikirnir hefjast kl.
19.15. Á laugardag mætast síðan deildarmeistarar Hauka og Fram
annarsvegar og hins vegar bikarmeistarar Stjörnunnar og Grótta/KR
í fyrstu leikjum sínum af mögulega þremur viðureignum. Þá mætast
liðin sem leika fyrsta sinni í kvöld öðru sinni á laugardag. Allir leik-
irnir á laugardag hefjast kl. 16.15.
Áfram verður síðan haldið á mánudag. Komi til oddaleikja verða
þeir háðir miðvikudaginn 6. apríl. Síðan er ráðgert að undanúrslit í
kvennaflokki hefjist þriðjudaginn 12. apríl.
Haukar urðu á dögunum deildarmeistarar nokkuð örugglega. Ís-
landsmeistarar síðustu tveggja ára ÍBV höfnuðu í öðru sæti en liðið
hefur tekið verulegum stakkaskiptum frá síðasta ári.
Flautað til leiks í
Eyjum og Kaplakrika
Með tveimur þriggja stiga körf-um náði Birna Valgarðsdóttir
að koma Keflavík í naumt forskot,
sem dugði ásamt
góðri vörn til að
koma liðinu í ágætt
forskot því Grindvík-
ingar treystu meira
á að Rita Williams myndi sjá um
þeirra mál. Keflvíkingurinn Alex-
andria Stewart og Rita sáu um að
vakta hvor aðra og í öðrum leikhluta
fékk Rita sína þriðju villu þegar 6
mínútur voru eftir og 6 stiga munur.
Hún kom fljótlega inn á aftur en þá
munaði 16 stigum. Grindvíkingar
réttu kúrsinn og mættu mun grimm-
ari til síðari hálfleiks. Það dugði til
að saxa á forskotið en ekki ná yf-
irhöndinni því hittnin sveik auk þess
að Keflvíkingar voru duglegri við
fráköstin. Með miklu átaki í byrjun
þriðja leikhluta náðu Grindvíkingar
forskotinu niður í 7 stig en sem fyrr
tókst þeim ekki vel upp með skotin
og Keflvíkingar tóku völdin aftur í
sínar hendur.
„Við áttum von á hörkuleik og
mættum því vel stemmdar,“ sagði
Bryndís, sem fór á kostum, var
stigahæst, tók 10 fráköst og varði 3
skot. Hún er 16 ára og að spila sitt
annað ár með meistaraflokki. „Ég
veit ekki hvað hægt er að segja um
reynsluna, ég hef enga. Það munar
meiru að við erum með breiðari hóp
og góða leikmenn á bekknum til að
aðrir fái hvíld. Næsti leikur verður
ekki auðveldur og Grindvíkingar
eiga alveg möguleika en við ætlum
að taka titilinn. Ef við komum með
sömu einbeitingu held ég að við eig-
um að geta það.“ Birna tók 10 frá-
köst og Alexandria 11 en gaf auk
þess 7 stoðsendingar. Liðið spilaði
vel í heild svo að leikreyndir leik-
menn eins og Birna og Anna María
Sveinsdóttir þurftu ekki að bera
uppi leik liðsins. Einbeitingin var í
lagi og sem dæmi skoruðu leikmenn
úr 22 af 28 vítum.
Grindvíkingar voru ekki á tánum í
byrjun og tókst aldrei að ná góðum
takti þó stundum kæmu góðir kaflar.
Einbeiting var ekki alltaf á leiknum
og sem dæmi hitti liðið úr 11 af 21
vítaskoti. Rita skoraði 18 af 33 stig-
um liðsins fyrir hlé og tók 10 fráköst
en Svandís Sigurðardóttir tók 8.
Erla Þorsteinsdóttir hirti 7 og varði
3 skot. „Það skipti mestu að við
fundum ekki flæði í sóknarleiknum
því vörnin var á löngum tímum ágæt
þó við værum ekki nógu ákveðnar
inni í teignum,“ sagði Henning
Henningsson, þjálfari Grindavíkur,
eftir leikinn og hyggst gera betur.
„Sigur veltur líka mikið á hugarfari
og Keflvíkingar voru frekar á tánum
í dag, spiluðu mjög vel en við áttum í
vandræðum með að stilla upp í sókn.
Það þarf ekki að laga neitt sérstak-
lega fyrir næsta leik nema hugarfar-
ið, þetta eru álíka góð lið og það sem
er með rétt hugarfar vinnur þessa
keppni.“
Keflavík tók
strax völdin
og hélt þeim
BARÁTTAN um Íslandsmeistaratitil kvenna í körfuknattleik hófst í
Keflavík í gærkvöldi þegar Grindavík kom í heimsókn. Mesti munur
á liðunum lá í að Keflvíkingar mættu einbeittari til leiks, náðu undir-
tökunum og slepptu þeim ekki, sem dugði til 88:71 sigurs. Næsti
leikur verður í Grindavík á laugardaginn og ef stúlkurnar þar á bæ
ná að einbeita sér strax á fyrstu mínútu getur allt gerst.
Stefán
Stefánsson
skrifar
VAR
sem
jafna
útu l
irna
pest
var í
anke
riðli
í. Eft
hálfl
Petr
á 52
hann
glæs
eftir
Mart
héld
sækj
skor
Loth
land
verja
loka
þega
herj
Rajc
sem
er ge
inni.
„É
með
sagð
Kr
riðil
heim
áhor
mör
inns
ÞÓRÐUR Guðjónsson lék með
varaliði Stoke sem sigraði Hartle-
pool, 2:1, á Britannia-leikvanginum
í Stoke í gær. Þórður lagði upp
fyrra mark Stoke í leiknum en
Jarmaine Palmer, sem lék með
Víkingum í úrvalsdeildinni í fyrra,
skoraði bæði mörkin.
ÞÝSKI landsliðsmaðurinn í
knattspyrnu Thomas Hitzlsperger,
sem leikur á miðjunni hjá Aston
Villa, er á leiðinni heim og sagði
þessi 22 ára leikmaður við Stutt-
garter Zeitung að mörg lið hefðu
haft samband við sig og eitt þeirra
væri Stuttgart. Samningur Hitzl-
sperger við Aston Villa rennur út í
sumar.
BRASILÍSKI knattspyrnumaður-
inn Juninho yfirgefur Celtic í Skot-
landi á næstu dögum og gengur á
ný til liðs við sitt gamla félag Palm-
eiras í heimalandinu. Juninho segir
sér ekki líka skosk knattspyrna og
því hafi hann ákveðið að fara. „Ég
hélt að skosk knattspyrna væri lík-
ari þeirri ensku en raun ber vitni
þegar ég gekk til liðs við Celtic, en
ég hef komist að öðru,“ segir Jun-
inho sem er 32 ára.
KRISTJÁN Andrésson skoraði
eitt mark fyrir GUIF sem tapaði
fyrir Hammarby, 37:35, í fram-
lengdum leik í úrslitakeppninni í
sænsku úrvalsdeildinni í hand-
knattleik í fyrrakvöld. Hammarby
er 2:0 yfir í rimmunni en þrjá sigra
þarf til að komast í undanúrslitin.
Staffan ,,Faxi“ Olsson var drjúgur
fyrir Hammarby á lokakafla leiks-
ins en Olsson, sem verður 40 ára á
árinu, skoraði 5 mörk.
KJARTAN Steinbach verður eft-
irlitsmaður á fyrri leik norsku
kvennaliðanna Tertnes og Larvik í
undanúrslitum Evrópukeppni bik-
arhafa í handknattleik sem fram fer
á heimavelli Tertnes um aðra helgi.
ÞORRI Jensson komst ekki
áfram úr riðlakeppni Evrópumeist-
aramóts unglinga í snóker sem nú
stendur yfir í Ekaterinburg í Rúss-
landi. Þorri tapaði tveimur síðari
leikjum sínum, 0:3, gegn Ross Vall-
ance frá Skotlandi og 1:3 fyrir
Jordan Brown frá Norður-Írlandi
og varð í fjórða sæti af fimm kepp-
endum í sínum riðli með einn sigur í
fjórum leikjum.
MILAN Baros, tékkneski sóknar-
maðurinn í liði Liverpool, er efstur
á óskalista spænsku meistaranna í
Valencia. Forráðamenn liðsins
reyndu að kaupa Baros í fyrra en
án árangurs en nú ætla þeir að gera
aðra tilraun að sögn spænskra fjöl-
miðla. Baros hefur ekki gengið sem
skyldi í herbúðum Liverpool og
komi gott tilboð er allt eins víst að
Rafael Benitez, knattspyrnustjóri
Liverpool og fyrrum stjóri Val-
encia, láti Tékkann fara.
FÓLK
SKÍÐI
Alþjóðlegt mót
Icelandair Cup, í svigi karla og kvenna, fer
fram á Sauðárkróki. Fyrri umferð verður
kl. 10, seinni umferð kl. 12.30.
Skíðamót Íslands
Keppni hefst í göngu á Sauðárkróki kl. 14.
Keppt er í 15 km göngu karla, 10 km göngu
karla 17–19 ára og 5 km göngu kvenna 17
ára og eldri, hefðbundin aðferð.
HANDKNATTLEIKUR
Úrslitakeppni kvenna, 8-liða úrslit, fyrstu
leikir:
Vestmannaeyjar: ÍBV – Víkingur........19.15
Kaplakriki: FH – Valur.........................19.15
KNATTSPYRNA
Deildabikar karla, A-deild:
Egilshöll: Valur – ÍA ..................................19
Í DAG
KNATTSPYRNA
Ítalía – Ísland 0:0
Padova, Ítalíu, vináttuleikur A-landsliða
karla, miðvikudaginn 30. mars 2005.
Markskot: Ítalía 14 (6), Ísland 4 (2).
Horn: Ítalía 10, Ísland 1.
Lið Ítalíu: Flavio Roma (Morgan De Sanct-
is 46.) – Cristian Zaccardo, Andrea Bar-
zagli, Marco Materazzi (Marco Cassetti
46.), Fabio Groso – Simone Barone (Gian-
piero Pinzi 75.), Manuele Blasi (Aimo Diana
61.), Daniele De Rossi, Mauro Esposito,
Luca Toni (David Di Michele 46.), Antonio
Langella (Vincenzo Iaquinta 46.).
Lið Íslands: Árni Gautur Arason – Kristján
Örn Sigurðsson, Ólafur Örn Bjarnason,
Hermann Hreiðarsson, Indriði Sigurðsson
– Bjarni Guðjónsson (Kári Árnason 77).,
Pétur Marteinsson (Stefán Gíslason 71.),
Brynjar Björn Gunnarsson, Gylfi Einars-
son (Gunnar Heiðar Þorvaldsson 87.), Grét-
ar Rafn Steinsson (Emil Hallfreðsson 85.) –
Hannes Þ. Sigurðsson (Ólafur Ingi Skúla-
son 82).
Gul spjöld: Manuele Blasi, Bjarni Guðjóns-
son 24.
Rautt spjald: Kári Árnason 80.
Dómari: Alain Hammer (Lúxemborg)
Áhorfendur: 16.800.
Undankeppni HM 2006
1. RIÐILL:
Andorra – Tékkland ............................... 0:4
Marek Jankulivski 30. vítasp., Milan Baros
39., Vratislav Lokvenc 52., Tomas Rosicky
90. vítasp. – 500.
Makedónía – Rúmenía ............................1:2
Goran Maznov 31. - Nicolae Mitea 18. 58. -
12.000.
Holland – Armenía .................................. 2:0
Romeo Castelen 3., Ruud van Nistelrooy
34. – 33.000.
Staðan:
Holland 6 5 1 0 14:3 16
Tékkland 6 5 0 1 14:5 15
Rúmenía 7 4 1 2 12:8 13
Finnland 6 3 0 3 13:10 9
Makedónía 7 1 2 4 7:9 5
Armenía 7 1 1 5 4:15 4
Andorra 7 1 1 5 3:17 4
2. RIÐILL:
Úkraína – Danmörk ................................ 1:0
Andrej Voronin 67. – 55.000.
Georgía – Tyrkland................................. 2:5
Alexander Amisulashvili 13., Alexander
Iashvili 41. – Tolga Seyhan 12.,Fatih Tekke
19., Fatih Tekke 35., Mustafa Koray Avci
74., Tuncay Sanli 89. – 28.,000.
Grikkland – Albanía.................................2:0
Angelos Charisteas 35., Giorgos Karagoun-
is 85. – 33.000.
Staðan:
Úkraína 7 5 2 0 12:3 17
Grikkland 7 4 2 1 12:6 14
Tyrkland 7 3 3 1 13:7 12
Danmörk 7 2 3 2 10:7 9
Albanía 7 2 0 5 3:11 6
Georgía 6 1 2 3 8:13 5
Kasakstan 5 0 0 5 2:13 0
3. RIÐILL:
Eistland – Rússland................................. 1:1
Sergei Terehhov 62. – Andrei Arshavin 17.
– 9.300.
Lettland – Lúxemborg............................ 4:0
Imants Bleidelis 33., Juris Laizans 38.
vítasp.,Maris Verpakovskis 73.,90. – 8.400.
Slóvakía – Portúgal................................. 1:1
Miroslav Karhan, víti, 8. – Helder Postiga
62. – 28.000.
Staðan:
Portúgal 6 4 2 0 21:4 14
Slóvakía 6 4 2 0 18:5 14
Rússland 6 3 2 1 13:10 11
Lettland 6 3 1 2 14:12 10
Eistland 6 2 2 2 9:12 8
Liechtenstein 6 1 1 4 9:16 4
Lúxemborg 7 0 0 7 4:28 0
4. RIÐILL:
Sviss – Kýpur ............................................1:0
Alexander Frei 88. - 16.066.
Ísrael – Frakkland....................................1:1
Walid Badir 83. – David Trezeguet 50. –
44.000.
Staðan:
Frakkland 6 2 4 0 5:1 10
Ísrael 6 2 4 0 8:6 10
Sviss 5 2 3 0 10:3 9
Írland 5 2 3 0 7:2 9
Kýpur 6 0 1 5 4:12 1
Færeyjar 4 0 1 3 3:12 1
5. RIÐILL:
Moldavía – Noregur .................................0:0
6.000.
Slóvenía – Hvíta-Rússland ......................1:1
Aleksandar Rodic 44. – Alexander Kulchy
49. – 7.000.
Staðan:
Ítalía 5 4 0 1 9:5 12
Noregur 5 2 2 1 6:3 8
Slóvenía 5 2 2 1 5:4 8
Hvíta-Rússland 4 1 2 1 9:6 5
Skotland 4 0 2 2 1:4 2
Moldavía 5 0 2 3 1:9 2
6. RIÐILL:
Pólland – Norður-Írland .........................1:0
Maciej Zurawski 86. – 13.500.
Austurríki – Wales ...................................1:0
Rene Aufhauser 87. – 29.500.
England – Aserbaídsjan ..........................2:0
Steven Gerrard 51., David Beckham 62. –
49.046.
Staðan:
England 6 5 1 0 13:3 16
Pólland 6 5 0 1 19:5 15
Austurríki 6 3 2 1 11:8 11
N-Írland 6 0 3 3 5:13 3
Wales 6 0 2 4 5:11 2
Aserbaídsjan 6 0 2 4 1:14 2
7. RIÐILL:
Bosnía – Litháen.......................................1:1
Elvir Bolic 21. - Marius Stankevicius 61. –
6.000.
San Marino – Belgía .................................1:2
Andy Selva 40. – Timmy Simons, víti, 17.,
Daniel Van Buyten 65. – 861.
Serbía-Svartfjallaland – Spánn ..............0:0
51.000.
Staðan:
Serbía-Svartfj. 5 3 2 0 10:0 11
Spánn 5 2 3 0 8:1 9
Litháen 5 2 3 0 7:2 9
Belgía 5 2 1 2 7:7 7
Bosnía 4 0 3 1 3:6 3
San Marino 6 0 0 6 1:20 0
8. RIÐILL:
Króatía – Malta ........................................ 3:0
Dado Prso 24.,35., Igor Tudor 80. – 0.000.
Ungverjaland – Búlgaría.........................1:1
Peter Rajczi 90. – Stilian Petrov 52. –
14.000.
Staðan:
Króatía 5 4 1 0 13:2 13
Svíþjóð 5 4 0 1 17:2 12
Búlgaría 5 2 2 1 10:8 8
Ungverjaland 5 2 1 2 6:9 7
Ísland 5 0 1 4 4:14 1
Malta 5 0 1 4 1:16 1
Suður-Ameríka
Bólivía – Venesúela ................................. 3:1
Alejandro Cichero 1. (sjálfsm.), José Al-
fredo Castillo 25., Geutilio Vaca Diez 83. –
Giancarlo Maldonado 71. – 10.000.
Staðan:
Argentína 12 7 4 1 23:12 25
Brasilía 12 6 5 1 20:11 23
Ekvador 12 6 1 5 17:13 19
Paragvæ 12 4 4 4 14:16 16
Úrúgvæ 12 4 3 5 17:24 15
Kólumbía 12 3 5 4 12:11 14
Chile 12 3 5 4 11:12 14
Venesúela 13 4 2 7 14:20 14
Perú 12 3 4 5 13:14 13
Bólivía 13 4 1 8 15:23 13
HANDKNATTLEIKUR
FH – Víkingur 29:25
Kaplakriki, Hafnarfirði, fyrri leikur um
sæti í 8-liða úrslitum Íslandsmóts karla,
miðvikudaginn 30. mars 2005.
Mörk FH: Arnar Pétursson 6, Hjörleikfur
Þórðarson 6, Hjörtur Hinriksson 5, Jón
Helgi Jónsson 3, Valur Arnarson 3, Heiðar
Arnarson 3, Guðmundur Petersen 3.
Mörk Víkings: Andri Berg Haraldsson 7,
Þröstur Helgason 6, Ragnar Hjaltested 5,
Ásbjörn Þórarinsson 3, Benedikt Jónsson
2, Þórir Júlíusson 2
KÖRFUKNATTLEIKUR
Keflavík – Grindavík 88:71
Íþróttahúsið í Keflavík, fyrsti úrslitaleikur
Íslandsmóts kvenna, miðvikudaginn 30.
mars 2005.
Gangur leiksins: 0:2, 5:2, 14:8, 23.15, 30:21,
37:26, 45:29, 47:33, 53:35, 53:43, 60:48,
65:58, 72:60, 76:76, 78:69, 88:69, 88:71.
Stig Keflavíkur: Bryndís Guðmundsdóttir
22, Birna Valgarðsdóttir 20, Alexandria
Stewart 15, Anna María Sveinsdóttir 13,
Svava Ó. Stefánsdóttir 8, Rannveig Rand-
versdóttir 6, María Ben Erlingsdóttir 4.
Fráköst: 27 í vörn – 21 í sókn.
Stig Grindavíkur: Rita Williams 27, Erla
Reynisdóttir 15, Erla Þorsteinsdóttir 9,
Svandís Sigurðardóttir 7, Ólöf H. Pálsdótt-
ir 7, Sólveig Gunnlaugsdóttir 2, Jóhanna
Stefánsdóttir 2, Guðrún Ó. Guðmundsdótt-
ir 2.
Fráköst: 21 í vörn – 20 í sókn.
Villur: Keflavík 21 – Grindavík 25.
Dómarar: Eggert Aðalsteinsson og Rögn-
valdur Hreiðarsson.
Áhorfendur: Tæplega 300.
NBA-deildin
Úrslit í fyrrinótt:
Cleveland – LA Clippers ..................... 94:84
Miami – Toronto ................................. 103:91
Memphis – Seattle.............................. 99:102
LA Lakers – New York ................... 117:107
h