Morgunblaðið - 06.04.2005, Blaðsíða 1
2005 MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL BLAÐ C
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
HAUKAR, ÍR OG VALUR UNNU HEIMALEIKI SÍNA / C2, C3, C4
JOSÉ Mourinho knatt-
spyrnustjóri Chelsea verður
ekki á Stamford Bridge í
kvöld þegar hans menn
mæta Bayern München í
Meistaradeild Evrópu. Mour-
inho, sem er í tveggja leikja
banni í Evrópukeppninni,
ætlar ekki að fylgjast með
leiknum úr áhorfendastúk-
unni heldur ætlar hann að
horfa á leikinn í sjónvarpi á
rólegum stað að sögn aðstoð-
armanna Portúgalans. Steve
Clarke aðstoðarmaður hans
stjórnar liðinu í leiknum.
Talsmaður Knattspyrnu-
sambands Evrópu sagði í
gær að Mourinho kæmist
ekki hjá því að ræða við fjöl-
miðla fyrir og eftir leik. Það
sé einfaldlega í reglum
keppninnar og við það verði
þjálfarar og knattspyrnu-
stjórar að sætta sig. Mour-
inho hefur ekki ekki rætt við
fjölmiðla frá því í síðustu
viku að Knattspyrnu-
samband Evrópu, UEFA,
dæmdi hann til greiðslu
sektar og í tveggja leikja
keppnisbann í meistaradeild-
inni vegna ummæla sem
hann lét falla um Anders
Frisk dómara og Frank
Rijkaard, eftir fyrri leik
Chelsea og Barcelona í 16
liða úrslitum keppninnar.
Þar sem Portúgalinn ætlar
ekki að vera á Stamford
Bridge er ljóst að hann verð-
ur ekki til viðtals, hvorki
fyrir eða eftir leikinn.
Finnski framherjinn Mikael Forssell verður á varamanna-
bekknum hjá Chelsea en Jose Mour-
inho, knattspyrnustjóri Chelsea,
ákvað að kalla Forssell inn í hópinn
þar sem Mateja Kezman er í leik-
banni og Arjen Robben er meiddur.
Forssell, sem var í láni hjá Birming-
ham á síðustu leiktíð, er nýstiginn
upp meiðslum - hefur verið frá í sjö
mánuði.
Chelsea og Bayern München hafa
aldrei áður mæst í Evrópuleik.
Chelsea hefur sjö sinnum leikið gegn
þýskum liðum í Evrópukeppni, unnið
fjóra, gert tvö jafntefli og tapað ein-
um, gegn Herthu Berlin, 2:1. Í þrem-
ur heimaleikjum gegn þýskum liðum
í Evrópukeppni hefur Chelsea haldið
hreinu.
Bayern München hefur leikið fjór-
tán sinnum á Englandi í Evrópu-
keppni. Liðið hefur unnið tvo leiki,
gert sjö jafntefli og tapað fimm sinn-
um. Bayern hefur spilað samtals 31
leik gegn ensku liði í Evrópukeppni.
Liðið hefur unnið 11 þeirra, gert 12
jafntefli og tapað 8.
Chelsea er ósigrað í níu leikjum í
röð á heimavelli í Meistaradeildinni.
Síðast tapaði það á Stamford Bridge
fyrir tyrkneska liðinu Besiktas, 2:0, í
október 2003.
Mateja Kezman, Chelsea, og
Martin Demichelis, Bayern, eru í
banni. Glen Johnson og Alexei
Smertin, Chelsea, og Michael Ball-
ack, Robert Kovac og Hasan Sal-
ihamidzic, Bayern, verða í banni í
seinni leiknum fái þeir gult spjald í
leiknum í kvöld.
Chelsea hefur tapað tveimur leikj-
um af 50 á heimavelli í Evrópu-
keppni.
Bayern hefur aðeins unnið einn af
síðustu 14 útileikjum sínum í Meist-
aradeildinni – gegn Maccabi Tel Aviv
á þessari leiktíð.
Líkleg byrjunarlið:
Chelsea: Peter Cech - Glen John-
son, Ricardo Carvalho, John Terry,
William Gallas - Tiago, Claude Make-
lele, Frank Lampard - Damien Duff,
Eiður Smári Guðjohnsen, Joe Cole.
Bayern München: Oliver Kahn -
Willy Sagnol, Lucio, Robert Kovac,
Bixente Lizarazu - Sebastian Deisler,
Torsten Frings, Michael Ballack,
Bastian Schweinsteiger - Roy Mak-
aay, Paolo Guerro.
Dómari: Rene Temming, Hollandi.
Reuters
Eiður Smári Guðjohnsen fagnar marki gegn Southampton. Antti Niemi mark-
vörður mátti hirða knöttinn tvisvar úr netinu hjá sér eftir skot Eiðs.
Skorar Eiður Smári hjá Kahn?
EIÐUR Smári Guðjohnsen verður nær örugglega í byrjunarliði
Chelsea gegn Bayern München í Meistaradeildinni í knattspyrnu í
kvöld. Eiður var á skotskónum gegn Southampton um síðustu helgi.
Hann skoraði tvö mörk framhjá Finnanum Antti Niemi en í kvöld fær
hann það erfiða verkefni að koma knettinum framhjá markverð-
inum snjalla Oliver Kahn, sem er oftast bestur þegar mest á reynir.
Mourinho
verður ekki
á Stamford
Bridge
EYJAMENN halda áfram að horfa til Bretlandseyja
varðandi styrkingu á liði sínu fyrir komandi átök í
sumar. Í síðustu viku var frá því gengið að Matthew
Platt og James Robinson, leikmenn frá Crewe, vina-
félagi ÍBV, kæmu til móts við liðið í æfingaferð þess til
Portúgals og þriðji Bretinn, Lawrence Briggs, mun
verða til skoðunar hjá ÍBV í Portúgal. Hann hefur í
vetur leikið með enska 4. deildarliðinu Nortwich Vikt-
oria, sama liði og Matt Garner hefur leikið með en
Garner lék með ÍBV á síðustu leiktíð en getur ekki spil-
að með Eyjamönnum í sumar vegna meiðsla.
ÍBV hélt til Portúgals í gær ásamt Grindavík, Val og
FH. Ásamt því að æfa munu liðin taka þar þátt í minn-
ingarmóti um Þóri Jónsson. Á morgun mætast FH og
Grindavík og ÍBV leikur gegn Val. Sigurliðin leika síð-
an til úrslita en tapliðin spila um þriðja sætið.
Eyjamenn skoða
Briggs í Portúgal
EINAR Örn Jónsson, hand-
knattleiksmaður hjá Wallau
Massenheim, mun vera á
óskalista hjá forráðamönnum
þýska 1. deildarliðsins TuS
N-Lübbecke eftir því sem
fram kemur í Mindener
Tageblatt í gær. „Ég veit af
þessum áhuga og umboðs-
maður minn fékk í hendur til-
boð frá Lübbecke fyrir
skömmu en það var svo lágt
að því var vísað á bug, síðan
hef ég ekkert heyrt frá félag-
inu. Það má vel vera að það
hafi ennþá áhuga,“ sagði Ein-
ar Örn í samtali við Morgun-
blaðið í gær. Einari stendur
til boða nýr samningur við Wallau og segir hann við-
ræður standa yfir þessa daga. Vonir standi til að komin
verði niðurstaða í þær um eða eftir næstu helgi. Wallau
hefur ekki greitt leikmönnum sínum og þjálfara laun
allt þetta ár vegna fjárhagsþrenginga og var félagið
nærri gjaldþrota fyrir skömmu. Þá tókst nokkrum
gömlum félögum að blása lífi í glæðurnar safna pen-
ingum til að bjarga málum á þessari leiktíð. Einar segir
þá peninga vera í innheimtu og vonast hann til að laun
verði greidd út á næstu dögum ásamt öðrum skuldum
sem félagið hefur ekki greitt af.
Eins og greint var frá í Morgunblaðinu á mánudag-
inn hefur Þórir Ólafsson, hornamaður úr Haukum, orð-
ið var við áhuga forráðamanna TuS N-Lübbecke á sér
en hann leikur sömu stöðu og Einar Örn og tók við
hlutverki hans hjá Haukum fyrir þremur árum þegar
Einar flutti til Þýskalands.
Einar undir smásjá
TuS N-Lübbecke
Einar Örn
KEFLVÍKINGAR ákváðu í gærkvöldi að draga kæru
þá sem þeir sendu til Körfuknattleikssambandsins í
gær til baka. Það er því ljóst að úrslit úr leik þeirra og
Snæfells í fyrrakvöld standa óhögguð og staðan 1:1 í
einvígi félaganna um Íslandsmeistaratitilinn í körfu-
knattleik karla.
Keflvíkingar töldu að löglega skoruð karfa þeirra á
lokakaflanum í þriðja leikhluta hafi ekki verið færð á
leikskýrslu og því hefði staðan í raun átt að vera jöfn
þegar hálf mínúta var eftir og þeir með boltann, í stað
þess að Snæfell væri með tveggja stiga forystu.
Keflvíkingar draga
kæruna til baka