Morgunblaðið - 13.04.2005, Síða 2

Morgunblaðið - 13.04.2005, Síða 2
ÍÞRÓTTIR 2 C MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ ÚRSLIT HANDKNATTLEIKUR Haukar – Valur 33:19 Ásvellir, Hafnarfirði, undanúrslit 1. deildar kvenna, DHL-deildar, fyrri leikur, þriðju- daginn 12. apríl 2005. Gangur leiksins: 2:0, 6:2, 8:4, 13:4, 15:6, 16:9, 18:12, 20:14, 27:14, 29:15, 29:19, 33:19. Mörk Hauka: Hanna G. Stefánsdóttir 11/1, Ramune Pekarskyte 7, Inga Fríða Tryggvadóttir 4, Harpa Melsteð 4, Erna Þráinsdóttir 2, Ragnhildur Guðmundsdótt- ir 2/1, Anna Halldórsdóttir 1, Áslaug Þor- geirsdóttir 1, Martha Helgadóttir 1. Varin skot: Helga Torfadóttir 12/1 (þar af fóru 5 aftur til mótherja), Kristina Matu- zeviciute 2. Utan vallar: 4 mínútur. Mörk Vals: Ágústa Edda Björnsdóttir 7/5, Arna Grímsdóttir 3, Katrín Andrésdóttir 3, Lilja Valdimarsdóttir 2, Hafrún Kristjáns- dóttir 2, Díana Guðjónsdóttir 1, Soffía Rut Gísladóttir 1. Varin skot: Berglind Hansdóttir 15/1 (þar af fóru 7/1 aftur til mótherja). Utan vallar: 14 mínútur. Dómarar: Ingvar Guðjónsson og Jónas Elí- asson. Áhorfendur: Um 220.  Staðan er 1:0 fyrir Hauka. ÍBV – Stjarnan 20:19 Vestmannaeyjar: Gangur leiksins: 0:1, 3:2, 5:4, 8:7, 9:10, 12:11, 12:12, 13:13, 16:15, 18:16, 18:19, 20:19. Mörk ÍBV: Alla Gorkorian 6/3, Eva Hlöð- versdóttir 5/4, Guðbjörg Guðmannsdóttir 4, Tatjana Zukovska 2, Darinka Stefanovic 2, Anastasia Patsiou 1. Varin skot: Florentina Grecu 20/1 þar af 5 aftur til mótherja. Utan vallar: 8 mínútur, Alla Gorkorian rautt spjald vegna þriggja brottvísana. Mörk Stjörnunnar: Anna Blöndal 5, Hekla Daðadóttir 4/4, Ásdís Sigurðardóttir 3, Kristín Guðmundsdóttir 3, Hind Hannes- dóttir 2, Elíasabeta Kovac 1, Elísabet Gunnarsdóttir 1. Varin skot: Jelena Javonovic 19, þar af 2 aftur til mótherja. Helga V. Jónsdóttir 2/2. Utan vallar: 10 mínútur. Dómarar: Helgi Rafn Hallsson og Hilmar Guðlaugsson. Áhorfendur: 350.  Staðan er 1:0 fyrir ÍBV. Þýskaland Flensburg – Magdeburg.......................35:29  Sigfús Sigurðsson var ekki á markalist- anum hjá Magdeburg. Staðan: Flensburg 27 22 2 3 835:692 46 Kiel 26 22 2 2 824:698 46 Magdeburg 26 19 0 7 855:764 38 Nordhorn 27 17 2 8 809:751 36 Lemgo 26 17 0 9 795:699 34 Essen 25 15 3 7 708:659 33 Hamburg 26 15 2 9 729:694 32 Gummersb. 26 14 2 10 748:693 30 Wallau 26 13 3 10 760:759 29 Göppingen 27 13 2 12 760:750 28 Wilhelmshav. 27 11 1 15 726:789 23 Lübbecke 26 9 2 15 770:801 20 Wetzlar 26 9 1 16 721:784 19 Großwallst. 27 8 1 18 700:761 17 Düsseldorf 27 6 2 19 698:783 14 Minden 26 4 4 18 697:790 12 Pfullingen 27 5 1 21 692:803 11 Schwerin 26 3 0 23 665:822 6 KNATTSPYRNA Meistaradeild Evrópu 8 liða úrslit, síðari leikir: Bayern München – Chelsea.....................3:2 Claudio Pizarro 65., Paolo Guerrero 90., Mehmet Scholl 90. – Frank Lampard 30., Didier Drogba 81. –  Chelsea áfram, 6:5 samanlagt, og mætir Liverpool eða Juventus í undanúrslitum. Inter Mílanó – AC Milan ..........................0:1 Andrei Shevchenko 30. –  AC Milan áfram 3:0 samanlagt og mætir PSV Eindhoven eða Lyon. England 1. deild: Nottingham Forest – Sheffield Utd ........1:1 2. deild: Brentford – Tranmere..............................1:0 Stockport – Blackpool...............................0:1 Skotland Inverness – Motherwell............................1:0 Rangers – Dundee United........................0:1 Svíþjóð Assyriska – Hammarby............................1:2 KÖRFUKNATTLEIKUR NBA-deildin Úrslit í fyrrinótt: Orlando – Cleveland......................... 106:114 Washington – Milwaukee ................ 119:112 Toronto – Indiana................................. 90:94 Atlanta – Charlotte .......................... 105:110  Eftir framlengingu. Chicago – Detroit ................................. 84:85  Eftir framlengingu. Dallas – Memphis ............................... 110:89 Denver – Golden State..................... 122:106  Denver tryggði sér sæti í úrslitakeppn- inni. Seattle – Houston ................................. 78:90 LA Lakers – Phoenix ......................... 97:108 frá sér og Eyjakonur fögnuðu naum- um sigri. Alla Gorkorian og Eva Hlöð- versdóttir báru uppi sóknarleik ÍBV- liðsins en Florentina var sein í gang í markinu en varði mikilvæg skot á lokamínútunum. Jelena var öflug í markinu hjá Stjörnunni og þá sér- staklega í fyrri hálfleik. Anna Blöndal átti góðan leik en einnig Ásdís Sigurð- ardóttir, bæði í vörn og sókn. Hrikalegt að tapa þessu í lokin Erlendur Ísfeld, þjálfari Stjörn- unnar, var fámáll í leikslok. „Þetta var bara svona leikur. Við klikkum á víti í lokin en þetta er bara svona. Þetta var svolítið klaufalegt sóknarlega hjá báðum en það var hrikalegt að tapa þessu hérna í lokin. Það er bara hver leikur úrslitaleikur og nú koma þær í heimsókn heim á fimmtudaginn og þá verður bara fjör.“ Sýndum hvað í okkur býr „Þetta var hörkuleikur eins og við var að búast en við sýndum hvað í okkur býr með því að ljúka við verk- efnið, sérstaklega eftir að við misstum Öllu út af en hún er gríðarlega mik- ilvægur hlekkur í þessu liði. Þegar við erum komnar svona langt, þá þurfum við að berjast fyrir öllu og það gerð- um við í kvöld. “ sagði Guðbjörg Guð- mannsdóttir úr liði ÍBV. Stjarnan skoraði fyrstu tvö mörkinog náði forystunni en ÍBV svar- aði jafnharðan. Þær náðu síðan undir- tökunum um miðbik hálfleiksins og í fyrsta skipti munaði tveimur mörkum á liðunum, 17:15. Stjarnan skoraði næsta mark. Eyjakonur sóttu en misstu boltann og Alla Gorkorian braut illa á leikmanni Stjörnunnar og fékk sína þriðju brottvísun og þar með útilokun frá frekari þátttöku. Þetta var mikil blóðtaka fyrir ÍBV enda hafði hún verið þeirra besti mað- ur. Enn voru tíu mínútur eftir af leiknum. Eyjakonur náðu aftur tveggja marka forystu en síðan leið langur tími í næsta mark liðsins og á meðan skoraði Stjarnan þrívegis og komst yfir, 18:19, þegar þrjár mínút- ur voru eftir. Eyjakonur sóttu og fór Guðbjörg Guðmannsdóttir inn úr horninu og jafnaði metin. Í næstu sókn fékk Stjarnan víti og mínúta eft- ir af leiknum. Florentina Grecu varði vítakast Heklu Daðadóttur og ÍBV fékk tækifæri til að ná forystunni. Þær fengu einnig vítakast og nú að- eins tuttugu sekúndur eftir. Eva Hlöðversdóttir skoraði úr vítakastinu og Stjarnan tók leikhlé. Þær skiptu markverði sínum út af og settu auka- mann í sóknina en þær misstu boltann H þann sókn þá a skila ar fóru arar heim í álin ir a móti ekki leikm unni Hau tóks mörk leik mörk úrsli „V móts smey lang stres Ing þe E ÞRJ liðin leik leik atla fá tæ end hörk Eftir ste@m EFTIR langdregna deildakeppni er úrslitakeppnin í handknattleik komin nokkuð á veg. Átta liða úr- slitum karla og kvenna er lokið og í gærkvöld hófust undanúrslit kvenna. Undanúrslit karla hefjast hins vegar ekki fyrr en næsta þriðjudag, þremur dögum eftir að undanúrslitum kvenna lýkur, komi til oddaleikja í viðureignum Hauka og Vals annars vegar og ÍBV og Stjörnunnar hinsvegar. Þegar flautað verður til leiks í undan- úrslitum karla á þriðjudaginn verða liðnir tólf dagar frá því að Haukar og ÍR tryggðu sér sæti í undanúrslitum, tíu dagar síðan Val- ur náði þeim áfanga og níu dagar liðnir frá því að ÍBV tókst að hrista Fram- ara af sér að loknum mögnuðum þremur leikjum. Sagt er að hinn langi tími sem líður frá lok- um 8 liða úrslita karla og þar til undanúrslit hefjast gefi mönnum tíma til að búa sig bet- ur undir leikina. Það eru haldlítil rök þar sem félögin fjögur sem leika í undanúrslitum karla hófu undirbún- ing á síðasta sumri. Menn hafa fyrir löngu fengið nóg af öllu sem heitir undirbúningur, eftir að hafa stundað æfingar í a.m.k. níu mánuði. Úr því að undirbúningstíminn er skyndilega orðinn svona mikilvægur, hvernig stendur þá á því að konurnar fá ekki jafnlangan tíma til að búa sig undir undanúrslitin og karlarnir? Hin langa bið eftir að karla- keppnin hefjist hefur m.a. verið réttlætt með að þannig sé kvenna- handboltanum sýnd aukin virðing, hann eigi sviðið og njóti þar af leið- andi óskiptrar athygli. Virðingin er nú ekki meiri en svo þegar kemur að úrslitaleikjunum í kvennaflokki þá getur fjórða og fimmta viður- eignin, komi til þeirra, farið fram á milli fyrsta og annars og annars og þriðja úrslitaleiks karla. Þá gleym- ist allt tal um virðingu. Sama á við um fyrsta úrslitaleik um Íslandsmeistaratitil kvenna sem ráðgerður er 23. maí, daginn áður en ráðgert er að leika oddaleiki í undanúrslitum karla, komi til þeirra sem áhugamenn um hand- knattleik hljóta að vona. Þá er virðingin fyrir kvenna- handknattleiknum skyndilega horf- in út í veður og vind enda eru rök HSÍ ótrúverðug. Rökin eru sett fram til að slá ryki í augu fólks og fela þá staðreynd að HSÍ er svo veikt að það hefur ekki lengur for- ræði yfir hápunkti Íslandsmótsins. Mótsstjórn HSÍ hefur verið flutt upp í Efstaleiti. Ríkissjónvarpið (RÚV) ræður hvenær leikið er í úr- slitakeppni karla og kvenna. Þegar það hentar RÚV að vera með kapp- leiki á dagskrá þá skal leika, þegar það hentar ekki skulu menn halda undirbúningi áfram. Það liggur skýrt fyrir og þess vegna hefjast undanúrslit karla ekki í þessari viku þar sem ljóst er að RÚV gæti aldrei réttlætt fyrir áhorfendum sínum að hafabeinar útsendingar frá handboltaleikjum öll kvöld þessa vikuna á milli klukkan átta og níu. Þess vegna er leikið í undan- úrslitum kvenna þessa vikuna, í undanúrslitum karla í næstu viku. Þá leggja konurnar stund á undir- búning á meðan. Auðvitað á það að vera eitt af hlutverkum HSÍ að sem mest sé fjallað um handknatt- leik í íslenskum fjöl- miðlum. Með því að snerpa úrslitakeppnina af krafti í stuttan tíma tel ég að íþróttin fengi betri auglýsingu en eins og málum er nú háttað. Auk þess er harla lítið um að vera í íþróttalífi landans um þessar mundir og upp- lagt að láta handknatt- leikinn í heild eiga sviðið, tækifærin til þess eru ekki svo mörg. Með fyrirliggjandi leikjaskipulagi er skásti hluta Íslandsmótsins í hand- knattleik þynntur út, lopinn teygð- ur fram á vor þegar fólk er farið að langa til annars en sitja inni í íþróttahúsum eða heima í stofu fyr- ir framan viðtækin með skyldu- áskriftinni. Virðingarleysi fyrir áhorfendum sem mæta á leiki er mikið. Það er mikill misskilningur að réttlæta fyrirkomulag úrslita- keppninnar með því að halda að sömu áhorfendur komi á leiki karla og kvenna og því sé rétt að dreifa leikjunum. Það hefur sýnt sig í gegnum tíðina að fæstir þeirra sem mæta á leiki Vals og Hauka í kvennaflokki koma á leiki karlanna og öfugt. Helst er að slíkur sam- gangur eigi sér stað í Vestmanna- eyjum. Stuðningsmenn ÍR fá nærri hálfan mánuð til að safna kröftum sem hugsanlega getur orðið aðeins einn og það að kvöldi fyrsta sum- ardags. Þá verða liðnir 16 dagar frá síðasta heimaleik liðsins, gegn KA, þriðjudaginn 5. apríl. Víst er að snörp úrslitakeppni þar sem leikið er dag eftir dag í skamman tíma, með hugsanlega þriggja til fjögurra daga hlé á milli stiga, þ.e. frá 8 liða úrslitum að undanúrslitum og síðan frá undan- úrslitum að úrslitum, væri mun beri kynning fyrir handknattleikinn en sú flatneskja sem nú stendur fyrir dyrum. Loks þegar vonlausu fyrir- komulagi deildarkeppni hefur ver- ið kastað fyrir róða þá ætlar HSÍ að kveðja úrslitakeppnina með sann- kölluðum svanasöng. Virðing og virðingarleysi ’ Mótsstjórn HSÍ hefur verið flutt upp íEfstaleiti. Ríkissjónvarpið (RÚV) ræður hvenær leikið er í úrslitakeppni karla og kvenna. Þegar það hentar RÚV að vera með kappleiki á dagskrá þá skal leika, þegar það hentar ekki skulu menn halda undirbúningi áfram. ‘ Ívar Benediktsson iben@mbl.is Á VELLINUM Fannar Örn Þor- björnsson, ÍR- ingur, í kröppum dansi á línunni. Eva tryggði ÍBV sigur KVENNALIÐ ÍBV náði forystunni í viðureign liðsins við Stjörnuna í undanúrslitum Íslandsmótsins, DHL-deildinni í handknattleik, með 20:19 sigri í hörkuleik þar sem Eva Hlöðversdóttir skoraði sigur- markið tuttugu sekúndum fyrir leikslok. Varnarleikur beggja liða var í fyrirrúmi og var hart tekist á. Liðin skiptust á að hafa forystuna í fyrri hálfleik og munaði aldrei meira en einu marki á liðunum. ÍBV var 12:11 yfir í hálfleik. Baráttan hélt áfram í síðari hálfleik en það lið sem fyrr sigrar í tveimur leikjum kemst í úrslit Íslandsmótsins. Eftir Sigursvein Þórðarson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.