Morgunblaðið - 27.04.2005, Blaðsíða 3
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 2005 C 3
THIERRY Henry, sókn-
armaður Arsenal, gæti
misst af úrslitaleiknum
gegn Manchester Unit-
ed í enska bikarnum 21.
maí. Henry hefur átt við
meiðsli í nára að stríða
og sagði Arsene Weng-
er, stjóri Arsenal, í gær
að ekki væri víst að
hann yrði orðinn góður
fyrir úrslitaleikinn í bik-
arnum.
Freddie Ljungberg er
einnig meiddur en báðir
ætla að reyna að byrja
að æfa rólega í dag.
„Henry er gríðarlega mikilvægur hlekkur í lið-
inu en við verðum fyrst og fremst að huga að
heilsu og velferð leikmanna okkar. Ef við teljum
hann ekki fullkomlega tilbúinn í úrslitaleikinn þá
spilar hann ekki – jafnvel þó það sé á móti United.
Góðu fréttirnar eru hins vegar þær að meiðsli
hans eru ekki það alvarleg að hann verði frá í þrjá
mánuði eins og við töldum í fyrstu. Þetta eru
álagsmeiðsli eða þreyta og greinilegt að hann hef-
ur ofgert líkama sínum. Franska landsliðið hefði
átt að hvíla hann eitthvað í sumar. Menn verða
einhvern tíma að fá hvíld,“ sagði Wenger.
Henry gæti misst
af úrslitaleiknum
Thierry Henry
HEIMIR Örn Árnason, hand-
knattleiksmaður frá Akur-
eyri, er hættur í Val eftir
tveggja ára dvöl þar. Heimir
sagði við Morgunblaðið í gær
að það skýrðist endanlega í
vikunni með hvaða liði hann
myndi spila næsta vetur.
„Þetta er búinn að vera
ágætur tími hjá Val en mig langaði
til að breyta til,“ sagði Heimir.
Samkvæmt heimildum blaðsins
eru mestar líkur á að Heimir gangi
til liðs við Fylki, sem hefur end-
urvakið meistaraflokk sinn með
Sigurð Val Sveinsson sem þjálfara.
Heimir er 25 ára miðjumaður,
uppalinn hjá KA og lék þar með
meistaraflokki um árabil. Hann fór
til Noregs og spilaði þar eitt ár
með Haslum og hefur síðan leikið
með Val tvö síðustu tímabil. Heimir
var þriðji markahæsti leikmaður
liðsins í úrvalsdeildinni með 51
mark í 14 leikjum og gerði síðan 27
mörk í 5 leikjum í úrslitakeppn-
inni..
Heimir Örn Árnason
er á förum frá Val
EVERTON tekur þátt í Evrópukeppni í knatt-
spyrnu í fyrsta skipti í tíu ár síðar á þessu ári. Það
varð endanlega ljóst með sigri Arsenal á Totten-
ham í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöld, 1:0, en þar
með var sæti Everton meðal sjö efstu liða í deildinni
gulltryggt.
Sjö efstu lið deildarinnar komast í Evrópukeppni
næsta haust. Ekki liggur endanlega fyrir hvort
fjórða sætið, sem Everton á góða möguleika á að
ná, nægir til að komast í undankeppni Meist-
aradeildar Evrópu. Það myndi að öllu eðlilegu vera
nóg, en nú gæti frammistaða Liverpool í Meist-
aradeildinni haft áhrif á það. Ef Liverpool vinnur
Meistaradeildina, gæti farið svo að Everton yrði að
sætta sig við sæti í UEFA-bikarnum.
Evrópusæti í höfn
hjá Everton
ALEX Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester
United, segist vera rétti maðurinn til að stjórna liði
United og þvertekur fyrir þær sögusagnir að völd
hans hjá félaginu hafi minnkað upp á síðkastið.
Ferguson hefur mátt horfa á Chelsea hlaupa í
burt með meistaratitilinn í Englandi auk þess sem
lið hans féll út úr Meistaradeildinni. „Mér fannst dá-
lítið furðulegt að þegar Newcastle rak Bobby Rob-
son var talað um að félagið hefði losað sig við gríð-
arlega reynslu og mönnum fannst það ekki
gæfulegt. En í Manchester virðist reynslan ekki
teljast til tekna. En ég mun komast í gegnum þetta
allt og einnig Manchester United,“ sagði Ferguson.
Stjórinn hefur verið nokkuð gagnrýndur fyrir
leikaðferð sína, sérstaklega 4-5-1 en Skotinn snjalli
segir að Akkilesarhæll liðsins í vetur hafi verið að
skora ekki nægilega mörg mörk – færin hefði liðið
fengið. „Það hafa verið margar kenningar um
hvernig við eigum að leika og hvernig ég eigi að
stjórna liðinu. En þegar öllu er á botninn hvolft þá
hefur veikleiki okkar verið að nýta ekki nægilega
mörg færi sem við fáum. Við höfum tapað 16 stig-
um til liða í neðri hluta deildarinnar vegna þess að
við höfum ekki náð að nýta færin nægilega vel.“
Ferguson segist rétti
maðurinn fyrir United
Reuters
Sir Alex Ferguson
ÓLAFUR Stefánsson skoraði 1
mark í 27:25 sigri Ciudad Real gegn
Barcelona í spænsku 1. deildinni í
handknattleik í gærkvöld en leikið
var í Barcelona. Um 3.500 áhorfend-
ur voru á leiknum, Barcelona var
15:12 yfir í hálfleik en Ólafur og fé-
lagar voru mun sterkari í síðari hálf-
leik. Ciudad Real er í öðru sæti deild-
arinnar með 49 stig en Portland San
Antonio er efst með 50 stig. Barce-
lona er í þriðja sæti með 48 stig.
LOGI Geirsson var markahæstur í
liði Lemgo sem tapaði gegn Essen á
útivelli í þýsku 1. deildinni í hand-
knattleik í kvöld, 33:30. Logi skoraði
alls 9 mörk í leiknum og þar af fjögur
úr vítaköstum, en Guðjón Valur Sig-
urðsson skoraði 5 mörk fyrir Essen.
Lemgo er í fjórða sæti deildarinnar
með 40 stig en Essen í því fimmta
einu stigi á eftir.
EINAR Örn Jónsson komst ekki á
blað þegar lið hans Wallau tapaði
35:32 á heimavelli gegn Flensburg.
JÓHANNES Karl Guðjónsson
kom inn á sem varamaður á 77. mín-
útu í liði Leicester í ensku 1. deildinni
gegn Derby í gær. Leicester sigraði
1:0.
HJÁLMAR Jónsson var í liði
Gautaborgar sem lagði Pétur Mar-
teinsson og lið hans Hammarby í
sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu
í gær, 1:0. Hjálmar og Pétur voru
báðir í byrjunarliði sinna liða og léku
allan leikinn.
STEFÁN Þórðarson lék með
Norrköping í næstefstu deild
sænsku knattspyrnunnar í gær er
liðið vann AIK 2:0 á heimavelli.
STEVE Davis, gamla goðsögnin í
snókerheiminum, gerði sér lítið fyrir
og komst í átta manna úrslit heims-
meistaramótsins sem nú stendur yfir
í Crucible-leikhúsinu í Sheffield.
Davis, sem er 47 ára og hefur ekki
náð svona langt í níu ár, lagði Michael
Holt að velli, 13:10, eftir að andstæð-
ingur hans komst í 8:2. Davis spilar
við lítt þekktan mótherja, Shaun
Murphy, í átta manna úrslitum og
var undir, 1:7, eftir fyrri hlutann í
gær.
FÆRRI komust að en vildu á opið
golfmót sem fram fór um síðustu
helgi á Hólmsvelli í Leiru og léku
margir kylfingar mjög vel. Sigurpáll
Geir Sveinsson, sem nú leikur fyrir
Kjöl í Mosfellsbæ, sigraði án forgjaf-
ar en hann lék á 4 höggum undir pari.
Helgi Dan Steinsson úr Golfklúbbi
Suðurnesja varð annar á 3 undir pari
og Davíð Jónsson úr GS varð þriðji á
2 undir pari. Alls tóku 173 keppendur
þátt á mótinu.
NORSKA handknattleikssam-
bandið ákvað á ársþingi sínu um síð-
ustu helgi að afnema takmarkanir á
fjölda erlendra leikmanna á næstu
leiktíð. Áður máttu norsk lið aðeins
hafa einn leikmann í sínum röðum
sem kom frá landi utan EES en nú
verður fjöldi þeirra ótakmarkaður.
FÓLK
eikmenn Liverpool verða vel
mdir og staðráðnir í að sigra
. Þeir eru með fullt af góðum
önnum, eins og Steven Gerr-
Milan Baros og Jamie Carr-
, svo einhverjir séu nefndir.
erum mikla virðingu fyrir liði
pool sem vill örugglega koma
hefndum eftir tapið gegn okk-
úrslitaleik deildabikarsins,“
Terry í gær.
rirliðinn er þó á því að það
muni skilja á milli félaganna
ja sé knattspyrnustjóri
ea, José Mourinho.
að er mikið framundan hjá
en við eigum góða möguleika
einhver getur stýrt liði í gegn-
vona verkefni þá er það okkar
spyrnustjóri. Við eigum tvo
leiki fyrir höndum gegn Liv-
l, sem leikur mjög sterkan
rleik, rétt eins og við. En von-
náum við tveggja marka for-
á Stamford Bridge og ljúkum
nu á þeirra velli. Ég er viss um
náum að brjóta þá á bak aft-
agði John Terry.
lsea er ekki ósigrandi lið
ð lítum á þetta sem hvern
annan Evrópuleik. Það er alltaf
öðruvísi að spila í Meistaradeild-
inni. Chelsea hefur verið geysilega
öflugt í úrvalsdeildinni en við höf-
um verið nálægt sigri í öllum þrem-
ur leikjum liðanna. Þetta er ekki
ósigrandi lið – í Englandi geta allir
unnið alla. Það er mikilvægt að
skora mark á útivelli en það gerir
ekki endilega útslagið. Juventus
skoraði gegn okkur á Anfield en
komst samt ekki áfram. Við verðum
að vera mjög þéttir og með sterka
liðsheild,“ sagði Rafael Benítez,
knattspyrnustjóri Liverpool.
Ætlar að stöðva Lampard
Xabi Alonso, spænski miðjumað-
urinn hjá Liverpool, segir að Frank
Lampard sé maðurinn sem hans lið
þurfi að stöðva í leiknum í kvöld.
Alonso ökklabrotnaði á nýársdag í
samstuði við Lampard og var frá í
þrjá mánuði en segist ekki bera
neinn kala til hans.
„Lampard hefur átt frábært
tímabil svo það er mikilvægt að
halda honum í skefjum. Hann er
magnaður í því að sækja hratt af
miðjunni, skora mörk og skapa
mörk fyrir félaga sína. Ég mun
reyna að sjá til þess að hann fái
ekki boltann og gera honum lífið
eins leitt og mögulegt er. Við ætlum
að ná góðum úrslitum í London,
skora a.m.k. eitt mark þar, og ljúka
verkinu á Anfield. Það er enginn
galdur að vinna Chelsea. Þetta er
frábært lið en ekki ósigrandi,“
sagði Alonso.
og Liverpool á Stamford Bridge
m mikla virð-
ir Liverpool“
Eiði Smára Guðjohnsen og
veginn að innbyrða enska
mæta þeir Liverpool í ein-
eign liðanna í undan-
am fer á heimavelli
ur Smári verður vafalítið í
m Frank Lampard og
t undanfarnar vikur.
ÍTALSKA liðið AC Milan var stál-
heppið að leggja PSV frá Hollandi 2:0
í fyrri leik liðanna í undanúrslitum
Meistaradeildar Evrópu á San Síró í
gær. Knattspyrnumaður Evrópu,
Andrei Shevchenko frá Úkraínu,
skoraði fyrra markið undir lok fyrri
hálfleiks og var þetta sjötta mark
hans í keppninni. Danski landsliðs-
framherjinn Jon Dahl Tomasson
bætti við öðru marki rétt fyrir leiks-
lok en hann hafði komið inn á sem
varamaður. Leikmenn PSV geta nag-
að sig í handarbökin fram í næstu
viku er liðin eigast við að nýju í
Eindhoven enda fengu leikmenn liðs-
ins fjölmörg færi í leiknum en flest
skot þeirra fóru á mitt markið og
beint í fangið á Dida, markverði.
„Ég er mjög ánægður og að auki
mjög þreyttur þar sem leikurinn var
gríðarlega erfiður. Það var erfitt að
hlaupa svona mikið í 90 mínútur. PSV
leikur knettinum mikið sín á milli og
það er erfitt að leika gegn slíkum lið-
um. En leikaðferð okkar gekk upp,
skyndisóknirnar áttu að gefa okkur
tækifæri til þess að skora. Markið hjá
Tomasson var gríðarlega mikilvægt
fyrir okkur og vörnin hélt velli,“ sagði
Shevchenko en AC Milan er líklegt til
þess að leika til úrslita í keppninni í
annað sinn á þremur árum en liðið
varð Evrópumeistari í sjötta sinn árið
2003.
Hollenska liðið, sem tryggði sér tit-
ilinn í heimalandi sínu um síðustu
helgi, fékk eins og áður segir fjölmörg
færi í leiknum og sérstaklega í þeim
síðari en leikmönnum PSV var fyr-
irmunað að ná nægum krafti í skot
sín. Guus Hiddink, þjálfari PSV, er
gríðarlega óvinsæll á Ítalíu eftir að
hann stjórnaði landsliði Suður-Kóreu
til sigurs gegn Ítalíu á Heimsmeist-
aramótinu í Kóreu árið 2002. En
Hiddink gat stillt upp sínu sterkasta
liði í leiknum en það dugði ekki til að
þessu sinni. Stuðningsmenn liðsins
höfðu vonast til þess að liðið endur-
tæki leikinn frá árinu 1987 er liðið
sigraði í deild og bikar í heimalandi
sínu og varð einnig Evrópumeistari.
Hernan Crespo, landsliðsmaður frá
Argentínu, fékk tvö upplögð færi fyr-
ir AC Milan á fyrstu tíu mínútum
leiksins en Brasilíumaðurinn Heur-
elho Gomes, í marki PSV, var vel á
verði. Og Lee Young-Pyo, varnar-
maður PSV, bjargaði einnig á mark-
línu eftir skot frá Crespo.
„Þetta eru frábær úrslit. Með 2:0 í
farteskinu getur fátt farið úrskeiðis
hjá okkur og við erum á leið í úrslita-
leikinn,“ sagði Tomasson eftir leikinn
en hann hafði ekki skorað í Meistara-
deildinni í tvö ár.
Reuters
lendingurinn Clarence Seedorf fagna marki þess fyrr-
yrir AC Milan gegn PSV í gær.
Heppnin
í liði með
AC Milan
Heimir Örn