Morgunblaðið - 02.05.2005, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 02.05.2005, Qupperneq 12
12 MÁNUDAGUR 2. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR VÖRUSKIPTIN við útlönd voru óhagstæð um 5,9 milljarða króna í marsmánuði. Í sama mánuði í fyrra voru þau óhagstæð um 0,9 milljarða á föstu gengi og versnuðu þau því um 5,0 milljarða milli ára. Fluttar voru út vörur fyrir 16,4 milljarða í mars á þessu ári og inn fyrir 22,3 milljarða króna fob. Þetta kemur fram í til- kynningu frá Hagstofu Íslands. Á fyrstu þremur mánuðum þessa árs eru vöruskiptin óhagstæð um 11,6 milljarða. Fluttar voru út vörur fyrir 46,7 milljarða en inn fyrir 58,3 milljarða. Á sama tímabili árið áður voru vöruskiptin óhagstæð um 0,5 milljarða. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 11,1 milljarði króna lakari en á sama tíma árið áður. Vaxandi viðskiptahalli milli ára skýrist bæði af auknum innflutningi og minni útflutningstekjum. Sjávarafurðir 61% útflutnings Fram kemur í tilkynningu Hag- stofunnar að verðmæti vöruútflutn- ings fyrstu þrjá mánuði þessa árs var 0,6 milljörðum eða 1,2% minna á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 61% alls útflutn- ings og var verðmæti þeirra nær hið sama og á sama tíma árið áður. Út- fluttar iðnaðarvörur voru 35% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 4,3% minna en árið áður. Útflutning- ur lyfja og lækningatækja dróst saman en útflutningur á frystum heilum fiski og áli jókst. Verðmæti vöruinnflutnings fyrstu þrjá mánuði þessa árs var 10,5 millj- örðum eða 22,0% meira á föstu gengi en árið áður. Mest varð aukning í innflutningi á flutningatækjum, fjár- festingarvöru og eldsneyti og smur- olíu. Vöruskiptajöfnuður versnar milli ára ÖRTRÖÐ myndaðist fyrir framan nýja Apple-verslun í Lyngby í Dan- mörku þegar að verslunin var opn- uð. Um 200 manns biðu alla nóttina eftir að verslunin yrði opnuð og klukkan tíu í gærmorgun beið á fimmta hundrað manns fyrir utan hana. Hamagangurinn var slíkur að lögreglan sá ástæðu til að vera við- stödd og hleypti hún fólkinu inn í hollum. Verslunin er í eigu Íslendinga og segir Bjarni Ákason, framkvæmda- stjóri og einn eigenda Apple- búðanna á Íslandi og í Danmörku, að móttökurnar hafi verið mun kröftugri en hann hafi búist við. „Þetta er góð hvatning fyrir framhaldið,“ en fyrirhuguð er opnun fleiri sérhæfðra Apple- verslana á Norðurlöndum. Versl- unin í Lyngby er önnur Apple- verslunin sem íslensku aðilarnir opna í Danmörku en fyrir reka þeir verslun í hjarta Kaupmannahafnar, við Gammel Mønt. Örtröð við nýja Apple-verslun ● MATSFYRIRTÆKIÐ Moody’s Investors Service hefur tilkynnt að það hyggist endurmeta lánshæf- ismat opinberra fyrirtækja og stofnana víðs vegar um heiminn á næstu mánuðum og nota við það nýja aðferð. Samktæmt því sem fram kemur í tilkynningu til Kauphallar Íslands telur Moody’s að líklega muni þetta endurmat leiða til þess að matseinkunn flestra opinberra fyr- irtækja og stofnana muni ann- aðhvort verða staðfest eða hækka, en þó geti verið að ein- hverjar einkunnir kunni að verða lækkaðar. Íbúðalánasjóður er eitt þeirra opinberu fyrirtækja sem er á lista þeim sem Moody’s birti yfir þau fyrirtæki sem þessar nýju mats- aðferðir muni ná til. Moody’s notar nýja aðferð ● FRANSKI fjarskiptarisinn Alcatel jók hagnað sinn lítillega á fyrsta fjórðungi árs- ins. Sérfræð- ingar telja hagnaðinn hins vegar vera minni en vænst var. Tekjur fé- lagsins á tímabilinu voru um 2,6 milljarðar evra, um 213 milljarðar króna, og jukust um 3,7% frá sama tímabili síðasta árs. Nettó- tekjur félagsins minnkuðu hins vegar um helming og voru 124 milljónir evra eða rúmir 10 millj- arðar króna. Í tilkynningu frá Alcatel segir að mikill vöxtur sé í uppbyggingu fjar- skiptaneta á nýjum mörkuðum, svo sem í Kína, Rússlandi, Ind- landi og Brasilíu. Í Vestur-Evrópu hafi þróun og útbreiðsla þriðju kyn- slóðar farsíma skilað hagnaði. Rekstrarhagnaður farsímakerfa hafi numið 5,4 milljörðum króna. Alcatel skilar hagnaði BRESKA verslunarkeðjan Somerfield hefur keypt 13 þjónustustöðvar af Texaco og mun leigja 105 verslanir til viðbótar, að því er greint er frá í breskum dagblöðum. Somerfield mun alls greiða 15,3 milljónir punda, nærri 1,9 milljarða króna, fyrir verslanirnar 13 en leigan verður greidd með hlutabréfum. Texaco selur hinar verslanirnar aftur á móti til nýs fyrirtækis, Azure Property LLP, sem leigir þær áfram til Somerfield. Þar með rekur Somer- field 162 þjónustustöðvar, þar sem kaupa má eldsneyti og hvers konar þægindavöru. Yfirtökutilboð hækkað Á sama tíma harðnar baráttan um yfirtöku á Somer- field. Á fréttavef breska blaðsins Times er greint frá því að fasteignafélagið London & Regional, sem er í eigu Richards Livingstones og nýtur stuðnings japanska bankans Nomura, hafi hækkað tilboð sitt í Somerfield og þar með jafnað tilboðið sem Baugur stendur að ásamt Robert Tchengui, sem munu tilbúnir til að greiða 1,12 milljarða punda fyrir keðjuna, nærri 136 milljarða króna, eða 205 pens á hlut. Livingstone hafði áður lýst því yfir að hann væri tilbúinn til að greiða 190 pens á hlut. Nú er talið mjög líklegt að stórmarkaðskeðjan Asda blandi sér í baráttuna um Somerfield. Asda hefur nú fengið fjárfestingabankann Lazard til ráðgjafar í tilboðs- gerðinni. Asda er í eigu Wal-Mart, stærstu smásöluversl- unar heims, og er talið að kaup á Somerfield myndu styrkja mjög stoðir Asda í samkeppninni við Tesco sem er stærsta smásölukeðja Bretlands. Somerfield kaupir verslanir af Texaco VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF Borgarfjörður Fyrsta menningar- tengda hótelið á Íslandi var opnað 28. apríl sl. í Reykholti en það er þrett- ánda Fosshótel landsins. Af tilefni opnunarinnar var mikið um dýrðir í Reykholti. Gestum var fyrst boðið til Snorrastofu þar sem starfsemin var kynnt fyrir þeim en því næst var mót- taka í Ásgarði, veitingasal hótelsins, og gefinn kostur á að skoða húsa- kynni. Aðdragandi þess að hótelið í Reyk- holti bættist við Fosshótelkeðjuna er sá að eignarfélagið Helgaland, keypti Reykholt sl. haust og fór þess fljót- lega á leit við Fosshótel að það tæki að sér rekstur og langtímaleigu á hót- elinu. Fosshótelkeðjan verður 10 ára á næsta ári en hún byrjaði með rekstri á Fosshóteli Lind í maí 1996. Þróun í ferðaþjónustu Sigrún Hjartardóttir varð fyrir svörum þegar fréttaritari heimsótti nýja hótelið. Sigrún bjó lengi í Banda- ríkjunum, rak m.a. hótel í Flórída í 10 ár. Núna er hún hótelstjóri á Foss- hóteli Lind og sér jafnframt um al- mannatengsl fyrir hótelkeðjuna. Að sögn Sigrúnar er hótelið í Reykholti einstakt í þessari keðju vegna þess að það er menningartengt. ,,Ferða- málaráð og Samtök ferðaþjónust- unnar hafa mælt með vöruþróun í ferðageiranum. Náttúra Íslands hef- ur auðvitað mikið aðdráttarafl en fleira er hægt að gera og kom fljót- lega upp sú hugmynd að þar sem Reykholt er á þessu mikla menning- arsetri yrði hótelið menningartengt, og vildum við kynna goðafræðina og hinar merkilegu íslensku bók- menntir, við undirspil klassískrar tónlistar.“ Renato Grunenfelder, fram- kvæmdastjóri hótelkeðjunnar, á og vann þessar hugmyndir. Allir list- munir og myndir tengjast þessu þema. Allir álmar og gangar hafa sitt þema t.d. er einn gangurinn tileink- aður Freyju en þar er brúðkaups- svítan ,,Lokrekkja Freyju“. Sigrún segir að Renato hafi eytt drjúgum stundum á Netinu, en marga ef ekki flesta þá muni sem nú prýða veggi og sali hótelsins fann hann á E-Bay en annað var fundið á landinu með hjálp Snorrastofu, Árnasafns, bóksala og annarra fróðra manna og stofnana. Listamennirnir Haukur Halldórsson og Sigrún Lára Shalko eiga nokkur verk á hótelinu; veggteppi, púða og myndverk. ,,Breytingar á hótelinu byrjuðu í nóvember á síðasta ári og eru gíf- urlegar. Tunglstofa, þar sem þemað er tunglið og allt því tengt, var byggð þar sem áður var svið. Gangar og her- bergi voru teppalögð, veggir voru brotnir niður og t.d. þar sem áður voru tvö lítil herbergi og baðlaus er nú eitt 24 fermetra herbergi með baði. Allar skreytingar og listaverk í anda goðafræðinnar eru nýjar.“ Aðspurð segir Sigrún að bókanir séu óðum að taka við sér, en enn sem komið er er nóg til af herbergjum á Reykholti í sumar. ,,Þegar á heildina er litið eru bókanir sumarsins um 10% færri en voru á sama tíma í fyrra en bókunarhegðun gesta er mikið að breytast. Nú bókar fólk ferðir sínar og gistingu með æ styttri fyrirvara, og gerir það á Netinu.“ Á hótelinu eru 58 herbergi með baði og 15 baðlaus, og gætu alls gist þar u.þ.b. 130 gestir. Verð á herbergjum er frá 7.800 fyrir tveggja manna herbergi án baðs, og upp í 17.000 kr. fyrir tveggja manna herbergi með baði á háannatíma. Morgunmatur er alltaf innifalinn í gistingu á Fosshótelum. Áform eru um að reyna að ná stöðugri nýtingu á hótelinu allt árið um kring. Fyrir fólk sem vill vera í ró og næði ,,Okkar markhópur er það fólk sem vill fara út á land og njóta þess að vera í ró og næði og hlaða sig orku bæði á líkama og sál. Í vetur verður opið fyrir hópa því við stefnum að því að halda hin ýmsu námskeið, svo sem hópeflis-, framsögu- og bókmennta- námskeið, svo og ýmislegt sem varð- ar andleg málefni. Femin.is hefur t.d. lýst yfir áhuga á að vera með nám- skeið hjá okkur og kórar vilja koma í æfingabúðir. Framtíðarsýn okkar á Reykholti er að nýta allt ónýtta pláss- ið sem er í kjallara hótelsins til heilsu- lindar; bað, nudd og sauna. Úti er stefnt að því að byggja þrjár laugar í stíl við Snorralaug.“ Veitingastaðurinn Ásgarður er op- inn á kvöldin. Á matseðlinum er boðið upp á rétti dagsins, sem á Fosshót- elum er alltaf á verðbilinu 1.090–1.390 kr., og svo allt frá pastaréttum til höfðinglegra steika auk barnamat- seðils. Frá 1. maí verður einnig boðið upp á hlaðborð í hádeginu. Um tutt- ugu manns vinna við hótelið og er rúmur helmingur starfsmanna úr héraði og er búið að ráða allt starfs- fólk sumarsins. Einar Valur Þorvarð- arson er hótelstjóri í Reykholti og hefur hann stýrt hótelinu í gegnum endurbæturnar. Hann er afar ánægð- ur með hversu miklum stakkaskipt- um hótelið hefur tekið og hlakkar til að fá sem flesta í heimsókn. Endurbætt hótel Frá vinstri Valdís Jóhannsdóttir, sölu- og markaðsstjóri Fosshótela, Einar Valur Þorvarðarson, hótelstjóri Reykholts, Renato Gruenenfelder, framkvæmdastjóri Fosshótela ehf., og Sigrún Hjartar- dóttir, hótelstjóri Lindar og umsjónarmaður almannatengsla keðjunnar. Fyrsta menningar- tengda hótelið opnað í Reykholti Goðafræði og bókmenntir skipa ákveðinn sess í hinu endurnýjaða hóteli í Reykholti í Borg- arfirði. Guðrún Vala Elísdóttir kynnti sér starfsemina og ræddi við forráðamenn þess. VESTURLAND

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.