Morgunblaðið - 02.05.2005, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 02.05.2005, Blaðsíða 14
14 MÁNUDAGUR 2. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT V eruleg umskipti sýnast í vændum í Chile sem fullyrða má að sé heldur íhaldssamt þjóðfélag. Allt bendir til þess nú að kona verði í fyrsta skipti kjörin for- seti landsins þegar kosningar fara fram í desembermánuði. Þar ræðir um þær Michelle Bach- elet og Soledad Alvear. Sú fyrrnefnda tilheyrir flokki sósíalista en Alvear er kristilegur demókrati. Önnur hvor þeirra verður útnefnd frambjóðandi samsteypustjórnarinnar sem nú ræð- ur ríkjum í Chile. Sigurvegarinn mun síðan mæta Joaquín Lavín, frambjóð- anda hægri flokkanna. Stjórnmál í Chile hafa skipast með heldur óhefðbundnum hætti. Þrír stórir flokkar fara fyrir sam- steypustjórninni í Chile, sem jafnan er nefnd „Concertación“ á spænskri tungu en það orð vísar til samvinnu og sátta. Stærstur er flokkur kristi- legra demókrata („Partido Demó- crata Cristiano“), þá kemur Sósíal- istaflokkurinn („Partido Socialista“) og loks Lýðræðisflokkurinn eða „Partido por la Democracia“. Þeir tveir síðastnefndu eru til vinstri svo stuðst sé við viðteknar skilgreiningar í stjórnmálum en flokk hinna kristi- legu má staðsetja á miðjunni í stjórn- málum Chile. Tveir hægri flokkar bera uppi stjórnarandstöðuna. Þar ræðir ann- ars vegar um Bandalag óháðra lýð- ræðissinna („Unión Demócrata In- dependiente“) og Endurnýjunar- flokkinn („Renovación Nacional“). Saman mynda þessir flokkar „Banda- lag vegna Chile“ („Alianza por Chile“). Fráfarandi forseti landsins, Ric- ardo Lagos Escobar, tilheyrir „sátta- bandalagi“ stjórnarflokkanna og nú er baráttan hafin um hver fyllir sæti hans. Sögulegt sjónvarpseinvígi Í liðinni viku mættust þær Michelle Bachelet og Soledad Alvear í sjón- varpskappræðu sem talið er að um fjórar milljónir manna, fjórðungur íbúa Chile, hafi fylgst með. Þetta er í fyrsta skiptið sem slíku „einvígi“ er sjónvarpað í Chile. Margir telja að kappræða þessi marki þáttaskil í stjórnmálalífi landsmanna. Og víst er að gangi spár eftir eru mikil umskipti í vændum í desembermánuði því staða „Concertación“ er talin mjög sterk í aðdraganda forsetakosning- anna. Hafa ber í huga að Chile hefur um flest verið heldur íhaldssamt sam- félag fram á síðustu ár. Þannig hefur þátttaka kvenna í atvinnulífinu verið heldur lítil þó svo konurnar hafi verið í sókn í stjórnmálum landsmanna. Michelle Bachelat þótti fara með sigur af hólmi í sjónvarpseinvíginu. Af fréttum að dæma einnkenndist það þó af fremur litlum málefna- legum ágreiningi. Þær Alvear og Bachelet hyggjast ekki láta þar við sitja. Alls hafa 13 slíkar kappræður verið skipulagðar fram að prófkjörinu sem fram fer 31. júlí. Áhuginn sýnist mikill og sjálfur lýsti Lagos forseti þessum umskiptum sem „mikilvægu framlagi til lýðræðisins“. Málsvari millistéttarinnar Soledad Alvear er lögfræðingur að mennt og hefur mikla stjórnmála- reynslu. Hún hefur m.a. verið utan- ríkisráðherra og ráðherra dómsmála. Hún er fædd 1950 og á einnig að baki nokkurn feril í háskólasamfélaginu. Þegar vefsíða hennar er skoðuð kem- ur fram áhersla á heldur viðtekin og lítt umdeild gildi; á þjóðfélagslega sátt og samstarf auk þess sem mál- efni fjölskyldunnar eru henni of- arlega í huga. „Chile okkar – ein fjöl- skylda“ er raunar slagorð hennar. Athyglisverð er ennfremur sú nálgun Alvear að stórir þjóðfélagshópar í Chile eigi sér enga málsvara. „Ég verð forseti millistéttarinnar, meiri- hlutans sem á sér engan málsvara,“ sagði hún m.a. á fundi í borginni Concepción á dögunum. Varnarmálaráð- herra fyrst kvenna Michelle Bachelet leggur hins veg- ar mun ríkari áherslu á að brugðist verði af auknum þunga við misskipt- ingu auðsins í Chile. Flest sýnast bar- áttumál hennar heldur viðtekin þegar um frambjóðanda sósíalista er ræða. Menntastigið er henni áhyggjuefni og hún vill beita sér fyrir réttnefndu „þjóðarátaki“ í velferðar- og trygg- ingakerfinu. Slagorð hennar er „Bachelet – við sigrum öll“. Bachelet er sömuleiðis mennta- kona, fædd í Santiago árið 1951. Hún er læknir að mennt en hefur einnig gráðu í herfræðum. Bachelet er sýni- lega tungumálagarpur hinn mesti, hún kveðst tala þýsku, frönsku og portúgölsku reiprennandi auk ensku. Raunar stundaði hún einnig nám í Þýskalandi en þangað flúði fjöl- skyldan eftir að hafa sætt marg- víslegum þvingunum í heimalandinu á dögum herforingjastjórnarinnar sökum stjórnmálaskoðana sinna. Árið 1990 þegar lýðræðið var end- urreist í Chile eftir 17 ára herfor- ingjastjórn sneri Bachelet aftur og tók að taka virkan þátt í stjórnmálum á vettvangi Sósíalistaflokksins. Hún var skipuð heilbrigðisráðherra árið 2000 í kjölfar sigurs Lagos í for- setakosningunum það ár. Því starfi sinnti hún í tæp tvö ár en 7. janúar 2002 var hún skipuð ráðherra land- varna fyrst kvenna ekki aðeins í Chile heldur í gjörvallri Rómönsku Am- eríku. Sigra báðar andstæðinginn Ljóst er því að öflugir frambjóð- endur takast á í forkosningum „Concertación“. Og sigurlíkur þess- ara kvenna eru miklar. Skoðanakann- anir hafa leitt í ljós að báðar myndu þær sigra Joaquín Lavín sem er fæddur árið 1953 og er fyrrum borg- arstjóri Santiago. Samkvæmt þeirri nýjustu myndi Bachelet fá 49% at- kvæða gegn 38% Lavíns. Alvear myndi sigra hann 44–36. Og hvor fer með sigur af hólmi? Michelle Bachelet ef marka má kann- anir. Þær hafa ítrekað leitt í ljós að hún hafi verulegt forskot á keppinaut sinn. Í þeirri síðustu mældist fylgi hennar 61% en Alvear 26%. Konur keppa um forsetaemb- ættið í Chile APSoledad Alvear (t.h.) og Michelle Bachelet takast á í sjónvarpseinvíginu. asv@mbl.is Fréttaskýring | Tvær konur keppa nú um að verða útnefndar frambjóðandi stjórnarflokkanna í forseta- kosningunum í Chile. Ásgeir Sverrisson segir frá frambjóðendunum. FIMM menn sem handteknir voru í Írak í gær eru sagðir hafa viður- kennt að hafa tekið af lífi Margaret Hassan, forstöðukonu Care-hjálp- arsamtakanna. Hassan, sem var 59 ára gömul, var rænt í október í fyrra. Mynd- band sem sýndi aftöku hennar var birt um mánuði síðar en lík hennar hefur ekki fundist. Hún hafði búið í Írak í 30 ár og var gift Íraka. Talsmaður breska sendiráðsins í Bagdad sagði að ýmsir munir sem talið væri að verið hefðu í eigu Margaret Hassan hefðu fundist í húsinu þar sem mennirnir voru í fel- um. Þar mun ræða um fatnað í eigu hennar, skjöl og tösku. Embættismaður í innanríkis- ráðuneyti Íraks sagði í samtali við AFP-fréttastofuna að alls hefðu 11 menn verið handteknir. Fimm þeirra hefðu viðurkennt að hafa tekið þátt í ráninu á Hassan og af- töku hennar. Þessar upplýsingar höfðu þó ekki fengist staðfestar í gærkvöldi og ekki var fyllilega ljóst hversu margir voru handteknir. Mannfall í Bagdad Fjórtán Írakar, þar af fimm lög- reglumenn og ung stúlka, týndu lífi í árásum í Bagdad í gær. Byssu- menn tóku lögreglumennina af lífi þar sem þeir sváfu í varðstöð í suð- urhluta borgarinnar. En stúlkan týndi lífi ásamt fimm öðrum er bíl- sprengja sprakk í borginni þegar bandarísk herbílalest fór um. 1.500 Kúrdar í fjöldagröf Sérfræðingar rannsaka nú fjöldagröf sem fundist hefur í suð- urhluta Írak. Talið er að hún geymi jarðneskar leifar um 1.500 Kúrda sem Saddam Hússein, þáverandi einræðisherra í Írak, lét taka af lífi. Fjöldagröfin samanstendur af 18 grunnum skurðum nærri bænum Samawa. Talið er að fólkið hafi ver- ið tekið af lífi seint á níunda áratug liðinnar aldar, sennilega árið 1988. Það var handtekið og flutt frá Norð- ur-Írak og er það hald sérfróðra að fórnarlömbin hafi verið látin stilla sér upp á barmi skurðanna. Síðan hafi Kúrdarnir verið teknir af lífi með mikilli vélbyssuskothríð. Börn og konur eru mikill meiri- hluti fórnarlambanna ef marka má þær upplýsingar sem nú liggja fyr- ir. Af 113 líkum sem grafin hafa ver- ið upp hafa öll nema fimm þeirra verið af konum og börnum. Klæðn- aður fólksins tekur af allan vafa um það að fórnarlömbin voru Kúrdar. Saddam Hússein lét einnig beita efnavopnum gegn Kúrdum árið 1988 þegar þúsundir manna voru myrtar í árás á bæinn Halabja. 300 fjöldagrafir í Írak Bærinn Samawa er um 300 kíló- metra suður af höfuðborginni, Bagdad. Fjöldagröfin fannst í fyrra en rannsókn á henni hófst nú í apr- ílmánuði. Íraskir embættismenn segja að í landinu sé að finna tæp- lega 300 fjöldagrafir, sem geyma líkamsleifar fórnarlamba Saddams Hússeins. Fráfarandi mannrétt- indaráðherra írösku bráðabirgða- stjórnarinnar, Bakhtiar Amin, sagði í janúarmánuði að um 300.000 lík væri að finna í fjöldagröfum í Írak. Sagðir hafa játað á sig morðið á Margaret Hassan Reuters Margaret Hassan Kaíró. AP. | Rúmlega tvö hundruð manns voru í gær handteknir eða færðir til yfirheyrslu í Egyptalandi vegna tveggja árása á ferðamanna- staði í Kaíró á laugardag. Þrír herskáir íslamistar létu þá lífið og sjö særðust. Talsmaður lögreglu sagði að meira en 200 manns hefðu verið handteknir í fátækrahverfum Kaíró þar sem fjöl- skyldur tilræðismannanna búa. Tilræðismaður sprengdi sig í loft upp við egypska þjóðminjasafnið í Kaíró á laugardag, og særðust m.a. ísraelskt par, ítölsk kona og sænskur karl. Tæpri klukkustund síðar létu systir mannsins og unnusta hans lífið eftir að hafa hafið skothríð á rútu með ferðamönnum annars staðar í borginni. Hinn 7. apríl týndu tveir Frakkar og einn Bandaríkjamaður lífi í sprengjutilræði á stærsta markaði Kaíró en talið er að tilræðismennirn- ir á laugardag hafi komið að þeirri árás. 200 teknir höndum í Kaíró

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.