Mánudagsblaðið - 22.08.1955, Síða 5
5
Manudargsttr 22. ágóst 1955
m ’ib iMbb ?jUiO; i?iikM
Ðagirm, sem ég komst að því að ég
var orðin kvenskratti
Njög afhygiisverð grein - og prófraun— sem aiiar giffar konur verða að iesa
— það gæti jafnvel bjargað hjónabandinu —
Yfir se xmilljónir kvenna — meðlimir í Þjóðarráði
amerískra kvenna -— hafa verið hvattar til þess að s.já
kvikmyndina „The Shrike“» sem fjaUar um aðkallandi sáí-
fræðilegt vandamál, sem steðja að eiginkonum og eigin-
mönnmn. Shrike —- nafn kvikinyndarinnar þýðir fugl, sem
rekur fórnardýr sín í gegn með þymum. Hann er líka kall-
aður Slátrarinn. (Nú hefur nafnið færst yfir á eina tegund
eiginkvenna).
Hefur ykkur nokkurntíma
dottið í hug, að það sem
þið hélduð að væri aðeins
saklaust ástarbragð 1 garð r
eiginmanns yðar - myndi
snúast í vopn, sem eyðilagt
gæti alla hamingju ykkar?
Stundum getur það, sem
virtist fegurst atlæti eigin-
konunnar í garð manns
hennar, orðið til þess að
eitrar líf ykkar og eyðileggja
manninn, sem þið elskið.
Fyrir nokkrum mánuðum,
var eiginmaður minn, Dick
Powell, að fara á skrifstofu
sína að morgni dags. Hann
er bæði fallegur og vel
klæddur — draumamaður
minn. Ég var stolt af að
vera eiginkona hans, stolt
yfir því, að hann var fræg-
ur leikari og mikilsháttar
leikstjóri.
Um leið og ég kyssti hann
í kveðjuskyni, sagði ég:
„Mundu nu að hringja í mig
í dag“.
Svipbrigði
Ef þið aðeins hefð-
uð þekkt Dick vel, þá hefð-
uð þið séð að skugga brá yf-
ir bros hans um leið og hann
Eftir banda-
rísku leib-
stjörnuna
JIINE
AILYSOX
sagði: „Það er stundum dá'
lítið óþægilegt“.
„Þá það“, sagði ég. Ég
hringi þá í þig ...“ Skyndi-
lega greip ég höndinni fyrir
munninn og sneri mér und-
an.
,Hvað er að elskan mín“
spurði hann.
„Ekkert“ sagði ég. En eft-
ir að hann var farinn, settist
ég niður og reyndi að róa
hjartsláttinn, sem ég hafði
fengið. Því án þess að hugsa
FRANSKUR VARALITUR
Heildsölubirgðir:
IsL-erlenda verzlunarfélagið hi.
Garðastrætí %
Sími 5333.
út í það, þá hafði ég næstum
endurtekið setningu úr kvik-
myndahandritinu ,The Shri-
ke“, en þar lék ég hlutverk.
Þtta er kvikmyndahandrit
úr mjög vinsælu leikriti,
sem Jóse Ferrer lék aðal-
hlutverkið í. Það er sagan
um konu, sem lítur út fyrir
að vera góðlynd; venjulega
eiginkonu, sem verður svo
eigingjörn í garð bónda síns,
að hann gerir tilraun til
sjálfsmorðs.
Góð eiginkona
Ég er venjulega „góða
eiginkonan“ í kvikmynd-
um. Ég er róleg og
yndisleg, og hef ágætan
skilning á hvaða vandræð-
um , sem kvikmyndaeigin-
maður minn kemst í. Á a.m.
k. einum stað í slíkri mynd
segi ég. „Hafðu ekki áhyggj-
ur elskan, þetta fer allt vel“.
Eftir að hafa lesið kvik-
mynda handritið af „The
Shrike“, þá fór ég að hugsa
umum hverskonar fyrir-
myndareiginkonur ég væri
að leika.
En það var önnur meira
truflandi spurning, sem ég
spurði sjálfa mig að.
Hverskonar fyrirmyndar-
eiginkona var ég eiginmanni
mínum í lífinu sjálfu?
Ég fékk fékk svarið þenn-
an morgun þegar ég bað
hann að hringja í mig. Ég
sá fljótt, að það er dálítill
kvenskratti í hverri konu.
Ég hafði ekki athugað að
beiðni mín var bara ein
byrði í viðbót fyrir mann
minn. Ég hafði ekki athug-
að það, að verið gæti, að þeg-.
ar að hann afsakaði sig á
skrifstofunni til þess að síma
til mín, þá myndi aðrir á
skrifstofunni fnugsa: Vesa-
lings Dick — hann er eins
og hundur í bandi hjá kon-
unni sinni“.
Ég fór að hugsa um allar
eiginkonurnar, sem ég
þekki. Margar eru einmitt
alveg einstaklega hjálplegar,
eins og allar konur eiga að
vera. En hinar eru kvenn-
skrattar — konur sem láta
eiginmenn sína og alla aðra
vita hver hefur valdið bak
við kórónuna. Það eru kon-
ur, sem piðurlægja eigin-
menn sína til að upphefja
sjálfa sig. Slíkir kvenskratt-
ar geta allstaðar verið við
iðju sína, en sérstaklega þeg-
ar aðrir eru viðstaddir. Þá
geta þær logið og gert hvert
illverkið á fætur öðru — til-
tölulega öruggar.
Ég rauk upp
Ef fleiri menn tækju sömu
ákveðnu afstöðuna og Dick
gerði einu sinni, þá mundi
kvenskröttum fækka að
mun. • ■*
Ég hafiði' .yerið "burtu \-ið
myndatöku. Þegar ég kom
aftur, sagði Dick mér, með-
an við vorum með gestum,
að hann hefði sett Pamelu --
sex ára dóttur okkar í nýj-
an skóla.
Ég rauk upp eins og naðra
og þó hann segði að við
mundum ræða þetta seinna,
þá hélt ég málinu til streitu.
Ég rausaði áfram og áfram
og sagði að lokum alveg ó-
fyrirgefanlegan hlut.
Ég sagði að Dick væri
barnalegur.
Á almanna færi
}
Hann stóð á fætur rólega
og gekk út. Við sættumst
seinna, en þegar ég hugsa
um þennan atburð, þá skil
ég bezt að svona skapofsi
á almannafæri um málefni,
sem ræða átti í einrúmi,
var dæmi um hreinan og ó-
mengaðan ;t a kvenskratta-
hátt. .
Við konurnar erum ákafá-
méiri, • gefnari fyrir geðs-
hræringar og öryggislausari
en karlmenn. Við þörfnumst
svo mikið að vera elskaðar,
að við grípum það sem við
ættum að bíða eftir að taka
við með virðuleik.
Engin afsökun
En það að vita hvers vegna
við högum okkur svona, er
engin afsökun fyrir því að
halda því áfram. Það er þess
vegna og af mörgum öðrum
ástæðum, sem mér er nú
ljóst, að hverju getur stefnt
og ég bið til guðs að mig
hendi það aldrei aftur.
Reyndu nú þessa prófraun ..
Hvernig getið þið verið
vissar um, að ekki leynist
einhver kvenskratta-tilfinn-
ing í ykkur? June Allyson
prófar ykkur á einfaldan
hátt:
1. Ef einhver spyr eigin-
mann yðar einhvers , en
hann er seinn til svars; svar-
ið þér fyrir hann?
2. Njótið þér þess að hann
biður afsökunar eftir að þér
hafið reitt hann til reiði, og
og hann komið yður til að
gráta?
3. Hrósið þér, í viðurvist
annarra, kostum annarra
manna, sem vildu kvongast
yður?
4. Verðið þér sárar, ef
sloppurinn, sem hann keypti
handa yður er gulur, þegar
hann átti að vita að uppá-
haldsliturinn yðar var
blátt?
5. Hafið þér reynt að
„breyta“ lífsháttum hans?
ö.Látið þér hann alltafl
heyra það, ef eiginmaður
vinkonu yðar fær kaup-
hækkun?
7. Segið þér þá hluti á!
Framliald á 8. síðu
M ánudagsblaðsins
firossgáta
Lárétt: 1. Lelegur lestur — 5. Klæðnaður — Notað til
að þekja með — 9. Þorp — 10. Amboð — 11. Notuð í dúka
— 12. Glufa — 14. Elskar — 15. Á skipum — 18. Háspil —•
20. Gróðurblettur — 22. Sleip — 24. Hvílist — 26. Lestaroo-
ið — 28. Skemmtun — 29. Sögupersóna í Þokan rauða —>
30 Gælunafn (karlm.).
Lóðrétt: 1. Logn — 2. Hjara — 3. Gróði — 4. Ósam-
stæðir — 5. Gráni — 6. Upphafsstafir — 7. Frumefni —
9. Byggðir — 13. Lengdarmál — 16. Alþjóðasamband
(skst.) — 17. Hestur — 19. Óhreinindi — 21. Fugl — 23,
Þunnt — 25. Blekking — 27. Atviksorð.