Morgunblaðið - 06.05.2005, Side 1
2005 FÖSTUDAGUR 6. MAÍ BLAÐ C
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
KR-STRÁKARNIR URÐU DEILDABIKARMEISTARAR / C4
ÓLAFUR Ingi Skúlason, fyrirliði 21-árs lands-
liðsins í knattspyrnu, hóf í gær æfingar með
skoska úrvalsdeildarliðinu Hearts en hann
verður þar til reynslu fram á þriðjudag. Þá fer
hann til Groningen í Hollandi og verður þar í
fimm daga, en að þeim tíma loknum vilja
Feyenoord í Hollandi og ítölsku félögin Torino
og Perugia fá hann til nánari skoðunar. Ólafur
Ingi er sem kunnugt er laus allra mála hjá Ars-
enal nú í byrjun sumars. „Mér líst vel á mig hjá
Hearts það sem komið er, þetta er gott félag í
ágætri stöðu meðal 5 bestu liða Skotlands og
ekki skemmir fyrir að Edinborg er glæsileg
borg. En ég ætla fyrst og fremst að reyna að
halda öllum möguleikum opnum fram yfir leik-
ina með 21-árs landsliðinu í júní. Ef einhver til-
boð koma á þeim tíma þá skoða ég þau vel,“
sagði Ólafur Ingi við Morgunblaðið í gær.
Ólafur Ingi æfir
með Hearts
Við lékum frábæra vörn og Birk-ir Ívar var rosalega sterkur í
markinu og þetta tvennt er auðvit-
að það sem skóp sigurinn. Við vor-
um ekki nógu sáttir við vörnina hjá
okkur í tveimur fyrri leikjunum og
ákváðum að taka hressilega á því í
kvöld og það var nákvæmlega það
sem gerðist í dag. Við vissum líka
sem var að það yrði erfitt fyrir
Eyjamenn að koma hingað eftir það
sem gerðist í öðrum leiknum þegar
við náðum að sigra. Við vorum því
ákveðnir í að brjóta þá strax,“ sagði
Páll sem verður áfram með Hauka-
liðið en þrír af burðarásum þess
fara í atvinnumennsku og verða því
ekki með á næsta ári.
„Já, já, ég losna við þrjá leik-
menn,“ sagði Páll hlæjandi. „Það er
ekkert farið að athuga með leik-
mannamál hjá okkur ennþá. Við
þurfum auðvitað að fá einhverja í
staðinn og menn hafa aðeins hugs-
að það, en það er ekkert farið að
gera. Nú tökum við smá pásu þann-
ig að ég komist í eitt golfmót í það
minnsta!
Við æfum eitthvað áfram enda
einhverjir leikmenn hjá mér í
landsliðinu sem fer til Færeyja og
við aðstoðum þá við að halda sér í
æfingu. Síðan tekur eitt við af öðru
hjá okkur fram að næsta móti,“
sagði Páll Ólafsson og sagði alveg á
hreinu að hann færi í golf strax um
helgina.
Morgunblaðið/Árni TorfasonHaukar urðu í gærkvöld Íslandsmeistarar í handknattleik karla þriðja árið í röð og í fimmta skiptið á
sex árum. Ásgeir Örn Hallgrímsson var atkvæðamestur í liði Hauka en þetta var kveðjuleikur hans
þar sem hann er á leið í atvinnumennsku í Þýskalandi og hér fagnar hann ásamt félögum sínum.
„Við vorum gríðar-
lega einbeittir“
■ Haukar eru…/C2
„MENN mættu gríðarlega einbeittir til leiks og ég fann bara um leið
og við komum inn í klefa fyrir leik að menn voru ákveðnir í að fagna
Íslandsmeistaratitlinum. Baráttan og einbeitingin skein úr aug-
unum á þeim og ég þurfti ekki að hafa neinar áhyggjur – þurfti ekki
einu sinni að tala við þá,“ sagði Páll Ólafsson, þjálfari Hauka, en
neitaði því samt að þetta hefði verið rólegt. „Nei, þetta var ekkert
rólegt, en ég hafði aldrei áhyggjur,“ sagði hann og þurrkaði af sér
svitann eftir sigurinn á ÍBV, 28:24 að Ásvöllum í gærkvöldi.
Eftir Skúla Unnar Sveinsson
skuli@mbl.is
Haukar fögnuðu Íslandsmeistaratitlinum þriðja árið í röð
ÅRHUS GF sigraði GOG,
38:35, í öðrum leik liðanna í
undanúrslitunum um danska
meistaratitilinn í handknatt-
leik karla í gær og vann þar
með einvígið gegn fráfarandi
meisturunum, 2:0. Með sigrin-
um tryggði Århus GF sér jafn-
framt sæti í Meistaradeild
Evrópu næsta vetur en þar
leika tvö dönsk lið.
Eins og áður var það Róbert
Gunnarsson, fyrirliði Århus
GF, sem skoraði flest mörkin
fyrir lið sitt, eða alls ellefu
mörk. Sturla Ásgeirsson náði
aftur á móti ekki að skora að
þessu sinni. Århus GF mætir
deildarmeisturum Kolding í
úrslitarimmunni um
Danmerkurmeistaratitilinn,
en Kolding fagnaði sigri á úti-
velli í gær gegn Viborg, 37:35,
og vann einvígið 2:0.
Róbert skor-
aði ellefu
fyrir Århus
SKAGAMENN hafa komist að sam-
komulagi við serbneska knatt-
spyrnumanninn Igor Pesic um að
hann leiki með þeim í sumar. Pesic
er 24 ára miðjumaður og lék síðast
með Borac Cacak í serbnesku úr-
valsdeildinni. Hann hefur æft með
Skagamönnum að undanförnu og
lék með þeim gegn Víkingi Reykja-
vík í gær en ÍA vann æfingaleik lið-
anna, 3:0, á grassvæðinu á Akra-
nesi. Hafþór Vilhjálmsson, Andri
Júlíusson og Þorsteinn Gíslason
skoruðu mörkin.
„Við eigum eftir að ganga end-
anlega frá félagaskiptunum og þau
verða vonandi í höfn í síðasta lagi á
mánudag. Þá reikna ég með að við
séum með okkar lið fullmótað fyrir
tímabilið, það skýrist ekki fyrr en í
júníbyrjun hvort einhverjir leik-
menn frá Reading bætast í hóp-
inn,“ sagði Eiríkur Guðmundsson,
formaður knattspyrnudeildar ÍA,
við Morgunblaðið í gær.
ÍA semur við
Igor Pesic
EYJAMENN gerðu í gær munnlegt
samkomulag við enska knatt-
spyrnumanninn Andrew Sam um
að leika með þeim í sumar. Sam
hefur stundað háskólanám í
Bandaríkjunum undanfarin ár.
Hann er 22 ára sóknarmaður og
skoraði eitt mark í sigri ÍBV, 3:1, á
Fylki á gervigrasvellinum í Árbæ í
gær en Matthew Platt og Stein-
grímur Jóhannesson gerðu hin
mörkin. „Sam hefur staðið sig
mjög vel hjá okkur. Við teljum
okkur vera einstaklega heppna
með alla okkar erlendu leikmenn,
Ian Jeffs er að spila sitt þriðja ár
og þeir Platt og James Robinson
falla mjög vel inn í okkar hóp,“
sagði Gísli Hjartarson hjá ÍBV.
Andrew Sam
leikur með ÍBV
FH-ingar hafa náð samkomulagi
við Atla Hilmarsson um að hann
taki við þjálfun karlaliðs félagsins í
handknattleik. Atli skrifar undir
samning við FH-inga í dag og gild-
ir samningurinn til næstu þriggja
ára. Atli, sem tekur við FH-liðinu
af Árna Stefánssyni, hefur verið í
fríi frá þjálfun síðan hann hætti hjá
þýska liðinu Friesenheim en þang-
að fór hann eftir að hafa gert KA-
menn að Íslandsmeisturum vorið
2002 en Atli þjálfaði KA í fimm ár.
FH-ingar hyggjast styrkja leik-
mannahóp sinn verulega fyrir
næsta tímabil og blása til sóknar.
Atli þjálfar
FH-inga