Morgunblaðið - 06.05.2005, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 2005 C 3
ðu sér liðsmuninn vel í nyt. Vendi-
ktur leiksins var líklega mark-
la Birkis Ívars í stöðunni, 19:18,
kjölfarið skoruðu Haukar þrjú
k í röð og eftir það varð ekki aftur
ð hjá meisturunum. Þeir komust
mörkum yfir á ný og voru byrjaðir
fagna ásamt stuðningsmönnum
m löngu áður en leiktíminn var
Birkir Ívar varði eins
og berserkur
irkir Ívar Guðmundsson og Ás-
Örn Hallgrímsson fóru fyrir
kaliðinu í gær eins og oft áður á
tíðinni. Birkir sýndi allar sínu
u hliðar og varði eins og berserk-
llan tímann og Ásgeir bar sókn-
ik sinna manna uppi. Þórir Ólafs-
stóð fyrir sínu og sömu sögu er að
a um Vigni Svavarsson, hinn fei-
luga línu- og varnarmann. Hauk-
r sýndu og sönnuðu hvers megn-
þeir eru og þeir bera með réttu
mdarheitið besta handknattleiks-
landsins. Haukar urðu deildar-
starar, unnu alla sjö leiki sína í úr-
keppninni og toppuðu svo
sannarlega á réttum tíma eins og
góðu liði sæmir.
Eyjamenn geta borið
höfuðið hátt
Eyjamenn þurfa svo sannarlega
ekkert að skammast sín. Þeirra
frammistaða á tímabilinu var frábær
og þeir geta borið höfuðið hátt. Í
fyrstu tveimur úrslitaleikjunum mátti
engu muna að þeir færu með sigur af
hólmi en í gær virtist eins og þeir
hefðu ekki trú á verkefninu. Tite Ka-
landadze, hin magnaða stórskytta
ÍBV, mátti ekki við margnum en í
hvert skipti sem hann reyndi að at-
hafna sig stukku tveir til þrír varn-
armenn Hauka og þegar honum tókst
ekki að koma boltanum á markið var
enginn af útileikmönnunum sem tók
af skarið. Robert Bognar átti afleitan
leik, Sigurður Ari var slakur og enn
einn lykilmaðurinn í liði ÍBV, Roland
Eradze, náði sér ekki á strik í mark-
inu. Þetta var of stór biti fyrir Eyja-
menn en þeirra langbesti maður í gær
var línumaðurinn Svavar Vignisson
og þá átti Björgvin Rúnarsson góða
innkomu í seinni hálfleik. ÍBV er
spútniklið ársins og silfurverðlaun á
Íslandsmótinu er mikið afrek hjá liði
sem hefur átt á brattann að sækja og
hefur nær undantekningalaust þurft
að skipta um marga leikmenn eftir
hvert tímabil.
GILBERT Arenas tryggði í fyrri-
nótt Washington Wizards 112:110
sigur á Chicago Bulls með því að
skora tveggja stiga körfu um leið
og flautan gall. Washington er þar
með komið með vænlega stöðu, er
3-2 yfir og næsti leikur er á þeirra
heimavelli. „Mann dreymir um
svona körfu þegar maður er strák-
ur og loksins þegar tækifærið gefst
lætur maður það sér ekki úr hendi
sleppa,“ sagði Arenas eftir leikinn.
Washington náði 22 stiga forystu
en Chicago náði að jafna 110:110
þegar Jannero Pargo skoraði
þriggja stiga körfu þegar 5,2 sek-
úndur vour eftir. Þetta var þriðja
þriggja stiga karfa Pargo í fjórða
leikhluta. Washington tók tíma,
Arsenas fékk boltann, fór með
hann aðeins yfir á vinstri vænginn
rétt utan vítateigsins og skoraði
um leið og flautan gall.
„Þetta var erfitt skot sem hann
tók og ég reyndi eins og ég gat að
verjast því án þess þó að brjóta á
honum,“ sagði Kirk Hinrich, sem
gætti Arenas.
Chicago virðist því á leið út úr
úrslitakeppninni, en þetta er í
fyrsta sinn sem liðið kemst þangað
síðan Michael Jordan vann sinn
sjötta og síðasta NBA titil með lið-
inu.
San Antonio Spurs vann Denver
99:89 og rimmuna því 4-1 og er
komið í næstu umferð þar sem liðið
mætir Seattle. Spurs tapaði fyrsta
leiknum fyrir Denver en vann
næstu fjóra og er komið áfram.
Arenas var hetja
Washington Wizards
KEFLVÍKINGURINN Haraldur Freyr Guð-
mundsson skoraði sitt fyrsta mark í norsku úr-
valsdeildinni í gær. Nýliðar Aalesund fengu
óskabyrjun gegn hinu sterka liði Vålerenga í
Ósló þegar Haraldur skoraði beint úr auka-
spyrnu strax á 2. mínútu leiksins. Hann þrum-
aði boltanum í markið af 25 metra færi, með
viðkomu í varnarmanni, þannig að Árni Gautur
Arason í marki Vålerenga fékk ekki við neitt
ráðið. En félagar Árna Gauts svöruðu þrívegis,
sigruðu 3:1, og náðu með því forystunni í deild-
inni með 12 stig eftir fimm leiki.
Meistararnir í Rosenborg skutu nýliða Start
af toppnum með öruggum sigri í Þrándheimi,
3:0. Jóhannes Harðarson var í liði Start en var
skipt af velli á 62. mínútu.
Stefán Gíslason lék allan leikinn með Lyn og
Hannes Þ. Sigurðsson síðustu 15 mínúturnar
með Viking þegar lið þeirra gerðu markalaust
jafntefli í Stavanger.
Ólafur Örn Bjarnason lék allan leikinn með
Brann og Kristján Örn Sigurðsson síðustu 15
mínúturnar þegar lið þeirra tapaði á heima-
velli, 2:3, fyrir Bodö/Glimt.
Veigar Páll Gunnarsson náði ekki að skora
þegar Stabæk gerði markalaust jafntefli við
Moss á útivelli í 1. deild. Stabæk er á toppi
deildarinnar ásamt Bryne og Sandefjord með
11 stig eftir fimm umferðir. Veigar er annar
markahæsti leikmaður deildarinnar með þrjú
mörk.
Haraldur skoraði
hjá Árna Gauti
CSKA Moskva og Sporting Lissabon mætast í
úrslitaleik UEFA-bikarsins í knattspyrnu þann
18. maí. CSKA varð aðeins annað rússneska lið-
ið í sögunni og það fyrsta í 33 ár til að komast í
úrslit í Evrópukeppni þegar Rússarnir unnu
sannfærandi sigur á Parma frá Ítalíu, 3:0. Bras-
ilíumaðurinn Daniel Carvalho skoraði tvö
marka Moskvuliðsins.
Mikil dramatík var í Alkmaar í Hollandi, sem
hafði tapað 2:1 fyrir Sporting í Portúgal.
Alkmaar, sem aðeins getur tekið við 8.600
áhorfendum á heimavöll sinn, var yfir, 2:1, eftir
venjulegan leiktíma og komst í 3:1 í framleng-
ingu. En á lokasekúndunum skoraði Angelo
Miguel Garcia fyrir Sporting, lokatölur urðu
3:2, og þar með komust Portúgalirnir í úrslita-
leikinn á mörkunum sem þeir gerðu á útivelli.
CSKA og Sporting
í úrslitaleikinn
LÁRUS Jónsson, körfuknattleiksmaður, sem
lék með KR í vetur, er genginn til liðs við
Fjölni. Frá þessu var greint á vef KR í gær.
Lárus er frá Hveragerði og lék með Hamri um
árabil þar til hann fór yfir til KR-inga fyrir síð-
asta tímabil. Hann er leikstjórnandi og skoraði
að meðaltali 7,2 stig og átti 6 stoðsendingar í
leik með Vesturbæjarliðinu á nýliðnu tímabili.
Lárus til Fjölnis
Morgunblaðið/Árni Torfason
num liðsins þegar Íslands-
með á nótunum.
eru
stir
!"
#$
%$
&
#'(
( ()
ANTAL Lörinc, ungverskur knattspyrnumað-
ur, er kominn til KA-manna og verður þar til
reynslu næstu dagana. Lörinc er 33 ára varn-
armaður með mikla reynslu, samkvæmt vef KA
hefur hann leikið 278 leiki í efstu deild í heima-
landi sínu. Þar hefur hann spilað með Kispest-
Honvéd, Ferencváros, Videoton, Gázszer og
Pécsi og einnig hefur hann leikið með finnsku
liðunum Jazz Pori og Kotkan TP. Með KA leika
tveir aðrir Ungverjar, markvörðurinn Sándor
Matus og varnarmaðurinn Sándor Zoltán For-
izs sem kom til liðsins frá Leiftri/Dalvík í vetur.
Þriðji Ungverjinn
er kominn til KA
ÞRÍR leikir unnust hjá íslensku liðinum á Norð-
urlandamóti unglinga í körfuknattleik í Svíþjóð
í gær. Eldra stúlknaliðið lagði Dani að velli
82:65. Pálína Gunnlaugsdóttir fór á kostum í
leiknum og setti 24 stig.
Bæði drengjaliðin unnu – yngra liðið lagði
Svía 65:61 og gerðu Hjörtur Hrafn Einarsson
og Þröstur Jóhannsson 20 stig hvor.
Eldra liðið vann Norðmenn 76:68 og voru
þeir Brynjar Þór Björnsson og Ólafur Torfason
stigahæstir, með 16 stig hvor.
16 ára lið stúlkna tapaði sínum leik, 75:42,
gegn Dönum.
Þrír sigrar í Svíþjóð
ÍÞRÓTTIR
Sumir hafa sagt að Haukarhefðu verið heppnir að vera
2:0 yfir eftir tvo hörkuleiki við
Eyjamenn þar sem sigurinn lentu
Haukamegin í báðum tilvikum.
„Menn skapa sér sína heppni. Það
eru bara þeir sem tapa sem tala um
heppni hjá hinu liðinu en það var
engin heppni í þessu hjá okkur
núna í kvöld.
Að koma hingað á Ásvelli og vera
2:0 en ætla sér að vinna er auðvitað
hámark bjartsýninnar og ekkert
annað. Það er ekki hægt! Við erum
búnir að vera bestir í vetur og það
sýna titlarnir. Vörnin var frábær og
Birkir Ívar þar fyrir aftan. Sóknin
var ekkert sérstök en við gerðum
það sem þurfti þar,“ sagði Ásgeir
Örn, sem sagðist hlakka til atvinnu-
mennskunnar hjá Lemgo í Þýska-
landi. „Þar verður maður að láta
sig hafa það að spila með FH-ingi!“
sagði hann en Logi Geirsson er á
mála hjá Lemgo.
„Ég var mjög vel stemmdur og
náði mér vel á strik í markinu, enda
var vörnin fyrir framan mig mjög
góð,“ sagði Birkir Ívar Guðmunds-
son markvörður sem átti stórleik.
„Við vorum sterkari, vorum í smá
basli í sókninni framan af leik en
mér fannst þetta bara spurning um
hvenær þeir brotnuðu – ekki hvort.
Ég sagði fyrir þennan leik að það
gæti vel farið þannig að Eyjamenn
næðu að vinna 3-2. Liðin eru áþekk
og í rauninni getur allt gerst þegar
þannig leikir eru. Fyrstu tveir leik-
irnir féllu okkar megin enda er
gríðarleg reynsla hjá liðinu þó það
sé ungt,“ sagði Birkir Ívar.
„Við vorum búnir að ákveða að
kveðja liðið með titli þannig að það
kom ekkert annað til greina en að
vinna í kvöld,“ sagði Þórir Ólafsson
hornamaður sem verður atvinnu-
maður í Þýskalandi næsta vetur
líkt og Ásgeir Örn og Vignir Svav-
arsson línumaður. Þess má til gam-
ans geta hér að þeir þremenningar
gerðu 10 af 13 mörkum Hauka í
fyrri hálfleik.
„Menn voru alveg ákveðnir að
leyfa Eyjamönnum ekki að komast
inn í leikinn, það sást á vörninni hjá
okkur í fyrri hálfleiknum og hvern-
ig menn voru ákveðnir í að fara
ekki aftur til Eyja. Fyrst við unn-
um hina tvö leikina kom ekki annað
til greina en sigur í kvöld. Það er
erfitt að fara til Eyja og við hefðum
getað tapað þar og staðan þá orðin
2:2. Við vildum það ekki,“ sagði
Þórir.
Vart hægt
að hugsa
sér betri
kveðjuleik
ÞAÐ er vart hægt að hugsa sér betri loka- og kveðjuleik,“ sagði
Áseir Örn Hallgrímssson skytta í liði Hauka sem heldur í atvinnu-
mennsku í sumar og kvaddi því félagið í gær – í bili altént. „Það var
aldrei spurning hvernig þessi leikur færi – við vorum alveg harð-
ákveðnir í að vinna,“ sagði Ásgeir Örn.
Eftir Skúla Unnar Sveinsson
skuli@mbl.is
NORÐURLANDAMÓTIÐ í júdó
verður haldið í TBR-húsinu í
Reykjavík á morgun, laugardag.
Keppendur eru 115 frá öllum Norð-
urlöndunum og þar af eru um 40 Ís-
lendingar. Keppni fullorðinna hefst
klukkan 10 að morgni og úrslit
hefjast klukkan 16. Í framhaldi af
mótinu verða æfingabúðir á vegum
Júdósambands Íslands og gesta-
þjálfarar þar verða Kenzo Nakam-
ura og Daniel Lascau, fyrrverandi
heims- og ólympíumeistarar.
Norðurlanda-
mótið í júdó
BIRGIR Leifur Hafþórsson, kylf-
ingur úr GKG, lék á einu höggi yf-
ir pari vallarins á sínu fyrsta móti
á evrópsku mótaröðinni í gær, en
keppt er á Ítalíu. Birgir Leifur lék
fyrri níu holurnar á tveimur högg-
um yfir pari, fékk síðan fugl á tí-
undu holu og par það sem eftir
var. Ekki náðist að ljúka leik í
gær vegna veðurs og því eiga
nokkrir eftir að klára en Birgir
Leifur er í 85.-107. sæti af 155
keppendum.
Birgir Leifur
byrjar ágætlega