Mánudagsblaðið - 13.02.1956, Side 8
QR EINU I ANNAB
100 ára fæðingarafmæli Shaw — Ljósaaugiýs-
ingar — Hýmæli „Skyrfunnar'" — Undiriíún-
íngur konungskomunnar - Er þefla konan ...
Gott væri að vita hvort ekki sé í ráði að halda há-
tíðlegt hér á landi eitt hundrað ára fæðingárár írska
skáldsins Bernhards Sliaw, en hann fæddist í Dublin ár-
ið 1856. Væri tilvalið að forustumenn í íslenzkum leik-
listarmálum og bókmenntum minntust skáldsins til-
hlýðilega, t. d. með leiksýningu og upplestri úr verkum
hans og ætti Þjóðleikhúsið að hafa forgöngu um leik-
sýninguna en útvarpið um upplesturinn.
Þetta er aðeins uppástunga.
Reykjavík er óðum að fá á sig heimsborgarblæ
a. m. k. að ytra útliti, og er það vel. Að kvöldlagi verður
mörgum vegfaranda um miðbæinn litið upp á gafl
Reykjavíkurapóteks, en þar blasa við í ljósum og litum
skreyttar auglýsingar frá fjölmörgum fyrirtækjum.
Lýsir þetta upp miðbæinn og bætir úr liinni eilífu
dimmu jafnframt því, sem þarna eru auglýstar ýmis-
konar vörur. Forgöngumaður í þessum nýju auglýs-
ingum er Ólafur G. Hallgrímsson, forstjóri, og á hann
þakkið skilið fyrir nýmælið.
j ★------------------;-------
Húsmæður og þá líka skyrtufrekir eiginmeim geta
nú rekið upp fagnaðaróp. í höfuðborginni er nú til
starfa tekin þvottastofan SKYRTAN, og eins og nafn-
ið bendir á hreinsar það skyrtur og auk þess sloppa,
en ekki annað. Fyrirtækið lætur sækja heim skyrtur,
þvær og straujar, festir á tölur etc. og sendir allt heim
daginn eftir í eellofan-pappínis. Er þetta hið bezta
nýmæli i þessum efnum og mun eflaust koma mörg-
um vel ekki sízt þegar að er gáð að „Skyrtan" þvær
ódýrar en hliðstæð fyrirtæki.
★-------------------------
Friðrik komuigur og drottning hans af Danaveldi
mun nú heimsækja ísland eftir skamma stund og býst
hið opinbera nú í ákafa undir að taka á móti hinum
tignu gestum á virðulegasta hátt. Ráðherrabústaður-
imi er nú í allsherjarviðgerð og endurskoðun — Hótel
Borg þvegin og pússuð eftir föngum — og Þjóðleik-
húsið mun hafa í huga að pússa upp á óperuna Cavall-
eria Rusticana til þess að sýna þeirra hátignum vora
andlegu mennt. Er það nú vor bezta ósk, að landið
skrýðist hátíðabúningi þá daga, sem konungshjónin
og fylgdarlið þeirra standa hér við.
★-------------------------
Dr. jiu-is. Hafþór Guðnnuidsson er allra manna
samvizkusamastur og vill að allt sé rétt sem hann
hefur um að sjá. Þegar kosið var um skilnaðinn við
Dani þótti hlýða að þeir, sem sjúkir væm fengju að
kjósa líka og voru fulltrúar frá kjörstjórn á sífelldum
ferðum til rúmliggjandi kjósenda, og var dr. Hafþór
meðal fulltrúanna. Seint um kvöldið fór dr. Hafþór
til dr. Sigurðar Nordals, nú sendiherra, sem þá var
sjúkur og hafði kjörseðil með. Dr. Sigurður lá í rúmi
og kona hans, því áliðið var. Er dr. Sigurður hafði
j kosið, tók dr. Hafþór við seðlinum, innsiglaði hann,
sneri sér að Sigurði og segir hálf-spyrjandi:
„Og þetta mun vera konan yðar, er ekki svo?“
4 «
Hvað á að gera í hvöltl?
Mmynddfiús:
Gíunla bíó: Ekki er ein báran stök. Farley Granger. Kl. 5,7,9.
Nýja bíó: Falsljómi frægðarinnar. James Gagney. Kl. 5, 7, 9.
Tjamarbíó: Hafmærin. Giynis Johns. Kl. 5, 7, 9.
ÁuSturbæjarbíó: Shanghai-múrinn. Edmond O’Brien. Kl. 5,
7 og 9.
Stjörnubíó: Salome. Rita Hayworth. Kl. 5, 7 og 9.
Mafnavbíó: Ást, sem tortímir. José Ferrer. Kl. 5, 7 og 9.
Tripolibíó: Forboðnir ávextir. Fernandel. Kl. 5, 7 og 9.
iÞjóðieikhúsið: Jónsmessudraumur. Rúrik Haraldsson. Kl. 20.
Iðnó: Galdra-Loftur. Gísli Halldórsson. Kl. 20.
Mánudagsblaðið
t-
Fernandel og' Francoius AmoUl í „Forboðnir ávextir.
Sérlega góð mynd í
Iripoiibíói.
Um þessar mundir sýnir Tri-
polibíó franska mynd, sem
eflaust mun vekja athygli og
aðdáun áhorfenda. Myndin
nefnist „Forboðnir ávextir“
(Le fruit defendu) og fjallar
um hjúskaparböl hjá manni,
sem þrejdtur er á ráðríki
konu sinnar og glepst út í að
verða ástfanginn af annarri
stúlku, migri og jafnvel fal-
legri, —fær óseðjandi ást til
hennar og hefst þar með sorg-
arleikur hjónabandsins —
sem ýmsum mun finnast
næsta nýstárlegur.
Mynd þessi mun vekja
margan eigirnnanninn til um-
hugsunar og ekki siður sýna
eiginkonunni fram á, að
þeirra er sízt einræðið í hjú-
skaparefnum, enda sýnir
myndin glöggt hversu fer hjá
þeim.
Aðalhlutverkið ieikur hinm
nafnkunni og vmsæli leikaii
Femandel, sem allir kannast
V
við úr hlutverki Don Camillo
svo og Topas, sem hér var
leikið, og er leikur hans frá-
bær. Þá ber og að minnast
Francoise Amoul, sem einn-
ig gerir hlutverki sínu beztu
skil.
Meðleikendur fara allir
mjög vel með hlutverk sm og
setja sennilegan blæ á heild-
ina.
Það er óhætt að f ullyrða, að
þessi mynd, Forboðnir ávext-
ir, er með meiri listaverkum, _
sem hér hafa sést á hvíta lér-
eftinu. A. B.
H afnarfj. lögreglan
Úrill lögregla c
Framhald af 1. síðu.
Mánudagsbiaðið átti tal við
vaktstjój’a lögreglu Hafnar-
f jarðar um þetta mál klukk-
an 4:55 e.h. s.l. laugardag.
Sagði hann frásögn blaðsins
rétta. Svo spurði þessi full-
trúi hversvegna blaðið spyrði
um atburð þennan og þegar
svarað var að hann yrði birt-
ur svaraði lögregluþjónninn:
— „Nei — nei ég segi yður
ekkert — þér hafið verið svo
dónalegur við okkur“.
Blaðinu leiðist að hafa ver-
ið dónalegt við lögregluyfir-
völd Hafnarfjarðar, en spyr
hinsvegar hvort ekki sé rétt,
að einhver ábyrguú maður
stjómi handtökum þar syðra
— í stað taugaveikra fanta,
sem allt halda sér fært í skjóli
einkennisbúningsins ?
A söngskránni næstkom-
andi miðvikudag verður meðal
annas aríur eftir Halevy,
Gyðingastúlkan, og Verdi,
Othello. Þá syngur Ketill lög
eftir íslenzku tónskáldin Emil
Thoroddsen, Þórarinn Jóns-
son, Sigfús Einarsson og
Árna Bjömsson en önnur við-
fangsefni eru eftir Scarlatti,
Handel, Tosti og Denza,
Ketíll Jensson beldur söngskemmbin
íslenzk og eriend lög á söngskrá
Næstkomandi miðvikudag efnir Ketill Jensson, tenór,
til söngskemmtunar í Gamla biói kl. 7.15 síðdegis.
Ketill Jensson, söngvari, er nú orðirm landsþekktur fyrir
söng sinn bæði af þeim konsertum, sem hann sjálfur hefur
haldið, auk þess sem hann hefur sungið á skemmtmium víða
um landið og leikið í óperum hér við Þjóðleikhúsið.
Ketill hefur um langt skeið
stundað söngnám í landi
söngsins, Italíu, nánar tiltekið
Milano, en þar var hann m. a.
undir handleiðslu hins kunna
.kennara Mo Gallo, sem er
mjög þekktur kennari í söng
í Milano. Skömmu fyrir jólin
kom Ketill heim frá námi og
hefur undirbúið söngskemmt-
un sína síðan. KetUl hélt hér
söngskemmtun árið 1953
síðast og hlaut ágætar
undirtektir.
1 , : ifwi 1 - •? < úi, •’. / HH f 11
“ H’ í Í $
I \Jm' j y*, J: ISNir 1 : jmgKlZÍ
jg&f :
I»ýzkar kvikmyndir hafa nú mjög rutt sér til rúms í lieiminum. Myndin sýnir atriði úr myndinni „Hest-
(Birt án ábyrgðar)
ar föður míns“, sem nú verður bráðlega sýnd.