Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 14.01.1957, Side 3

Mánudagsblaðið - 14.01.1957, Side 3
Mánudagur 14. janúar 1957 mánudagsblaðið i Jóns Reykvíkings Sfugu megin við göfuna Munnvafnsleysi Með nýjum ósiðum koma líka nýir herrar. Nokkrir af þeim eru þegar komnir, en fleiri eiga þó eftir að koma. Margir árgangar af soltnum krötmn og valda- hungruðum kommúnistum ryðjast nú á jöturnar. Fyrsta jatan — sem nú er verið að raða á, er á Skólavörðustíg, beint á móti tugthúsinu. Þar eru ýmsir af þessum nýju herr- um setztir að — öfugu megin við götmia. Er fyrst að nefna hinn gamla með- hjálpara Sigurðar Jónas- sonar úr olíuSvindlinu, Pétur Pétursson. Pétur hrökklaðist á sínum tíma úr embætti verðgæzlustjóra eftir fylgilagið við Sigurð Jónasson, en það var allt í lagi, þ\á Pétur hafði opna stöðu í Landssmiðjunni, og svo hafði hann nýtt og fal- legt hús í smíðmn. Hann hafði því í nóg hús að venda — bæði í einum og öðrum skilningi. En Pétri líkaði samt ekki sitt hlut- skipti. Og nú er dagur hefndarinnar runninn upp. Hann er aftur setztur að — öfugumegin við götuna. Fyrsta þrepið í stiganum var að ná í hræðslubanda- lagsuppbótarþingsæti á Snæfellsnesi fyrir krata. Næst var svo að pota sé’r aftur upp á Skólavörðustíg — hægra megin þegar gengið er upp, en auðvitað vinstra megin, þegar geng- ið er niður. Pétur þekkt- ist áður fyrst og fremst af því, sem hann vaurækti að gera. Það er líka hægt að fara þá Ieiðina. En nú ætl- ar hann sér sjálfsagt að slá sér upp á hvoru tveggja. Svo er Guðmund- ur Hjjjartarson, kommún- isti.. Hann er gamall kommaspekúlant og „verk- lýðssinni". Hann er stór og feitur rumur, bólginn og breiður, minnir á stóran rassvasa — rassvasa, sem er troðinn út með vel fylltu seðlaveski, enda lief- uð Guðmundur oft fundið þessa tilfinningu, sem hon- um finnst svo þægileg — þegar Manunon gælir við hann aftanverðan. Nú fær Guðmundur sín fyrstu met- orð utan verkalýðshreyf- íngarinnar, þar sem hann er búinn að berjast við ístrvma árangurslaust, um mörg ár. Svo er Kristján Gíslason, hiim nýi verðgæzlustjóri, sem var iramkvæmda- stjóri Alþýðubandalagsins í sumar. Þessum manni verður bezt iýst með einu orði — verkfæri. En svo eru allir hinir, sem eiga eftir að koma. Það vejrða feitir bitar í bankanefndinni. Hver veit, nema að einn vænn blóð- mörskeppur renni ofan í Friðfinn Ólafsson, en Frið- finnur breytist sjálfsagt ekki mikið við það. Og svo er nefndin, sem á að stjórna útflutningnum. — Það er ekki mikið orðið eftir af munnvatni — sér- staklega hjá mörgum ki'ötum, endja var sú á- stæðan að þá brást kjark til að henda kommúnistum út úr ríkisstjórninni nú í liaust. Hvað geta meim gert mgð svo þurran munn og kverkar? AIls ekki hróp að — en sá maður, sein ekki getur hrópað, vegna þess að timga hans er skrælnuð, hann er mátt- laus til alls. En svo þegar bitinn er kominn í munn- inn og saf ar velliðunariim- ar famir að streyma — þá er það orðið um seinan. Vesalings Alþýðuflokkur- inn — þetta em hans ör- lög. ig menn bjuggu, þegar Reykjavík var á unga aldri. Þar rnætti svo liafa hliðsjón af stéttum — velja t.d. gamalt embætt- ismannshús, hús iðnaðar- manns, verkamanna o. s. frv. Svo þyrfti að halda til haga húsgögnum og bús- munum, eins og þau gerð- ust áður en rafmagnsöldin komst í algleyming. Slík- ur byggðarreitur gæti orð- ið fagur og skrautlegur. Byggðarreitur Um daginn varð mér gengið um gamla götu hér í bænum. Þar gat að líta sömu gömlu húsin, sem ég mundi eftir frá æsku. En á stöku stað var komið nýtt hús og ellimörkin á hinum leyndu sér ekki. Þau vora fulltrúar tíma, sem er að hverfa eða horfinn. Mér datt í hug — og það er sjálfsagt ekkert nýtt — að velja þyrfti úr nokkur „typisk“ hús hér í bænum og varðveita þau í sérstök- um byggðarreit. Þar ætti að vera gamalt verzlunar- hús, gömul íbúðarhús, sem gefa hugmynd um, hvern- ORÐSENDING frá Skattstofunni í Reykjavík Með því að mikil brögð hafa verið að því á undanförn- um árum, að framteljendur tilgreindu aðeins nafn atvinnu- veitanda á skattframtali sínu en eigi upphæð launa, er þess hér með krafizt, að launafjárhæð sé jafnan tilgreind, ella verður framtal talið ófullnægjandi, og tekjur áætlaðar. Er þeim, sem notfæra ætla sér aðstoð skattstofunnar við út- fyllingu skattframtala, bent á, a ðhafa með sér fullnægjandi sundurliðun á launum sínum, svo og að sjálfsögðu aðrar nauðsynlegar upplýsingar. SKATTSTOFAN í REYKJAVÍK i -,,'M ms4§ý- 1 S -»m .11 „Dauðinn í Café Intime' Eflir Walter C. Karrigan Leynilögreglusaga í myndum 1) Með sínum unga vini, Guy Trent verkfræðingi, leitar hinn heimskunni leynilögreglumað- ur George Ready inn í hið fræga „Café Intíme“ til þess að fá sér glas. 2) Það er nýbúið að vísa þeim til borðs, þegar ungur maður með sælubros á vör, gengur fram hjá þeim og kastar kveðju á Trent. „Hver er þetta?“ spyr leynilögreglumaðurinn. 3) Joe Kennon heitir hann. Þetta er einn úr hinum stóra hóp aðdáenda leikkonunnar Evelyn Addison. „Vesalings pilturinn!" — „Hvers vegna vesalings?" — „Af því að hann er vonlaus!“ 4) „Annars var þetta aðlaðandt og fríður, ungur maður að sjá. Dálítið taugaveiklaður....“. — „En hún kærir sig ekki um hann. Það er ,annar'!“ 1) Getur Evelyn ltannske ekki fengið þennan „annan“? — „Nei, hann er kvæntur!“ svaraði Trent og í sama bili heilsar hann mjög virðulegum manni, sem situr skáhalt við þá og hefur konu sér. við hlið. 2) Þau sitja hinumegin við mið- ganginn í einskonar afkima, sem skyggður er birkitrjám. Af konunni sést aðeins önnur höndin, sem hvílir á bríkinni á hinum djúpa hægindastól, sem hún situr í. 3) „Ég spyr enn!“ sagði George Ready brosandi. „Þetta er efna- fræðingurinn og nóbelsverð- launamaðurinn Vilkins prófes- sor og konan hans“. — „Er það af feimni að hann leitar í leynd- asta afkima veitingastofunnar?" „Þarna situr hann alltaf — í fagurri einangrun!" 4) „Fóik er ailtaf öðru hverju forvitið um hagi nóbelsverð- launamanna!" sagði Ready og kinkaði kolli. — „Þetta er nú öllu heldur konunnar hans vegna. Hún er eitthvað smá- skrýtin. Er víst líka hjartveik". 1) „Þá reykir hún líklega of mikið“, sagði Ready, „höndin á henni er í helzti nánum tengsl- um við öskubakkann“. — „Já, það er einn af löstum hennar". — „Kannski ekki sá eini?“ 2) „Hún er sem sagt smáskrýt- in..... En þér hafið þá ekki heyrt um hana áður. Hún á systir, sem líka var ástfangin af prófessornum. En hún sigr- aði“. — „í krafti hvers?“ 3) „Sagt er: I krafti peninga sinna. Systir hennar er sögð hafa sóað sínum peningum á fáum árum, en Ora Wilkins hef- ur alltaf verið útsjónarsöm og hefur orðið í'íkari og riKari". 4) „Það er fyrir peningank hennar, að komið var fótunn undir hinar frægu rannsóknar- stofur hans“. — Þær elskast þá ekki, systurnar?" — „Eiginlega, ekki“, sagði Trent hlæjandi. ( i

x

Mánudagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.