Mánudagsblaðið - 22.06.1959, Qupperneq 5
Mámidagtir 22. júní 1959 MANUDAGSBUUÐIÐ
Kjördæmi 09 framboð
. Pramhald af 5. síðu
inu nú, þegar Framsókn styður
hann ekki. Að vísu á Áki fornJ
ítök í Siglfirðingum, og hann hef-
ur gert ýmislegt f>TÍr kjördæmið.
Eins og fleiri fyrrverandi komm-
únistar, sem; hafa brotið sína
guði, má Áki vara sig á því að fá
ekki kommúnistahatrið á heil-
ann. Sumir slíkir komast á það
stig, að þeir þykjast sjá skugga-
leg vélræði kommúnismans,
hvert sem litið er. Og þá getur
svo farið, að síðari villan verði
engu betri hinni fyrri.
Einar Ingimundarson ætti að
hafa góð tromp á hendinni núna.
Þó er talið óvíst, að hann nái
kosningu. Einhver urgur er í
sumum siglfirzkúm Sjálfstæðis-
mönnum út af kjördæmabreyt-
ingunni.
Ekki er óhugsandi, að Gunnar
Jóhannsson geti unnið Siglu-
fjörð nú. í kjördæmamálinu
halda kommúnistar yfirleitt sínu
liði betur saman en Sjálfstæðis-
menn. Sumir kommúnistar vildu
bjóða fram Ármann Jakobsson
bankastjóra í stað Gunnars, og
það hefði verið sterkara fram-
boð, það er anzi mikill munur á
intelligenskvóta Ármanns og
Gunnars. Svo er Ármann líka
hressilegúr maður og gengur
ekki með þennan voðalega
Weltschmerz, sem alltaf drýpur
af Gunnari Jóhannssyni.
Jón Kjartansson forstjóri Áfeng
isverzlunar ríkisins er frambjóð'
andi Framsóknar, en hann var
áður bæjarstjóri á Siglufirði.
Jón er íhaldssamur maður, og
það er eins víst, að hann kræki í
atkvæði einhverra loðinna Sjálf-
stæðismanna, sem vilja, að Siglu-
fjörður sé áfram sérstakt kjör-
dæmi. Ef Jón mætti bjóða Sigl-
firðingum nóg af vöru sinni úr
yerzluninni syðra, væri ekki að
sökum að spyrja, hver yrði kos-
jnn. En þetta má Jón ekki, hann
er stúkumaður og má ekki veita
áfengi.
EyjafjarÖarsýsla
Til eru svo bjartsýnir Fram-
.sóknarmenn, að þeir halda, að
flokkurinn fái nú bæði sætin 1
Eyjafirði. En þó að Framsókn sé
mjög sterk á þessum slóðum,
held ég tæplega, að þessi draum
Ur rætist,
Bernharð Stefánsson verður
enn fyrsti þingmaður Eyfirðinga.
Hann er kominn á áttræðisaldur,
en hefur lítið breytzt síðan hann
var um fertugt og hefur þó margt
ævintýralegt á daga hans drifið
.síðan þá. Framsóknarmenn í
Eyj'afirði lcgðu hart að Bernharð
að vera X kjöri, þvi að vitað var,
að höi-ð barátta mundi verða um
eftirmann hans. Svo á gamli mað
urinn líka rótgrónar vinsældir
í héraðinu,- sem ná langt út fyrir
xaðir Eramsóknairflokksins.. i ‘it
EnginnÝEanar .eýfirzkur Fram-
■óknarmaður á slíkum vinsæld-
iagaa, nemfl efyUl - vill
Þórarinn Eldjárn. Ýmsir siða-
postular hafa reyndar verið að
narta í Bernharð, en það hefur
ekki hrinið á honum. Jafnvel
hans veiku hliðar eru svo ramm
islenzkar, að manni þykir bara
vænna um hann fyrir þær, Bern"
harð er svo blessunarlega
mennskur.
Talsverð átök urðu um það í
Eyjafirði, hver ætti að skipa ann-
að sæti Framsóknarlistans. Svo
fór, að Garðar Ilalldórsson á Rif-
kellsstöðum hlaut hnossið. Um
Garðar hefur alltaf staðið styrr
í Eyjafirði, einnig meðal flokks-
manna. hans. Margir hinna yngri
manna vildu hafa Eddu Eiríks-
dóttur í öðru sæti, en hún hlaut
hið þriðja. Þetta kvað vera glæsi
lega gefin ung kona, og húh á
til gáfufólks að telja, úr Skaga-
firði og af Suðurlandi.
Magnús Jónsson frá Mel er
efstur á Sjálfstæðislistanum og
mun ná kosningu, þó að ef til vill
muni mjóu.
Ekki er Magnús vor gefinn fyr
ir þessa heims lystisemdir, en sú
er bót í máli, að Bernharð
skemmtir sér fyrir þá báða.
Árni Jónsson, annar maður list
ans, er á hinn bóginn enginn
meinlætamaður, eða ekki var
hann það á meðan hann dvaldist
hér sunnanlands.
Þriðji maðurinn, Vésteinn Guð-
mundsson, mun vera gamall
krati.
Bragi Sigurjónsson er nú efst
ur á lista Alþýðuflokksins í Eyja
firði, en fór síðast fram í Áustui”
Húnavatnssýslu studdur af Fram
sókn.
Bragi verður alltaf forhertur
ídealisti og mannbótamaður, við
þeim ósköpum verður ekki gert.
Efstur á lista Alþýðubandalags
ins er Tryggvi iíelgason frá Ak-
ureyri.
Við síðustu kosningar mun hafa
komið til mála, að Tryggvi færi
fram á Akureyri í stað Björns
Jónssonar, enda mundi það hafa
verið sterkara framboð. Tryggvi
er vinsæll og þaulkunnugur öllu,
er að sjávarútvegi lýtur.
Horður-Múlasýsla
í vetur var það altalað, að Páll
Zophóníasson ætlaði nú að hætta
á þingi. Hefði þá Halldór Ás-
grímsson o'rðið efstur á lista
Framsóknar, en miklar deilur
hefðu orðið um annað sætið, því
að margir voru ólmir að hljóta
það. Til að firra vandræðum Var
Páll fenginn í framboð einu
sinni enn.
Sveitafólkinu mundi líka
bregða við, ef Páll hyrfi af þingi,
því að Halldór er miklu svifa-
seinni í öllum útréttingum. -
Ekki mun hið ótrúlega minni
Páls vera neitt farið að föríast,
hann veit ekki áðéins, hvernig
hver manneskja i kjördæmihú
kýs, héldur og hváð kýriiar og
ærnar heita á bæjunum. Réyndar
einskorðuð við kjördæmi hans.
Hann er að þessu leyti líkur séra
Brynjólfi á Ólafsvöllum, móður-
bróður sínum, sem meðal annars
kunni allar aðalsættir í Evrópn
utanbókar og leiðrétti skakkar
ættfærslur í Svensk Statskalend-
er. Þegar Páll er farinn að
gleyma því, hvað forustuærin á
Arnórsstöðum heitir, á hann að
hætta þingmennsku en fyrr ekki
Halldór Ásgrímsson hefur ekki
nærri eins mikinn áhuga á kúm
og ám og Páll, en þar með er
ekki sagt, að hann sé áhugalaus
um allt kvenkyns. Halldór hefur
ástina að leiðarvísi í sínu lífi allt
frá ungling'saldri og fram yfir
sextúgt, Og víst getur verið gam-
an að elska, er það ekki, Hall-
dór?
Nú er Sveinn Jónsson á Egils-
stöðum efstur. á lista Sjálfstæðis-
flokksins, Sunnmýlingurinn er
settur fyrir ofan innanhéraðs-
menn. Sveinn er hressilegur karl,
þó að hann sé varla skörungur á
við föður sinn, Jón Bergsson.
Seydisfjörður
Því var spáð í vetur, að Björg-
vin Jónsson mundi nú falla. At-
vinnumálin á Seyðisfirði væru
komin í óefni, og honum yrði
kennt um það. Svo mundi hann
missa stuðning Alþýðuflokksins,
sem oftast hefur verið sterkari á
Seyðisfirði en Framsókn. En lík-
lega hefur Björgvin í kjördæma-
málinu fengið tromp, sem dugar.
Óvíða á landinu mun það vera
jafnmikið bg á Seyðisfirði.
Forsvarsmenn kjördæmamáls-
ins hafa haldið Seyðisfirði hátt á
loft sem grýlu, hann hefur verið
rotten borough par excellence.
Og slíkt bitur á jafnstoltaralega
lókalpatríóta og Seyðfirðingar
eru. Líklega kemst Björgvin að
á kjördæmamálinu, hvað sem öll-
um fiskiðjuverum líður.
Erlendur Björnsson sýslumað-
ur fer fram fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn. Líklega er Lárus Jó-
hannesson búinn að draga sig
alveg út úr pólitík.
Eg hef litla trú á því, að Er-
lendur komizt að.
Jónas Guðmundsson er nú aft-
ur kominn heim til sinna gömlu
beitarhúsa í Alþýðuflokknum
eftir langa eyðimerkurgöngu.'
Hann var einn af helztu foi”
ingjum Lýðveldisflokksins, sem
nú er líklega úr sögunni. Jónas
hefui’ sérkennilegar skoðanir á
flesturrr hlutum, eins og alþjóð er
kunnugt, sá heimur, sem hann lif
ir og hrærist í, er okkur hinum
lítt skiljanlegur. En hann er ham
ingjusamur í sinni trú, og það er
aðalatriðið.
Jónas mun eiga talsvert fylgi
á Seyðisfirði, sínum gömlu æsku-
slóðum, én ég hef ekki trú á, að
hann felli Björgvin.
Frambjóðandi Alþýðubandalags
ins, Baldur Böðvarsson, 'ér líÚ
þekktur ihaður. Hvers vegna
er þessl fcunn&tta PálS álís; ekkl:
ekki senda þá ágætu konu Sig
ríðl Hannesdóttur fíam aftúr.
Suður-Múlasýsla
Tekst Framsókn að fella Lúð-
vík? Þessi spurning er nú á
margra vörum.
Sennilega verður hér mjótt á
munununi, en ég held, að Lúðvík
verði kosinn. Hann hlaut mikinn
prestige við ráðherradóm sinn
og afskipti sín af landhelgismál-
inu. Og kjördæmamálið mun
ekki vera jafn biturt vopn í Suð-
ur-Múlasýslu og í litlum kjör-
dæmum.
Eysteinn Jónsson verður auð-
vitað fyrsti þingmaður Sunnmýl
inga, og hann ber auðvitað hita
og þunga kosningabaráttunnar
þar eystra.
Eysteinn er langmesti bardaga
maður Framsóknarflokksins,
harðskeyttur og viðbragðsfljótur.
Og aldrei er annað á honum að
heyra í kappræðum en að honum
sé blóðug alvara, allt er gott hjá
Framsókn, allt ómögulegt hjá hin
um.
Eg hef oft verið að velta því
fyrir mér, að hve miklu leyti
þetta er leikaraskapur og taktik
eða hvort Eysteini tekst að sefja
sjálfan sig til að trúa þessu, að
minnsta kosti í bili. En það er
erfitt að trúa þvi, að þessi flug-
gáfaði maður sjái aldrei spaugi-
legu hliðarnar við islenzka flokks
mennsku.
Vilhjálmur Hjálmarsson, þessi
meinhægi og skikkanlegi heið-
ursbúndi, á allt sitt undir Eysteini
í kosningabaráttunni. Eg er
hræddui' um, að lítið yrði úr hon-
um, ef hann ætti að mæta Lúðvík
berskjaldaður og Eysteinslaus.
Lúóvík Jósepsson er eflaus
hinn mikilhæfasti af leiðtogum
Alþýðubandalagsins.
Hann hefur flesta þá eiginleika,
sem stjórnmálaleiðtogi þarf á að
halda. Hann er harður baráttu-
maður og vel máli farinn, þó að
hann sé ekki freyðandi mælskur.
Og hann kann að semja, slá und-
an og gera kompromis, ef á þarf
að halda. Mesti styrkur Lúðvíks
er þó það, að hann hefur örugga
tilfinningu fyrir því, sem bærist
meðal fólksins, hann lagar slag-
orð sín eftir því, en reynir ekki
að þvinga fyrirfram gerðum
klisjum upp á lýðinn.
Lúðvik hefur aldrei haft neinn
verulegan áhuga á sósíalistiskri
teóríu, þeir, sem hafa verið á
námskeiðum Æskulýðsfylkingar-
innar, vita sennilega eins mikið
um marxisma og hann. Eg hugsa,
að Lúðvík langi ekkert í bylt-
ingu, enda vandséð, hver örlög
hans mundu þá verða.
En hann er þaulkunnugur hinni
praktisku pólitík og atvinnumál-
um þjóðarinnar.
Hann nýtur vinsæla út fyrir
rætur flokks síns, enda er hér eng
inn meðalmaður á ferð.
Framboð Sjálfstæðisflokksins
ei' alveg vonlaust, en vera má,
að Einar Sigurösson geri sér von
ir um þingsæti eftir kjördæmar
breytinguna.
Einar er bráðduglegur athafna
maður, en í pólitíkinni hefur
hann ekki verið við eina fjölina
felldur og daðrað til hægfi og
vinstri eins og léttlynd mærr
Á lista Alþýðuflokksins er efst
ur Oddur Sigurjónsson skóla-
stjóri í Neskaupstað.
Oddur er að eðlisfari vel greind
ur maður, en sérvitur í meira
lagi. Þó að hann sé að skamma
ungu atómskáldin, horfir hann
;reiður um öxl rétt eins og þau.
Aldrei mun það hvarfla að
Oddi, að hans skoðanir séu ekki
þær einu réttu, en allar aðrar
fyrirlitleg vitleysa.
AJAX.
SKÝRINGAR:
Lárétt: 1 Knöttur 5 1 tafli 8 Fjötrar 9 Gera brauð 10
Stjómarnefnd 11 Eldur 12 Drifin áfram 14 Nýgræðingur 15
Flakkar 18 Upphafsstafir 20 Fljót í Frakklandi 21 Verkfæri
(þf.) 22 Greinir 24 Ljóstæki 26 Ferskir 28 Friðað 29 Not-
aðar við sauma 30 Drykkjustofa.
Lóðré'tt: 1 Seglskipið 2 Skaði 3 Froða 4 Upphafsstafir- 5
Það sem kötturinn gerir þegár hann er ánægður 6 Ösanr
stæðir 7 Skákmeistari 9 Ávextir 13 Spé 16 Heimsenda 17
Góðviðri 19 Þvinga’ 21 Skógar^ýr 23 Fljót í Afríku 25^íiki$1
fiskirí 27 í fiskhjalli. : ' í:^:-