Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 07.03.1960, Side 8

Mánudagsblaðið - 07.03.1960, Side 8
OR EINU I ANNAD Bjargráðin - Vinsæll söngvari - Misrélti skálda - Bruðlað með skaulasvell - Úr blaðaheiminum - Danspar í Lido - Forsetakosningarnar Jæja, nú eru viðreisnarráðstafanir stjómarinnar farnar að segja til sín og sparnaður „flæðir“ yfir j landið. Sjoppueigendur og turnastjórar eni farnir að segja upp stúlkum og farnir að vinna sjálfir áfeamt fjölskyldum sínum við afgreiðslu. Ýmsir kaupmenn hyggja á að taka upp sömu háttu og er þetta allt j til batnaðar. j j ■< rk'; í \ \ Í I '* | 1 i - »■ Leikhúskjallarinn hefur ekki aðeins fengið fallega söngkonu heldur nýjan söngvara, sem gerir stormandi lukku einkum meðal kvenna. Sá hinn ungi maður heitir Hrafn (Mel Ferrer) Pálsson prýðissöngvari og mímikker, sem hlýtur klapp og augnaskot hvert kvöld. Allir meðlimir Leiktríósins eru ágætir, vel æfðir og skemmtilegir, ekki sízt ungfrú Svanhildur Jakobsdóttir, sem keppir stíft við Hrafn í vinsæld- um. Það er kominn tími til að söngvarar okkar og hljómsveitarmenn tapi líkfylgdarsvipnum. Gaman væri að fá skýringu á því hversvegna rithöf- undar sem skrifa skáldsögur fá 75 þús. krónur í verðlaun, en leikritahöfundar aðeins kr. 30 þúsund. — Vissulega er hér um yfirsjón að ræða, eða halda þeir að það sé minna erfiði og snilld að rita leikrit en sögu? Ef svo er þá ætti Menningarsjóður og aðrir viðkomandi aðilar að skoða hug sinn aftur. Þetta fyrirkomulag er mjög óréttlátt, einkum þar sem ríkissjóður, en ekki einkastofnun á í hlut. Gæti Geir Hallgrímsson borgarstjóri upplýst hve mikið Reykjavíkurbær sparar á því að láta Melavöll- inn reka skautasvell 600 metrum frá Tjörninni í Reykjavík? Þarna vinna ca. 10 menn við að halda við svelli á vellinum með ærnum kostnaði bæjarins þegar 2 gætu auðveldlega haldið við enn betra svelli á Tjörninni. Svona helvítis bruðl á að banna og Bitur það næst Geir að binda endi á þennan ósóma .•----------------------------- Dagbláðið Vísir er 50 ára á þessu ári og sagt að miklar breytingar séu í vændum. Gunnar Schram á að verða einn af ritstjórum blaðsins og Blaðaútgáfan Vísir h.f. hefur fest kaup á lóð neðst vife Suðurgötu þar sem byggja á yfir blaðið .... Frjáls þjóð skipti um ritstjóra um helgina. Jón Helgason hætti en Gils Guðmundsson og Jón úr Vör tóku við a. m. k. fyrst um sinn. Blaðið fékk í sama mund nýtt baráttumál — ,gjaldeyrisyfirfærslu námsmanna“, sem ríkisstjórn- in hefur réttilega skorið niður. Ef vel væri ætti nð endurskoða allt skólakerfi landsins og stöðva það bruðl, sem þar er að finna. Lido fær nýja skemmtikrafta n. k. fimmtudag, cn það er dansparið Jean and Aurel, sem nýlega lauk 6 mán. sýningu á Brooadway New York, en hefur líka sýnt í Brasilíu, París og víðar .... Þá hefur Lido framlengt samningi við ungfrú Valerie Shane um 14 daga vegna mikilla vinsælda. •---------------------------- Fjör ætlar að verða í næstu forsetakosningum. Pétur Hoffmann Salomonsson hefur nú gefið út bækl- ing — Og nú vinna smádjöflar á mér — þar sem hann lýsir baráttuaðferð andstæðinga sinna er hann j hugði á framboð í síðustu kosningum. Er þetta hressi- lega ritaður bæklingur og ekki talað utan að hlutun- um .... Þá upplýsir Alþýðublaðið að Eggert Stef- ánsson sé albúinn að taka við forsetaembættinu, sg jafnframt að Thor Thors, ambassador og Gunnar Thoroddsen, fjármálaráðherra séu ekki fráhverfir hnossinu. Væntanlega gefa allir þessir aðilar út bæklinga cins og Pétur svo að þjóðin viti hvern kjörgripinn hún á að kjósa þegar til kemur. Mánudagur 7. marz 1960. Á að Ieggja verzlunarstéttina niður? Mónudags- þankar Framhald af 3. síðu. svipaðri verkfallsöldu og þeirri, sem reið jiir 1955. Vafalaust hafa kommún- istar í Dagsbrún hug á því að koma af stað verk- föllum, en spurningin er, hvort það tekst. Vafalaust verður beðið þangað til verðhækkanirnar, sem von er á, eru komnar áð veru- legu leyti í ljós og óá- nægjan með ýmislegt far- in að magnast, og fer það þá eftir því, hvernig kaup- in gerast á eyrinni, hvort unnt verður að Íí)'a fólki út í stórkostleg verkföll. Þetta er óráðin gáta, sem framtíðin verður að Ieysa en ]jví er vafalaust hægt að slá föstu, að jarð vegur fyrir verkföll er eltki samsvarandi nú eins og hann var 1955. Rannsóknar- lögreglan Framhald af 1. síðu rétt til að vita. Það sýnir ó- venjulega hlutdrægni i garð þeirra, sem þar eru kallaðir fyr- ir. Smáþjól'ar fá engin grið, en þeir stóru eru jafnvel verndaðir frá umtali og fréttum. Dómsmálaráðherra núverandi ætti nú þegar að hefjast handa um endurskipulagningu sakadóm araembættisins. Núverandi skipu lagsleysi og menntunarleysi inn- an stofnunarinnar er að verða hættulegt. Þegar innan stofnún- arinnar sitja menn í stórum embættum, sem voga sér að fullyrða að þeir standi jafnfætis Scotland Yard og láta svona rembing, fáfræði og heimsku eftir sér í blöðunum, þá er eitt- hvað meira en litið að í stofn- uninni. Nýju verðlagsákvæðin vekja undrún og umtal, en kaupmenn og innflytjendur standa furðu losnir og vita ekki sitt rjúkandi ráð. Meðan vinstri stjórnin sál- uga fór með völd, voru gildandi hámarka(álagningarákvæði, sem vænta mátti úr þeirri átt mjög skorin við nögl, og var því stöðug barátta af hálfu verzlun arstéttarinnar að fá þau leið- rétt. Sú barátta leiddi til þess, að á árinu 1958 fékkst örlítil hækkun á hámarksálagningu í smásölu og heildsölu. (Tilkynn ing innfl. skrifst. nr. 20, 1958). Fóru þó kommarnir (Lúðvík Jósepsson) með viðskiptamálin þá. Þegar kratastjórnin var mynd uð og Gylfi Gíslason vai’ð við- skiptamálaráðherra, voru tekin 5% af. hinni naumu álagningu frá kommatíðinni, bæði í heiid- sölu og smásölu. Hélzt svo út það árið (1959) og þar til 23. febrúar s.l., að hámarksálagning var að meðaltali skoxún niður um 20% til 25% i lxeildsölu og lækkuð um sömu prósent tölur í smásölu, með tilskipun innfl. skrifst. No. 2, 1960. Rétt til að gefa dæmi um, hvernig þessi álagningarlækun lítur út í praxís hjá heilverzlun, má nefna „Heildverzl. Gylfi Gísla- son & Co.“ (sem raunar er ekki til) en hefði hún starfað 1959 og selt fyrir 10 milljónir, þá hefði brúttó ágóði orðið um 1 milljón, en eftir árið 1960 verður brúttó ágóði með sömu sölu um kr. 775.000.00. Almennt er við- urkennt af Öllum, sem nokkurn snefil hafa af þekkingu á innfl. verzlun ,að kostnaðuxlnn sé í al- minnsta lagi 10% af umsetningu enda mun jafnvel Lúðvík Jós- epsson hafa áttað sig á því, og þess vegna leyft eins og fyrr greinir örlitla leiðréttingu á há- marksálagningu í sinni ráð- herratíð. Ef við tökum smá- söluvei-zlun, sem seldi árið 1959 fyrir 2 milljónir, hefði brúttó- ágóði oi-ðuð um 400 þús. kr., en árið 1960 verður brúttóágóði af sömu umsetningu um kr. 310 þúsund. | Ái'in 1953 og 1959 voru síður en svo hagstæð fyrir verzlunar- stéttina, enda vart við því að búast undir þeim stjórnarherr- unum Hermanni (1958) og Emil (1959). Hins vegar hefðu xnenn ekki ætlað að óreyndu, að það yrði þrengt að kosti vei'zlunar- stéttai'innar er við stjórnartaum unum tæki Ölafur Thors. Nú hefur þó það skeð, að með éinni lílilli tilskipun dags. 23. febrúar 1960 er af verzlunarfyrirtækjum tekinn nálega fjórði partur af þeirra brúttó tekjum, og er þá þó miðað við sömu umsetningu og fyrr, en hún hlýtur að minnka að krónutali vegna mink andi kaupgetu. Mér vérður á að spyi-ja: Er það til þess verks, sem rnikill hluti vei’zlunarstéttar innar hefur fylgt Sjálfstæðis fl. í gegnum þykkt og þunnt und- farna ái'atugi? Margt má um þetta segja fleira, en þeir, sem við frjálsa verzlun hafa fengizt, fá ekki þetur séð, en að hér séu stjórn- arvöldin vívsitandi að drepa nið ur allt einkaframtak í verzlun ,og viðskiptum. • * : Kaupsýslumaður. Ræningjarnir Kasper - Jesper og Jónalan Þessi teiknimynd er eftir Halldór Pétursson o°' er af hinum vinsælu ræningjum Kasper — Jesper og Jónatan úr leikritinu „Kardemommubærinn,“ sem Þjóðleikhúsið sýnir við mikla hrifningu hjá ungu kynslóðinni. Leikritið hefur nú verið sýnt 24 sinnum á röskum mánuði og ávallt fyrir fullu húsi. Ræningjarnir eru leiknir af Ævari R. Kvar- an, Baldvini Halldórssyni og Bessa Bjarnasyni.

x

Mánudagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.