Morgunblaðið - 28.05.2005, Blaðsíða 39
Lifun
40
matur
40 lifun
sneidd steik á salati með grillaðri
papriku og parmesan
Þunnt sneitt nautakjöt, í ætt við carpaccio, en
grillað eða steikt sem þýðir að fleiri geta borðað!
Borið fram í ferskasta salatinu og með grilluðum
paprikum sem eru ótrúlegar. Góður réttur á hlaðborð
eða þegar margir koma saman.
750 g nautakjöt að eigin vali, penslað með ólífuolíu
salt og pipar
3 msk ólífuolía
2-3 msk sítrónusafi
3 rauðar paprikur, skornar í báta
3 hvítlauksrif, fínt sneidd
75 g rifinn parmesanostur
2 msk balsamedik
60 g brauðteningar eða 3-4 sneiðar af skorpulausu brauði,
skornar í teninga
klettasalat, blandað salat
Setjið papriku og hvítlauk í ofnfast mót, hellið smá olíu yfir og grillið í
180 gráða heitum ofni í 30-40 mín. Takið úr ofninum og dreypið
balsamedikinu yfir. Steikið eða grillið kjötið, í heilum bita, um 5-6 mín.
á hvorri hlið er medium-rare, saltið og piprið. Takið af pönnunni og
látið standa í um 30 mín. áður en kjötið er skorið í þunnar sneiðar.
Hrærið saman olíu, sítrónusafa, smá salt og pipar, hellið yfir salatið og
blandið vel. Ristið brauðteninga í heitri olíu þar til gullnir. Setjið nú
salatið á disk, raðið kjötsneiðunum yfir, þá paprikunni. Hellið safanum
af henni yfir kjötið og dreifið brauðteningum og parmesan yfir. (fyrir 4
sem aðalréttur, 6-8 með fleiri réttum).
ferskt sítrónupenne með porcini-
sveppum og furuhnetum
Það verður alltaf að vera a.m.k. einn pastaréttur í
ítalskri veislu sem þessari. Hráefnið hér er eins og
púslað saman og myndar heild að lokinni eldamennsku.
300-400 g penne
2 msk smjör
2 hvítlauksrif, fínt sneidd
30 g porcini-sveppir
1 dl hvítvín
2 msk saxaðar, ferskar kryddjurtir að eigin vali
1/2 sítróna, safi og fínrifinn börkur
2 dl rjómi, einnig gott að nota sýrðan rjóma
50 g ristaðar furuhnetur
50 g parmesanostur
salt, svartur pipar eða þurrkaður chilli-belgur
Hellið 1 dl af vatni og hvítvíni í pott og látið sveppina malla á vægum
hita í 20 mín. Takið þá úr pottinum, kreistið vökvann úr og geymið.
Mýkið hvítlauk í smjöri. Setjið sveppina á pönnuna með hvítlauknum,
látið mýkjast í 5 mín. Setjið kryddjurtir saman við, salvía og ítölsk stein-
selja eru mjög góðar í þetta. Hellið 1 dl af sveppavökvanum á pönn-
una og látið sjóða upp. Hellið sítrónusafa yfir ásamt berkinum, þá
rjóma eða sýrðum rjóma. Smakkið til með salti og pipar. Mörgum gæti
þótt gott að nota smá þurrkaðan chilli-pipar en þá er best að hræra
hann saman við sveppablönduna á pönnunni áður en vökvinn er settur
saman við. Hellið yfir soðið pastað, hrærið vel, blandið furuhnetum
saman við ásamt parmesan og berið fram. (fyrir 4).