Mánudagsblaðið - 12.12.1960, Blaðsíða 5
mAnudagsblaðið
Mánudagnr 12. des 1960
i--—<—---——•——-----—-
Hliómplötur íslenzkra tóna
íslenzkir tónar hafa nú
birt plötulista sinn og er
mikið um nýjar plötur, enn-
fremur nokkuð um endurút-
gáfu.
Dægurlagaplötur.
Fyrst má nefna tvær plöt-
ur sungnar af Ragnari
BjarnaJsyni með Arvid
Sundin and his SWEDISH
ALL STARS, Arvid Sudin er
meo þekktari hljómsveitar-
stjórum Svía og í hljómsveit
hans eru aðeins úrvals hljóð-
færaleikarar. ' Lögin sem
Ragnar syngur eru: FARÐU
FRÁ og HIJN GUNNA bæði
efitr Ólaf G. Þórhallsson,
EINS OG FÓLK ER FLEST
eftir Jón Sigurðsson og
HÚN VAR MEÐ DIMMBLÁ
AUGU, en það er íslenzk
útgáfa af hinu vinsæla lagi
ITSY BITSY. Ragnar mun
væntanlega fara til Svíþjóð-
ar í marz mánuði og syngja
inn plötur fyrir sænsk fyr-
irtæki.
SIGRÚN JÖNSDÓTTIR
hefur dvalið í Noregi undan-
farið og vakið mikla eftir-
tekt fyrir afburða söng, hún
hefur sungið inn tvö lög fyr-
ir íslenzka Tóna og heita
þau AUGUSTIN og FJÓR,
IR KÁTIR ÞRESTIR, Kjell
Karlsen og hljómsveit að-
stoða.
Dansplötur.
Með vaxandi danskennslu
hefur mikill áhugi gripið um
sig meðal ýngri sem eldri á
að geta bjargað sér sæmi-
lega á dansgólfi og hafa
dansskólar verið geysimikið
sóttir. Dansskóli Hermanns
Ragnars og Islenzkir Tónar
hafa tekið. höndum saman
um útgáfu á tveimur dans-
plötum sú fyrri er með
barnadönsum og barna-
söngvum, barnakór syngur
með tríói MAGNÚSAR PET-
URSSONAR 11 bamadansa
og barnasöngva. Seinni plat-
an er með samkvæmisdöns-
um, kvartett Magnúsar Pét-
urssonar leikur 11 danslög,
flest íslenzk. Plötum þessum
hefur verið mjög vel tekið
enda bætt úr brýnni þörf.
Bamaplötur.
Stærsta verkefni íslenzkra
Tóna á þessu ári var upp-
takan á KARDEMOMMU-
BÆNUM, en sú plata hefur
verið óskaplata barnanna,
hún hefur verið uppseld að
undanförnu, en er um það
bil að koma aftur. MJALL-
HVÍT OG DVERGARNIR
SJÖ er annað verkefni Is-
lenzkra Tóna á þessu sama
sviði, leikstjóri og sögumað-
ur er Róbert Arnfinnsson,
Mjallhvíti leikur Kristín
Anna Þórarinsdóttir, prins-(
inn: Steindór Hjörleifs- j
son, drottninguna: Guðbjörg
Þorbjarnardóttir, spegilinn:
Sigríður Hagalín, og dverg-
ana leika þeir Rúrik Har-
aldsson, Jón Sigurbjörns-
son og Árni Tryggvason,
tónlistin er eftir Maj Sön-
stevold og leikur hljómsveit
hennar og Jóns Sigurðsson-
ar í leikritinu, en Ríkisút-
varpið annaðist upptökurn-
ar. SOFFÍA og ANNA
SIGGA hafa einnig sungið
inn á nýjar plötur, eru bæði
lögin íslenzk og heita ÖLI
PRAKKARI og SUMAR ER
I SVEIT.
Jólaplötur.
Sigurður Bjömsson, sem
undanfarið hefur getið sér
glæsilegan orðstýr hérlend-
is sem erlendis, 'hefur sung-
Husqvarna Automatic
Sú kona verður ekki fýrir vonbrigðum, sem
í'ær HUSQVARNA Automatic í jólagjöf.
heimilissaumavélin ber hróður sænskrar iðn-
menningar um víða veröld. Þér gefið það bezta
ef þér gefið HUSQVARNA Automatic.
Hagkvæmir greiðsluskilmálar.
Komið og skoðið hinn mæta grip
eða biðjið um myndalista.
HUSQVARNA AUTOMATIC
léttir heimilisstöríin, sparar útgjold
GUNNAB ASGEIHSSON HF.
Suðurlandsbraut 16 S'imi 35200.
ið fjóra sálama, NU ÁRIÐ
ER LIÐIÐ 1 ALDANNA
SKAUT, SEM BÖRN AF
HJARTA, NU LEGG EG
AUGUN AFTUR og ásamt
kvennakór AVE MARÍA,
þessi hljómplata hefur
hlotið afbragðs dóma. Fyrir
jólin er ennfremur væntan-
leg plata með jólalögunum
sungnum af Helenu Eyjólfs-
dóttur, en hún hefur selzt
meir en nokkur önnur jóla-
plata undanfarin ár.
Islenzkir Tónar hafa tek-
ið upp þá nýung að gefa út
jólaplötukort, þ.e. jólakort
sem hægt er að spila, mynd-
ir eru úr Reykjavík og lög-
in HEIMS UM BÓL og NÚ
ÁRIÐ er LIÐIÐ I ALD-
ANNA SKAUT.
Söngjjlötur.
Af sörígplötum skal fyrst
nefna nýjar RlMNAPLÖT-
UR, sem Kjartan Hjálmars-
son hefur kveðið inn á, Dr.
Hallgrimur Helgason ritar
skýringar. Rímnalög hafa
ekki komið út síðastliðin 20
ár a.m.k. og því bætir þessi
hljómplata úr brýnni þörf.
LEIKBRÆÐUR hafa
sungið inn á E.P. plötur m.
a. HANNA LITLA, LITLA
SKÁLD, LINDITREÐ
DRAUMADÍSIN MÍN.
Einnig gefa íslenzkir Tónar
út plötu er nefnist EG BIÐ
AÐ HEILSA, á plötunni eru
m.a. þessi lög. SÓLSETURS-
LJÓÐIN, SMALADRENG-
URINN, EG VIL ELSKA
MITT LAND, SMALA-
STÚLKAN og EG BIÐ AÐ
AUGLÝSING
varðandi gin- og klaufaveiki
frá Iandbúnaðarráðuneytinu
Vegna þess, að gin- og klaufaveikifaraldur gengur
nú á Bretlandseyjum, vill landbúnaðarráðuneytiö
vekja athygli yfirvalda og almennings á því, að
stranglega ber að fylgja reglum laga nr. 11/1928
um vamir gegn gin- og klaufaveiki. i
—T ' t
Tekið skal fram að samkvæmt téðurn lögum og
auglýsingu þessari er:
l I
Bannaður með öllu innflutningur á heyi, hálmí,
alidýraáburði, sláturafurðum hvers konar, húðum,
mjólk og mjólkurafurðum sem og eggjum.
Stórgripahúðir, sem nota þarf við togveiðar hép
við land, má þó flytja inn, enda séu þær sótir
hreinsaðar erlendis, og einnig þegar þær koma
hingað til lands. i
,r !
Frá Bretlandseyjum er ennfremur hannaður inn-*
flutnin,gur á lifandi jurtum trjáin, trjágreinimH
og könglúm, grænmeti og hvers konar garð-
ávöxtum. 1 i
~ ' 1
Farþegar og áhafnir farartækja skulu gefa yfir*
lýsingu samkvæmt 4. gr. laganna um dvöl sínai,
erlendis, strax og þau konia til íslands. , j
~ n
Með auglýsingu þessari er felld úr gildi auglýsing,
dags. 24. júlí 1953 (Lögbirtingablað nr. 57 1. ágúst
1953).
Brot á lögum nr. 11/1928 og auglýsingum., sem
settar eru samkvæmt þeim, varða sektum. J
Landbúnaðarráðuneytið, 30. nóvember 1960.
Ingólfur Jónsson
/Gunnl. E. Briem |
HEILSA. Guðrún Á. Símon-
ar syngur LINDIN, MÁNA-
SKIN, SVANASÖNGUR Á
HEIÐI og TVÆR VORVlS-
UR. Í
*
r
Fjórar jhæggengar hljóm-
plötnr.
Islenzkir Tónar gefa einn-
ig út fyrir jólin 4 hæggengar
hljómplötur tvær dægurlaga
og vísnaplötur og tvær söng
plötur.
Á fyrri dægurlagaplötunni
eru 12 ísl. lög sungin af
12 mism. söngvurum og á
seinni plötunni 15 lög sung-
in af 15 mism söng. Á for-
síðu er mynd af Reykjavík
prentuð í fjórum litum.
Á fyrri sörígplötunni eru
12 lög en 14 á þeirri síðari
og syngja þar allir fremstu
söngvarar okkar, á forsíðu
er mynd af Vestmannaeyj-
um prentuð í fjórum litum.
Utsöluverð á þessum plötum
verður aðeins kr. 200,00, og
jhafa Islenzkir Tónar haft
verðið svona lágt til að sem
flestir eigi kost á að eign-
ast þessar úrvalsplötur.
Upplagið er mjög takmark-
að.
Daglega ný afskorin
blóm .
BLÓMABtFÐIN,
HRÍSATEIG 1.
SÍMI 34174.
(Gegnt Laugarneskirkju).
Krossgátan
SKYRINGAR: |
! Lárétt: Gælunafn 5 Borg 8 Ilátið 9 Rykhreinsa ld
Lík 11 Minnist 12 Grafa 14 Frostsár 15 Matarílát (flt.)J
18 Verkfæri 20 Ríkidæmi 21 Fangamark söngvara 22 Árs-
tími 24 Líffæri 26 Tala óljóst 28 Ofbeldisverks 29 Þekkiií
leiðina 30 Raus. • ■ : . . , 4
Lóðrétt: 1 Einn af sjö 2 Hrjáir 3 Veggi 4 Ósamstæðir*
5 Ofdrykkjumenn 6 Kall 7 Áverki 9 Ákærður 13 Hraða l'S'
Kaldi 17 Gribba 19 Fugla 21 Ginna 23 Rödd 25 Lærdómuc
27 Bindindissamtök. -