Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 16.01.1961, Síða 1

Mánudagsblaðið - 16.01.1961, Síða 1
14. árg'angur Mánudagur 16. janúar 1961 . 2. tölublað- dakoh GuSjohnsen, ValgarS Thoroddsen aSal-de'iluefniS ÍHALDSMEIRIHLUTINN í bæjarstjórn er nú kominn í hár sayian út af veitingu rafmagnsstjóraembættisins. Eins or: kunn- ugt er, þá lætur Steingrímur Jónsson rafmagnsstjóri bráðlega af störfum fyrir aldurssakir. Fjórir munu hafa sótt um embættið, ,en rétt mun, að aðeins tveir komi til mála, en það eru þeir .TAKOB GUÐJOHNSEN og VALGARÐ TIIORODDSEN, báðir á- gætir menn og Sjálfstæð'ismenn að auki. Hæfir menn Nú hafa fulltrúar íhaldsins átt í deilum út af væntanlegri embættisveitingu og styðja sum- ir Valgarð en fleiri Jakob. Jakob hefur verið um árabil yfirverk- fræðingur rafveitunnar, talinn í hvívetna grandvar maður og hinn ágætasti starfsmaður. Þyk- ir flestum liggja í augum uppi, að hann fái þetta starf, ekki vegna stjórnmálaskoðunar held ur hins, að hann hefur alla hæfi le:|ía, er starfinu þaulkunnugur og yrði þetta ekki annað en eðlilegur embættisframi. Val- garð er einnig hæfur maður í starfi, hefur stjórnað rafmagns- málum Ilafnarfjarðar af skör- ungsskap, og hefur ríka reynslu að baki. Furðulegar miðlunar- fillögur En bæjarstjórnarfulltrúar, ýmsir, hafa nú gert þetta að hatrömu deilumáli, komið jafn vel með tilíögur um að tví- skipta embættinu, svo báðir hljóti bita. Var alvarlega talað um að aðskilja Sogsvirkjunina frá rafveitunni í Reykjavík og iá hvorum þessara tveggja sitt en þannig auka allan kostnað og gjöld, sem vitanlega kemur l'ram á almenningi. Önnur ráð voru líka rædd, en sl. föstudag þegar málið átti að koma fram í bæjarstjórn, var allt á liuldu um endalok þess. Ábyrgðarlaust bruðl Það er allsendis óskiljanlegt og með öllu óafsakanlegt, að á- byrgur bæjarstjórnarnjeirihh/.i skuli líta við svona bruðli með fé og embætti. Það er hart ef sjálfur Reykjavíkurbær ætlar að taka upp hina íurðulegu starfs- háttu bankanna í Reykjavík, sem aldrei ráða menn úr eigin röð- um í starf bankastjóra heldur ýmsa pólitikusa með vafasama hæíileika. Bærinn eða meirihluti stjórnar hans á raunverulega einskis annars úrkosta en ráða Jakob verkfræð'ng í embættið, og það er ekkert annað en of- beldi og misnotkun fjár að ætla að semja um petit-afbrýði milli flokksmanna, með því að tví- skipta embættinu. Það er aðeins um einn mann að ræða í þetta embætti, hver sem hann verður. Ævar Kvaran syngur dægur!c\i í Berlín Það er eins gott fyrir dægur- lagasöngvarana okkar að vara sig, því ný stjarna hefur bætzt í hópinn. Ævar Kvaran söng dægurlög eftir .Tónas Jónasson í útvarpið á þrettándakvöld, og j er nú í ráði að flytja tvö lög úr i útvarpsþættinum, sungjn af Æv- ari, í Berlínarútvarpið, en þar verður flutt prógram frá ýmsum löndum. Ævar mun ekki áður hafa sungið dægurlög, en þetta verður þó að teljast ein hraðasta ferð upp á við, því venjulcga tekur það ár eða mánuði. Þorsteinn Ö. Stepliensen, Braml- an, í leikritinu Pókók, sem frum- sýnt var sl. fimmtudagskvöld. (Sjá gagnrýni á 4. síðu). Ákaflega alvarlegar horfur hjá kaupsýslumönnum - Fjöldi verzlana hlgófa að loka Kaupmenn og heilds’alar standa nú mjög höllum fæti í Reykja- vík og er talið að mafgir þeirra muni ekki hjara til vors. Nú þegar hafa ýmsár verzlánir hætt störfum og gert er ráð fyrir að enn fleiri séu um það bil að hætta. me.nnir. Er það næstum krafta- verk að svo margar heildverzl- anir og smákaupmenn hafa get- að þrifist 1 ekki stærri borg en Reykjavík. Hið óeðlilega pen- ingaflóð er ástæðan fyrir þessu, en nú þegar fjármál þjóðarinn- ar eru að færast í eðlilegt horf, þá kemur það auðvitað fram á þessari margmennu stétt. Úlsöl^r - verðíall Strax og jólaösin var um garð gengin, ruku allar verzlanir í að hefja ,,útsölur“ enda munu Framhald á 8. síðu Stórkaupmenn, sem lagt hafa í dýrar byggingaframkvæmdir undanfarin ár,-eru nú nær orðn- ir gjaldþrota,. en aðrir, sem le'gt hafa v.erzlunum húspláss kvarta yfir þvi, að þessi fyrir- tæki geti nú ekki einu sinni greitt leigukostnaðinn. ÓeÖlilega fjölmenn sléfl Kaupmannastéttin héf, og heildsalar, hafa verið all-fjöl- Bandaríkjamenn hafa nú framleitt ákaflega djarfa mynd, sem fiallar um lif tveggja innbtotsþjófa, sem lenda í ýmsum ævin- týrum, sem samfara er starfi þeirra. Myndin er framleidd af' nýliða, l.eikin af óbreyttu fólki, en hefur vakið mikla athygli. RáðuneytiÖ bendlað við ! „morðbréfamálið" Blaðagreinar ritaöar me§ réðuneylisvél — Málið flull í dag í dag, mánudag, verður hið umtalaða „morðbréfamál“ tekiiS til flutning's og hafa eflaust margir áhuga á þeim flutningi, því. blöð'n hafa margt um málið ritað og ekki verið á einu máli um. gang þess. Svo virðist, sem altt málið hafi skyndilega, síðustu. vikur, tekið á sig nýjan svip, og hann heldur óvæntan. Kæran breyiisi í fyrstu var Magnús lögreglu þjónn kærður af lögreglustjóra vegna blaðaskrifa í m. a. Þjóð- viljann og Tímann, að því grun að var. Þá var svonefnd morð- brér'skæra nr. tvö eða þrjú í kærunni, en nú hefur nýtt kom ið í ljós, sem mörgum mun þykja kynlegt. Riivéíin og bílsijórinn Komið er í ljós, að hand- rit af greih, sem birtist í Tímanum fannst þar og' var því komið til rannsóknárlög- reglunnar. Kom þá í Ijós, að handritið af groir/mni var skrifað á ritvél úr utanrík's- ráðuneytinu, en sú ritvél var að láni hjá bifreiðastjóra Bjarna Benediktssonar, Krist jáni Þorsteinssyni. Segir Kristján, sepi efiaust er rétt, að liann liafi íengið vélina að Iáni hjá ráðuneytinu handa syni sínum, sem æfir sig á henni. Hin rélia véi Þetta er svo furðulegt að engu tali tekur. Bílstjórinn, sem auð- vitað er saklaus af greininni og sonur hans, viðurkennir þetta fyrir rétti og rannsóknarar játa. umbúðalaust, að þetta sé vélin,. sem greinina ritaöi, fullvrða að‘ um það sé engum blöðum að- íletta. „Morðbréfavérm”! Hinsvegar verður að geta þess,, að sérfræðingarnir við Fríkirkju veginn hafa aldrei fullyrt, að> „morðbréfin“ svoi|efndu, hver sem höfundurinn kann að vera, hafi verið rituð á ritvél Bjarna Guðmundssonar, heldur aðeins talið, að svo gæti verið. Einhvernveginn finnst manni,. a mál þessi séu heldur gruggug: frá öllum aðilum. Þessi skálm- öld innan lögreglunnar hefur kástað rýrð og leiðindum á ó- breytta rnenn sem og yfirmenn og vonandi tekst lögmönnum að; koma þessu máli á annanhvorn veginn áður en allt fer enn £ bál við Pósthússtræti. Til lesenda Flugfreyjuserían, seiw liófst í síðasta blaði verður að bíða næsta blaðs vegna mistaka lijá ljósmyndara. í næsta bUiði heldur serían áfram. ,

x

Mánudagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.