Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 16.01.1961, Side 2

Mánudagsblaðið - 16.01.1961, Side 2
2 MÁNUDAGSBLAÐIÐ Mánudagur 16, janúar 1961 Líklega er gæsin hinn elzti alifugl, talið er nokkurn veg- in fullvíst, að gæsir hafi ver ið tamdar á undan hænsn- uni og öndum. Bæði í Egypta landi og Mesópótamíu voru gæsir tamdar um 2000 f. Kr. Getið er um aligæsir í Ódys- seifskviðu, og margar heim- ildir eru til um bað, að gæsa- rækt var almenn bæði með Forn-Grikkjum og Rómverj- um. Germanir munu snemma hafa farið að hafa ligsæir að minnsta kosti finnast þær í gröfum Germana frá þjóð- flutningatímanum og hafa þar verið greftrunarfórnir. Sennilega hefur gæsarækt verið talsvert almenn hér á Islandi í fornöld, að minnsta kosti átti Grettir að gæta ali gæsa í æsku sinni heima á Bjargi. . Helgar gæsir Ef til vill hefur verið helgi á villigæsum þegar í grárri forneskju, að minnsta kosti hafa villigæsir verið tótem sumra frumstæðra þjóða allt fram á okkar daga. Helgi var á aligæsinni svo langt aftur, sem sögur ná. Hún var talin heilög bæði í Mesópóta- míu og Egyptalandi í fornöld og oft færð guðunum að fórn. Egyptar fórnuðu frjó- semdargyðjunni Isis gæsum, en mjög snemma var gæsin sett í samband við frjósemi, æxlun o g fæðingu, stund- um við hjúskap og heim- ilislíf: Hjá Grikkjum og Rómverjum var hún t.d. helguð gyojunum Heru,, Afródite og Artemis. Sam- band hennar við Artemis varð til þess, að gæsin gat orðið tákn vega, hafna og verzlunar, en Artemis var verndari þeirra. Sem verzl- unartákn voru gæsa- 'mýndir stundum á forn- grískum myntum, t. d. á flestum ijeningum frá Leuk- as. Annars eru til fjölmargar gæsamyndir frá fornöld, þí að stundum sé dálítið erfitt aA. sjá, hvort myndirnar eiga áð vera af gæsum eða álft- um. Gæsamyndirnar hafa oft táknræna merkingu og geta táknað marga hluti og sund- urleita. Aulc ástar og frjó- semi, samgangna og verzlun- ar gat gæsin verið árstíða- tákn og táknaði þá veturinn. Það var algengt fram eftir öllum öldum að tákna vetur- inn með gæs, en um það leyti árs var aðalveiðitíminn. Það mun vera nokkuð gam alt í ýmsum timgumálum að líkja lauslátum konum við gæsir. Ef til vill er þetta að einhverju leyti vegna fornra tengsla gæsarinnar við ást og frjósemi, en hin niðrandi merking er þó hklega komin frá gráa litnum, sem ekki var í neinum hávegum hafð- 111’. Engar aðrar gæsasögur frá fornöld eru jafnfrægar og sagan um hinar helgu gæsir á Capitólíum í Róm. Þær voru helgaðar Júnó og aldar í hofi hennar. Þegar Gallar réðust á Rómaborg árið 387 fyrir Krist, tókst þeim að taka alla borgina nema Capitalóíum. Enverj- endurnir voru í mikilli hættu staddir, og Gallar bjuggust GLÁFUR wmm, cnennfaskóiakennðri: til áhlaups. Eina nóttina í niðamyrkri ætluðu þeir að læðast að verjendunum óvör um. Það var þá, sem gæs- irnar björguðu Róm. Þær upphófu mikið garg og háv- aða, svo að Rómverjar vökn- uðu í tæka tíð og hrundu áhlaupi Galla. Eftir þetta af- rek voru gæsir Júnóar hafð- ar í enn meiri hávegum en áður. Einu sinni á ári fór Gæsin er einnig eldgamall spáfugl. Etrúrar og Rómverj ar tóku mikið mark á flugi gæsa, einkum þegar þær flugu oddaflug. Þóttust þeir af því geta ráðið margt um ókomna atburði, t. d. veður- far næsta árs, mannalát og styrjaldir. Gæsirnar voru ^ oftar taldar vita á illt en gott. Enn í dag er sú alþýðutrú við lýði, að ólánsmerki sé að sjá gæs. Gæsin kemur enn í dag mjög við alþýðlegar veður- spár. Sú trú er til bæði hér á landi og erlendis, að þegar gæsir eru að baða sig eða skvampa í vatni, viti það á rigningu. Á haustin eru gæsabein notuð til að spá veðurfari næsta vetrar. Ef mikið er af hvítum blettum á þeim veit það á snjóavetur, fram gæsahátíð þar í borg- inni. Var þá ein hinna helgu gæsa Júnóar borin í skrúð- göngu um Rómaborg á skrautlegum kodda. Frá því í fornöld hafa gæs ir komið mjög við sögu alls konar alþýðlegra töfralækn- inga. Forn-Giikkir töldu ýmsa líkamsparta gæsarinn- ar geta læknað flest mann- anna. mein. Stundum voru það fjaðrirnar, stundum beinin, stundum ýmis innyfli. Menn héldu, áð gæsamergur gæti linað fæðingarhríöir og gert fæðinguna nærri kvala- lausa. Gæsasaur var talinn geta gert ófrjóar konur frjó- ar, eflaust vegna tengsla gæsarinnar við, goðmögn frjóseminnar. Fornaldarlækn ar vitna jafnvel í sjálfan Hippókrates þessari skoðun til stuðnings. Gæsatunga hefur þá nátt- úru, að hún kemur fólki til að blaðra frá öllum leyndar- málum. Til að svo verði þarf aðlátahana unclir koddann og láta það sofa á henni. Þegar fólkið vaknar aðumorgni eft- ir slika nótt, blaðrar það frá sínum dýrustu leyndarmál- um við hvern sem er. Þessi gæsatungugaldur var notað- ur aðallega í tvennskonar til gangi. Ef menn voru grunað- ir um þjófnað var gæsatungu komið fyrir undir kodda þeirra, og játuðu þeir þá allt daginn eftir. Og eigin- menn, sem grunuðu konur sín ar um framhjáhald höfðu stundum tungugaldur í frammi, og urðu þá stundum margs visari að morgni, þeg- ar eiginkonan leysti frá skjóðunni. en svartir blettir tákna hláku. Gæsin spáir einnig fyrir giftingum. Ef ungar stúlkur slá hring um gæs, hleypur hún í átt til þeirrar, sem fyrst giftist. Ef stúlka vill vita hvert mannsefnið er, á hún að hengja gæsabein yfir dyrnar. Hinn fyrsti karlmað ur sem inn kemur eftir það verður maðurinn hennar. Það er gömul trú, að dvergar og fleiri dularverur séu með gæsafætur. Þykjast menn oft siá spor eftir slíkar verur í snjó og leirflögum. Stundum eru púkar og galdranornir með sundfit eins og gæsir á fótunum. Sumir halda, að í þessari þjóðtrú geymist minjar um ævaforna. tótemtrú í sam- bandi við gæsina, leifar frá þeim tímum, þegar menn þóttust geta breytzt í tótem- dýr sitt. En flestir hinna forn helgu tótemguða hafa í kristnum sið breytzt í ill- vætti. A miðöldum voru uppi þrálátar sögur um það, að ýmsir frægir menn og konur væru í rauninni með gæsa- fætur, en dyldu það vandlega með fótabúnaði sínum. Stundum átti þetta að vera vegna sambands þeirra við fjandann, stundum voru skýringarnar aðrar. Gæsalappir sem gremar- merki koma fyrst við sögur á 16. öld, og er talið, að GuiIIaume Morel, prentari í París, hafi fyrst farið að nota þær, enda eru þær stundum kenndar við hann. Annars ei-u þær í sumum málum kallaðar gæsaaugu (gáseöjne á dönsku). Gæsahúð Það er í mörgum málum algengt að tala um að menn fái.gæsahúð við ýmsar geðs hræringar, einkum ótta og hrylling. Sumir halda að þetta komi af því, að húðin fái á sig örður eins og gæsa hamur, aðrir, að það sé dreg (ið af kuldatilfinningu, en gæsin er tákn vetrar og kulda. Þetta orðatiltæki er gamalt. Það var á miðöldum nefnt cutis anserina, og er gæsahúð nákvæm þýðing á því Sumir halda að orðatil- tækið sé runnið frá Róm- verjifm. t'-sæagt >i2ii2íSa. Gæsin sem fararskjéfi A miðöldum var sú trú talsvert útbreidd, að galdra- nornir riðu stundum loft og lög á gæsum. Reyndar not- uðu þær stundum aðra fugla sem reiðskjóta. 1 óteljandi barnaævintýrum síðari tíma kemur gæsin við sögur sem reiðskjóti, sennilega oftar en nokkur annar fugl. Frægast allra slíkra ævintýra er saga Selmu Lagerlöf „Nils Hol- gerssons underbara resa gennom Sverigé“. Gæsareggið I austurlenzkum trúar- brögðum eru til eldgamlar hugmyndir um heimseggið, sem heimurinn hefur verið skapaður úr. Á sama hátt á sólin stundum að hafa verið Allir íslendingar þekkja vel til þeirra stórkostlegu fram- kvæmda, sem happdrættin þrjú, Háskólans, D A.S. og S.Í.B S. hafa til ieiðar komið á undan- förnum árum. Á þennan hátt hefur verið náð áföngum, sem margir hverjir væru ennþá að- eins háleitar hugmyndir, ef ekki hefði notið þessara tekjulinda. Þau samtök, sem svo lánsöm hafa verið, að fá slik vopn í liendurnar, eru fjárhagslega jafnt sem félagslega séð, orðin stórveldi og stendur hagur þeirra með miklum blóma, öllum til ánægju. Á meðan atorkusamir og slyngir fjármá’amenn hafa ver- ið iengnir til að veita þessum .,peningaskrínum“ forstöðu, sitja fjölmennustu félagssamtök lands ins, íþróttasamband íslands, með sinn sultardropa, sínar há- leitu hugmyndir, óframkvæmdar vegna þeningaleysis. Ef vílji hefði verið fyrir hendi, má full- víst telja, að í S.í. hefði verið veitt sú aðsíaða, sem D.A.S. hef ur nú. Iíugmyndina höfu þeir og má nærri geta hvort riki og bæjarfélög hefðu ekki orðið íegin að losna við alít styrkja- betlið, sem öllum er hvimleitt. Leyfi til þessara happdrætta sköpuð úr sólareggi. Hér eb éggið tákn lífsmáttar, frjó- semi, sköpunar. í flestum hinna austrænu sagna er heimseggið mikla talið vera gæsaregg, þó að í fáeinum sé það eignað strútnum eða öðrum fuglum. Fræg er saga Esóps um gæsina, sem verpti gulleggj- unum. I sumum afbrigðum. sögunnar á það reyndar að hafa verið hæna, en ekki gæs. Maður einn átti gæs, sem verpti gulleggi dag hvern. Manninum þótti það ekki nóg, og hann ætlaði sér að ná fjölmörgum gulleggj- um í einu með því að slátra gæsinni, en þá var draumur- inn búinn. 1 mörgmn tungu- málum eru til orðatiltæki í sambandi við þessa sögu, t.d. á ensku (to kill the goose that lays the golden eggs). Gæsamamma Grágæsamóðir Ljáðu mér vængi, svo ég geti flogið upp til himintungla. Þessi þula, sem hvert ís- lenzkt barn þekkir, er aðeins ein af þeim óteljandi þulum, sem ortar hafa verið um gæsamömmu á mörgum þjóð tungum. Líldega eru slíkar þulur hvergi eins vinsælar og í engilsaxneska heiminum, þulurnar um Mother goose skipta þar áreiðanlega mörgum hundruðum. Til eru líka þulur um gæsapabba, en þær eru færri, þó að sumar þeirra séu alþekktar, t. d. „Goosey, goosey, gander.“ Ölafur Iíansson. idrœHi Í.S.Í.? | er veitt til iakmarkaðs tíma í senn og endurnýjað, ef þurfa þykir. Væri ekki réttlátt að ' veita fleiri aðilum þessi leyfi næst, t. d, Í.S í. annað og Rrabbameins- félaginu hitt? Þetta ættu viðkomandi aðilar að athuga og vera vakandi á verðinum. (JO .wJ r I Mánudagsblaðinu

x

Mánudagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.