Mánudagsblaðið - 23.01.1961, Qupperneq 2
2
MÁNUDAGSBLAÐIÐ
Mánudagnr 23. janúar 1961
Orðið hamar bendir aftur
í gráa forneskju. Frummerk-
ing orðsins er auðvitað
steínn, eins og það getur
merkt enn í dag. Síðan fer
það að merkja ákveðið á-
hald úr steini, og nafnið
helzt, þó að farið sé að gera
þetta áhald úr öðrum efnum.
Steinöldin hefur lifað í fleiri
orðum fram á þennan dag,
t.d. grýta (pottur), eiginlega
ker úr grjóti og orðið sax,
er merkir klettur (saxum á
latínu).
Þó að orðið hamar bendi
aftur í steinöld virðast eig-
inlegir hamrar hafa verið
fágætir á þeim tímum.
Menn notuðu þá oft venju-
lega steina í stað hamra.
Hinn eiginlegi hamar mun
þó öllu frekar hafa þróazt
sem afbrigði af öxJnni, eink-
um skaröxinni, sem var að-
allega notuð til smíða.
Öxarhamarinn var iðulega
notaður eins og hamar nú
á dögum. Það mun ekki hafa
verið fyrr en seint á stein-
öldinni, að hamarinn rýfur
samband sitt við öxina og
kemur fram sem algerlega
sjálfstætt áhald.
Frá bronsöld þekkjast
litlir hamrar úr bronsi. í
þessum bronshömrum var
hlutfallslega meira af tini
en annars tíðkaðist við
bronsblöndun. Hafa þeir
greinilega verið notaðir við
smíðar af fínna taginu, þó
að þe,!r hafi stundum ef til
vill einnig haft trúarlega
þýðingu. Frá þessum tímum
hafa einnig fundizt hamrar
úr horni og stöku sinnum
beini. Járnhamrar þekktust
snemma í Vestur'-Asíu og
breiddust þaðan til Miðjarð-
arhafssvæðisins. Hjá Germ-
önum fóru þeir ekki að tíðk-
ast fyrr en um Krists burð.
Klaufhamarinn kemur aðal-
legg til sögunnar eftir að
naglar fara að verða algeng-
ir.
TKfJIN A
HAMARINN
Snemma fékk hamarinn
á sig ýmiskonar helgi sem
töfra- og verndargripur eða
frjósemitákn. Líklega eru
slíkar hugmyndir ekki allar
‘af einni rót runnar. Stundum
færist hín f jölbreytilega
þjóðtrú i sambandi við smíð-
ina einkum járnsmiðinn, yf-
ir á hamarinn. Smiðurinn er
oft talinn voldugur maður
og hættulegur, sem stendur
í sambandi við máttug nátt-
úruöfl. Hamar hans, sem
mylur í sundur, getur orð-
ið tákn máttar og valds.
Sumir Austurlandahöfði'ngj-
ar 'höfðu áður fyrr hamar
sem valdatákn, og enn í dag
þekkist slíkt í Suður- og Mið-
Afríku. Frá því að vera
valdatákn getur hamarinn
farið að tákna eign og eign-
arrétt. Stundum helguðu
menn sér muni með því að
ieggja á þá hamar í votta
yiðurvist. Sennilega stendur
uppboðshamarinn í einhverju
sambandi við þessar gömlu
hugmyndir um hamar og
gfgnarrétt. Auðvitað er hann
um margt skyldur funda-
ha,mrinum sem táknar fyrst
og fremst vald fundarstjór-
ans.
Hamarinn er sumstaðar
í Austurlöndum tákn frjó-
semi og æxlunar. Sumir
halda að þetta sé blátt áfram
vegna líkingar við hin karl-
legu kynfæri, en sennilega
er skýringin ekki nærri allt-
af svo einföld. Sumir ætla,
að hamar með hring í að
ofan sé stíliseruð mynd af
manni, en slík hamartákn
þekkjast frá fornu fari aust-
ur í löndum.
eflaust einhver tengsl við
austurlenzkar frjósemiat-
hafnir, þar sem hamrar
koma við sögu.
Þórshamarinn kom mjög
við sögu ýmis konar töfra
að fornu. Oft varð hann eins
konar verndargripur. Og
galdramenn notuðu Þórs-
hamar við töfra sína löngu
eftir að kristni komst á.
Algengur er sá misskiln-
ingur, að hakakrossinn sé
ÓLÁFUR HANSSÖN,
mennlaskólakennari:
eignarrétt, hins vegar að
vera búfénu til verndar og
auka frjósemi þess. Þetta
er athyglisverð kenning, en
fjari;! fer því, að hún sé
sönnuð. Én sum fjármörk
líkjast mjög hinum fornú
táknum, meðal annars hamr-
inum, hinum máttuga vernd-
argrip. I þessu sambandi má
einnig minna á það, að
hamarinn er fornt tákn eign-
arréttar.
HAMRI
VARPAÐ
Þór varpaði stundum
Mjölni að óvinunum, og kom
hamarinn jafnan til hans
aftur, eins og fleiri töfra-
vopn gera í þjóðtrúnni. Skot-
hamrar sem vopn hafa til
skamms tíma verið notaðir
af ýmsum frumstæðum þjóð-
um, meðal annars í Mið-
Afríku. En hamarvarp var
stundum notað í öðrum til-
gangi. Það var ein af hinum
mörgu aðferðum til að finna
fólgna fjársjóði. Fóru menn
þá á þann stað, þar sem þeir
héldu, að fjársjóðir væru
fólgnir og vörpuðu frá sér
töfrahamrí af handahófi.
Þar sem hamarinn kom nið-
ur, var fjársjóðurinn undir.
Langt fram eftir öldum
þekktist sá siður í sumum
þýzkum sveicum, að varpa
hamri, er reisa skyldi ný>
j bíli. Var húsið reist, þar sem
hamarinn kom niður.
Ekki veft ég, hvort sleggju-
kást sem íþrótt stendur í
einhvérju sambandi við hið
töfrurn blandna hamarsvarp.
Hugsanlegt er, að svo geti
verið. Ýmsar íþróttir eiga
elztu rætur sínar í- trú og
töfrum, svo sem knattleik-
ur, sem í öndverðu er þáttur
í sóldýrkun og sundið, sem
er í tengslum við vatns-
dýrkun og trúarlegar hreins-
unarhugmyndir. En nú á
dögum efnishyggjunnar er
þessi forneskjulegi uppi'uni
margra íþrótta að mestu eða
öllu gleymdur.
Ólafur Hanssoit
Ðaglega ný afskorin
blóm . J
BLÓMABÚÐIN, ] ]
HRlSATEIG 1. ]
SlMI 34174, ' H
(Gegnt Laugarneskirkju).
Frjósemimerking hamars-
ins er þó sennilega fyrst og
fremst vegna hugmynda
um samband hans við þrum-
una. Mjög snemma á öldum
var þrumugnýrinn settur í
samband við einhver tröll-
aukin vopn eða áhöld mátt-
ugra guða. Margar frum-
stæðar þjóðir halda, að risa-
vaxin steinkylfa valdi þrum-
unum og verður hún tákn
þrumunnar í trúarlegri list
og táknrænni skreytinga-
list. Margar hinna indóevr-
ópsku þjóða trúðu á þrumu-
fleyginn. Hjá Indverjum
hafði Indra hann að vopni.
Forn-Grikkir trúðu því, að
Seifur hefði að vopni þramu-
fleyg er Kyklópar hefði smíð-
að handa honum. í Ásatrú
breytist þrumufleygurinn í
hamar Þórs. Bæði þrumu-
fleygur og þrumuhamar
verða frjósemitákn, senni-
lega aðallega vegna sam-
bands þeirra við þrumuskár-
ir, er frjóvga jörðina.
runninn frá hinum forna
Þórshamri. En etta mun ekkr
vera svo. Hakakrossinn er
eldgantalt Isólartákn, stílis-
eruð mynd af sólarhjólinu.
Hann var mjög helgur með
Indverjum að fornu og það-
an er komið orðið swastika.
Iiitt er svo annað mál, að
hin fornu frjósemitákn gátu
stundum blandazt ýmislega
í skreytingalist, t.d. Þórs-
hamar, hakakross og zigz-
aglína, tákn þrumufleygsins.
ENN UM
TIAMARINN
HAMAR ÞÓRS
Hamarinn Mjölnir er helzta
einkenni hins forna þrumu-
guðs Þórs. Hann er auðvit-
að í tengslum við þrumu-
fleyga þelrra Indra og Seifs,
en hamartákn frjóseminnar
frá Austurlöndum hafa ef
til vill haft einhver áhrif á
hann. Mjölnir er fyrst og
fremst vopn Þórs í baráttu
við jötna og hyski þeirra;
enda þóttist hann illa kom-
i'nn er hamrinum var stolið,
svo sem segir í Þrymskviðu.
Öðrum þræði er Mjölnir
tákn frjósemi og lífs. Þór
lífgar hafra sína aftur með
honum, er hann hefur slátr-
að þeim. Og í Þrymskviðu
segir frá því, að hamarinn
á að nota til að vígja sam-
an Þrym og Freyju (sem
raunar var Þór). Hér eru
Ýmslr siðir og venjur
minna enn á forna helgi
hamarsins. Við andlát páfa
er drepið þrisvar með gull-
hamri á dyr herbergisins,
þar sem líkið liggur. Ekki
veit ég hvort orðatiltækið að
slá einhverjum gullhamra er
í neinum tengslum við þessa
venju.
Silfurhamarinn er stórum
verri en gullhamarinn, Hann
er eitt af táknum djöfulsins,
og á miðöldum sáu menn
hann oft með silfurhamar
sinn á lofti.
Hamarinn kemur ýmislega
v,ið sögu töfra. Hamragald-
ur var stundum notaður við
að hafa upp á þjófum, en
hann var framkvæmdur á
ýmsa ólíka vegu. Stundum
var hann notaður til að
gera þjófinn blindan, að
minnsta kosti á öðru auga,
stundum tiLað neyða þjóf-
inn til að skila aftur því, sem
hann hafði stolið. Trúin á
hamragaldur í sambandi við
þjófa er til hér á landi.
Til eru fræðimenn, sem
halda því fram, að fjármörk
séu í öndverðu eftirmyndir
fornra frjósemitákna. Sam-
kvæmt þessu hafa þau í
fyrstu haft tvíþættan til-
gang, annars vegar að tákna
X
H. F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS.
■ n
Aoalfundur i
Aðalfundur hlutafélagsins Eimskipafélags islands
verður haldinn í fundarsalnum í húsi félagsins í
Reykjavík laugardaginn 3. júní 1961 og hefst kl.
I, 30 eftir hádegi.
1. Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og framkvæmd-
um á liðnu starfsári og frá starfstilhögun á yfir-
standandi ári, og ástæðum fyrir henni, og leggur
fram til úrskurðar endurskoðaða rekstursreikniriga
til 31. des. 1960 og efnahagsreikning með athuga- f
semdum endurskoðenda, svörum stjórnarinnar og I
tillögum til úrskurðar frá endurskoðendum.
!
2. Te'kin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um skipt-
ingu ársarðsins.
3. Kosning fjögurra manna í stjórm félagsins, í stað
þeirra sem úr ganga samkvæmt samþykktum félags-
ins.
4. Kosning eins endurskoðanda í stað þcss er frá~feh,
og eims varaendurskoðanda.
5. Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins (ef
tillögur koma fram). ,
6. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem 1
upp kunna að verða borin.
Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgönigu-
miða.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hlut-
höfum og umboðsmönnum hluthafa á skrifstofu
félagsins 5 Reykjavik dagana 30. maí — 1. júní næstfc.
Menn geta fengið eyðublöð fyrir umbdð til þess a<5
sækja fundinn á aðalskrifstofu félagsins í Reykja-
vík. Óskað er eftir að ný umboð og afturkallanir
eldri umboða séu komin skrifstofu félagsinis í hend-
ur til skráningar, ef unnt er; viku fyrir fundinn.
Reykjavrk, 10. janúar 1961. j
STJÓRNIN. f