Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 16.03.1964, Blaðsíða 6

Mánudagsblaðið - 16.03.1964, Blaðsíða 6
ÚR EINU í ANNAÐ Tveir gildír heildsalar, báðir sjálfstæðismenn-og kunnir að örlæti, sátu að kaffidrykkju á veitingahúsi hér í borg- inni. Settist þá hjá þeim kunningi þeirra, sem er fram- sóknarmaður. Brátt bar Hallgrímskirkju á góma. ma. þá frásögn síra Jakobs í útvarpinu á dögunum, að Samband ísl. samvinnufélaga hafi fyrir löngu heitið því að gefa kirkjunni voldugar kirkjuklukkur. Segir þá framsóknar- maðurinii, að hann vænti þess að þeir félagar kaupi af sér nokkur væn gjafahlutabréf til styrktar kirkjubyggingunni. Svarar þá annar heildsalanna: „Hvemig getið þið „Sam- bands“-menn vænst þess, að við kaupsýslumenn reisum turninn undir líkaböng þá hina mi'klu, sem „Sambandið" hyggst hringja yfir moldum frjáls framtaks á Islandi Nei, það skal aldrei verða!“ Sagt er, að fyrir bæjarráði sé umsókn um að stofnsetja nýja „Smábílastöð“. þar sem aðeins 3—5 manna leigu- bifreiðir væru starfræktar. Myndi sá kostur fylgja, að almenn bílaleiga þ. e. gjald fyrir leigubílaakstur, myndi lækka a. m. k. um einn þriðja, en eins og vitað er, þá er ökutaxti venjulegra leigubíla óhugnanlega hár, en oft aðeins 1—2 farþegar i skotferðum milli húsa eða hverfa í höfuðstaðnum. Innflutningur bíla af þessari stærð hefur aukizt mjög, og verður ekki annað sagt, en að hér er hin mesta samgöngubót, fjárhagslega, ef satt reyndist. 1 öllu þessu góða veðri, hlýindum einstæðum, getur maður varla annað en dáðst að hinni smekklega máluðu byggingu hins opinbera, þeirri sem stendur næst við Ferðaskrifstofu ríkisins, beint norður af Menntaskólanum. Einhver skemtilegasti viðburður viðreisnarinnar skreytir þetta hús, sem þarna stendur öllum okkar erlendu gest- um, sem þarna leggja leið sína, fyrir sjónum. Munu margir þeirra ekki lengur efa hreinlæti okkar, smekk og hfbýlaprýði almennt, þegar þeir skoða þetta einstæða hús, fyrrverandi biskupsskrifstofu. því ekki höggmynd af Hannibal fyrir framan bygginguna, svo bæði undrin yrðu sén eamtímis? Það hefur komið sér heldur illa fyrir Sjálfstæðisforkólf- ana, að Jósafat hinn athafnasami hefur í sífellu kallað æðstu menn flokksins sér til hjálpar enda „klappaður" trún aðarmaður í veldi Ölafs Thors. En þó tók yfir allan þjófa bálk og var eins og til að hæðast að óláni flokksforust- unnar, þegar Jósafat í einhverri ósjálfráðri skyndihrifn- ingu lét verkamenn og listamenn syðra reisa á vegg sinn feykistóra mynd af fálka með útþöndum vængjum, líkan af sameiningartákni flokksins. Ekki er talið að flokks- sjóður hafi greitt þetta einstæða listaverk. Ef ekld kemur páskahret á borð við hretið s.l. vor, má telja, að farið verði almennt að bera á bletti innan skamms. Nú er tækifærið fyrir borgaryfirvöldin að koma í veg fyrir, að fólki eða opinberum stofnunum verði leyft að bera á blettina hinn íyktarmikla Skarna, sem öllum er illa við. Þrátt fyrir hreina loftið virðist Reykjavík ætla að slá heimsmet í vondri lykt, samanber Klettslyktina, skarnann, skreiðina og almenna fisklykt. Þetta er þó höf- uðborg, en ekki fiskiþorp, og nægir staðir fyrir trönur og aðra lyktandi framleiðslu utan borgarmarkanna. Nú hefur einn griðastaður borgarinnar Suðumesið á Seltjamar nesi verið þakið trönum, og geta þá bæjarbúar ekki skroppið þangað á góðviðrisdögum eða kvöldum vegna ólyktar. Bezt væri, að þessir „peningalyktarforsprakkar" flyttu út úr bænum með lykt sína og framleiðslu, Við bentura á skarnann í fyrra og hitteðfyrra, kannski þetta lagfærist nú? Það var dálítil tilbreyting fyrir næturfólk höfuðstaðar- ins að horfa á hina veizluglöðu KR-inga, þegar þeir fóm úr afmælishófi sínu. Svo er að sjá, sem þessi ofurmenni íþróttanna séu engu minni í öldrykkju, því sumir áttu afar erfitt með að halda réttu jafnvægi, þegar þeir örk- uðu um, og má víst kenna þreytu eftir söng og húrrahróp. Gott er, að a. m. k. íþróttaandinn er ekki eins spilltur og aðrir „andar“ hér í þjóðfélaginu. Mánudagsblaðið fékk margar upphringingar vegna þess, að hætt var við að birta helztu þætti sjónvarpsins hverja viku auk dagskrárinnar. Við tókum upp þennan hátt, þeg- ar upplýsingaþjónustan hætti að útbýta dagskránni hverj- um sem hafa vildi, en síöan hafa Heimilistæki h.f. gefið út ókeypis sjónvarpsdagskra, og teljum við það nægja. Annars fara vinsældir sjónvarpsins vaxandi, enda um ein- staklega vandað efni ol'tast að ræða, spennandi reyfara í tilbót og hákúltiveraðar sýningar fyrir svoleiðis fólk. Þeir fáu, sem mótmæla. eru kommar og kerlngasamtök þeirra, en þetta cr deyjandi fólk og flokkur. - SIÓNVARP - — Þessa viku — Sunnudagur 15. marz 1430 The Chapel of the Air 1500 This is the Life 1530 Commúnism: Myth vs. Reality 1600 The Big Picture 1630 Mr. Wizard 1700 CBS Sports Spectacular 1730 The Ted Mack Show 1800 The G. E. College Bowl 1830 Biography 1900 AFRTS News 1915 The Sacred Heart 1930 The Jerry Lewis Show 2030 The Ed Sullivan Show 2130 Bonanza 2230 What’s My Line? 2300 AFRTS Final Edition News 23.15 Northem Lights Playhouse: „Fingerprints Don’t Lie“ Mánudagur 16. marz 1630 Captain Kangaroo 1730 To Tell the Truth 1800 Tombstone Territory 1830 The Danny Thomas Show 1900 AFRTS News 1915 Social Security in Action 1930 The Andy Griffith Show 2000 The Lieutenant 2100 The Thin Man 2130 The Danny Kaye Show 2230 Flight 2300 AFRTS Final Edition News 23.15 The Steve Allen Show Þriðjudagur 17. marz 1630 The Sharj Lewis Show 1700 Encyclopedia Britannica 1730 Sing along with Mitch 1830 Lock up 1900 AFRTS News 1915 The Telenews Weekly 1930 True Adveniwre 2000 The Diek Powell Theater 2100 The Jaek Benny Show 2130 The Garry Moore Show 2230 Champiionship Bridge 2300 AFRTS Final Edition News 2315 The Andy Williams Show Miðvikudagur 18. marz 1630 Captain Kangaroo 1700 The Price Is Right 1800 Sea Hunt 1830 Lucky Lager Sports Time 1900 AFRTS News 1915 The Sarred Heart 1930 The Dick Van Dyke Show 200(0 The U.S. Steel Hour 2100 Zane Grey Theater 2130 The Untouchables 2230 I’ve Got a Secret 2300 AFRTS Final Edition News 2315 The Tonight Show Fimmtudagur 19. marz 1630 Do You Know 1700 My Little Margie 1730 Password 1800 Science in Action 1830 The Ann Southern Show 1900 AFRTS News 1915 The Telenews Weekly 1930 My Three Sons 2000 Hootenanny 2100 Perry Mason 2200 The Edie Adams Show 2230 Peter Gunn 2315 The Steve Allen Show Föstudagur 20. marz 1930 1. 2. 3, Go 1700 Men of Annapolis 1730 Tennessee Emie Ford Show 1800 Louis Armstrong 1830 It's a Wonderful World 1900 AFRTS News 1915 Air Force News in Review 1930 Current Events 2000 Rawhide 2100 The Jack Paar Show 2200 Fight of the Week 2300 AFRTS Final Edition News 2315 The Tonight Show Laugardagur 21. marz 1000 Kiddie’s Corner 1130 Magic Land of Allakazam 1200 Exploring 1300 American Bandstand 1400 Soturdav Snorts Time 1630 The Files of Jeffrev Jones 1700 Col March nt Scotl Yard 1730 Current Events 1830 Candid Camera (R55 Chenlain’s Corner IQnn A.FRTS News 1915 Country Style USA H The Jackie Gleason Show 2030 Lawr Weik’o Oance Party 2130 The Defenders 2230 Gunsmoke 2255 AFRT 1 1 mal Edition News 2310 Nnrthem ijahtp Playhouse „Last Command" . I Hótunarbréfin Framhald af 5 síðu. nærri því eins og klukkustund. Nokkrum sinnum gægðist ég varlega út um rifu á glugga- tjaldinu og leit út á götuna. Eg sá ekki betur en að tveir menn stæðu í portinu beint á móti glugganum, en á svip- stundu voru þeir horfnir inn í skuggann. Við höfðum læst húsinu, íbúðinni og svefnher- berginu. En lásar hrökkva skammt gegn slíkum óvini sem Grænu hendinni. Svo gat staf- að hætta frá glugganum. Þeir gátu vai-pað sprengjum inn um hann. Og ég var heldur ekki öruggur um, að vítisvél væri ekki einhvers staðar í herberg- inu, þó að hún hlyti þá að vera svo kænlega falin, að við gætum ekki fundið hana. Um hálf tíu leytið kallaði mamma í mig og sagði, að það væri sími til mín, en ég bað hana að segja, að ég væri efcki heima. Auðvitað voru þetta þeir, sem voru að njósna um mig. Eftir klukkan ellefu varð taugaspennan gersamlega óþol- andi. Eftir hálftíma eða svo yrði ég líklega liðið lík og sæti hér eins og mús í gildru og gæti enga björg mér veitt. Alls konar ógurlegar hugmynd ir þutu í gegnum huga mér. Kannske höfðu þeir smurt ban vænu eitri á einhverja hluti í herberginu. Kannske höfðu þeir laumað skorpíónura eða öðrum stórhættulegum eitur- kvikindum inn í það. Eða þá vítisvél þrátt fyrir allt. Þegar ég hlustaði fanst mér ég allt- af annað veifið heyra eitthvert tikk-takk einhvers staðar inni í herberginu. En ekki gátum við Siggi fundið neitt, hversu vel sem við leituðum. En þessir þorparar voru áreiðanlega klók ari en sjálfur fjandinn. Þegar klukkan var rúmlega hálf tólf bað ég Sigga að halda í hönd- ina á mér. Hann Siggi er svo traustur og góður og sannkall aður vinur í raun. Það er allt- af mikill styrkur að hafa hann hjá sér. Eg fann, að þessar of- sóknir Grænu handarinnar væru búnar að gera mig vit- lausan, ef ég hefði ekki átt hann Sigga að. Ef nokkur gæti bjargað mér úr klóm hennar þá væri það hann. Þegar klukkuna vantaði sjö mínútur í tólf, fannst mér ég heyra tikkið miklu greinilegar en áður. Og mér fannst það koma úr veggnum niðri undir gólfi. Það var nú svo hávært, að ekki var um að villast. Og meira að segja Sigga fannst hann heyra eitthvað líka. Nú greip mig ógurleg skelfing. Vít isvélin átti áreiðanlega að springa svona þrjár eða fjórar mínútur fyrir tólf. Við urðum að finna hana á svipstundu, ella væri öllu lokið. Eg þóttist nú sjá að þeir hefðu með djöf ullegri lævisi falið hana inni í veggnum. Eg barði með hnúum og hnefum á vegginn, þaðan sem mér heyrðist tikkið koma. En veggurinn var grjótharður og ekkert op að finna á hon- um. Eg leit á klukkuna. — Hana vantaði tvær mínútur í tólf. Og nú greip mig algert æði. „Nú springur hún,“ æpt.i ég. „Eg vil ekki deyja, ó, ég Blaé jynr alla Mánudagur 16. marz 1964 Lúðvíg Guðmundsson fyrrverandi skólastjóri, hefur sent blað- inu mynd þessa til birtingar. Á neðri hluta myndarinnar er annað hinna miklu háhýsa að Austurbrún, sera er 12 hæðir auk þakhýsis (penthouse), alls 37,5 raetrar að hæð. OfaD á þá mynd er tyllt mynd af sama húsi, þannig að alls eru þetfca 24 íbúðarhæðir, au tveggja þakhýsa, eða alls 75 metra hæð. — Inn í myndina af húsunum er síðan Hallgrímskirkja teikn- uð í sama mælikvarða. • r s/onvarpsins Undanfarið hefur mikið ver- ið rætt um sjónvarp. En ég er undrandi á því, hvað sjón- varpseigendur hafa lítið látið til sín heyra í þeim umræðum. Nú er það vitað, að hér í Reykjavík og nágrenni eru hundruð, jafnvel þúsundir sjónvarpstækja, sem horft er á meira og minna á hverjum degi. Allir þeir sjónvarpseig- endur, sem ég hef rætt við, eru ánægðir með sjónvarpsdag- skrána, enda mun dagskrá Keflavíkursjónvarpsins vera með þeim beztu og fjölbreytt- ustu, sem völ er á, þó við ætt um kost á að sjá sjónvarp fleiri landa. En það mætti halda. eftir að maður hefur les ið flest það, sem skrifað hef- heyra um það, hafi aldrei sjón varp séð og viti því ekki, hvað þeir eru að tala um. Enda hafa margar blaðagrein- ar um þetta efni einkennzt af illgirni og áróðri gegn erlend- um mönnum og því ríki, sem þessa sjónvarpsstöð starfræk- ir. Skrif þeirra þarf ekki að taka alvarlega. Þess háttar of- stækismenn þurfa ekki að sjá sjónvarpið — þeir foraæma það, hvort sem það væri gott eða illt. Eg furða mig heldur ekki, þótt bíóeigendur og for- stöðumenn bíóhúsa hér vilji þessa sjónvarpsstöð feiga. Þeir hafa nú fengið samkeppni, svo þeir geta ekki lengur sýnt lélegar og úreltar bíómyndir fyrir fullu húsi viku eftir viku, ur verið um þetta sjónvarp, að því nú geta menn séð miklu þeir, sem til sín hafa látið vil ekki deyja.“ Og svo fór ég að öskra eins og brjálaður maður. Jafnvel Siggi gat ekki sefað mig. Og allt í einu fór hann að skellihlæja. „Mér datt nú ekki í hug, að þetta mundi gera þig svona alveg sturlað- an,“ sagði hann. „Það var ég, sem skrifaði hótunarbréfin og útbjó alla miðana með grænu hendinni. Eg ætlaði bara að gera at í þér og sjá, hvernig þér yrði við Það cr ekki til neinn félagsskapur, sem heitir Græna höndin." Mysticus. betri myndir heima hjá sér. Það er nú rekinn harður á- róður fyrir þvi að setja hér upp íslenzkt sjónvarp og nefndir tugir og jafnvel hundr uð milljóna í því sambandi eins og ekkert sé. En minna er rætt um sjónvarpsefnið, sem á að bjóða áhorfendum upp á, nema hvað því er slegið föstu, að það verði varla meira en kannske í tvo tíma á dag, og þá talað um, að fá mætti film ur, sem sýndar eru í Keflavík- ursjónvarpinu, til að bæta upp á það, sem annars yrði sjón- varpað. Eg vil nú spyrja: Er ekki Framhald á 3 síðu.

x

Mánudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.