Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 28.09.1964, Síða 3

Mánudagsblaðið - 28.09.1964, Síða 3
Mánudagur 28. september 1964 Mánudagsblaðið 3 Ritstjpri og ábyrgðarmaður: Agnar Bogason. Kemur út á mánudögum. Verð kr. 7.00 í lausasölu. Áskrifenda- gjald kr. 300.00. Sími ritstjórnar: 13496 og 13975. Auglýsingasimi 13496. — Prentsmiðja Þjóðviljans. KonsRtinistsr allstaðir á undanhaldi — Ný tækifæri ríkisstjérnarinnar Eí litið er yfir stjórnmálaþróun í heiminum síð- ustu áratugi er sýnilegt, að öfgastefnur eins og kommúnismi, eru víðast hvar að missa alla fót- festu, en frjálslyndi nær öruggari fótfestu um all- an hinn menntaða heim. Auðvitað verður ekki rætt um þær þjóðir austan tjalds, sem búa við algjört einræði. Þó sjást bess nú víða merki að einræðis- herrar í kommúnistalöndunum hafa víða tekið upp þá stefnu að rýmka að mun frjálsræði begnanna, enda munu Pólverjar þar fremstir. Hafa þeir löngu gefið upp öfgastefnu sameignarbúanna og aðra á- líka heimskulega- og ófæra þjóðnýtingarstefnu. Þótt langt sé enn í land í þessum ríkjum, að sönn frjálsræðisstefna ráði ríkjum, þá er vissulega nokk- ur ástæða til bjartsýni, ef svo heldur áfram. Um Afríkuþjóðirnar verða menn fyrr eða seinna að játa, að þær eru enn algjörlega óþroskaðar, flest- um, sem sjálfstæði hafa hlotið, stjórnað af hrein- um æfintýramönnum með öllu óábyrgum þó þar sé máske um sáralitlar undantekningar. Kommún- isminn hefur sýnt það allt frá rússnesku bylting- unni, að hann þróast ekki né heldur völdum nema þar sem algjör örbyrgð hins almenna borgara er höfuðskilyrði. Þessvegna hefur allur hinn vestræni heimur hafnað kommúnistum, þeir eru að falla frá nær á öllum vígstöðvum, nema þeim, sem þeir hafa skapað með hernaðarlegu ofbeldi og harð- stjórn einræðisins. Á íslandi hefur innsta klíka hins margskipta Al- þýðubandalags nýlega játað allskyns samninga- makk við einræðisherra Rússa. Hafa nú kommar sjálfir kastað grímunni svo vendilega að allt logar innan herbúðanna þar, telja má víst, að við næstu kosningar hrynji af þeim fylgið en frjálslyndari flokkar hafi yfirburðasigur. Nú er kominn tími til fyrir ríkisstjórnina að athuga sinn gang í alvöru- málum þ.e. hvar ber að uppræta komma úr opin- berum embættum,- mikils verðum embættum. Er það jafnan siður begar hreinsað er til, að komast niður úr óþverranum, nema burtu allar meinsemd- ir svo hægt sé að byggja upp á heilbrigðan hátt. Víða skipa kommúnistar enn veigamikil embætti í menningarmálum okkar, listum öllum og víðar. Hafa þeir óspart notað aðstöðu sína til að ala upp ólistræna ónytjunaa, sem engan rétt hafa til lista- né mennmgarnafns og fyllt þannig raðir alvöru menninaarfólks, og sölsað undir sig stjórnarvöld í hinum fjölmörgu félögum. Hafa þeir og náð í- skyggilegu valdi yfir hálfkommum, sem standa fyrir stórum útgáfufyrirtækjum og koma ,,verkum" þeirra, hversu lítilsvirði, sem þau kunna að vera á framfæri. En þótt við séum mótfallnir opinberum afskiptum af útgáfu einstaklinga, þá erum við ekki síour fvlgjandi því, að þeir, sem játað hafa holl- ustu erlendu ofbeldisveldi skuli þegar þurrkaðir burt úr opinberum stofnunum. Það er óþrifnaður, hættulegur óþrifnaður af kommum og vissulega ætti það að vera verk frjálslvndra stjórnar, að koroa í veg fyrir frekari áhrif beirra, hvort heldur er í kennarastétt, listamanna, eða á öðrum sviðum. Gervimennsku sína geta þeir breytt út með eiain áróðurstækium og vandalaust fvrir alþioð að styra framhjá slíkum evðiskerjum andlegra framfara. KRAFTA- VERKID Höf. William Gibson — Leikstj.: Klemenz Jónsson Leikstjóii misskilur verkefni — Léleg frumsýning Þjóðleikhúsið: Frunisýningar Þjóðleikhúss- ins á „Kraftaverkinu“ eftir William Gibson var beðið með talsverðri eftirvæntingu, en hér er um að ræða fremur sérstætt efni, meðhöndlað af höfundi, sem getið hefur sér gott orð fyrir dramatís'k tilþrif í verk- um sínum, þótt fá séu. Vissulega verður því ekki neitað, að „Kraftaverkið" („The Miracle Worker“) er mjög sér- stætt. Sagan um fyrstu þroska- ár Helen Keller, fyrstu tilraun- ina til að koma sjö ára barni í tengsl við umheiminn, hið ó- eigingjarna og fórnfúsa starf Anne Sullivan, en það hélzt síð- an óslitið, þar til Anne lézt. Hér er vissulega tilefni mikilla átaka, og glöggt auga og góðir hæfileikar eýna vel, hversu gera má áhrifaríka, en fremur ein- falda sýningu úr þessum efni- viði. En það er alls ekki póg, að liafa bara bókina eina að vopni. Hér ríður á, að leik- stjórinn hafi glöggt auga, kunni að leggja réttar áherzlur á þau atriði, sem höfundur vill, að áhorfendum verði minnisstæð. Reyndar er Kraftaverkið sam- ið upp úr sjónvarpsleikriti, en það skiptir ekki máli hér. Höf- undurinn ritar hlutverkið þá, sem honum finnst vera aðalhlut verkið, fyrir eina kúnnustu leik- konu Bandaríkjanna, enda bendir nafnið augljóst til þess. Halda menn, að hlutverk, sem er ritað fyrir Ann Bancroft, sé ætlað sæti no 2 í verkinu — sjálft titilhlutverkið ? Það er kennslukonan, Anne Sullivan, sem er eins mikil „þungair.iðja" og Helen. Leik- rit Gibsons er fyrst og fremst „umgjörðin" um barnið, sterkir persónudrættir, faðirinn, móð- irin, sonurinn, og svo sjálf kennslukonan, Sullivan. Þótt leikritið sé einfalt í sniðum, er það, engu að síður, ákaflega skýrt í persónudráttum og hnit- miðað í einfaldleik sínum Þetta verður leikstjórinn að gera sér ljóst í upphafi, kynna sér til hlýtar hverja einstaka persónu, tíðarandann, og þá ekki sízt umhverfið, þar sem leikurinn gerist. Það er raun að segja frá því, en hér hefur svo óheyri- lega til tekizt, að þessi kjarni hefur algjörlega farið framhjá leikstjóranum og það — sem aldrei skyldi orðið hafa — framhjá leikkonu þeirri, sem á að hafa veg og vanna af sýn- ingunni. Veldur þetta þvi, að sýningin, sem slík, verður ein reginupplausn, láus í böndum, og oft hjárænulega leiðinleg og einhliða. Lei'kstjórinn, Klemenz Jónsson, beinlínis missir í upp- hafi sjónir af eðli verksins, og árangurinn verður sá, að við sjáum mjög lélegt „einvígi" milli barns og fullorðinnar leik- konu. Barninu fyrirgefur mað- ur, en leikstjóranum ekki. Utan þessa einvigis verður svo fjöl- skyldan eins og laus rammi, næstum óviðkomandi aðalpers- ónunum. Höfundur ætlar leik- stjóra frjálsar hendur. Hann færist undan að gefa um of af beinum „ófrávíkjanlegum in- struktions-atriðum" heldur fel- ur leikstjóra að velja, hafna, lagfæra eftir því sem smekkur hans segir til um. Leikhúsfólk má aldrei láta sér líða úr huga, að verk ber að dæma eftir eig- Gunnvör Braga, Arnar Jónsson og Kristbjörg Kjeld í hlutverk- um sínum. inlega þremur meginatriðum: hvað leggur höfundur til, hvað leikstjórinn, hvað leikarinn? Hér verður ekki annað sagt, en að efniviðurinn hafi verið mjög góður, en leikstjórnin og þá oft leikarar felldu sýninguna. Kristbjörg Kjeld, Anne, leik- ur þegar í upphafi undir því skýi misskilnings, að hún hafi með höndum hlutverk no 2. Leikstjórinn leggur alla áherzlu á að þær vinkonurnar, Helen og Anne, „séu verkið“, aðrir óþarfir, snýr síðan hlutverkun- um við, og beinlínis „forserar" ofleik, handapat, örvæntingu langt úr öllu hugsanlegu sam- ræmi. Sýningin verður hið mesta óeðli, þótt víða bryddi á nokkurri innlifun. Sýnilega hefur leikstjórinn lagt allta á- herzlu á að stjórna persónulega hinni ungu dömu Gunnvöru Brögu Björnsdóttur. Árangur- inn sýnir sig vel, því barnið nær athyglisverðum látbragða- leik, fer langt fram úr vonum. En oft ofgerir Gunnvör litla Helga Valtýsdóttir, Arnar Jónsson, Gunnvör Braga, Kristbjörg Kjeld og Valur Gíslason. líka, og sýnilega með blessun leikstjói-ans. Kristbjörg nær mörgu athyglisverðu úr hlut- verki sínu, þar sem leiðandi hönd leiþstjórans sýnilega kem- ur hvergi nærri, en frúin verð- ur nú að fara að vanda rödd sína, reyna einhverja mýkt í svip. Svo kyrfilega hefur tekizt að rugla miðpunkti þessa verks að fjölskylda Kellers verður eins og utangátta við sviðið. Faðirinn, Valur Gíslason, eins og reyndar andrúmsloftið allt, er eins ósuðurríkjamannlegur í öllu atferli og frekast má verða, viðbrögð móðurinnar, Helgu Valtýsdóttur, voru heil- brigð og vel gerð, en verða af þessum einstöku óheilindum eins og úti á þekju. Amdís Björnsdóttir leikur „straight", siglir í gegnum senur sínar eins og henni komi fjandann ekki við „hitt pakkið". Arnar Jóns- son nær litlu úr verkefni sínu, en þó meiru en Ámi Tryggva- son — sem brá upp mynd af Árna Tryggvasyni. Ævar Kvar- an lék ósköp rutine, það sópaði að Emelíu, þótt draga megi í efa skilning hennar á þessu verkefni. Um aðra er ekkert að segja. Tjöld voru hinsveg- ar ágæt og ljósanotkun oft þo'kkaleg. Það er sannarlega ekki leik- hússtjóminni að kenna nú, þótt leikárið hef jist ekki betur. Verk efni þetta á fullan rétt á sér, en það krefst þess fyrst og fremst, að menntaður leikstjóri fjalli um það. Vill leikhúsið, sem oft ræður ágæta, erlenda leikstjóra, ekki inna þá eftir þeirri r.auðsjmlegu menntun, sem leikstjóri þarf að hafa, þeir myndu áreiðanlega vera fúsir til þess. Einstaka sinnum skjóta ,,séní“ upp kollinum, en það eru aðeins undantekningar. Við getum ekki á 16. starfsári Þjóðleikhússins horft á svona Framhald á 4. síðu.

x

Mánudagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.