Mánudagsblaðið - 28.09.1964, Side 4
Mánudagsblaðið
Mánudagur 28. september 19G4
SENDLA
drengi eða stúlkur vantar á ritsímastöðina í Keykja-
vík. Vinnutími fjórir tfmar á dag, kl. 8—12, 13—17
og 18—22.
Nánari upplýsingar á Skeytaútsendingu ritsímans
sími 22079.
Sænskur tæknifræðingur
óskar eftir 2ja til 3ja herbergja íbúð sem fyrst.
Upplýsingar fást í síma 11000, innanhússími 221.
PÓST- OG SÍMAMÁLASTJÓRINN.
Lítil bók og
stór málefni
Framhald af 2. síðu.
TVÆT STÓRBYLT-
INGAR
UPPLAUSN OG
VÉLVÆÐING
Þriðja greinin í þessu hefti
skýrir frá þeirri sögulegu ný-
ung að á árabilinu 1930—1946
hafa tvær stórbyltingar ger-
breytt þjóðlífi og þjóðháttum
á Islandi. Önnur byltingin hef-
ur gert þúsund ára bændaríki
íslendinga óstarfhæft til að full
nægja lögbundnum s'kyldum.
Hin byltingin hefur vélvætt
landið. Mjög fullkomnar vélar
vinna nú flest erfiðustu verk
með landsmönnum á landi, sjó
Boðið til Bandaríkjanna
Nám í æskulýðs- og barnaverndarmálum
Islenzkir aðilar — tíu alls —
hafa nú í þrjú ár tekið þátt í
Clevelandáætluninni fyrir starfs
menn á sviði æskulýðs- og
barnaverndarmála (á ensku The
Cleveland Intemational Pro-
giram íot Youth Leaders and
Socia! Workers), en þátttak-
endum frá ýmsum þjóðum er
árlega gefinn kostur á að kynna
sér slíka starfsemi vestan hafs.
Nú er hafinn undirbúningur
að námsdvöl útlendinga á veg-
um CIP-áætlunarinnar á næsta
ári, og gefst allt að þrem Is-
lendingum kostur á að taka
þátt í námskeiðinu, sem stend-
ur í rúma fjóra mánuði (hefst
í apríl og stendur til ágúst-
loka). Koma þeir einir til greina
sem eru á aldrinum 21-40 ára,
en umsækjendur á aldrinum 25
-35 ára verða látnir ganga fyr-
ir að öðru jöfnu. Þá er það
skilyrði fyrir styrkveitingu, að
uinsækjendur hafi gott vald á
enskri tungu, og einnig verða
þeir að hafa starfað að æsku-
lýðsmálum, leiðsögn og leiðbein
ingu fyrir unglinga eða barna-
veradarmálum.
Námskeiðinu verður hagað
þannig, að þátttakendur koma
allir saman í New York og
verða þar fyrst 3 daga en síðan
verður mönnum skipt milli f jög
urra borga — Clevcland, Chi-
cago, Minneapolis, St. Paul og
Philadelphia þar sem þeir munu
sækja tvö háskólanámskeið,
hvort á eftir öðru, sem standa
samtals i sjö vikur. Að þvi
búnu mun hver þátttakandi
verða um 10 vikna skeið sum-
arstarfsmaður amerískrar stofn
unar, sem hefir æskulýðs- eða
barnaveradarstörf á dagskrá
sinni.
Þeir, sem hafa hug á að
sækja um styrki þá, sem nú
eru í boði, geta fengið umsókn-
areyðublöð þar að lútandi í
menntamálaráðuneytinu eða
Upplýsingaþjónustu Banda-
ríkjanna, Hagatorgi 1, Reykja-
vík.
(Frá Upplýsingaþjónustu US)
Bílaleigan BIL LIN N
býður viðskiptavinum sínum margar tegundir bif-
reiða af nýjustu gerð.
Bílaleigan R í L L IN N
hefur hlotið viðurkenningu fyrir fullkomna bjón-
ustu.
Bíla'eigan B í L LIN N
Höfðatúni 4, SIMI 18833.
og í lofti. Upplausn stjórnar-
foi-msins og hin sístarfandi
orka vélanna eiga illa saman.
Hér verða aðeins nefnd þrjú
dæmi um hin trúlegu áhrif
byltingarhyggjunnar.
Þegar forystumenn þjóðarinn
ar kveðja borgarana á mál-
þing verða þeir að eyða miklum
hluta fundartímans til að láta
gamanleikara og loddara
skemmta fólkinu. Annars mundi
það ekki sækja samkomur þar
. sem ráðherrar og þingmenn
vilja og eiga að ræða félagsleg
vandamál borgaránna.
Á árabilinu 1930—1964 hefur
íslenzk króna verið sífallandi
gagnvart dollar úr rúmlega
fjórum krónum í liðugar sextíu
og þrjár krónur. Allan þennan
tíma bjó þjóðin að vaxandi
framleiðslu og óhemju innflutn
ingi góðmálma.
Sumarið 1963 gafst sjö
manna ráðuneyti og sextíu
manna þing algerlega upp við
að sinna því skylduverki að á-
kveða starfsfólki þjóðarinnar
lögmæt laun en setti nefnd óvið
komandi manna út í bæ til að
gera þessa ákvörðun. Slík upp-
gjöf 7 ráðherra og alþingis á
sjálfsögðustu skylduverkum er
ekki sprottin af minkandi þrótti
forustumanna lýðveldisins held
ur eingöngu af því að hin aust
ræna mannfélagslausn og ó-
væntur og óumbeðinn fjármagns
straumur vestan um haf hafa
leitt þjóðarskútuna á strand-
fjörur. Skýring mín í umræddri
grein er fyrsta tilraun, sem
gerð hefur verið hér á landi til
að átta sig á þeirri staðreynd
að fullfærir menn bæði um með
fædda hæfileika og lærdóm gef-
ast upp í trúnaðarstöðum mann
félagsins við lausn skylduverka
sinna.
Eg hætti á í niðurlagi bylt-
ingargreinarinnar að benda á
leið til úrbóta en þau úrræði
koma ekki að notum fyrr en
landsfólkið viðurkennir að skip-
ið hafi strandað og mannbjörg
orðið og þörf fyrir nýtt mann-
félagsskýli.
I þesu hefti bókar minnar
kem ég nokkuð að væntanlega
auknum kynnum milli Islend-
inga og Ameríkumanna á grund
velli minninganna um hetjudáð
Leifs heppna og stallbræðra
hans. Ef þau kynni eiga að auk
ast báðum til gagns og sæmdar,
þá verðum við að fella alger-
lega niður betlikennda ásókn í
peninga og verðmæti Vest-
manna. Ófrjálsar þjóðir halda
á loft betlistaf og beininga-
skjóðu.
I ritgerð minni er sögð nægi-
lega glögglega hetjusaga Finn-
Iendinga sem varast betliskuldir
og fjársvik. Með þvi og öðrum
hreystibrögðum hafa þeir bjarg
að frelsinu. Þar er fullkomnust
fyrirmynd í skiptum smáþjóðar
við stórveldi.
KRAFTA VERKIÐ
Leikdómur — 2
meðferð á verkefni. Klemenz
Jónsson hefur sýnt hæfileika
við barnaleikrit, liti, ljóð,
söngva og dansa, eftir formúl-
um, sem fyrir löngu eru orðnar
viðurkenndar. En nú mistókst
alveg. Raunverulega, ef maður
vill strangt til taka, þá örlaði
ekki á leikstjórn, heldur aðeins
fálmi og misskilningi. Þegar
einu verkefni er þannig stjóm-
að, að sex til átta af þekktustu
leikurum þjóðarinnar, í verk-
efni, sem hefur 9-10 hlutverk,
„verka“ ekki fram fyrir sviðs-
ljósin, þá er eitthvað meira en
lítið bogið við sýninguna. Það
er ekki nóg, að geta komið upp
snöggri tilfinningasenu, eins og
tókst einu sinni eða tvisvar um
kvöldið, þegar bein mistök og
misskilningur leikstjórans gera
verkið langdregið, einhæft og
oft óþolandi leiðinlegt.
Þeir eru til hér, sem hefðu
getað komið þessu upp, en leik-
hússtjómin má aldrei gleyma
þeirri menntun, sem góðum lei'k
stjóra er lífsnauðsyn.
A. B.
Vélritunurstúlkur
sem kunna dönsku og ensku óskast nú þeg-
ar á ritsímann í Reykjavík. Nánari upplýs-
ingar hjá ritsímastjóranum. ’
Luus stuðu
fyrir verkfræðing eða tæknifræðing.
Slökkvistöðin í Reykjaví'k óskar að ráða verkfræðing
eða tæknifræðing til að stjórna eftirliti eldsvama.
Umsóknarfrestur til 10. október.
Upplýsingar gefur undirritaður.
SLÖKKVILIÐSSTJÓRINN 1 REYKJAVÍK.
KROSSSÁ TAN
LÁRÉTT: LÓÐRÉTT:
1 Baráttan 2 Upphafsstafir
8 Þvegin 3 Höfuðborg
10 Bókaútgáfufélag 4 Rithöfundasamband
12 Elskar 5 Forsætisráðherrafrú (erl.
13 Upphafsstafir 6 Greinis
16 Hjartasjúkdómur 7 Gætti
16 Kornland 9 Fer aftur
18 Verkfæri U Auralaus
19 Jökuls 13 Bætt við
29 Kvenmannsnafn 15 Beita
22 Biirta 17 Líffæri
23 Ósamstæðir 21 IHgresi
24 Stormur 22 Klettur sem brýtur á
26 Ósamstæðir 25 Amboð
27 Ákvað 27 Verkfæri (þf.)
29 Prflar 29 Ósamstæðir
*
4