Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 28.09.1964, Síða 6

Mánudagsblaðið - 28.09.1964, Síða 6
ÚR EINU / í ANNAD Raunir Mjólkursamsölunnar — Mikilmenni á hverju strái — Háskóla lögregla — Atvinnu- amatörar? — Bjórinn heim — Sjónvarps- viðvaningar. Svo virðist sem Mjólkursamsalan vinni sér allt sem erfiðast eða a. m. k. viðskiptavinum sínum. Hyrnurnar, þessi úrelta gerð, passa ekki í neinn íeskáp og eru hin- ar óhentugustu í meðförum, enda liggur grunur á, að annað ráði þeim kaupum en fyrirgreiðsla við viðskipta- vinina. Yfirmenn Mjól'kursamsölunnar lofuðu, en efndu ekki, að skýra það mál. En svo er það eitt: Hve lengi á þetta grín með smáaurana að ganga? Þessar 94, 96, 53- aura upphæðir, ekki aðeins tefja alla afgreiðslu heldur standa af þeim allskyns óþægindi. Samsalan ætti að sjá sóma sinn í að hætta svona sveitamannaaðferðum. Þeir, sem fylgjast með erlendum daghlöðum og bera þau saman við íslenzk, komast bráðlega að þeirri niður- stöðu, að engu er líkara en hver látinn maður eða kona á Islandi sé að einhverju leyti afreksmanneskja. Benda hinar ferlegu, löngu og oft vælandi minningargreinar bezt á þetta. Ef maður lifir nokkurn veginn grandvöru lífl, fylla blöðin marga dálka af lofi og dýrð. Börn, mörg ómálga þegar þau deyja, hljóta langa lofrollu um bros ' sitt og hlýju, mál, sem sannarlega skiptir enga máli nema þá nánustu. Þessar öfgar eru orðnar svo miklar, að undrun sætir og ætti það að vera skylda blaðanna að draga úr þessu. Oft vill svo til að þrjár, fjórar greinar fjalla um sama mann, og undantekningarlaust telja þær allar upp fæðingarár, foreldra, fæðingarstað, börn, tengda böm og aðrar almennar upplýsingar, sem aðeins taka pláss. Vonandi sjá menn bráðlega hverskyns brjálæði þetta er. Meðaumkvun og samhryggð er eitt, — fífla- skapur eins og þetta er annað. Sjónvarpið — Þessa viku — Sunn.udagur 1600 Sermons from Science 1630 CBS Sports Spectacular 1700 Young PeoPle‘s Concert 1830 Greatest Dramas 1830 The Big Picture 1900 Afrts News 1915 The Christophers 1930 Bonanza 2030 Disney Presents 2130 Ed Sullivan Show 2230 The Joey Bishop Show 2300 Final Edition News 2315 Northem Lights Playhouse „Appointment with Murder Mánudagur 1800 Science in Action 1830 Mayor of the Town 1900 Afrts News 1915 Encyclopedia Britannica 1930 Lucky Lager Sports Time 2000 Death Valley Days 2030 Lawrence Welk 2130 Dick Powell Theater 2230 Target 2300 Final Edition News 2315 The Steve Allen Show Þriðjudagur 1800 True Adventure 1830 Ojeration Brother’s Brother 1900 Afrts News 1915 Telenews Weekly 1930 Andy Griffith Show 2000 Battleline 2030 Wonders of the World 2100 My Favorite Martin 2130 Combat 2230 Lock-up 2300 Final Edition News 2315 Once upon a Mattress Hvernig væri, að háskólinn réði til sín einskonar há- skólalögreglu um helgar meðan skólatíminn stendur yfir. Undanfarin ár, eins og reyndar alla tíð skólans, hafa flest „garð“-böll endað á flakki háskólanema, kvenna og karla um borgina, syngjandi, æpandi og öskrandi um miðjar nætur. Þegar þeir eru á leið á „Garðana“ neðan úr bæ gegnir sama máli. Þessi hámenntaði lýður má ef- laust láta eins og hann vill innan skólalóðarinnar, en borgarar eiga að hafa frið fyrir þessum næturhröfnum. Það er nóg að þjóðin kosti þá til náms. Miðvikudagur 1800 Visit with a Sculptor 1830 My Three Soms 1900 Afrts News 1915 Science Report •1930 The Dick Van Dyke Show 2000 Hollywood Palace 2100 Celebrity Game 2130 The Untouchables 2230 Markham 2300 Final Edition News 2315 On Broadway Tonight Loksins kom að því, að Leikfélag Reykjavíkur losnaði við amatör-svipinn, því nú réði félagið til sín sjö leikara, karla og konur. Nú verður vart lengur litið á leikhúsið við Tjörnina, eins og stritandi fátæklinga, heldur arð- bært einkafyrirtæki, sem keppir við Þjóðleikhús Islend- inga. Lei'khúsið hefur nú þegar nokkra starfskrafta, sem vinna á fullu kaupi, og velgengni undanfarinna ’ra skapar því nú möguleika að greiða Ieikurum. Það fer ekki hjá því, að þessi breyting hlýtur að setja alveg spánnýjan svip á alla starfsemina. Blaðið hefur fengið he!'--iikið af bréfum út -f bjór- greininni, sem birtist á forsíðu um daginn. Flest eru þau á einn veg — bjórinn heim. Bezta dæmið um misheppn- að bann eru Bandaríkin, en eins og heimspekingar, sál- fræðingar og aðrir metnir hugsuðir hafa ætíð sagt. Bönn eru eldisstöð glæpa í einhverri mynd. Bandaríkin fengu aldeilis smjörþefinn af því — við fáum hann í sinærri mæli, en þó aukast glæpirnir sem hálffullir unglingar, vitstola af brennivini, fremja. Ríkisstjómin er nú nær öll heima. Því ekki að athuga málið. ? Margir eru farnir að spekúlera alvarlega hvernig fer með íslenzka sjónvarpið, einkum með tilliti til allskyns skemmtikrafta. Þegar öll alþýða útvarpshlustenda er orð- in leið á sömu listamönnunum t.d. í útvarpsleikrítum. hvernig fer þá þegar við horfum á þá í þokkabót. — Segja mætti manni, að þrátt fyrir sjarmann hans Þor- steins okkar Ö., þá myndi hann eitthvað dvína, ef við horfðum á hann viku eftir viku og ár eftir ár í hlut- verkum. Sama máli gildir um aðra. Fáir hafa trú á öðru en tómum mistökum fyrst knýja á’sjónvarpið svo fljótt í gang eins og blöðLn segja. Væri betra að flýta sér hægt um stund og reyna að viða að okkur erlendum sérfræðingum, heldur en trej'sta á þá, sem kynna sér starfsemina einn eða tvo mánuði. Fimmtudagur 1800 Twentieth Century 1830 Mr. Ed 1900 Afrts News 1915 The Telenews Weekly 1930 Ripcord 2000 Stars, Pathway to Space 2030 Five Star Jubilee 2100 Conorado 9 2130 Checkmate 2230 Redigo 2300 Final Edition News 2315 Remember How Great Föstudagur 1800 Danny Thomas Show 1830 Current Events 1900 Afrts News 1915 Science Report 1930 Sea Hunt 2000 A Star and the Story 2030 Rawhide 2130Fight of the Week 2230 Headlines 2300 Final Edition News 2315 N. L. Flayhouse „Courageous Mr. Penn“ Laugardagur 1400 Magic Land of Allakazam 1430 Saturday Sports Time 1700 Current Events 1800 American Bandstand 1855 Chaplain’s Comer 1900 Afrts News 1915 Navy Screen Highlights 1930 Perry Mason 2030 Desilu Playhouse 2130 Gunsmoke 2230 King of Diamonds 2300 Final Edition News 2315 „The Atomic Ki«i“ Skylda Alþingis að... Framhald af 1. síðu. eri að digga við að koma upp gosdrykkjaframleiðslu. Ekkert I viðskiptaheiminum virðist S. H. óviðkomandi og svo er kom- ið, að fyrirtækið er farið að reyna að yfirstíga og ' ollvarpa öðrum, sem um árabil hafa fengizt við þennan atvinnurekst ur. Furðuleg áskorun Svo ósvífnir hafa forráða- menn Sölumiðstöðvarinnar orðið í starfsemi sinni, að þeir hafa beinlínis samþykkt að skora á ríkisstjórnina að „BANNA“ alla sainkeppni svo þeir geti einir setið að feitmetinu. — Þetta er nær einsdæmi um heim allan, I Iýðfrjálsu ríki, að nokkurt fyrirtæki þyrði að koma slíkri samþykkt á framfæri. Vitanlega hefur ennþá ekki skriðið til skarar um fram- kvæmdir, en ef dæma á eftir afstöðu rikisstjórnarinnar gagnvart þessu fyrirtæki undanfarin ár, veit enginn hvernig færa kann. Öskjuæfintýrið I fyrra, eftir ýmsar bollalegg ingar, samþykkti S.H. að stofna öskjugerð, þótt í landi sé til nýtízku slík verksmiðja, sem um árabil hefur eklji aðeins sinnt allri þörf landsmanna en hefur á prjónunum að flytja út vissar umbúðir. Hefur fram leiðsla þessarar verksmiðju hlot ið viðurkenning um allan heim, sem algjörlega sambærileg við hið bezta ytra. Þrátt fyrir það, að mál þetta kæmist inn á al- þingi og væri rætt á þingfund- um virðist ríkisstjórnin ekki telja þess þörf að banna þetta Sunnudaginn 27. sept. er hinn áriegi merkja- og blaðsöludag- dagur Sjálfsbjargar, lands- sambands fatlaðra. Verð á merkinu er kr. 10.00 og blað- inu kr. 20.00. Starfsemi Sjálfsbjargarfélag- anna, sem eru 10 að tölu með yfir 800 meðlimi, stendur nú með miklum blóma. Reknar eru tvær vinnustofur á vegum félaganna og sú þriðja mun taka til starfa í haust. Á Ak- ureyri er unnið að byggingu I vinnustofu og eru framkvæmd- ; ir langt á veg komnar. Þá er félagið á Sauðárkróki að koma sér upp snotru félags- og vinnuheimili. Landssambandið rekur skrif- stofu að Bræðraborgarstíg 9 ’ Reykjavík, er veitir bæði ein stakþngum og félagsdeildunun- margháttaða fyrirgreiðslu. Stærsta verkefnið, sem sam- tökin vinna að er bygging dvalar- og vmnuheimilis fyrir athæfi um leið og samþyk'ktar eru álögur á almenning til þess að halda gangandi þeim einum atvinnurekstri, sem í upphafi var til ætlazt að S.H. ræki. Hlutverk ríkis- stjórnar og þings Það er vissulega kominn tími til að ríkisstjórnin eða réttar sagt Alþingi sjálft fari að taka I taumana. Þegar fyrirsvars- menn hinnar frjálsu samkeppni um heim allan, mest í sjálfum Bandaríkjunum, sjá í hvert ó- efni stefnir þegar fjársterkir eða Iánsterkir aðilar fá að leika lausum hala í f jármála- og við- skiþtalífinu, og bregða fæti fyr ir slíka æfintýramennsku við hvert fótmál, er hægt að hugsa sép það, að í fámennu kotríki eins og Islandi, þar sem slíkrar einokunar myndi gæta enn bet- Framhald af 1. síðu. Hinn hái „standard" Margir eru kallaðir en fáir útvaldir stendur í Biblíunni. eintómar ágizkanir. Grannleitur miðaldra maður, grásprengdur í vöngum, flö'ktandi augnaráð, daufur svipur. Dýr amerískur bíll. Lúxusvilla í auðmanna- hverfi. Rótttækur í skoðunum. Búnaður og lifnaðarhættir sam kvæmt ensk-amerískum yfir- stéttarháttum. Mikil ferðalög til útlanda. Fyrirtæki erlendis. Búið á dýrum baðstöðum og ferðast til nálægra og fjar- lægra Austurlanda. Verksmiðju stofnun í Persíu. Fjárgæsla fyr ir járntjaldsþjóðirnar. Dvalir í Rússlandi. Öþrotleg fjárráð er- fatlaða. Verður sú bygging í Reykjayík. Þetta er í sjöunda sinn er samtök fatlaðra bjóða lands- mönnum merki og blað. Hef- ur ávallt verið tekið vel á móti sölubömunum, og þjóðin öll veitt samtökunum drengi- legan stuðning í baráttu sinni fyrir bættum hag fatlaðra í félags- og atvinnumálum. Eins og fyrr segir, verða sölustaðir um land allt; sjá félagsdeildimar um söluna, hver á sínu svæði, en velunn- arar samtakanna á öðrum stöðum. í Reykjavík, Kópavogi. Silf- urtúni og Hafnarfirði, verða merkin og blaðið afgreitt í barnaskólunum, og á skrifstofu Sjálfsbjargar, Bræðraborgar- stíg 9. Sjálfsbjörg, landssamband "atlaðra, treystir á skilning og ’elvild landsmanna, að þeir nú sem fyrr, taki sölubörnun- um vel og leggi þar með sitt til styrktar og eflingar sam- taka fatlaðra. Uí skuli sjálft þingið og ríkis- stjómin Iáta afskiptalaust hvert gerræðið á fætur öðru í þessum málum. Máske þjóð- nýta S.H.? Þjóðin óskar ekki eftír að þurfa að greiða aukaskatt tíl þess að fáir menn getí leildð Iausum halda með f jöregg henn ar, auðgað sjálfa sig og undir okað allt frelsi í viðskiptalífinu. Ríkisstjórnin er skyldug að hefja þegar í stað ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir slíkt gerræði I viðskiptalífinu. Svona ofbeldi í viðskiptalífi cinnar smáþjóðar leiðir ekki tn annars, en að fyrirtæki eins og S.H. verði þjóðnýtt — þjóðnýtt og rekið af öllum öðrum en þeim, sem nú sitja þar að kjöt- kötlunum. lendis. Dýrir lifnaðarhættir hér' lendis. Mikil áisókn með yfir- færslu fjár i erlenda mynt und- ir allskonar nöfnum. Hvaðan koma öli fjárráðin? Fjárflóttinn Það er vitað að fjöldi Islend inga á mikið fjármagn erlendis sem er til orðið með marg- breytilegum hætti. Verð inn- fluttra vara gefið of hátt upp. Verð útfluttra vara gefið of lágt upp og útflutt meira vöru magn en faimskjöl greina. Alls konar umboðsSiun og sýndar- kröfur yfirfærðar sem skjól fyr ir fjárflótta. Erlendur maður sem lengi hefur dvalið á Is- landi og er kunnugur öllum hög um og háttum, fullyrðir að út- flutningur Islendinga hafi ávalt staðið raunverulega undir gjaldeyrisþörfum þjóðarinnar, ríkisskuldirnar og eriendu skuldimar séu til orðnar vegna fjárflótta. Ótrúlegt —- Ný ráð? Þegar íslenzkir kaupsýslu- menn staddir erlendis leysa frá skjóðunni við hina erlendu við skiptavini sína koma fram hin- ar ólíklegustu upplýsingar. Þær dýru veizlur sem íslenzkir kaup sýslumenn halda erlendis vekja furðu og íburður og tilkostnað- ur svo úr hófi fram að þvi verð ur vart lýst. Hvaðan koma öll þessi fjárráð. Skattaskrámar eru þöglar um þessa hluti. Sumstaðar eriendis þar sem fjárflótti hefur verið að tæra upp þjóðarauðinn, hafa ríkis- stjórnir tekið upp það ráð að heimila mönnum í ákveðinn tíma að flytja heim erlendar eignir sínar án nokkurra viður- laga. Þetta hefur verkað að vissu marki. Væri slíkt ekki reynandi hérlendis? (SpuruU.) Merkja- og blaðsöludagur Sjálfsbjargar Hugleiðing: — Fjarfíótti o.fí.

x

Mánudagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.