Morgunblaðið - 26.06.2005, Side 5
26.6.2005 | 5
6 Flugan
laumaði sér vitanlega á afhendingu Grím-
unnar í Þjóðleikhúsinu og stóðst næstum
samanburð við rjómann af íslenskum leik-
konum…
8 Að vera flottur og góður í senn
Tryggðarbönd í ýmsum lit-
um tröllríða nú heimsbyggð-
inni. Hér á landi hafa
Krabbameinsfélagið, BUGL
og MS-félagið gefið út slík
bönd til fjáröflunar.
10 Ofurhetjur og kaffihús
Tveir kennarar úr Háskóla
unga fólksins, Róbert og Sóley, segja frá
greinum sínum, heimspeki og kynjafræði.
Sjálf stunda þau framhaldsnám við Háskóla
Íslands.
12 Kraftaverk lífsins
Fyrr í júnímánuði kom Ása Sóley í heiminn
á heimili sínu, foreldra sinna og Kamillu
stóru systur. Heimafæðingar færast í vöxt
hér á landi og tvær ljósmæður á höfuðborg-
arsvæðinu sinna nær eingöngu heimafæð-
ingum.
14 Aldrei segja aldrei aftur
Tíska 9. áratugarins
þykir ekki beinlínis
með þeim flottustu,
en andi hennar lifir
enn. Og nú er von á
skurðgoðunum í
Duran Duran.
16 Bandarísk rif og
grísk „grillsósa“
Óbeinn hiti og lang-
ur eldunartími gefa
bestan árangur, séu
rif annars vegar.
18 Lofar góðu
Læknaneminn Gunnar Thorarensen hefur
hlotið styrki fyrir þátttöku sína í erfðafræði-
rannsóknum vestan hafs.
20 Krossgáta
Sælgæti gert úr augum? Skilafrestur kross-
gátunnar rennur út á föstudag.
22 Pistill
Helgi Snær hreyfir sig ekki lengur þótt
brunabjöllur hringi …
Tímarit Morgunblaðsins Kringlunni 1, 103 Reykjavík, sími 5691100, netfang: timarit@mbl.is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Valgerður Þ. Jónsdóttir, vjon@mbl.is
Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Prentsmiðja Morgunblaðsins ISSN 1670-4428
Forsíðumyndina tók Kristinn Ingvarsson af nýfæddri Ásu
Sóleyju, sem kom í heiminn kl. 17.55 fimmtudaginn 2. júní
2005.
Tryggðarböndin ná
máli: Fótboltakemp-
an Thierry Henry með
blátt tryggðarband
gegn einelti og svart
og hvítt tengt saman
gegn kynþátta-
fordómum.
8
Lífið er alltaf kraftaverk. Í hvert sinn sem það kviknar, í
hvert sinn sem það lítur dagsins ljós. Tölulegar upplýs-
ingar um mannfjölgun eru oft fréttaefni en fágætara er
að viðburðinum, sjálfri fæðingunni, séu gerð skil. Í
Tímariti dagsins er birt myndfrásögn Kristins Ingvarssonar og Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur
frá þeim bjarta degi er Ása Sóley Anderson kom í heiminn – fyrir rúmum þremur vikum. Færri
konur en fleiri á okkar tímum eignast börn sín innan veggja heimilisins en heimafæðingar að við-
stöddum ljósmæðrum munu þó hafa færst í vöxt á síðustu árum. Að því gefnu að allt gangi vel
frá heilbrigðissjónarmiði hljóta kunnugleg sængurfötin, kyrrðin og heimilislegt andrúmsloftið að
gera upplifun foreldra talsvert öðruvísi en þeirra sem börn sín ala á fæðingadeildum sjúkrahúsa.
Um kosti ólíkra leiða eru vissulega skiptar skoðanir, en valfrelsið sjálft er dýrmætt í nútíma-
samfélagi. Það er að sjálfsögðu ekki hlaupið að því að skrásetja fyrir fjölmiðil jafn einkalegan við-
burð og barnsfæðingu – slíkt krefst nærgætni, undirbúnings og fyllsta trausts af beggja hálfu.
Fjölskylda Ásu Sóleyjar var einkar alúðleg í samstarfi, sem hér með skal þakkað, og gaf öðrum
hlutdeild í kraftaverki sínu með gleði. Litla forsíðustúlkan dafnar nú í faðmi fjölskyldunnar sem
blasti við er hún var færð upp úr vatninu. Síðar á hún væntanlega eftir að hugsa um komu sína á
heimspekilegan hátt, enda gagnast heimspekin á margan hátt: „Hún kennir okkur að spyrja
spurninga, hugsa skipulega, íhuga hlutina, vega þá og meta. Það er ekki bara gott fyrir börn og
unglinga heldur okkur öll,“ segir Róbert Jack, hversdagsheimspekingur, á öðrum stað í blaðinu. |
sith@mbl.is
26.06.05
Það er hægt að hekla fleira en blúndudúka. Íris Egg-
ertsdóttir myndlistarkona og hönnuður heklar litrík
hálsmen úr glitgarni sem selst hafa eins og heitar lumm-
ur. Hvert þeirra er einstakt. „Eftir að hafa heklað háls-
menin festi ég á þau skrautlegar tölur, perlur, keðjur,
hluti úr gömlum skartgripum og annað sem til fellur og mér dettur í hug
að nota sem skraut. Þetta þróaðist upp úr hálsmenum sem ég heklaði úr
ull og urðu strax svo vinsæl meðal fólksins í kringum mig að ég fór að
prófa ýmsar aðferðir, margvíslega liti og allar mögulegar samsetn-
ingar,“ segir Íris. Hálsmenin fást í versluninni Pjúra sem er ný verslun
sem Íris rekur ásamt vinkonum sínum í Ingólfsstræti 8. Þær hanna og
búa sjálfar til allt sem þar fæst.
Hálsmenin | Íris Eggertsdóttir
Ís
le
ns
k
hö
nn
un
L
jó
sm
yn
di
r:
K
ri
st
in
n
In
gv
ar
ss
on