Morgunblaðið - 26.06.2005, Blaðsíða 6
og bleikum. Flottustu fæturnir tilheyrðu án nokkurs vafa dansaranum
Nadiu Banine en hún stikaði tígullega um íklædd svörtu og bar mikið af
silfurskarti. Mikið var um slaufur, jafnvel bundnar um ökkla damanna og
mjög dramatíska hælaskó og stuttir, þunnir kjólar með villtu blóma-
mynstri voru í algleymingi. Forsætisráðherra, Halldór Ásgrímsson, var
mættur ásamt eiginkonu sinni, Sigurjónu Sigurðardóttur, en hún var í
pilsdragt með gylltri áferð og gullskóm. Smart, en pínu konfektpapp-
írslegt ...
Kristbjörg Kjeld, sem átti einmitt sjötugsafmæli þessa helgi, var hvít-
klædd og falleg á hátíðinni. María Ellingsen, leikstjóri, var í eldrauð-
um, hlýralausum topp og maður hennar, fjölmiðlamaðurinn Þor-
steinn Joð, var alveg milljón í hvítum mafíósalegum fötum. Að
lokinni vel lukkaðri verðlaunaafhendingu var svo haldinn hátíð-
ardansleikur í Þjóðleikhúskjallaranum þar sem Trabant tætti og
tryllti.
Á helgarrölti sínu rak Flugan ennfremur augun í Braga Ólafs, rit-
höfund og fyrrum Sykurmola þar sem hann rölti skáldlegur á svip yf-
ir Austurvöll. Hann var með poka úr bókabúð, nema hvað, og var
ekki samkvæmisklæddur ... Annar maður með plastpoka vakti athygli
Flugunnar, Ástþór Magnússon, en hann var merktur Dressmann.
Það er að segja plastpokinn. Okkar ástsæli forsetaframbjóðandi
klikkar ekki á tískunni í tauinu.
Flugan sat fyrir utan Apótekið og sötraði kaldan bjór í kvöldsól-
inni þegar hersing af uppábúnu fólki stikaði framhjá og tók stefnuna
á Dómkirkjuna, þar sem ástar-
fuglarnir og sjónvarpsstjörnurnar
Logi Bergmann Eiðsson og
Svanhildur Hólm voru að ganga
í það heilaga. Óvenjulegt og
óneitanlega rómantískt að hafa
athöfnina að kvöldi til. Talað var
um að þetta væri brúðkaup ald-
arinnar. Afsakið, en er öldin ekki
enn í fæðingarhríðunum? Ver-
aldarvön vespustelpa leyfir sér að
vona að fleiri stórstjörnubrúð-
kaup séu framundan – við eigum
jú vonandi enn 94 ár til góða ...
flugan@mbl.is
Í
slensku leiklistarverðlaunin, Gríman, voru veitt í þriðja sinn í Þjóð-
leikhúsinu með glæsibrag. Fröken Fluga skellti sér í sparidressið,
setti upp sína prívat samkvæmisgrímu og mætti hress í fordrykkinn
til að „seleb-spotta“. Þefaði hún þar uppi aðrar skörungaskvísur eins og
frú Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta og Eddu Heiðrúnu
Backman, leikstjóra. Frú Vigdís var fremur stelpuleg í bleikum, þunnum
silkijakka með blómamynstri en Edda Heiðrún var aftur á móti töffari í
svörtum, austrænum slopp með gylltu mynstri og gæjalegum, svörtum
stígvélum. Ólafur Darri, leikarinn með Röddina, var kyntröllslegur í vel
sniðnum jakkafötum og bleikri skyrtu. Spákonan seiðandi, Sigríður
Klingenberg, var mætt með appelsínugult sjal vafið um sig og varalit í
stíl. Kristín Hauksdóttir, sýningarstjóri, var á miklum þönum að vanda
en gaf sér þó tíma til að óska gestum og gangandi til hamingju með dag-
inn, geislandi og sjarmerandi að venju.
Á uppskeruhátíð leikhúsanna var sumartískan í hávegum höfð; fagrir
fótleggir klæddir litríkum sokkabuxum, aðallega skærgrænum, rauðum
L
jó
sm
yn
di
r:
E
gg
er
t
Jóhanna Íris Ing-
ólfsdóttir og Kristín
Ómarsdóttir.
Grímur, fagrir fótleggir
og dramatískir, háir hælar …
… pokamenn, kvöldrómantík og stjörnubrúðkaup …
FLUGAN
Salbjörg Bjarna-
dóttir og Jóhannes
Viðar Bjarnason.
Nína Hjördís Þor-
kelsdóttir og Þóra
Sigurðardóttir.
Kristrún Sæbjörnsdóttir,
Ingunn Eyþórsdóttir og
Þorvaldur Þorsteinsson.
Gísli Vilberg Gunnarsson, Mats
Geschwind, Jónína Magnúsdóttir, Guð-
mundur Sigurðsson og Stefan Östberg.
Davíð Bjarni
Heiðarsson og
Hanna Wistedt.
Jóhanna Heiðdal,
María Teresa og
Kristján Imsland.
LEIKFÉLAG HORNAFJARÐAR sýndi Jesus
Christ Superstar í Loftkastalanum.
Árni Pétur Guð-
jónsson og Harpa
Arnardóttir.
Tanja Jashtshuk og
Þórir Þórisson.
Ágústa Stef-
ánsdóttir og Sigrún
Anna Jónsdóttir.
Hjörtur Magni
Jóhannsson og
Ebba Margrét
Magnúsdóttir.
Elísabet Magnúsdóttir og
Una Jóna Sigurðardóttir.
VÍKINGAHÁTIÐ 2005 fór fram
við Fjörukrána í Hafnarfirði.
L
jó
sm
yn
di
r:
E
gg
er
t
PÁLL ÓSKAR
og Monika
Abendroth
héldu sól-
stöðutónleika
í Café Flóru.
L
jó
sm
yn
di
r:
E
gg
er
t