Morgunblaðið - 13.07.2005, Síða 1

Morgunblaðið - 13.07.2005, Síða 1
2005  MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ BLAÐ C B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A CLIFTON COOK LEIKUR MEÐ HAMRI/SELFOSSI Í VETUR / C3 HEIMSMEISTARAMÓT ungmenna 17 ára og yngri hefst í Marakech í Marokkó í dag. Fimm keppendur taka þátt fyrir hönd Íslands en þau höfðu öll náð til- skildum lágmörkum alþjóðafrjálsíþróttasambandsins. Er þetta mesti fjöldi sem farið hefur frá Íslandi á mót- ið. Keppendurnir eru eftirfarandi: Sveinn Elías Elíasson keppir í áttþraut, Íris Anna Skúladóttir tekur þátt í 800 og 1.500 metra hlaupi kvenna, Ragnheiður Anna Þórsdóttir keppir í kringlu- kasti og kúluvarpi, Þóra Kristín Pálsdóttir keppir í sjö- þraut og Þorsteinn Ingvarsson keppir í langstökki og þrístökki. Mótið er nú haldið í fjórða skipti en þátttaka hefur farið vaxandi með hverju árinu og hafa aldrei fleiri verið skráðir til leiks en alls eru þátttakendur frá 178 þjóðum mættir til Marakech. Af Íslendingunum stígur Sveinn Elías fyrstur fram á svið í dag og hefur keppni í áttþraut. Íris Anna og Ragnheiður keppa einnig í dag, í 1.500 metra hlaupi og kringlukasti. Fimm á HM ung- menna í Marokkó Handknattleikssamband Evrópu,EHF, gaf út leikjadagskrá mótsins í gær og fara allir leikir C- riðils sem Ísland leikur í fram í smá- bænum Sursee, um 20 km norð-vest- ur af Luzern. Leikir A-riðils sem Slóvenar, Pólverjar, heimamenn og Úkraínumenn spila í verða háðir í St. Gallen. B-riðillinn verður leikinn í Basel en í honum eru Evrópumeist- arar Þjóðverja, Frakkar, heims- meistarar Spánverja og Slóvakar. Loks spila þjóðirnar í D-riðli, Króat- ar, Rússar, Portúgalar og Norðmenn í höfuðborginni Bern. Milliriðill í St. Gallen Takist íslenska landsliðinu að vera í einu af þremur efstu sætum C-riðils þá flytur það sig til St. Gallen mánu- daginn 30. janúar, þar sem annar milliriðillinn fer fram en þangað koma einnig þrjár efstu þjóðirnar úr D-riðli frá Bern. Verði íslenska liðið neðst í C-riðli þá heldur það heim líkt og það gerði á síðasta Evrópumeist- aramóti sem fram fór í Slóveníu í byrjun árs 2004. Milliriðill eitt verður leikinn í Bas- el. Allir leikir milliriðils fara fram þriðjudaginn 31. janúar, miðviku- daginn 1. febrúar og fimmtudaginn 2. febrúar. Þá verður gefið eins dags hlé til fyrir þær þjóðir sem leika um sæti í Zürich laugardaginn 4. febrúar og sunnudaginn 5. febrúar. Ísland mætir Serbum/Svart- fellingum í fyrsta leik EM ÍSLENSKA landsliðið í handknattleik mætir Serbum/Svartfellingum í fyrsta leik sínum á Evrópumeistaramótinu í handknattleik karla í Sviss á næsta ári. Flautað verður til leiks fimmtudaginn 26. janúar klukkan 18 að staðartíma. Daginn eftir mætir íslenska landsliðið því danska kl. 20.15. Tveimur dögum síðar verður komið að lokaleik riðlakeppninnar en þá leikur íslenska liðið við Ungverja og verður þá aftur leikið klukkan 18. Ólafur sagði aðstæðurnar hafaverið fínar, völlurinn góður og geysilega mikil stemning meðan á leiknum stóð. Hann sagðist ekki getað kvartað yfir neinu nema síðara markinu og bætti við að hann hefði vel getað sætt sig við eins marks tap. „Við byrjuðum leikinn mjög illa og áttum í miklum erfiðleikum með að halda boltanum innan liðsins og lentum í smá basli útaf því. Fengum á okkur mark eftir tuttugu mínút- ur, einfalt, fyrirgjöf og skot utan út teig. Þeir náðu að komast svolítið á bakvið okkur í fyrri hálfleik og við áttum í talsverðu basli með þá þó svo að þeir væru ekki að skapa sér mörg hættuleg færi.“ Síðustu 20 mínúturnar voru erfiðar FH-ingar voru varnarsinnaðari en oft áður í sumar og fóru var- færnislega í leikinn. Ólafur sagði hitann hafa dregið einhvern mátt úr leikmönnum en ekki þannig að það háði neinum. Hann sagði þó síðustu tuttugu mínúturnar hafa verið leik- mönnum erfiðar. „Seinna markið fengum við á okkur þegar þrjár mínútur voru komnar framyfir venjulegan leik- tíma og ég var náttúrulega mjög ósáttur með það. Eins marks tap hefði ekki verið ósanngjörn úrslit og ég hafði jafnvel verið sáttur með það. En það er hrikalega svekkj- andi að fá á sig mark á síðustu mín- útu og í svona keppni þá vegur það gríðarlega þungt og við gerðum okkur talsvert erfiðara fyrir í seinni leiknum,“ sagði Ólafur en horfði bjartsýnn á síðari leikinn á Kapla- krika eftir viku. „Þetta er sæmilega sterkt lið en ég vil meina að við eigum ágætis möguleika á móti þeim á okkar heimavelli. og að við eigum að geta unnið þá. En til þess að það gerist þarf margt að ganga upp hjá okkur. Við þurfum að sækja talsvert hrað- ar á þá og við verðum að skora mörk.“ Ólafur Jóhannesson, þjálfari FH Seinna markið var hrikalega svekkjandi „VIÐ vissum ágætlega mikið um þetta lið og vorum með upptöku af leik þeirra frá því um mánuði þannig að Neftchi kom okkur ekkert á óvart – það var ekki vandamálið,“ sagði Ólafur Jóhannesson, þjálf- ari FH, eftir fyrri leikinn gegn Neftchi frá Aserbaídsjan en Íslands- meistararnir töpuðu með tveimur mörkum gegn engu. Liðin mæt- ast öðru sinni á Kaplakrikavelli miðvikudaginn 20. júlí og ljóst er að þá verður róðurinn þungur hjá lærisveinum Ólafs. Þá verða FH- ingar að sýna allar sínar bestu hliðar og ekki mun duga neitt minna en þriggja marka sigur. Morgunblaðið/ÞÖK Atli Eðvaldsson mætti til leiks í gærkvöldi eftir rúmlega tveggja ára hlé frá þjálfun en hann tók við þjálfun Þróttar í vikunni og stýrði liðinu í fyrsta sinn gegn ÍA í Landsbankadeildinni í gær. Hér gefur Atli skipanir til sinna manna sem gerðu markalaust jafntefli við ÍA / C4. STJÓRN knattspyrnuliðs Þórs frá Akureyri hefur afráðið að skipta um þjálfara. Þeir Pétur Ólafsson og Júlíus Tryggva- son láta af störfum en við tek- ur Dragan Stojanovic. Hann er þjálfari 2. flokks félagsins ásamt því að hafa yfirumsjón með unglingaþjálfun þess. Gengi Þórs í sumar hefur verið undir væntingum og er liðið nú í sjöunda sæti eftir níu umferðir með ellefu stig, hef- ur unnið þrjá leiki, gert tvö jafntefli og tapað fjórum. Í þessum leikjum hefur liðið skorað fjórtán mörk en fengið á sig tuttugu og eitt. Þórsarar skipta um þjálfara

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.